31.12.2010 | 17:05
Áramótakveðja

Í þessari síðustu bloggfærslu minni á árinu 2010 vil ég færa lesendum vefsins og vinum mínum og kunningjum, nær og fjær, mínar innilegustu nýárskveðjur.
Ég óska ykkur farsældar á nýju ári og þakka samfylgdina á árinu sem er að líða. Kærar þakkir fyrir allt hið góða.
Hafið það gott á nýju ári - vonandi verður það okkur öllum gjöfult og gott!
nýárskveðjur frá Akureyri
Stefán Friðrik Stefánsson
Nú árið er liðið í aldanna skaut
og aldrei það kemur til baka,
nú gengin er sérhver þess gleði og þraut,
það gjörvallt er runnið á eilífðar braut,
en minning þess víst skal þó vaka.
En hvers er að minnast? Og hvað er það þá,
sem helst skal í minningu geyma?
Nú allt er á fljúgandi ferð liðið hjá,
það flestallt er horfið í gleymskunnar sjá.
En miskunnsemd Guðs má ei gleyma.
Hún birtist á vori sem vermandi sól,
sem vöxtur í sumarsins blíðum,
í næðingum haustsins sem skjöldur og skjól,
sem skínandi himinn og gleðirík jól
í vetrarins helkuldahríðum.
Hún birtist og reynist sem blessunarlind
á blíðunnar sólfagra degi,
hún birtist sem lækning við böli og synd,
hún birtist þó skærast sem frelsarans mynd,
er lýsir oss lífsins á vegi.
Nú Guði sé lof fyrir gleðilegt ár
og góðar og frjósamar tíðir,
og Guði sé lof, því að grædd urðu sár,
og Guði sé lof, því að dögg urðu tár.
Allt breyttist í blessun um síðir.
Ó, gef þú oss, Drottinn, enn gleðilegt ár
og góðar og blessaðar tíðir.
Gef himneska dögg gegnum harmanna tár,
gef himneskan frið fyrir lausnarans sár
og eilífan unað um síðir.
Valdimar Briem
29.12.2010 | 14:43
Dr. Gunnar Thoroddsen 100 ára
Í dag er öld liðin frá fæðingu dr. Gunnars Thoroddsens, fyrrverandi forsætisráðherra. Gunnar var samofinn valdaátökum og lykilstöðum innan Sjálfstæðisflokksins í áratugi - saga flokksins verður aldrei rituð án þess að nafn Gunnars verði þar ofarlega á blaði. Hann var einn af litríkustu og svipmestu pólitísku höfðingjum íslenskrar stjórnmálasögu. Gunnar starfaði ötullega innan flokksins allt frá unglingsárum til dauðadags, lengst af í forystusveit hans og með mikil völd.
Örlögin höguðu því þó þannig að á gamals aldri klauf hann sig frá vilja æðstu forystu Sjálfstæðisflokksins og hélt ásamt nánustu samherjum innan flokks til stjórnarmyndunar gegn vilja miðstjórnar, flokksráðs, landsfundar og þingflokks Sjálfstæðisflokksins. Gunnar var rómaður fyrir leiftrandi ræðusnilld og var í senn heillandi og óvæginn. Hann var ekki óvanur því að honum væri sótt en svaraði ávallt fyrir sig.
Síðustu dagana hef ég notið þess að lesa listilega skrifaða ævisögu dr. Gunnars, ritaða af Guðna Th. Jóhannessyni, á aldarafmælisári hans. Bókin er auðvitað saga stjórnmála í hálfa öld, svo samofinn var dr. Gunnar öllum helstu lykilatburðum stjórnmálasögu Sjálfstæðisflokksins og þjóðarinnar sem heildar, hvort heldur sem er í hlutverki ráðherra, varaformanns Sjálfstæðisflokksins og um síðir forsætisráðherra. Hann var á sviðinu áratugum saman.
Gunnar var tengdur á alla staði stjórnmálaáhrifa flokkskjarnans og var samofinn sögu hans í 55 ár. Hann ferðaðist með Jóni Þorlákssyni, fyrsta formanni flokksins, á fyrstu árum flokksins við að byggja undirstöður hans sem hins öfluga flokks í stjórnmálalitrófinu. Hann varð þingmaður fyrir Sjálfstæðisflokkinn í Mýrasýslu þegar árið 1934, þá á 24. aldursári. Enn í dag er Gunnar yngsti þingmaður Íslandssögunnar.
Allt frá byrjun þóttu örlög hans ráðin. Þar væri komin ein helsta vonarstjarna flokksins og framtíð hans yrði mörkuð pólitískum sigrum. Það fór enda svo að honum voru falin mikil verkefni og talsverð ábyrgð í flokkskjarnanum allt frá upphafi á unglingsárum. Aldrei náði hann þó því markmiði að verða formaður Sjálfstæðisflokksins né heldur varð hann forseti Íslands, eins og hann stefndi svo markvisst að. Ósigrar hans mörkuðu hann þó í baráttunni fyrir því að ná á tindinn.
Ævisaga Gunnars er merkilegt og heillandi rit. Hvort heldur við að rifja upp hversu einlægur Gunnar var í metnaði sínum eða sem stjórnmálasaga heillar þjóðar. Gunnar var töframaður í klækjum stjórnmála, baráttunni fyrir því að ná æðstu metorðum. Refskák stjórnmálanna lék enginn betur en dr. Gunnar sem náði æðstu metorðum með sögulegum hætti, með því að snúa á forystumenn eigin flokks með einni kænskustu atburðarás íslenskrar stjórnmálasögu.
Bestu kaflar ævisögunnar, að mínu mati, eru um forsetakjörið 1968, þar sem Gunnar átti sinn stærsta ósigur, stjórnarmyndunin 1980, hans pólitíska sigurstund þar sem sögulegur sess var endanlega tryggður, en ekki síður veikindasaga Gunnars undir lok ævinnar. Gunnar greindist með hvítblæði undir lok ársins 1982. Tókst honum að halda sjúkdómnum leyndum fyrir þjóðinni og mörgum af nánustu stuðningsmönnum sínum í marga mánuði.
Það er auðvitað stórmerkilegt að forsætisráðherra gæti leynt þjóðinni mánuðum saman því að hann væri sjúkur af hvítblæði. Hann hélt sínu striki í gegnum lyfjameðferð og erfitt veikindastríð. Vissulega er það mesti persónulegi sigur Gunnars að halda getað haldið áfram sínum störfum þrátt fyrir erfið veikindi mánuðum saman og sigla fleyinu, stjórn sinni - þó laskað væri og illa farið við leiðarlok, allt til loka kjörtímabils. En sú barátta tók á, eins og lýst er í bókinni. Og hann hélt áfram of lengi í raun.
Þessi saga er rakin vel og traust af Guðna Th. Sagan er skyldulesning fyrir alla sem hafa áhuga á stjórnmálum. Sögulegt mat á Gunnari er traust og pólitísk saga hans í umgjörð þeirri sem Guðni hefur unnið að er engu lík. Þetta er ein besta ævisaga síðustu ára eða áratuga. Bók sem enginn má láta framhjá sér fara.
Eins og fram kom í upphafi eru það orð að sönnu að saga Sjálfstæðisflokksins verður ekki rituð án þess að nafn Gunnars Thoroddsens verði þar áberandi. Gunnar lagði ævistarf sitt í það að efla Sjálfstæðisflokkinn. Endalok ferilsins voru vissulega söguleg og hann endaði í því merkilega hlutskipti að mynda stjórn án stuðnings flokksins, umdeildur og jafnvel hataður af fjölda flokksmanna fyrir verk sitt.
Það voru átakatímar og ferlinum lauk Gunnar með einum mesta hvelli íslenskrar stjórnmálasögu. En verk hans og forysta skiptu flokkinn máli. Hann var einn litríkasti forystumaður Sjálfstæðisflokksins og verðskuldar sögulegan sess í pólitískri sögu flokksins.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
24.12.2010 | 16:48
Jólakveðja
Ég færi lesendum vefsins, og vinum nær og fjær, innilegar óskir mínar um gleðilega og kærleiksríka jólahátíð. Hafið það öll sem best yfir hátíðirnar.
jólakveðja frá Akureyri
Stefán Friðrik Stefánsson
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.12.2010 | 18:34
Vinstristjórn á síðasta snúningi

Ansi er nú skondið að fylgjast með vandlætingu Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra, og þingmanna Samfylkingarinnar á framgöngu þremenninganna í VG í afgreiðslu fjárlagafrumvarpsins. Sérstaklega er ómerkilegt hvernig sumir á þeim bænum níðast á Lilju Mósesdóttur. Þær árásir eru varla málefnalegar í ljósi þess að formaður Samfylkingarinnar ástundaði sömu vinnubrögð árum saman.
Lilja er ekki meiri villiköttur en Jóhanna Sigurðardóttir var sem ráðherra í fjárlagavinnu allra ríkisstjórna sem hún sat í meðan hún var félagsmálaráðherra fyrra skiptið 1987-1994. Þá skellti hún hurðum og hótaði öllu illu ef hún fékk ekki það sem hún vildi. Á tímum hætti hún að mæta á ríkisstjórnarfundi og hún hótaði því að styðja ekki fjárlagafrumvarp nema að uppfylltum skilyrðum.
Skopmynd Sigmunds Jóhannssonar segir allt sem segja þarf um framgöngu Jóhönnu. Annars er þetta bras með þrjá stjórnarliða fjarri því stórtíðindi að mínu mati. Þessi ríkisstjórn hefur verið minnihlutastjórn varin af órólegu deildinni í VG nær allt þetta kjörtímabil. Skilin urðu með Icesave-samningunum sumarið 2009, þegar ekki var þingmeirihluti til staðar á örlagastundu.
Afsögn Ögmundar og önnur áföll komu í kjölfarið. Í raun hefur þessi stjórn aðeins haldið velli vegna þess að enginn einn þingmaður vill drepa fyrstu tæru vinstristjórn lýðveldissögunnar. En brátt kemur að því að þetta verður ekki starfhæft. Við bíðum áhugasöm eftir því að Katrín Jakobsdóttir fari í fæðingarorlof og Guðfríður Lilja komi úr fæðingarorlofi.
Hvernig ætlar Steingrímur J. að ganga framhjá Guðfríði Lilju, leiðtoga flokksins í kraganum, við val á nýjum menntamálaráðherra? Ekki mun stemmningin batna á þessum bæ ef gengið verður framhjá henni við ráðherraval. Verður þá starfhæfur meirihluti? Þá ræður heiðurslistamaðurinn, sem leikur sinn stærsta leiksigur í hlutverki 32. þingmanns vinstristjórnar.
Skondið. Ætli völvan þurfi nokkuð að hafa fyrir því að spá ófriði á þessu stjórnarheimili þar sem hver höndin er upp á móti annarri á aðventunni. Eitt er þó fyndnara en annað. Óeiningin og hatrið milli manna innan VG beinir kastljósinu frá stóru spurningunni.
Hver verður næsti formaður Samfylkingarinnar? Á þeim bænum er örugglega verið að ráða örlögum þeirrar spurningar, enda Jóhanna komin fram yfir síðasta söludag.
![]() |
Stöðugir níðpóstar um Lilju |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |