Færsluflokkur: Dægurmál

Minningarsjóður stofnaður um Susie Rut

Susie RutFlestum er í fersku minni sterk minningarorð Einars S. Hálfdánarsonar, um dóttur sína Susie Rut Einarsdóttur, er hún var jarðsungin 26. júní sl. Þau orð vöktu mjög marga til umhugsunar um fíkniefnavandann og þann skaða sem hann skilur eftir víða í samfélaginu. Nú hafa vinir Susie Rutar stofnað minningarsjóð til minningar um hana, sem vinnur gegn fíkniefnavá með öflugum hætti.

Það er mjög virðingarvert að Susie Rutar sé minnst með þessum hætti og ég tel það glæsilegan vitnisburð um sanna vináttu í hennar garð og fjölskyldunnar. Fyrst og fremst er mikilvægt að minningu hennar sé haldið á lofti. Hún var harmdauði. Hún var öflugur félagi í flokksstarfinu og hún var dugleg og einbeitt í sínum störfum fyrir flokkinn allt til enda.

Það er mikilvægt að stofna sjóð sem byggir á baráttunni gegn fíkniefnum og til að efla forvarnir af ýmsu tagi. Með þeim hætti er best minnst Susie Rutar að mínu mati.


mbl.is Minningarsjóður um Susie Rut
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eigum við von á rigningu um helgina?

Singin' in the Rain Það stefnir í rigningu um helgina hérna fyrir norðan. Sú rigning ætti að verða einhverjum kærkomin, sennilega helst bændunum og þeim sem þurfa að rækta túnin sín. Ekki er nein sérstök tilhlökkun í mér eftir rigningu, enda flýtir það sennilega enn frekar fyrir því að ég þarf að fara út í garð og slá. Kannski maður noti helgina í það blessaða verk.

Ég man varla eftir þurrari sumri, það sem af er, en því sem nú stendur yfir hérna fyrir norðan. Júní var þurrastur allra í áratug hérna hjá okkur og það er staðreynd sem fékk alla bændurna á svæðinu til að raða sér upp í viðtöl við N4 og tengda miðla. Enda skiljanlegt að þeir vilji að rigni, þeirra afkoma og heill er í húfi þess að góð uppskera verði á túnunum.

Þetta verður kannski svo mikil rigningarhelgi að maður dembi sér bara í að horfa á Singin' in the Rain, hinn mikla og skemmtilega gleðigjafa frá árinu 1952. Það er mynd sem er sú pottþéttasta ef vantar gleði. Sannkölluð trygging fyrir skemmtilegheitum. Þessi mynd klikkar aldrei og ég hef dýrkað hana allt frá því að ég sá hana fyrst. Einstök að öllu leyti. Hún ætti að kæta mann jafnvel á mestu rigningardögum.

Rigningarlagið skemmtilega með meistara Gene Kelly er í spilaranum hér á síðunni. Einstaklega gott lag, sígildur brilljans.

mbl.is Þurrum góðviðriskafla að ljúka - skin og skúrir um helgina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eftirmálar þess að Mogginn lokaði bloggsíðu

Það er rúm vika síðan að yfirmenn Moggabloggsins lokuðu bloggsíðu Emils Ólafssonar hér í kerfinu. Það var endir á talsverðu leiðindamáli, sem við öll sem hér skrifum fylgdumst ágætlega með. Ég tjáði mig örlítið um þá lokun. Í kjölfarið fékk ég talsvert af kommentum hér inn vegna og eiginlega enn meiri viðbrögð í tölvupósti. Voru skiptar skoðanir um það sem ég skrifaði. Flestir voru þó sama sinnis. Hinir voru helst að finna að þeirri skoðun minni að yfirmenn hér gætu stjórnað því hverjir skrifi hér eða fengju pláss til að skrifa það sem þeir vildu.

Ég stend við nákvæmlega það sem ég sagði. Þetta bloggsvæði er í einkaeigu. Þar gilda reglur og þar er standard yfir. Rjúfi menn grunnskilmálana hér geta þeir átt von á að lenda í því að lokað sé á þá. Þetta er ekki bloggkerfi án reglna og skilmála. Eins og í flestum samfélögum eru þar viss grunnur og það er skýrt hvernig það allt er hér. Ég treysti þeim hér á Moggablogginu til að stjórna þessum vettvangi með heiðarlegum hætti og standa vörð um að hér sé viss standard á umgjörðinni.

Það er auðvitað svo með opin bloggkerfi að þar safnast saman ólíkt fólk, með ólíkar aðferðir til að tjá sig. Flestir hér eru mjög málefnalegir og hafa góðar bloggsíður. Skilaboðin sem send voru héðan um daginn voru þau að þetta samfélag er ekki stjórnlaust og þar er tekið á vandamálum. Ég gat ekki betur séð en að flestir voru ánægðir með niðurstöðuna, sérstaklega þeir sem hér skrifa.

Þegar á hólminn kemur skiptir það mestu máli; að þetta bloggsamfélag haldist öflugt. Hér eiga allir sín tækifæri til að skrifa. Það má vel vera að flestir bloggarar hér hafi ólíkar skoðanir og aðferðir við að tjá sig. Mestu skiptir að haldast málefnalegur og geta rætt hlutina með heiðarlegum hætti. Án þess er ekkert vit í hlutunum. 

Þannig að ég er enn sömu skoðunar eftir þetta fræga leiðindamál. Því er sem betur fer lokið og ég tel að allir viti mun betur nú en áður hver mörkin eru hér og hvernig tekið er á leiðindamálum sem skekja innviði þessa bloggkerfis. Og það deilir enginn lengur um að hér er öflug yfirstjórn sem passar vel upp á allar hliðar.

Stórmerkilegur brúðkaupsdagur framundan

Brúðhjón 7. júlí verður ógleymanlegur dagur í lífi fjölda fólks. Það er ekki óeðlilegt að margir vilji gifta sig á þeim degi og minnast þess að 07-07-07 sé þeirra dagur. Það er reyndar ekki amalegt að eiga barn á þessum degi, sem eignast með því fallega og eftirminnilega kennitölu allavega.

Hér í Akureyrarkirkju stefnir sennilega í stóran brúðkaupsdag, með þeim stærri. Sex giftingar verða þann dag og sú síðasta kl. 19:00, sem er mjög skemmtileg tímasetning á þessum sjöunda degi. Þau verða allavega ekki verkefnalaus í kirkjunni.

Sá í fréttunum um daginn að það var sagt að löng biðröð hafi verið fyrir utan Háteigskirkju þegar að farið var að bóka giftingar þennan dag. Komust svo sannarlega færri að en vildu þá. Það sýndi mjög vel hversu margir vildu giftast á þessum degi.

Það er reyndar stór spurning auðvitað hvort að svo stór dagur sé hinn heppilegasti brúðkaupsdagur. Sumir vilja þannig dag, hinir vilja kyrrð og ró, eiga sinn sérstaka dag. Dag sem er ekkert meira í sviðsljósinu en aðrir helgardagar.

mbl.is Hætt við hjónavígslur 07.07.07
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er Bill Gates búinn að missa dýra titilinn sinn?

Bill GatesBill Gates hefur drottnað yfir viðskiptaheiminum sem ríkasti maður heims í áraraðir. Enginn hefur komist nærri honum. Nú bendir flest til þess að hinn mexíkóski Carlos Slim sé orðinn ríkari. Það eru auðvitað stórfréttir. Síðan að stóra tölvubylgjan varð að veruleika, með nýjum tímum tölvuheimsins, með tæknivæðingu Microsoft undir leiðsögn hans fyrir rúmum áratug hefur hann verið sem Guð í bransanum. Hann hefur drottnað. Áhrif hans eru óumdeild, hann hefur markað mikil spor á sínum vettvangi.

Bill Gates hefur átt meiri peninga en okkur hér dreymir um að eignast að ég tel til samans. Ríkidæmi hans hefur verið í fréttum öll þessi ár. Held að það séu litlar líkur á að einhver sem les þennan vef eða alla bloggvefi landsins geti komist yfir helming þess sem hann á. Slíkt er veldið. En ég held að okkur öllum dreymi nú innst inni um að eignast slíka fúlgu. En það er stundum ágætt bara að láta sig dreyma.

Það er annars löngu sannað að lífsins hamingja felst ekki í peningum. Ríkasti maður heims getur átt slatta af peningum en samt sem áður ekki átt neina lífshamingju. Fátækustu hjón heimsins gætu verið rík, án peninga, með sanna lífshamingju. Peningar eru ekki samasem-merki fyrir lífshamingjuna og gleði. Sú fylling lífsins kemur með hugarfarinu okkar.

Ég held að slík fúlga ræni fólk slatta af lífshamingju um leið og hún breytir hugarfarinu. Það er mitt mat. Ríki maðurinn verður ekkert sælli við að telja peninga alla sína ævi. Það er að ég tel lífsins speki.


mbl.is Bill Gates er ekki lengur ríkasti maður heims
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sláandi staðreyndir um banaslys í umferðinni

Umferðarslys Mér finnst það verulega sláandi staðreynd að áfengi eða fíkniefni séu helstu orsakavaldar rúmlega tíu banaslysa í umferðinni á síðasta ári. Þetta er umhugsunarverð staða í það minnsta. Reyndar var árið 2006 auðvitað gríðarlega sorglegt ár í umferðinni og ætti að verða okkur öllum lærdómsríkt í þeim efnum að aðgerða sé þörf í umferðarmálunum.

Að mínu mati eru þó verstu skilaboðin af þeim öllum að birtast með þessum tölum þar sem vikið er að þætti vímugjafa, þ.e. að fólk sé undir áhrifum. Oftar en ekki gerast þá slys um miðja nótt eftir að fólk hefur skemmt sér fram eftir nóttu eða misst tök á sér með öðrum hætti. Þess eru líka dæmi að farþegar í bifreið sem er stýrt af einhverjum undir áhrifum hafi látið lífið. Þetta eru auðvitað skuggalegar staðreyndir og þær munu vonandi vekja okkur til umhugsunar.

Sem betur fer stefnir þetta ár í að verða mun betra en hið fyrra í umferðinni. Það er samt aldrei viðunandi að banaslys eigi sér stað. Sérstaklega er óviðunandi að sjá þessar tölur þar sem vímugjafar leika lykilhlutverk í banaslysum. Við höfum upplifað mörg svört ár í umferðinni hér heima, en ég tel að síðasta ár hafi fengið okkur öll til að hugsa. Mér finnst fólk vera mun meðvitaðra um það nú en áður að það verður að hugsa hlutina upp á nýtt. Þetta er staða sem við getum ekki verið róleg yfir að neinu leyti, sérstaklega þegar að við hugsum til ársins svarta 2006.

Það er mikilvægt að vera með upplýsandi og góða umræðu um þessi slys. Stór og góður þáttur í því er að færa fólki reynslusögur þeirra sem hafa lifað af erfið slys. Við sáum umfjöllun um nokkur þannig tilfelli í fréttatímum Stöðvar 2 undanfarna daga eftir gönguna þar sem minnt var á umferðarslysin og sýnd samstaða gegn þessari þróun. Það var virkilega gott framtak og það var auðvitað sláandi að sjá allar blöðrurnar fara á loft, þær svörtu sem táknuðu þá rúmlega þrjátíu sem fórust í umferðinni árið 2006 og þann mikla fjölda rauðra sem tákna þá sem slösuðust.

Það er búið að segja það ansi oft að vakningar sé þörf í þessum málum. Ég vona að hún sé að eiga sér stað nú og fólk sé orðið mun meðvitaðra en áður að það er mikilvægt að fara varlega í umferðinni. Það er mun betra að komast heill á leiðarenda en komast þangað alls ekki. Höfum það í huga. Stór hluti þess sem taka verður á er svo fyrrnefnd tilfelli um þá sem látast í slysum vegna þess ölvunar með einum eða öðrum hætti.

Fyrst og fremst erum við á krossgötum í þessum efnum enn eina ferðina. Þetta eru mál sem þarf alltaf að hugsa vel um og takast á við. Stór þáttur þessa er fræðsla á málunum og taka á þeim sláandi staðreyndum sem blasa við. Þessir punktar þykja mér standa upp úr sem hinir verstu. Þetta er þróun sem verður að snúa við.

mbl.is Ellefu banaslys á síðasta ári rakin til ölvunar eða fíkniefnaneyslu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hver er hún nú aftur þessi Nancy Sinatra?

Frank og Nancy Það er mjög athyglisvert að fylgjast með baráttu söngvarans Geirs Ólafssonar fyrir því að söngkonan Nancy Sinatra komi til Íslands. Mun baráttan hafa tekið á sig svo öfluga mynd að hann er nú sakaður um að hafa fært söngkonunni falsað meðmælabréf frá Geir H. Haarde, forsætisráðherra, en hann hefur neitað því. Mun forseti Íslands hafa lagt inn meðmæli gegn því sennilega að söngkonan fari á fund hans til Bessastaða og drekki með honum kaffi. Varla ætlar hann að taka lagið Somethin´Stupid með henni.

En eflaust spyrja margir sig að því hver hún sé eiginlega þessi Nancy Sinatra. Jú, eins og nafnið gefur til kynna er þetta dóttir Frank Sinatra, sem var auðvitað einn fremsti söngvari 20. aldarinnar og söng fjölda ódauðlegra laga á löngum tónlistarferli. Þau sungu saman hinn fræga dúett á sjöunda áratugnum, Somethin´ Stupid, sem fyrr er nefndur. Það er eflaust frægasta lagið hennar Nancy í sjálfu sér og sá dúett hefur oft verið sunginn síðar, sennilega er útgáfan með Nicole Kidman og Robbie Williams fyrir nokkrum árum þekktust utan þessarar.

Þegar að ég hugsa til Nancy Sinatra dettur mér fyrst í hug tvenn kvikmyndalög. Jú, hún söng titillagið í James Bond-kvikmyndinni You Only Live Twice, sem er með þeim þekktari úr kvikmyndabálkinum og hefur öðlast gott líf í áranna rás. Ennfremur söng hún lagið Bang Bang (My Baby Shot Me Down) en það komst aftur á landakort athyglinnar þegar að Quentin Tarantino valdi lagið sem upphafslag kvikmyndarinnar Kill Bill, Vol. 1, árið 2003. Svo hefur hún sungið These Boots Are Made for Walking, en ætli það sé ekki mjög þekkt líka. Það var notað fyrir nokkrum árum, og var þá vinsælt aftur, í kvikmyndinni The Mexican með Brad Pitt og Juliu Roberts.

Meira man ég ekki eftir með Nancy Sinatra og hef lítið kynnt mér ævi hennar. Það verður fróðlegt að sjá hvort að Geir Ólafs nær að lokka hana til Íslands. Hann virðist hafa lagt mikla vinnu í það verkefni að ná henni hingað og allavega hefur honum tekist að ná athygli landsmanna með þessari umræðu um bréfið falsaða.

mbl.is Geir Ólafs hafnar ásökunum um falsað bréf
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lífið í skugga Söngva Satans

Padma og Salman Rushdie Það eru orðin átján ár síðan að Salman Rushdie stuðaði múslímaheiminn með eftirminnilegum hætti og ritaði bókina Söngvar Satans. Í kjölfarið var hann dæmdur réttdræpur af Ayatollah Khomeini, erkiklerki og trúarlegum þjóðhöfðingja írönsku klerkastjórnarinnar, og lifði í skugga þeirra örlaga mjög lengi, en hefur komið meira fram undanfarin ár. Það voru svo sannarlega líflegir tímar.

Það eru orðin sextán ár síðan að ég tók mig til og las þessa bók. Merkileg lesning. Eflaust spyrja einhverjir sig hvernig í ósköpunum ég hafi nennt að lesa akkúrat þessa bók á fermingarárinu. Jamm, ég var eflaust það sem einhverjir kalla mjög spes unglingur. Ekkert svosem meira um það að segja, hehe. En bókina las ég og hún stuðaði mig auðvitað ekki eins og múslímana og hún var svolítið lærdómsrík lesning, þó ég hafi skilið vel að hún hafi stuðað.

Hef reyndar oft hugsað um hvernig að þessum aumingjans manni hafi liðið með dauðadóm frá múslimum á bakinu og líf á flótta í raun í áraraðir. En vissulega varð hann heimsfrægur í kjölfar þessa máls og öðlaðist eflaust meiri frægð með þessari einu bók og viðbrögðum við henni en öllu öðru. Þó að fórnarkostnaðurinn hafi eflaust verið mikill með bókinni varð hann mun þekktari en ella hefði orðið.

En bókina væri kannski ágætt að rifja upp aftur. Fannst þó ekkert alltof spennandi, en það væri kannski viss lærdómur að rifja hana upp aftur. Þetta er allavega bók sem gleymist ekki í bráð. Til þess hefur hún verið of umdeild og höfundurinn sem hefur haft múslímana á hælum sér árum saman notið glampa sviðsljóssins of lengi.

Nú hefur Salman Rushdie verið aðlaður. Það hefur varla fyrr gerst en konan, 24 árum yngri, er farin frá honum. Þau eru oft hlægilega skemmtileg þessi hjónabönd aldursmunar.

mbl.is Skilnaður í kjölfar aðalstignar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hús springur í Árósum - mjög dularfullt mál

Danska húsið Ég kipptist nú aðeins við þegar að ég sá þessa frétt um húsið í Árósum sem sprakk í nótt, án þess að nokkur viti eiginlega hvað gerðist sem olli því. Það er varla hægt að útiloka að þetta hafi gerst af mannavöldum, fyrst að ljóst er að þetta var ekki gassprenging. Á þessum síðustu og verstu tímum allsstaðar er heldur auðvitað ekki hægt að útiloka að um sé að ræða einhvers konar illskuverk.

Las annars ítarlega frétt um þetta á fréttavef Jyllands-Posten áðan. Þetta mál vekur allavega sýnu meiri athygli þegar að það gerist í rólegu hverfi og eflaust eru allir í sjokki yfir stöðu mála. Það er vonandi að hægt verði að leysa málið allt, en eins og fréttir segja virðist þetta vera að mannavöldum, enda hefur verið allt að því útilokað að um slys hafi verið að ræða.

Það er auðvitað sjokkerandi ef að svo hefur verið að um verk af mannavöldum var að ræða og það í rólegu íbúahverfi í Danmörku, en það er auðvitað ekki hægt að útiloka eitt né neitt.

mbl.is Íslendingur óttasleginn eftir sprengingu í Danmörku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

60 dagar frá hvarfi Madeleine - myndum skilað

Madeleine McCann Ekki minnkar dulúðin yfir máli Madeleine McCann eftir 60 daga hvarf hennar. Enn eru sama óvissan og sömu spurningamerkin sem vofa yfir. Það er þó ljós í myrkri að myndunum af henni sem hefur verið leitað að undanfarna daga var skilað. Það var bjartur punktur að foreldrarnir fái allavega myndirnar aftur, sem var stolið en þær voru inni í veski sem faðirinn átti.

Þetta hlýtur að vera hrein skelfing fyrir foreldrana. Samviskubit þeirra yfir stöðunni hlýtur að vera gríðarlega mikið og varla minnkar það með degi hverjum. Þetta er að mörgu leyti athyglisvert mál. Það er mikilvægt að á það fáist einhver endir. Það verður skelfilegt fari það svo að Madeleine finnist aldrei og aldrei verði ljóst hvað gerðist fyrir 60 dögum.

Fjölmiðlar fjalla enn um málið með sama hætti og var fyrstu vikuna. Auðvitað vilja þeir fylgja eftir því sem gerðist og reyna að fá svör. Það vilja allir sem fylgjast með. Eftir því sem hver dagur líður aukast þó líkurnar á því að Madeleine sé látin. Vonin minnkar sífellt. Það er hin napra staðreynd allra mála af þessu tagi, líka þessu auðvitað.

mbl.is Myndum af Madeleine skilað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband