30.11.2010 | 17:32
Fræga fólkið kemst á stjórnlagaþing
Þessi niðurstaða er áleitið umhugsunarefni fyrir okkur á landsbyggðinni og vekur spurningar um persónukjör og landið eitt kjördæmi - segir allt um hvernig slík kjördæmabreyting færi með landsbyggðina. Við þurfum að passa upp á það að landsbyggðin hafi hlutverk og stöðu. Mér finnst það lykilatriði að hún haldi sínu en glati ekki endanlega hlutverki sínu. Verði landið eitt kjördæmi færist kosningabaráttan á þá staði þar sem flest atkvæðin verða og hitt gleymist.
En já, þetta var fyrirsjáanleg upptalning á kjörnum fulltrúum. Nú er spurningin hvað kemur út úr þessari vinnu nema peningaaustur. Sjáum til.
![]() |
25 kjörin á stjórnlagaþing |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
27.11.2010 | 20:47
Þjóðin kýs ekki - feitt flopp vinstristjórnarinnar
Breytingar á stjórnarskrá fá ekki stuðning í dag. Þetta er ekki ástríðumál þjóðarinnar. Fólk er með hugann við annað. Það er stóra niðurstaða dagsins.
![]() |
Um 30% búin að kjósa |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.11.2010 | 14:59
Forkastanleg vinnubrögð á RÚV
Vinnubrögð við uppsögn Þórhalls Jósepssonar á fréttastofu Ríkisútvarpsins eru vægast sagt forkastanleg og stofnuninni til skammar. Þau vekja spurningar um geðþóttaákvarðanir Óðins Jónssonar, fréttastjóra, og yfirstjórnar Ríkisútvarpsins.
Er Þórhallur rekinn vegna þess að hann dirfðist að skrifa pólitíska sögu Árna M. Mathiesen anno 2008 en ekki stjórnmálamanns frá fyrri tíð? Er ekki sama um hvern hefði verið skrifað?
Óðinn Jónsson þarf að útskýra betur vinnubrögðin hjá Ríkisútvarpinu.
![]() |
Bókaskrif leiddu til uppsagnar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
8.11.2010 | 22:47
Trúðurinn í Ráðhúsinu
Mjög átakanlegt var að fylgjast með Jóni Gnarr, borgarstjóra, í Kastljósinu í kvöld. Brandarinn mikli sem fleytti þessum þekkta grínista til valda, sem táknmynd einhverra óljósra breytinga, er orðinn að drungalegri tragedíu. Þetta er ekki lengur fyndið. Borgarstjórinn hefur afhjúpað sig sem trúð, sem hvorki hefur þekkingu á málum né vit til að tjá sig um lykilmálefni stærsta sveitarfélags landsins á mjög erfiðum tímum.
Hann reynir nú að kreista brandarann eins og tannkremstúpu til að halda sér á floti, ýmist með því að vera nógu furðulegur og galinn til að virka örlítið fyndinn. Hann gerir grín að erfiðum niðurskurði og kastar stríðshanskanum í fólkið í borginni með því að tala enn um ísbjörn í Húsdýragarðinn.
Er þessum manni alvara? Þegar skorið er niður, fólk bíður í röðum eftir mat fyrir utan hjálparstofnanir og margir stefna í gjaldþrot á að fara að eyða fúlgu fjár í eitt stykki ísbjörn? Þetta lið er því miður ekki hæft til að leiða stærsta sveitarfélag landsins.
Samfylkingin með Dag B. Eggertsson ber mikla ábyrgð á því að halda þessari vitleysu áfram mikið lengur. Þeirra er ábyrgðin á þessum trúð sem veit ekkert í sinn haus.
![]() |
Geimvera í íslenskum stjórnmálum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |