Færsluflokkur: Dægurmál
27.6.2007 | 17:46
Yndislegt kraftaverk á Akureyri
Eitthvað þessu líkt hefur varla gerst áður í sundlauginni hér og það er auðvitað ömurlegt að slys af þessu tagi komi fyrir. Það er hinsvegar mikil blessun að svo vel fari og til staðar sé fólk sem getur tekið rétt og vel á málum á neyðarstundu. Það er mjög ánægjulegt að vita að vel fór. Þetta er auðvitað áminning til foreldra sem fara með börnin sín í sund að fylgjast vel með þeim, enda þarf ekki mikið að fara úrskeiðis svo illa fari.
![]() |
Þetta er kraftaverk" |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt 30.6.2007 kl. 13:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
26.6.2007 | 16:39
Bloggsíðu lokað - ánægja á Moggablogginu?
Það er skiljanlegt að þeir hjá blog.is, sem hafa lagt mikla vinnu í þetta vinsælasta bloggkerfi landsins og unnið vel sitt verk vilji halda utan um þennan vettvang og tryggja að hann sé ekki lagður í rúst með mjög áberandi hætti. Þetta verklag í morgun sýnir það og sannar. Þetta vefkerfi er í eigu einkaaðila og þeir leggja mat á þann vettvang sem þeir vilja halda úti og hverjir noti hann. Hér er í raun allt galopið og hver sem er getur farið að skrifa. Það fylgir þó öllu slíku frelsi ábyrgð eins og við höfum séð í þessu máli.
Ég er ánægður með það hvernig haldið er á málum hér og lýsi enn og aftur yfir ánægju minni á stjórnun þeirra sem halda utan um þetta bloggsamfélag. Þetta kerfi á að vera þekkt fyrir eitthvað allt annað en dónaskap og óþarfa skítkast. Það sést vel af ákvörðunum yfirstjórnar þessa bloggkerfis.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
26.6.2007 | 12:35
Moggabloggið lokar á Emil Ólafsson
Þetta mál opnar margar spurningar um moggabloggið. Það er gott að Mogginn svarar þeim sjálfur með því að sýna að þar er tekið af skarið ef vandamál verða. Ég kvarta ekki yfir því. Ég sá reyndar í gærkvöldi viðtal við þennan Emil í Íslandi í dag. Þar var hann að reyna að svara af hverju hann var á aðgangi í Háskólanum á sínum tíma. Aðgangurinn var falsaður og margt fleira vakti athygli í orðalaginu. Það verður seint sagt að þarna hafi leyndarhjúpurinn minnkað á málum viðkomandi.
Það hefur verið sviptingasamt í bloggsamfélaginu eftir skrif Elíasar Halldórs og eftirleikurinn hefur ekki farið framhjá neinum sem lítur í gegnum bloggkerfið. Þetta hefur verið leiðinlegur tími og sérstaklega ömurlegt með að fylgjast fyrir okkur sem bloggum þarna. Þetta fór yfir öll mörk um helgina og greinilegt að Moggabloggið sjálft tekur af skarið nú endanlega.
Það er í sjálfu sér auðvitað mjög ánægjulegt og ekkert meira um það að segja.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 12:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
25.6.2007 | 21:27
Sex ára dreng bjargað frá drukknun á Akureyri

Ég fór í sund á fimmta tímanum og hef því verið nýfarinn þegar að þetta hefur gerst. Það var virkilega gott veður á Akureyri í dag, yndislegur sumardagur eins og þeir gerast bestir um hásumar. Það voru því margir sem fóru í sund og nutu þessa góða dags. Það er orðið langt síðan að tilfelli af þessu tagi hefur gerst í sundlauginni hér og er nöturlegt að verða vitni að svona slysi.
Það er mikilvægt að þeir foreldrar sem fara með börnin sín í sund fylgist vel með þeim. Annars getur svona gerst hratt og verður erfitt við að eiga. Þar skipta fyrstu viðbrögð öllu máli og það er gott að vita hversu vel gekk þarna, en þar munaði svo sannarlega litlu að verulega illa færi.
![]() |
Sex ára dreng bjargað frá drukknun í Sundlaug Akureyrar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.6.2007 | 18:51
Bílslys við húsið hjá mér
Til allrar guðs lukku fór þetta ótrúlega vel, miðað við aðstæður, og engin alvarleg slys á fólki sem voru í bílunum, ökumaður í öðrum bílnum var reyndar í miklu losti og hlaut vont högg en slapp ótrúlega vel. Beltin skiptu máli í þessu, eins og öðrum tilfellum slíkum. Þannig að það róaðist yfir mér. Ég man ekki eftir því að árekstur hafi verið hér á þessum bletti Þórunnarstrætisins síðan að ég flutti hingað fyrir nokkrum árum. Hinsvegar er auðvitað mikil umferð um götuna allan sólarhringinn, enda er þetta ein af lykilgötum bæjarins.
En já, það er allt gott sem endar vel, en það er alltaf óþægilegt að sjá svona bílakost fyrir utan heimilið sitt. Það er alveg á hreinu.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
25.6.2007 | 18:05
Banaslys á Kárahnjúkum
Það er sorglegt að heyra fréttir af banaslysi við Kárahnjúka. Þetta er sennilega það fimmta á framkvæmdaskeiðinu. Það er auðvitað svo að við tæknilega erfitt og tröllvaxið verkefni geta orðið slys en þetta er samt sem áður orðinn mikill fórnarkostnaður sem hefur orðið. Það er alltaf sorglegt þegar að það verða slys og fólk lætur lífið við vinnu sína, sama hvort það er á Kárahnjúkum eða til sjós og lands.
Það er erfitt um að segja hvað gerir það að verkum að þessi slys verða. Það verður að kanna vel aðbúnað þarna og ennfremur auðvitað hvort að öll öryggisatriði séu í lagi. Mér finnst það vissulega of mikið að fimm einstaklingar láti lífið við verk af þessu tagi. Það finnst öllum. Það er alltaf dapurlegt þegar að einstaklingur deyr við vinnu sína, sama hvert verkið er.
![]() |
Lést á leið í sjúkraflugið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
25.6.2007 | 12:02
Vangaveltur um ástæður lokunar bloggvefs Emils
Hvað með það. Ætla ekki að velta mér meira upp úr þessu máli. Það er hinsvegar mitt mat að fólk sem á greinilega við vandamál að stríða eigi ekki að auglýsa sig á vinsælasta fréttavef landsins. Það féllu mörg heit orð frá þessum bloggara, orð sem gleymast ekki og voru fyrir neðan allt eðlilegt. Þau voru til skammar fyrir þetta bloggkerfi, ég fer ekki ofan af því. En vonandi geta menn sett sér eðlileg siðleg mörk hérna varðandi bloggskrif, sumt á heima á virtu bloggkerfi og annað ekki.
Ég held að allir séu sammála um það. Það er eðlilegt að hver og einn hafi svigrúm til skrifta með sínu tagi, en öllu frelsi í tjáningu verða að fylgja eðlileg mörk.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
25.6.2007 | 09:53
Tekið á vandamáli á Moggablogginu
24.6.2007 | 20:59
Átök í skjóli nætur
Við erum svosem ekkert sérstök með fréttir af þessum óhugnaði. Eflaust er þetta um allan heim í mismiklu mæli og varla er þetta eitthvað einsdæmi hér. En þetta er samt að aukast sífellt hérna heima. Róleg hverfi geta orðið vígvöllur um helgar og jafnvel er fólk ekki orðið óhult við að fara út að skemmta sér að helgarnóttu, það hafa dæmin sannað. Sumir hafa verið barðir svo illa í miðbæ Reykjavíkur um nótt að þeir hafa annaðhvort dáið eða bera merki þess alla tíð eftir það. Þetta er ömurlegt ástand.
Ég hugsa oft um það hvernig samfélagið okkar sé. Það er auðvitað alltaf best að trúa á hið besta í hverjum og einum en einhvernveginn efast maður um það allt saman þegar að fréttir af þessu tagi hrannast yfir morguninn eftir helgarkvöld eða jafnvel á virkum degi. Þetta er eiginlega orðið ástand sem vekur orðið of mikla athygli til að maður hugsi ekki um það.
Eða er þetta kannski orðið svo algengt ástand að maður er hættur að kippa sér upp við það. Erfitt um að segja. Hvað mig varðar finnst mér þetta ástand sem er ekki hægt að horfa framhjá. Þetta fær mann til að hugsa um hvert við stefnum og hvernig samfélagið sé. Það er mjög einfalt mál.
![]() |
Óþekkt áhald notað í fjöldaátökum í nótt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 21:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
24.6.2007 | 17:59
Lifir samband Vilhjálms og Kate af sér storminn?

Vilhjálmur og Harry voru í erfiðum sporum fyrir áratug. Ekki aðeins þurftu þeir að kveðja móður sína án þess að geta í raun kvatt hana í sjálfu sér áður en hún dó, heldur þurftu þeir að syrgja í kastljósi fjölmiðla. Þar var enginn friður í raun. Dauði Díönu varð svo mikill fjölmiðlahasar í sjálfu sér að sorg í einrúmi, sem flestir telja sjálfsagðan og eðlilegan hlut eftir að nákominn ættingi deyr í skelfilegu slysi, varð ekki valkostur. Þeir náðu þó að bera þessar þungu byrðar aðdáunarlega vel og sérstaklega var Vilhjálmur sterkur þetta sumar. Hann hefur þó þurft að lifa síðan í sama fjölmiðlahasarnum og mamma hans var partur af allt til hinstu stundar.
Það var alltaf viðbúið að fjölmiðlar myndu fylgja Vilhjálmi eftir hvern spöl ævinnar allt frá því að hann yrði átján ára gamall og sérstakt samkomulag Karls, föður hans, við fjölmiðla eftir móðurmissinn rynni út. Það reyndist raunin sérstaklega þegar að hann varð ástfanginn af Kate Middleton og sóttist eftir sambandi við hana og ræktaði það. Það varð kaldhæðnislegt hversu fjölmiðlar hundeltu Kate hvert spor daglega lífsins eftir að sambandið varð opinbert. Kaldhæðnislega var flótti hennar undan ágengnum ljósmyndurum og fréttamönnum áberandi líkt því sem Díana þurfti að lifa við í tilhugalífinu með Karli prins.

Hvort að það gerist við fráfall ömmu hans eða föður er ómögulegt um að segja í raun á þessari stundu, en það er greinilegt á skoðanakönnunum þó að Bretar hafa alla tíð viljað að hann tæki við af Elísabetu II. Það var ennfremur ósk móður hans sem gerði upp við alla kergjuna í garð Karls í ógleymanlegu viðtali tveim árum áður en hún dó.
Það var mjög ánægjulegt að sjá frétt um það að Vilhjálmur og Kate ætla að reyna aftur. Vonandi tekst þeim að rækta líf í þessum myndavélablossum sem hlýtur að vera þungbær fylgifiskur þess lífs sem fylgir væntanlegum krónprinsi Englands. Það er líf sem enginn getur flúið sama hversu þungt það getur orðið.
Að mínu mati hefur Vilhjálmur eflst við hverja raun. Hann er lifandi eftirmynd Díönu og virðist hafa erft stillingu hennar og tignarlegan þokka, sem faðir hans hefur aldrei haft til að bera. Hann á eftir að verða glæsilegur kóngur, fyrr en síðar.
![]() |
Vilhjálmur og Kate saman á ný? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 18:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)