10.5.2007 | 00:59
Snörp, vönduð og lífleg leiðtogaumræða á Stöð 2
Mér fannst Geir H. Haarde og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir bera af í þessum þætti. Geir er að taka kosningabaráttuna með traustu yfirbragði, spilar sig safe, enda getur hann gert það, hann hefur langan stjórnmálaferil að baki og hefur traust yfirbragð manns með mikla þekkingu á málum og hefur flokkinn sterkan að baki sér. Ingibjörgu Sólrúnu hafa verið mislagðar hendur víða eftir að hún missti fótanna í borgarstjórastólnum fyrir fjórum árum og komst ekki á þing en hún hefur verið að styrkjast eftir landsfund Samfylkingarinnar.
Áberandi verstir í kvöld miðað við hina voru Jón Sigurðsson og Guðjón Arnar Kristjánsson. Er þá ekki þar með sagt að þeir hafi verið afleitir. Þeir voru einfaldlega ekki að glansa í gegnum kvöldið. Mér finnst Jón enn vera of embættismannalegur. Hann hefur reyndar lagast mikið í gegnum kosningabaráttuna. Það vantaði þó sóknarkraftinn, þorstann í að slá flugur til að ná því breakthrough-i sem flokkinn og hann vantar. Kannanir sýna misvísandi stöðu en enn vantar eitthvað hjá Jóni. Guðjón Arnar er eins og hann er, hann sló ekki margar flugur í jafnréttisumræðunni.
Umhverfispostularnir sjálfskipuðu Steingrímur J. og Ómar eru þá enn eftir. Mér finnst Steingrímur J. leiftrandi mælskur og skemmtilegur. Seint verð ég sammála sem hann segir en mér finnst hann mjög kraftmikill í sínum skoðunum og það er ekkert hik á honum. Hann er eins og Geir vintage-stjórnmálamaður; reyndur, traustur og ákveðinn. Hann hefur mikla reynslu fram að færa og það skilar sér. Ómar er nýr í bransanum en fullur eldmóðs, kannski á tíðum of miklum. Samt stundum gaman af honum. Við sem ólumst upp við barnaplötur hans eigum erfitt með að gagnrýna hann, en hann er samt ekki stjórnmálamaður í huga mér.
Það sem var mest áhugavert í þessum þætti var one-on-one spjallið milli leiðtoga og spyrils. Mjög flott hjá Stöð 2. Fimm mínútur gefnar - spurningaflóð sett á og leiðtoginn kominn under heat. Hef oft séð svona session erlendis, þetta er snarpt, flott og lifandi spjall. Þarna reynir á leiðtogann alla leið. Mér fannst leiðtogarnir flestir vera bestir í einmitt þessum hluta. Ómar kom mun betur út þarna en í spjallinu. Þessar fimm mínútur gáfu áhorfandanum næringarríkari og betri svör í þankann um hvað ætti að kjósa en fuglabjargstalið þar sem allir vilja tala ofan í næsta mann.
Semsagt; skemmtilegt kvöld á Stöð 2. Flottar umræður, sem skiluðu sér vel til áhorfandans. Mjög glæsilegt prógramm þarna á ferðinni. Stöð 2 getur verið stolt af umbúnaði sínum utan um kosningaumfjöllunina. Það stefnir flest í að Stöð 2 taki RÚV í grafíkinni. Gríðarlega flott og greinilega sett upp að breskri fyrirmynd. Þeir eru frábærir í þessum bransa tjallarnir, sást mjög vel t.d. um daginn á kosningavöku Sky og BBC vegna byggðakosninganna um daginn.
Það var áhugavert að fá enn eina könnun. Hún sýnir okkur enn einar vísbendingarnar í stöðuna. Les það helst út úr henni að möguleikinn á vinstristjórn hefur aukist. Það er samt allt opið í stöðunni og spennan að verða ansi óbærileg vegna helgarinnar. Þetta munu verða líflegar kosningar þar sem úrslit ráðast jafnvel ekki fyrr en undir morgun með lykilstöðu. Helst verður horft á hvort að stjórnin sé feig eður ei. Kannanir gefa misvísandi myndir af því sem er að gerast. Það verður spurt að leikslokum.
En enn og aftur hrós til Stöðvar 2. Líst vel á það sem þeir eru að gera og finnst umfjöllun þeirra utan um kosningarnar mjög vönduð og vel gerð.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 01:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
9.5.2007 | 23:48
3 dagar: pælingar um stöðuna í Norðaustri
Það sem mér sem Akureyringi finnst mest gaman af að fylgjast með er framganga Akureyringanna í baráttusætum. Ég sagði það nú við einn speking að helst vildi ég fá þau öll inn á þing; Valda, Höskuld og Láru. Ég tel þau öll hið mætasta fólk. Sérstaklega finnst mér þó mikilvægt að reyna að tryggja kjör Valda. Ég hef unnið með honum í flokksstarfinu hér á Akureyri árum saman. Þar hef ég kynnst heilsteyptum, traustum og vönduðum manni sem ætíð er hægt að stóla á. Það væri glæsilegt næði hann kjöri og við sjálfstæðismenn næðum tveim Akureyringum á þing.
Það er mikilvægt að Akureyringar komist á þing. Okkar hlutur hefur verið dapur á þessu kjörtímabili. Síðan að Tómas Ingi Olrich sagði af sér þingmennsku og hætti sem ráðherra hefur mér þótt hlutur Akureyrar fyrir borð borinn og okkar staða afleit. Í ljósi alls þessa var glæsilegt fyrir okkur sjálfstæðismenn á Akureyri að Kristján Þór Júlíusson var kjörinn kjördæmaleiðtogi okkar. Það var mikilvægt að fá öflugan fulltrúa Akureyrar í frontinn. Okkur er líka mikilvægt að hafa konur að austan, sterka fulltrúa svæðanna þar. Við erum með tvær konur öruggar inn. Það er sterkt!
Það verður horft hér á Akureyri hversu margir Akureyringar nái inn á þing. Þess þá sterkari verður okkar hlutur. Þegar að ég lít yfir frambjóðendaskarann sé ég mér ekki fært að tala gegn Akureyringunum. Höskuldur er mjög traustur og góður maður, hefur góðar tengingar og styrkleika, er hógvær og heilsteyptur, Lára er góð vinkona mín, heilsteypt og góð, manneskja sem talar hreint út um mál. Hún stóð nærri þingsæti síðast en sá það fara til Birkis Jóns á blálokum talningar. Það hlýtur að hafa verið sárt. Það er gaman að mælast inni en enn verra að missa þingsætið.
Valdi er yfirburðarmaður. Ég vil tryggja mitt lóð á vogarskálar þess að hann fari inn. Fyrir því tala ég vegna vináttu okkar, vegna þess að ég veit að hann er öflugur verkamaður heilsteyptra verka og öflugur talsmaður góðs málstaðar. Þegar að Valdi tók sjötta sætið á listanum fyrir fjórum árum fannst mér hann standa sig vel, miðað við að vera algjörlega nýr í pólitík. Hann hefur verið mun meira áberandi í slagnum nú.
Á laugardag ráðast örlög þessara frambjóðenda. Það hefur verið stór blettur að mínu mati hversu rýr hlutur Akureyrar hefur verið á Alþingi í fjögur ár. Vonandi mun það breytast með áberandi hætti á laugardaginn með atkvæði fólks. Það verður áhugavert að sjá hvernig fer. Ég er þess fullviss að fleiri Akureyringar fari inn á þing en Kristján Þór Júlíusson, fyrrum bæjarstjóri. Vel verður fylgst með því hverjir það verði.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
9.5.2007 | 22:16
Tony Blair segir af sér á morgun

Leiðtogaslagur hefst í Verkamannaflokknum með formlegri afsögn forsætisráðherrans af leiðtogastóli. Leiðtogaslagurinn mun skv. flokksreglum taka sjö vikur. Öruggt er orðið að Gordon Brown, fjármálaráðherra, verður næsti leiðtogi Verkamannaflokksins og tekur við forsætisráðherraembættinu í síðasta lagi í júlí. Ljóst er að enginn sitjandi ráðherra úr hinum svokallaða Blair-armi muni skora Brown á hólm. Tveir þingmenn flokksins úr vinstriarminum hafa talað um leiðtogaframboð og reynir á það innan nokkurra daga hvort þeir fari fram.
Tony Blair hefur verið leiðtogi breska Verkamannaflokksins síðan í júlí 1994. Hann var kjörinn flokksleiðtogi í stað John Smith, sem varð bráðkvaddur 12. maí 1994, en Smith hafði tekið við leiðtogahlutverkinu af Neil Kinnock eftir hið óvænta og skaðlega tap flokksins í þingkosningunum 1992. Blair byggði New Labour til valda í breskum stjórnmálum, konseptið var jafnaðarmannaflokkur á miðjunni. Flokkurinn vann afgerandi og um leið sögulegan sigur í þingkosningum 1. maí 1997 og batt enda á átján ára stjórnartíð Íhaldsflokksins. Blair fagnaði áratug við völd fyrir aðeins rúmri viku, 2. maí sl.
Það verða þáttaskil með brotthvarfi Tony Blair úr breskum stjórnmálum. Hann hefur haft gríðarleg áhrif á litríkum stjórnmálaferli. Hann leiddi Verkamannaflokkinn til þriggja kosningasigra, allra mjög eftirminnilegra í breskum stjórnmálum - hann var dómínerandi leiðtogi jafnaðarmanna og framan af leiðarljós þeirra í allri Evrópu í raun. Sú stjarna hefur hnigið þó mjög eftir upphaf Íraksstríðsins. Blair hefur verið kraftaverkamaður í pólitík. Oft hefur hann staðið tæpt og alltaf komið standandi niður frá vondri stöðu.
En nú er komið að leiðarlokum. Nú fer sviðsljósið frá leiðtoganum sigursæla og dómínerandi stöðu hans yfir á leiðtogakjör í Verkamannaflokknum. Brátt verða svo húsbóndaskipti í Downingstræti 10. Baktjaldamaðurinn mikli, Gordon Brown, verður brátt einn valdamesti maður heims, lykilmaður á vettvangi stjórnmálanna. Enginn vafi er á því að hann tekur við af Blair, hann mun reyna að tryggja Verkamannaflokknum fjórða sigurinn, möguleikann á áframhaldandi völdum. Það eru spennandi tímar framundan í breskum stjórnmálum.
9.5.2007 | 19:48
Silvía Nótt geispar golunni

Í skrifunum hér gleymdi ég reyndar að benda á að viðtalið var ekki bara við hana, heldur ennfremur við Gauk Úlfarsson, bloggvin minn, sem hefur verið nátengdur karakternum frá byrjun. Gaukur á svo sannarlega varla síðri þátt í uppbyggingu Silvíu en Ágústa Eva.
Það er auðvitað svo að þessi karakter hefur verið kostulegur, hún hefur stuðað og hún hefur heillað. Fannst þetta þó fara frekar langt þegar að Silvía Nótt var farin að heimsækja Moggabloggarana, slapp ég reyndar við slíka heimsókn merkilegt nokk, en sumir hér voru argir yfir athyglinni sem glamúrgellan sýndi bloggsamfélaginu.
Mér finnst Ágústa Eva og Gaukur hafa unnið merkilegt afrek með þessum karakter. Þrátt fyrir hæðir og lægðir stendur eftir að þetta var stuðandi karakter, hún vakti athygli og hún gleymist ekki. En það var eflaust komið nóg af þessum leik. Þetta gekk reyndar alveg ótrúlega lengi. Eurovision-sigurgangan var hápunkturinn og botninn eins og ég hef svo oft sagt. En kannski hefði þetta ævintýri aðeins verið svipur hjá sjón án þess.
En ég má til með að minnast á verk Gauks í karakternum, enda átti hann stóran hluta þess hvernig gekk hjá Silvíu. Ef marka má komment þeirra sem kommentuðu um skrifin hér sakna menn varla Silvíu Nætur. Hún var búin með sitt kapítal greinilega og flestum fannst ævintýrið orðið nóg af hinu góða... eða vonda. Eftir stendur leikkona með tækifæri og sambönd, sem hún hafði ekki áður.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
9.5.2007 | 17:31
Áhugaverð gagnvirk stjórnmálakönnun á netinu
Ég ákvað að svara spurningunum og fékk þetta út úr því:
Stuðningur við Sjálfstæðisflokk: 87.5%
Stuðningur við Framsóknarflokk: 40%
Stuðningur við Samfylkinguna: 37.5%
Stuðningur við Vinstri-Græna: 12.5%
Stuðningur við Frjálslynda flokkinn: 43%
Stuðningur við Íslandshreyfinguna: 50%
Skoðanir þínar eru í mestu samræmi við skoðanir Sjálfstæðisflokksins!
Það hefur aldrei leikið mikill vafi á því hvað ég muni kjósa á laugardaginn og ekki varð þessi könnun til að sýna mér fram á annað en að ég væri búinn að ákveða rétt.
9.5.2007 | 16:22
Reykjavík norður

Reykjavíkurkjördæmi norður er eitt fjölmennasta kjördæmi landsins. Það nær yfir norðanverða Hringbraut, gömlu Hringbraut, Miklubraut, Vesturlandsveg og Kjalarnes. Reykjavík norður er helmingur höfuðborgarinnar og er því að upplagi mynduð í kjördæmabreytingunni árið 2000 úr Reykjavíkurkjördæmi. Eina breytingin var þó sú auðvitað að borginni var skipt upp í tvö kjördæm til að jafna vægi atkvæða umtalsvert.
Á kjörtímabilinu hafa þingmenn kjördæmisins verið 11 talsins; níu kjördæmasæti og tvö jöfnunarsæti. Á því verður engin breyting í kosningunum þann 12. maí.
Umfjöllun um Reykjavíkurkjördæmi norður
Ég vil þakka lesendum þessara pistla kærlega fyrir góð orð um þá til mín í póstum. Met það mikils. Þess má geta að þessir pistlar voru allir samdir fyrir um tíu dögum en hafa verið í vinnslu svosem til enda og birtingardags. Það er ánægjulegt ef einhverjir hafa gagn og gaman af þessari samantekt.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
9.5.2007 | 13:34
Framsókn í sókn - mikil spenna á lokasprettinum

Fylgi VG, Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks dalar umtalsvert milli daga í raðkönnun Gallups. Kannanir verða birtar alla virka daga fram til alþingiskosninganna á laugardag og ramma inn vikuna á föstudag í síðustu skoðanakönnun Gallups fyrir kosningar. Fylgi VG heldur sífellt áfram að minnka og mælist nú aðeins 14,5%, tveim prósentustigum meira en í gær og eru aðeins níu menn inni í nafni flokksins, aðeins fjórum fleiri en komust á þing í kosningunum 2003. Þetta er mikið fall fyrir VG frá fyrri könnunum en hæst fóru þeir í tæp 28% í mars.
Samfylkingin er aftur að tapa fylgi eftir stökk síðustu dagana - mælist með 25% og 17 alþingismenn, þó aðeins þrem færri en í kosningunum 2003. Sjálfstæðisflokkurinn mælist með 35,9% og 24 alþingismenn - tveim fleirum en í kosningunum 2003 og rúmum tveim prósentustigum yfir kjörfylginu þá. Þetta er nokkuð fall milli daga hinsvegar hjá Sjálfstæðisflokknum í raðkönnun Gallups. Hann hefur misst sjö prósentustig á þessum tveim dögum og virðist vera að missa fylgi til Framsóknarflokksins. Þessi sveifla er með kostulegasta sem maður sér og ef þetta gengur eftir mun þessi uppsveifla Framsóknar jafnvel verða enn eftirminnilegri en 2003.
Framsóknarflokkurinn mælist með heil 14,6% - það er aðeins þrem prósentustigum undir kjörfylginu, þingmennirnir mælast núna níu, aðeins þrem færri en í kosningunum 2003. Þetta er besta könnun Framsóknarflokksins á formannsferli Jóns Sigurðssonar, sem hefur ekki alltaf átt sjö dagana sæla sem formaður frá því að Halldór Ásgrímsson yfirgaf forystu flokksins. Þetta er besta könnun Framsóiknarflokksins á þessu kjörtímabili. Man ekki betri könnun fyrir þá árum saman. Vonir þeirra vaxa. Frjálslyndi flokkurinn er að mælast með 6,6% og fjóra þingmenn, standa nærri kjörfylgi og eru með sama fjölda og eftir kosningarnar 2003.
Staðan er mjög spennandi. Óvissan um hvað gerist á laugardaginn eykst enn eftir því sem sveiflurnar verða meiri. Fylgið er svo sannarlega á fleygiferð. Ríkisstjórnin heldur naumlega velli í þessari könnun, hefur 33 þingsæti. Framsókn hefur níu þingmenn og Sjálfstæðisflokkurinn 24 þingmenn. Þetta eru miklar sveiflur milli daga en stjórnin stendur mun betur að vígi í dag, enda var hún mæld fallin í gær.
Það eru aðeins þrír dagar til alþingiskosninga. Þetta verða dagar spennu og pólitískra átaka - það er barist um hvert atkvæði. Uppsveifla Framsóknarflokksins milli daga er með hreinum ólíkindum. Er Framsókn að leika eftir afrekið mikla vorið 2003? Verður Jón Sigurðsson eftir allt saman sigurvegari og gerir það sem flestum þótti fyrir aðeins nokkrum dögum óhugsandi? - að sigla framsóknarfleyinu heilu i land? Það verður fróðlegt að sjá.
Mjög margir eru þó enn óákveðnir. Þeir ráða örlögum frambjóðenda, flokka og formanna þeirra á laugardaginn. Þetta verða líflegir þrír sólarhringar, svo mikið má allavega segja!
![]() |
Fylgi Framsóknarflokksins tekur stökk |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
8.5.2007 | 23:57
4 dagar: pælingar um stöðuna í Norðaustri
Mér fannst miklu meira fútt í seinni hlutanum. Þar voru fjórir flokksleiðtogar í Norðausturkjördæmi í frontinum; Kristján Þór, Valgerður, Kristján Möller og Sigurjón Þórðar. Auk þeirra voru þarna Guðfríður Lilja og Ásta Þorleifs. Áhugavert að heyra skoðanir þeirra. Sérstaklega mikilvægt að heyra skoðanir um álver við Bakka. Það er mjög mikilvæg framkvæmd fyrir íbúa í norðanverðum hluta þessa kjördæmis. Það er með réttu aðalkosningamálið víða, einkum skiptir máli fyrir Þingeyinga að þeir fái að nýta orku sína með þessum hætti.
Þetta mikilvæga mál þarf að ræða vel og nauðsynlegt að fara hringinn og fá skýr svör. Með réttu ætti að halda íbúakosningu í Norðurþingi um þetta mikilvæga mál. Það er talað fjálglega um íbúalýðræði og mikilvægi þess. Mér finnst oft vinstri grænir vilja skakkt íbúalýðræði; þ.e.a.s. kosningar sem falla bara eftir þeirra skoðunum. Enda má ekki gleyma því að vinstri grænir í Hafnarfirði og fleiri reyndar töluðu með þeim hætti að það skipti í sjálfu sér engu máli hvað upp úr kössunum kæmi; samt yrði nei ofan á varðandi stækkun álvers Alcan.
Vinstri grænir og Íslandshreyfing eru blanko í atvinnumálum. Steingrímur J. hefur verið tómur hvað þau mál varðar er spurt er um það hér í Norðaustri þessar örlagaríku pólitísku vikur um hvað eigi að gera á Húsavík ef þessi innspýting eigi ekki að koma. Það er bara sagt pass. Það gerðist líka í kvöld. Gott og vel, þau mega hafa vissulega hafa þá skoðun. En þetta er óábyrgt. Þetta tóma spil er blanko í gegn hjá vinstri grænum. Til þess að geta talið upp einhverja atvinnuuppbyggingu á svæðinu taldi Steingrímur J. upp bjórverksmiðju, mjög glæsilegt fjölskylduframtak á Árskógssandi, en bíddu nú við, var ekki Steingrímur J. á móti bjórnum?
Það stefnir í spennandi kosningar hér. Við fáum væntanlega ekki fleiri kjördæmakannanir. Það er unnið vel hjá öllum flokkum. Það er spenna yfir stöðunni og fáir sem vita hvað kemur upp úr kössum á laugardag og aðfararnótt sunnudags, en hér liggja úrslit varla fyrir fyrr en undir morgun í síðasta
lagi. Ég lít svo á að atvinnu- og samgöngumál séu hér lykilmál. Staða mála á Húsavík verður lykilmál. Það sjá allir. Sumir hafa skýra stefnu varðandi það hvað eigi að gerast þar, aðrir segja pass.
Vonandi munu pass-flokkarnir í atvinnumálum og uppbyggingu svæðanna hér ekki fá góða kosningu hér í Norðausturkjördæmi á laugardag. Ég stóla sérstaklega á það að Þingeyingar og íbúar á öllu kjördæmissvæðinu hugsi þau mál vel áður en kosið er hvert skal stefna til framtíðar miðað við svör á Egilsstöðum í kvöld um framtíðarmöguleikana miklu við Bakka. Þeir skipta mjög miklu máli. Stöndum vörð um framtíð þessa svæðis með afgerandi hætti!
8.5.2007 | 23:24
Styttist í stóru stundina hjá Eiríki í Helsinki

Það er mikil spenna meðal landsmanna vegna keppninnar. Það er mikill meðbyr með Eiríki hérna heima, þjóðin stendur þétt að baki hans. Það er nú oftast nær auðvitað að þjóðin styður söngvarann í keppninni alla leið. Þó finnst mér orðið nokkuð síðan að maður hefur fundið svona sterkan byr með íslenska flytjandanum í keppninni. Silvía Nótt var umdeild hérna heima en Selma var vinsæl og það voru þjóðinni þegar að hún komst ekki áfram, hafandi orðið önnur í Jerúsalem 1999.
Fimmtudagskvöldið verður mikið partýkvöld. Alveg óhætt að segja það. Við ætlum að vera með fjölskyldupartý á fimmtudaginn og hafa gaman af þessu. Það verður klárlega annaðhvort þjóðargleði eða þjóðarsorg eftir keppnina, ekkert millibil þar á. Vonandi kemst Eiríkur áfram. Bundnar eru allavega miklar vonir við það í Helsinki að hann nái áfram.
Vonum það besta bara. Annars höfum við oftast nær gert okkur miklar væntingar og oftar en ekki orðið fyrir vonbrigðum. Vonandi verða ekki vonbrigði þetta árið. Farmiði á úrslitakvöldið er aðalmarkmiðið auðvitað. Allt annað er og verður talið stórsigur í stöðunni, enda er botnsaga okkar í keppninni orðin löng og erfið, allt frá því að Birgitta náði inn á topp tíu og brilleraði í Riga. Síðan hefur þetta verið þrusubotn.
![]() |
Slegist um Eirík í Helsinki |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Tónlist | Breytt s.d. kl. 23:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.5.2007 | 22:46
Árás á bloggsíðu
Það er miður að sjá þessa aðför að blogginu hans, því að Halli hefur verið ötull baráttumaður fyrir réttindum ólíkra hópa hér í þjóðfélaginu. Einnig er skondið að hann sé úthúðaður sem rasisti út af þessu máli því svo vill nú til að eiginkona hans er af erlendu bergi brotin.
Það er mjög leitt þegar að misnotkun á sér stað undir nafni annarra. Það hefur einnig hent mig að óprúttnir aðilar hafi loggað sig inn á spjallvefi undir mínu nafni og verið að skrifa eitthvað í mínu nafni sem ég vil ekki kannast við og reynt hafi verið með því að ráðast að nafni mínu.
Það er ömurlegt að verða vitni að slíku.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 22:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
8.5.2007 | 18:25
Suðvesturkjördæmi

Suðvesturkjördæmi er fjölmennasta kjördæmi landsins. Það nær yfir Hafnarfjörð, Garðabæ, Kópavog, Bessastaðahrepp, Seltjarnarnes, Mosfellsbæ og Kjósarhrepp. Suðvesturkjördæmi er að upplagi myndað í kjördæmabreytingunni árið 2000 úr Reykjaneskjördæmi. Eina breytingin var þó sú að Reykjanesskaginn sjálfur sem tilheyrði Reykjaneskjördæmi færðist yfir í Suðurkjördæmi.
Á kjörtímabilinu hafa þingmenn kjördæmisins verið 11 talsins; níu kjördæmasæti og tvö jöfnunarsæti. Á því verður sú breyting að eitt kjördæmasæti færist frá Norðvesturkjördæmi í Suðvesturkjördæmi frá og með 12. maí. Á næsta kjörtímabili verða því 10 kjördæmasæti og 2 jöfnunarsæti í Kraganum.
Umfjöllun um Suðvesturkjördæmi
8.5.2007 | 16:12
Verður Jón H.B. Snorrason ríkissaksóknari?

Það er athyglisvert að lesa kjaftasögur á netinu um skipun í þessa stöðu. Einn umsækjandi hefur dregið umsókn sína til baka og ýmsar sögur ganga um það og eru áberandi í bloggsamfélaginu.
Það heyrist að fresta eigi að skipa í embættið fram í næstu viku. Það verður fróðlegt að sjá hver verða lok þessa máls og hver hljóti embættið.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
8.5.2007 | 14:17
Framsókn og Samfylking hækka - fylgið á fleygiferð
Mikil fleygiferð virðist vera á fylgi stjórnmálaflokkanna skv. nýjustu raðkönnun Gallups sem birt var fyrir stundu. Fylgi bæði Framsóknarflokks og Samfylkingar hækkar um tvö prósentustig og Sjálfstæðisflokkurinn missir þrjú prósentustig frá fyrstu raðkönnuninni, sem birtist í gær. Kannanir verða birtar alla virka daga fram til alþingiskosninganna á laugardag og ramma inn vikuna á föstudag í síðustu skoðanakönnun Gallups fyrir kosningar.
Fylgi VG heldur sífellt áfram að minnka og mælist nú aðeins 16,5% og er ellefti maður VG orðinn tæpur. Þetta er mikið fall fyrir VG frá fyrri könnunum en hæst fóru þeir í tæp 28% í mars. Þeir toppuðu semsagt á vitlausum tíma. Hinsvegar er VG auðvitað að bæta stórlega við sig frá kosningunum 2003 og bætir við sig sex þingmönnum í þessari könnun frá þeim tíma. Samfylkingin er að bæta við sig á lokasprettinum - mælist með 27,1% og 18 alþingismenn, aðeins tveim færri en í kosningunum 2003. Samfylkingin nálgast óðfluga kjörfylgið 2003 semsagt.
Sjálfstæðisflokkurinn mælist með 38,4% og 25 alþingismenn - þrem fleirum en í kosningunum 2003 og fimm prósentustigum yfir kjörfylginu þá. Þetta er nokkuð fall milli daga hinsvegar hjá Sjálfstæðisflokknum í raðkönnun Gallups. Framsóknarflokkurinn mælist með 9,8% - það er átta prósentustigum undir kjörfylginu, þingmennirnir mælast aðeins sex, en það er sú tala sem mest hefur fylgt þeim í gegnum kosningabaráttuna. Það yrði tap upp á sex þingmenn. Þetta er tveim prósentustigum yfir stöðunni í gær. Frjálslyndi flokkurinn er að mælast með 5,3% og fjóra þingmenn, einum færri en í kosningunum 2003. Frjálslyndir missa 0,7% milli daga.
Staðan er mjög spennandi. Óvissan um hvað gerist á laugardaginn er mjög mikil. Fylgið er á fleygiferð. Ríkisstjórnin mælist naumlega fallin í þessari könnun. Hún hefði 31 þingsæti og væri því úr sögunni auðvitað færi þetta svona. Þetta eru miklar sveiflur milli daga allavega.
Það eru aðeins fjórir dagar til alþingiskosninga. Þetta verða dagar spennu og pólitískra átaka - það er barist um hvert atkvæði. Mjög margir eru enn óákveðnir. Þeir ráða örlögum frambjóðenda á laugardaginn. Þetta verður áhugaverður lokasprettur svo sannarlega.
![]() |
Fylgi Samfylkingar og Framsóknarflokks eykst |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
8.5.2007 | 11:18
Skaðar Jónínumálið Framsóknarflokkinn?

Könnunin var það vond að gangi eitthvað viðlíka eftir yrði flokkurinn að byggja sig upp nær frá grunni. Spjótin hafa vissulega staðið á Framsóknarflokknum úr mörgum áttum. Hinsvegar finn ég á þeim framsóknarmönnum sem ég þekki að þeir töldu að landið væri að rísa, sérstaklega hér í Norðaustri, botninum væri náð og nú myndi flokkurinn landa vænlegri, ekki ákjósanlegri en þolanlegri tveggja stafa prósentutölu.
Þessi könnun gerði nær út af við vænlega fylgismælingu en spurt er þó vissulega hvernig muni að lokum fara. Stóru tíðindin í gær eru þau að Framsókn horfist raunverulega í augu við það að þurrkast út á höfuðborgarsvæðinu. Ég tel að það muni nú ekki gerast en möguleikinn á því er þó mun meira til staðar nú en fyrir fjórum árum. Lokasprettur Framsóknar í kosningabaráttunni 2003 var ævintýralega góður. Það stefnir þó ekkert í að það afrek verði endurtekið.
Á laugardag ráðast örlög Framsóknarflokksins, hvort að hann verði áfram flokkur valda og áhrifa eða fari í pólitíska endurhæfingu. Ekkert eitt mál hefur verið meira rætt síðustu dagana en Jónínumálið. Ekki veit ég hvort það sé ástæða þess að fylgið hrynur aftur af Framsóknarflokknum en ansi er það nú líklegt.
8.5.2007 | 01:45
Kristján Þór telur stuðning við Íraksstríðið mistök
Kristján Þór Júlíusson, leiðtogi Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi, ítrekaði þá skoðun sína á framboðsfundi á Akureyri í kvöld að Davíð Oddsson og Halldór Ásgrímsson hefðu sem formenn stjórnarflokkanna gert mistök með aðild Íslands að innrásinni í Írak árið 2003. Þessi skoðun Kristjáns Þórs er ekki ný. Hann kom henni vel á framfæri í aðdraganda prófkjörs Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi í nóvember 2006. Vakti afgerandi afstaða hans í málinu mikla athygli langt út fyrir kjördæmið.
Það var rætt um Íraksmálið í kvöld á þessum fundi. Eftir fjögurra ára átök í Írak er erfitt að halda því fram að árangur hafi náðst þar, nema þá verulega takmarkaður. Það er vissulega sorglegt. Sjálfur tel ég og hef gert um nokkuð skeið að þessi stuðningur hafi verið mistök, en á grundvelli þess sem þá lá fyrir mögulega ekki. Það er alveg ljóst að gögnin sem Bandaríkjamenn birtu á þessum tíma héldu ekki vatni og það er og verður alla tíð metið stóralvarlegt mál.
Valgerður Sverrisdóttir, utanríkisráðherra, var afgerandi fulltrúi ríkisstjórnarinnar á framboðsfundinum á Akureyri í kvöld, enda er Kristján Þór ekki enn orðinn þingmaður og hans staða er því mun opnari en Valgerðar sem var þingflokksformaður Framsóknarflokksins 1995-1999 og verið ráðherra í lykilmálaflokkum frá 1999. Hún er mun tengdari málinu sem ráðherra á þeim tíma og Íraksstríðið hófst. Valgerður gekk ekki eins langt og Kristján Þór en fór samt nærri því að meta stuðninginn mistök þó orðalagið væri hóflegra.
Ákvörðun um það sem gerðist í ríkisstjórn og meðal formanna stjórnarflokkanna vorið 2003 flokkast undir sagnfræði nú orðið. Það er bara þannig. Það sem þar var ákveðið verður ekki aftur tekið. Það er mjög athyglisvert að heyra umræðu um þetta nú og sérstaklega afgerandi ummæli forystumanna innan stjórnarflokkanna. Þar er mismikið hik þó á mönnum í eldlínu stjórnmálanna.
Kristján Þór Júlíusson hefur væntanlega gengið lengst sjálfstæðismanna í að tala gegn ákvörðunum þessa vors, í aðdraganda þingkosninganna 2003 og hefur ekki hikað við að taka afstöðu gegn flokkslínum, jafnvel á málum sem hafa verið umdeild. Það sýnir styrk hans sem leiðtoga á lokaspretti kosningabaráttunnar.
7.5.2007 | 23:56
5 dagar: pælingar um stöðuna í Norðaustri
Vonandi fækkaði óákveðnum hér við að horfa á þennan þátt. Persónulega fannst mér þetta allavega áhugaverð skoðanaskipti. Þetta var auðvitað hefðbundið karp milli leiðtoganna um málefnin. Steingrímur J. og Valgerður tókust á með hefðbundnum hætti um lykilmálin, sérstaklega álversmálin við Bakka. Sigurjón hjólaði í Valgerði fyrir ýmsa hluti og var eins og hann á að sér að vera. Stjórnarandstæðingar réðust meira á Valgerði. Það er svosem skiljanlegt í sjálfu sér, enda er hún bæði fyrsti þingmaður kjördæmisins og andlit ríkisstjórnarinnar.
Kristján Þór er mun óbundnari því sem ríkisstjórnin hefur í sjálfu sér gert. Hann er enda nýliði í landsmálunum. Hann þorir að tala af krafti og hikar ekkert við að gagnrýna það sem hann telur afleitt, meira að segja hjá ríkisstjórninni. Þekki vel þessa flokksleiðtoga alla, nema Hörð hjá Íslandshreyfingunni. Þekki reyndar engan af þeim sem eru þar í toppsætunum. En heilt yfir var þetta spjall um kosningamálin frá þeim grunni sem við höfum áður séð.
Það komu góðar spurningar úr sal. Sjálfur stóð ég í biðröð eftir að koma að spurningu en röðin var löng og ég komst því miður ekki að með spurningu. Það var mjög gaman að spjalla við frambjóðendur og fara yfir stöðuna, fyrir og eftir fundinn. Það var fjölmenni í Sjallanum og allar raddir um að pólitískir fundir heyri sögunni til voru kveðnar í kútinn. Þetta var líflegt og skemmtilegt pólitískt kvöld allavega í Sjallanum. Megi N4 hafa þökk fyrir fundinn.
Það eru fáir sem vita með vissu hvað er að fara að gerast á laugardaginn. Ég tala við marga spámenn. Þeir sem ég tel áreiðanlega spá því að slagurinn sé á milli þriðja manns Samfylkingar, þriðja manns Framsóknarflokks og fjórða manns Sjálfstæðisflokks, jafnvel að frjálslyndir nái inn jöfnunarmanni. Erfitt um að segja. Ég vona þó svo sannarlega að fleiri Akureyringar en Kristján Þór Júlíusson komist á Alþingi á laugardaginn hér í nafni þessa kjördæmis.
Spennan heldur áfram altént.
7.5.2007 | 19:01
Er Framsókn að stefna í sögulegt pólitískt afhroð?

Kannanir eru Framsóknarflokknum mjög erfiðar nú um stundir og hafa gert nær allt kjörtímabilið. Það að formaður flokksins sé að mælast svo veikur og utan þings marga mánuði í röð og sjái ekki til sólar hlýtur að sliga mjög flokkinn. Sérstaklega miðað við að þetta er maður sem ekki hefur verið lengi í stjórnmálum og ætti því varla að bera þungar byrðar fortíðar með sér. Kannski er það þó eftir allt veikleiki hans, að vera ekki sterkur stjórnmálamaður með fortíð, hafa ekki suma þungann pólitískt og Halldór Ásgrímsson hafði í þingkosningunum 2003, sem leiðtogi sem leiddi vagninn rétta leið að lokum.
Í dag birtist landskönnun sem sýnir Framsókn með innan við 8%. Það er vandséð hvernig að Sjálfstæðisflokkurinn geti horft til þessa samstarfs áfram fái Framsóknarflokkinn þennan þunga dóm sem stefnir í, þó stjórnin héldi. Það virðist vera sviðin jörð um allt land skv. könnunum fyrir flokkinn. Meira að segja gömlu lykilvígin hafa bognað til. Staða Framsóknarflokksins hér í Norðaustri mælist ekki góð. Það er orðið óralangt síðan að Framsókn mældist með fleiri en tvo þingmenn hér. Í síðustu kosningum fengu framsóknarmenn hér fjóra menn en hafa hrapað mjög síðan. Í Suðurkjördæmi á Guðni Ágústsson í vök að verjast og Siv Friðleifsdóttir heyr þunga baráttu í Kraganum.
Það er vörn yfir merkjum Framsóknarflokksins í þessari kosningabaráttu. Það blæs ekki byrlega fyrir flokknum. Þar er lifað í voninni um að það sama endurtaki sig og gerðist á lokasprettinum 2003. Þar var tapaðri skák snúið við og Framsókn náði að spila síðustu leiki skákarinnar sér í vil. Sama lukkustjarnan er ekki komin til sögunnar fimm dögum fyrir kosningar. Framsóknarmenn bíða og vona. Á meðan berst formaður Framsóknarflokksins fyrir pólitísku lífi sínu í Reykjavík og lykilfólk standa veikt í erfiðri baráttu. Þetta er ekki glæsileg staða fyrir flokk sem hefur haft völd áratugum saman.
Nú er komið að örlagastundu fyrir Framsóknarflokkinn. Hvernig mun lífróðrinum ljúka? Þetta er stór spurning, sem brátt fæst svar við. Það verða þung örlög fyrir elsta starfandi stjórnmálaflokk landsins falli taflið ekki þeim í vil á lokasprettinum. Þar verður þungur skellur á sunnudag fari allt á versta veg. Getur Framsókn unnið sigur á könnunum? Svarið; jú það er handan við hornið.
Hver er Jón Sigurðsson?
pistill SFS - 20. ágúst 2006
7.5.2007 | 18:33
D og S í mikilli sókn á lokaspretti baráttunnar

VG mælist í könnuninni með 17,5%, sem er lægsta fylgi þeirra hjá Gallup í heilt ár. Framsóknarflokkurinn er eins og fyrr segir aðeins með tæp 8% og er skv. því að stefna í afhroð. Ekki virðist fylgið vera að aukast á lokasprettinum, öðru nær. Frjálslyndir hækka - mælist aðeins með 6%. Íslandshreyfingin nær sem fyrr engu flugi og mælist bara með 2%, sem yrði þeim háðugleg útreið.
Miðað við þessa mælingu er Sjálfstæðisflokkurinn með 27 þingsæti, fimm þingsætum meira en í kosningunum 2003. Framsóknarflokkurinn myndi í þessari stöðu missa heil 7 þingsæti og fengi aðeins 5 menn á þing. Samfylkingin mælist með 16 þingsæti, missir fjögur frá kosningunum 2003. Vinstri grænir mælast með 11 þingsæti, myndi bæta við sig 6 sætum. Frjálslyndir mælast með 4 þingsæti, sama og í kosningunum 2003. Ríkisstjórnin héldi velli mjög naumlega, með 49,5% atkvæða og 32 sæti eins og fyrr segir.
Þetta er merkileg staða. Þetta er fyrsta raðkönnun Gallups sem birtast munu stig af stigi næstu fimm dagana og munu ramma svo upp stóra lokakönnun á föstudaginn. Staðan hér er einföld. Framsókn fengi stóran skell gengi þetta eftir. Skilaboð kjósenda yrðu að hann færi í pólitíska endurhæfingu. Stórt afhroð virðist blasa við þeim. Vondur skellur yrði þetta. Niðurstaða af þessu tagi myndi vísa á nýja stjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar að mínu mati. Mjög einfalt mál.
Það eru fimm dagar til stefnu. Þetta verða háspennudagar í íslenskri pólitík og spurt er að leikslokum. En þessi mæling er mjög athyglisverður fyrirboði um pólitísk stórtíðindi í þessum kosningum. Það blasir við.
![]() |
Samfylking og Sjálfstæðisflokkur bæta við sig fylgi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
7.5.2007 | 17:00
Suðurkjördæmi

Suðurkjördæmi nær frá sveitarfélaginu Hornafirði í austri til Vatnsleysustrandahrepps í suðri og þekur því syðstu strandlengju landsins. Suðurkjördæmi var myndað í kjördæmabreytingunni árið 2000 úr þremur kjördæmahlutum; þó að mestu leyti úr Suðurlandskjördæmi.
Viðbætur við það voru þau að Hornafjörður og nærsveitir sem áður tilheyrðu Austurlandskjördæmi færðust yfir í kjördæmið og Reykjanesskaginn sem áður tilheyrði Reykjaneskjördæmi varð hluti af Suðrinu.
Á kjörtímabilinu hafa þingmenn kjördæmisins verið 10 talsins; níu kjördæmasæti og eitt jöfnunarsæti. Svo verður áfram eftir kosningarnar 12. maí nk.
Umfjöllun um Suðurkjördæmi
7.5.2007 | 04:08
Er ævintýrinu litríka um Silvíu Nótt að ljúka?

Það er víst óhætt að segja að Ágústa Eva hafi bæði hneykslað og glatt landsmenn með þessum karakter í rúm tvö ár og tekið allan skalann í tilfinningatúlkun. Öll þjóðin hefur fylgst með Silvíu Nótt á þessum tíma. Hún hefur verið í miðpunkti bæði í umræðunni og verið bæði stingandi og heillandi í senn. Hápunktur og um leið botn hennar hlýtur að vera sami viðburðurinn merkilegt nokk. Sigurinn heima í Eurovision með Til hamingju Ísland var sætur en skellurinn mikli með Congratulations í Aþenu fyrir ári, í maí 2006 var mikill, enda voru væntingar hennar og landsmanna miklir til árangurs.
Það má þó segja að ævintýrið hafi gengið of langt, dramatíkin og stingandi karakterinn hafi farið yfir strikið í Grikklandi. Á miðri Eurovision-leiðinni fór karakterinn yfir rauða strikið varhugaverða. Það kom margt merkilegt fram í þessu viðtali. Ágústa Eva opnar karakterinn algjörlega upp á gátt og dregur eiginlega ekkert undan. Sérstaklega var athyglisvert að heyra hana lýsa aftur Aþenu-ævintýrinu og álaginu mikla þar. Það blasir við öllum að hún var þar að leka niður af álagi og taugastrekkju er þessu lauk. Reyndar má segja að mesta afrek Ágústu Evu hafi verið að lifa í gegnum þennan flaming karakter allan þennan tíma og halda dampi.
Enda er þetta auðvitað frábær leikkona, hún sannaði kraft sinn og styrk sem karakterleikkonu í Mýrinni, þar sem nafna hennar, Eva Lind Erlendsdóttir, varð ljóslifandi í góðri túlkun hennar. Það er freistandi að spyrja hvort ævintýrinu mikla með Silvíu Nótt sé virkilega að ljúka. Það trúa því kannski ekki allir. Ágústa Eva er leikkona sem á mörg tækifæri framundan myndi ég segja. Hún hefur allavega sýnt að hún getur leikið, getur túlkað allan tilfinningaskalann.
Það eru viss tíðindi að leikþættinum sé lokið. Ansi mörgum er sennilega létt. Það verður fróðlegt að sjá hver framtíð skapara glamúrgellunnar verður nú þegar að gríman er fallin.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)