Færsluflokkur: Dægurmál
24.6.2007 | 03:10
Skrifað gegn kvenréttindum á Moggablogginu
Það er viðbúið að á opið bloggkerfi safnist saman fólk úr öllum áttum, sem vill tjá sig einhverra hluta vegna. Sumir eru málefnalegir og heiðarlegir í sínum skrifum. Þá er gaman að lesa. Það er hinsvegar ekki gaman að líta á vefi með skrifum af því tagi sem viðkomandi einstaklingur virðist hreykja sér mjög af að stunda. Ég hélt á þeim tímum sem við lifum á væri samstaða um það í samfélaginu að staða kvenna ætti að vera jöfn okkar karlanna. Það teljast mannréttindi að kynin standi jöfn. Það verður að standa vörð um það. Það er auðvitað ömurlegt að lesa skrif þar sem konur eru talaðar niður í duftið hér á þessu bloggkerfi.
Þegar að ég byrjaði á spjallvefunum var oft gaman að skrifa og ég naut þess tíma mjög. Það kom þó að því að lið sem var beinlínis að skemma vitræna umræðu lagði spjallvefina að mestu í rúst. Þetta var fólk sem gat með engu móti verið málefnalegt. Þetta fólk lagði Innherjavefinn á vísir.is í rúst og lagði síðar málefnin.com í rúst. Þar er nú steindatt samfélag að mestu sýnist mér. Ég leit í vikunni í fyrsta skipti á málefnin síðan í febrúar. Ég fékk mig fullsaddan af þeim vef þá er vefstjórinn þar bar út um mig ósanna kjaftasögu og braut eigin málverjaboðorð. Það var ekkert spennandi að líta þar aftur og ég er dauðfeginn að hafa hætt þar á þeim tíma.
Þar virðist hnefalögmálið og pólitískt fyrirframséð hatur ríkja á milli fólks. Óþolandi ómálefnalegt andrúmsloft semsagt. Það er eins og það er. Ég fer ekkert leynt með að ég sakna örlítið gömlu spjalldaganna þegar að málefnalegt spjall skipti máli milli fólks. Ég sakna þó alls ekki þess andrúmslofts sem var þar þó undir lokin í minni tíð. Það er leiðinlegt ef sömu leiðindi og ómerkilegheit berast hingað á Moggabloggið finnst mér. En það er þó valkostur okkar að sniðganga þau blogg sem okkur mislíkar og halda okkur við hin, enda eru margir frábærir pennar hér.
Ég þekki ekkert viðkomandi mann sem skrifar þessi ömurlegu orð á sinn vef. Þau verða þó til þess að ég tel ekki rétt að líta þar framar, þó umdeildur maður sé eftir uppljóstranir Elíasar Halldórs. Orðbragð hans í þeim væntingum að reyna að halda vinsældum sínum með því að ráðast að konum og sjálfsögðum mannréttindum þeirra hjálpa ekki málstað hans sem var þó orðinn frekar veikburða fyrir.
24.6.2007 | 01:41
Bloggpælingar
Það hefur alla tíð verið þannig að ég skrifa lítið um prívatmál á mínu bloggi. Það hefur alla tíð verið skýrt að hér eru pælingar að mestu útfrá þjóðmálum. Ég byrjaði reyndar að blogga í rólegheitum á blogspot fyrir rúmum fimm árum. Það átti upphaflega að vera lítið og sætt blogg fyrir vini og ættingja, sem vildu heyra í mér hljóðið og lesa skoðanir mínar. Eftir að ég fór að taka að ráði þátt í pólitísku starfi efldist þetta allt og ég opnaði vef fyrir fjórum árum sem lengi var flaggskip mitt á netinu. Það var ómetanlegur tími. Það voru viðbrigði fyrir mig þegar að ég ákvað að hætta að uppfæra hann. Ég held þó í hann enn eins og ég skildi við hann.
Bloggpælingarnar hafa sífellt orðið meira áberandi. Ég fann mér farveg á tveim vefsíðum, bloggpælingum og öflugri prívatsíðu, þar sem ég skrifaði langa pistla vikum saman. Að því kom að mér fannst sá vettvangur búinn. Ég vildi breyta til. Á þessum tíma var ég á krossgötum í pólitísku starfi. Ég varð fyrir vonbrigðum með stöðu mína og ekki síður þá sem ég hafði lengi unnið með í pólitísku starfi og hafði áður treyst. Það varð visst uppgjör hjá mér á þeim tímapunkti og ég ákvað að breyta stórlega til. Í kjölfar þess að standa á þeim krossgötum ákvað ég að hætta virku flokksstarfi að mestu. Það var rétt ákvörðun.
Síðasta haust kom ég hingað. Það var nýr og ferskur vettvangur sem gaf mér mikið. Hér hef ég skrifað um það sem mér hefur dottið í hug og langað að tala um. Þar eru fréttir dagsins í dag og málefni annarra tíma efst á baugi. Ég hef alla tíð haft gríðarlega gaman af að stúdera söguna og þess sést merki hér. Það má vel vera að sumum leiðist þetta sögugrúsk mitt og ennfremur hvernig ég skrifa um það sem er að gerast. Það hefur aldrei staðið til að þetta yrði blogg nær alveg um mig heldur um þau málefni sem ég met mest og hef alla tíð spáð mest í. Þessi vefur hefur verið mér mikilvægur og hér hef ég haft mitt pláss.
Stór þáttur þess hversu góður þessi vettvangur er telst auðvitað það að Mogginn opnar á það að við hér getum kommentað á fréttirnar sem eru í gangi. Það hef ég nýtt mér vel. Það má vel vera að sumum hafi alla tíð fundist ég langorður og fara of ítarlega yfir mál, það er mín ákvörðun og ég haga mínum seglum eftir því sem ég vil. Það að fara hingað á Moggabloggið var rétt ákvörðun og ég hef notið þess mjög að skrifa hér. Því held ég áfram svo lengi sem ég hef áhugann. Það að vera ekki lengur eins tengdur einum stjórnmálaflokki er líka ágætt í sjálfu sér. Ég er ófeiminn við að skjóta á þá sem ég hef unnið með ef ég tel það rétt.
Mín bloggtilvera hér skiptir mig máli og það skiptir mig líka máli að aðrir vilji lesa og skilji eftir komment. Það er vonlaust að vera algjörlega sammála öllum, en þess þá mikilvægara að stofna til málefnalegs spjalls við þá og eins hina sem vilja kommenta. Ég hef alla tíð reynt að vera málefnalegur og sleppt stóryrðum í garð fólks. Þannig var ég alinn upp og það er sá grunnur sem ég hef byggt á. Þannig verð ég alla tíð.
Það voru sviptingar á Moggablogginu um helgina. Nokkrir mætir félagar söðluðu um og yfirgáfu okkur. Það er eftirsjá af þeim. En það kemur ávallt fólk í skörðin sem losna. Sjálfur vil ég vera hér, þetta er vettvangur sem ég vil nýta mér og tel mig hafa fundið þann stall sem ég vil sjálfur halda áfram. Þeim sem hafa hætt hér vil ég þakka bloggvináttuna, en henni er nú sjálfhætt eftir að vefir þeirra dóu hér. Ég fylgist með þeim áfram á nýjum blogglendum.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 01:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
23.6.2007 | 20:35
Ljótasti hundur heims ber nafn með rentu


Set hér inn myndir af þeim báðum. Þið getið valið hvorum ykkar finnst ljótari, en eitt er ljóst að hvorugur eru þeir eins og ljúfu hundarnir hérna í íslensku sveitasælunni.
![]() |
Ljótasti hundur heims krýndur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 20:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
23.6.2007 | 18:22
Gefum sögunni meiri gaum á vef bæjarins

Þetta er svo sannarlega gott og blessað. Þó að vefur Akureyrarbæjar hafi alla tíð að mínu mati verið stórglæsilegur, upplýsandi og vandaður, í raun í fararbroddi vefsetra sem er á vegum íslensks sveitarfélags hefur mér alltaf fundist hann eiginlega ofhlaðinn. Kannski kippast einhverjir við þegar að ég segi þetta en ég segi það samt. Mér finnst sumar upplýsingar of flóknar að finna og vefurinn er stundum of mikið völundarhús er leita þarf snöggt að ýmsu smálegu sem oft blasir ekki við. Ég hef heyrt á fleirum að þeir upplifa hið sama.
Með einföldun vefsíðunnar og að skipta henni upp í nokkur svið sem hver og einn velur úr er betra að tína fram lykilpunkta þess sem fólk vill skoða með heimsókninni á vef Akureyrarbæjar. Að mjög mörgu leyti er heimasíða Akureyrarbæjar andlit bæjarins. Vefurinn þarf að vera svalur frontur stjórnsýslu, afþreyingar, upplýsinga og lykilpunkta, bæði fyrir þá sem búa í bænum og vilja kynna sér betur málefni sveitarfélagsins og eins þess sem er í ferðahug hingað norður. Við eigum að sinna öllum hliðum, því vefurinn á ekki bara að þjónusta mig og þig á Akureyri heldur líka þann sem vill heimsækja okkur, jafnvel í sumar, hver veit.
Mér finnst hafa tekist vel til með stofnun Akureyrarstofu. Þar eru undir sama hætti markaðs-, menningar- og ferðamál Akureyrarbæjar og mun hún aðallega einbeita sér að Akureyri en verða vissulega jafnframt þátttakandi í samvinnuverkefnum hér í Eyjafirði og annars staðar. Elín Margrét fór vel yfir öll þau mál í framsögu sinni á þriðjudag og þakka ég henni greinargóða umfjöllun. Eitt finnst mér þó vanta og það stórlega. Það er að hlúa betur að sögu Akureyrarbæjar, á netinu, og það auðvitað á heimasíðu Akureyrarbæjar.
Að mínu mati væri vel til fundið að safna saman á vef bæjarins samantekt um bæjarstjóra í sögu Akureyrarbæjar, bæjarfulltrúa í langri sögu sveitarfélagsins og heiðursborgara Akureyrarbæjar. Þetta er umfjöllun sem hvergi er til staðar. Ég hef alla tíð verið aðdáandi sögunnar og viljað veg hennar sem mestan, alltaf haft gaman að lesa og skrifa um fortíð jafnt sem nútíð, t.d. í pólitík og talið mikilvægt að halda ýmsum til haga. Það er mikilvægt að hlúa að þessum þáttum á vegum bæjarins.
Jón Hjaltason hefur ritað nokkur afburðagóð rit af sögu Akureyrarbæjar, rit sem hann á heiður fyrir, enda vönduð og vel úr garði gerð. Það væri vel til fundið að fá Jón eða einhvern annan sögulega þenkjandi mann til að taka þessar upplýsingar saman, sem varla er mikið vandamál, nú eða hreinlega birta meira á vefnum úr bókum Jóns um sögu Akureyrarbæjar, sem reyndar full þörf er á að halda áfram, enda endar saga bæjarins ekki við síðasta bindi Jóns.
Vefur Akureyrarbæjar á að vera stolt okkar og flaggskip hér í kynningu á bænum. Jafnframt þarf að huga þar að sögu bæjarins, sem er merk og áhugaverð. Ungir sem eldri Akureyringar líta oft á vef sveitarfélagsins og þar væri söguhorn vel þegið með öllum öðrum mikilvægum upplýsingum. Þetta eru verkefni sem ber að vinna að við uppstokkun heimasíðu bæjarins sem nú stendur yfir.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.6.2007 | 15:18
Litrík umræða í bloggheimum um barnaklámsmál
Það er erfitt að fullyrða neitt um málið svosem, nema þá að það er háalvarlegt. Þetta eru ásakanir af því tagi að lögreglan á að taka þær upp og fara yfir stöðu þess frá öllum hliðum. Annað er varla líðandi. Þar sem að nöfn viðkomandi sem Elías Halldór gefur upp að hafi staðið að baki þessu eru orðin opinberuð að því er virðist má leiða getum að því að bálið magnist enn frekar. Svo er allavega þegar hægt að sjá hér í bloggkerfinu. Þetta er auðvitað mál sem vekur heitar skoðanir og hugleiðingar. Það er viðbúið þegar að fram koma skrif af þessu tagi að þeir sem lesa vilji fara næsta skref og leiða málið til lykta. Sumir hafa verið duglegri en aðrir í þessu ef marka má skrif hér.
Barnaklámsmál af því tagi sem Elías Halldór Ágústsson opinberar eru þess eðlis að miklu meira en eitt bloggkerfi nötrar í raun. Þessi umræða hefur farið sem eldur í sinu um samfélagið. Ísland í dag hefur tekið málið upp og það virðist bara rétt að byrja. Það verður fróðlegt að sjá hvert framhaldið verði nú þegar að þetta er komið í hámæli og greinilegt er að Moggabloggararnir sem um ræðir hafa tekið skrifin verulega til sín og er greinilega ekki sama um þá umfjöllun sem hafin er. Það verður svo auðvitað athyglisvert að sjá hvort að slóð málsins verði rakin að fullu og hvernig það verði rannsakað, sem hlýtur að blasa við að verði gert.
Sé það rétt að lögreglan hafi skellt skollaeyrum við þessu máli fyrir átta árum er það svo í sjálfu sér stóralvarlegt mál sem ekki má þaga í hel frekar en hitt málið sjálft.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
23.6.2007 | 10:57
Eyjan fer af stað - kjaftasagan um Egil var rétt
Merkilegast þykir mér að sjá Friðjón R. Friðjónsson skrifa þarna, en hann var 2. varaformaður SUS hluta þess tíma sem ég var í stjórninni, ásamt þeim Guðmundi Svanssyni og Tómasi Hafliðasyni. Svo er auðvitað athyglisvert að Þráinn Bertelsson skrifar þarna. Ekki kemur að óvörum að sjá pólitíkusana Össur Skarphéðinsson, iðnaðarráðherra, og Björn Inga Hrafnsson, borgarfulltrúa, blogga þarna á vefsetri Péturs og Andrésar. Merkilegt að sjá Björgvin á Bæjarslúðrinu austfirska skrifa þarna.
Nöfnin þarna eru annars að mér sýnist þessi:
- Andrés Jónsson
- Andrés Magnússon
- Arna Schram
- Björgvin Valur Guðmundsson
- Björn Ingi Hrafnsson
- Egill Helgason
- Friðjón R. Friðjónsson
- Grímur Atlason
- Guðmundur Rúnar Svansson
- Hafrún Kristjánsdóttir
- Helga Vala Helgadóttir
- Magnús Sveinn Helgason
- Pétur Gunnarsson
- Pétur Tyrfingsson
- Tómas Hafliðason
- Þorbjörg Gunnlaugsdóttir
- Þráinn Bertelsson
- Össur Skarphéðinsson
Ég fór yfir þetta í gær í þessum skrifum og nefndi nöfnin sem hafa verið í umræðunni. Auðvitað voru þau öll rétt, enda hefðu þau sem áður hefðu verið nefnd tekið fyrir það á bloggum sínum hefði sá orðrómur verið rangur. En það er skiljanlegt að fólk vilji færa sig til sé það ekki sátt að einhverju leyti og eða vilji mynda aðra elítu á vefnum, einskonar vefrit í blokkarformi.
Það verður fróðlegt að sjá hvernig gengur þarna. Þetta samfélag verður allavega líflegt. Á moggablogginu heldur lífið áfram eins og ekkert hafi gerst. Það koma alltaf einhverjir í annarra stað. Það sýnir sagan okkur frá opnun fyrir ári.
Ég ætla mér að skrifa áfram hér mínar pælingar. Hér líður mér vel og engin ástæða til að hreyfa sig um set. Það hefur enda aldrei komið til greina að færa sig frá því að ég opnaði hér í september 2006.
![]() |
Nýr fjölmiðill tekur til starfa |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 11:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.6.2007 | 23:24
Háskaakstur í miðborg Reykjavíkur
Það er vonandi að ungmennin þrjú sem lentu í þessu nái fullri heilsu. Það eru samt blendnar tilfinningar sem fylgja þessu máli, það er alveg ljóst. Það er auðvitað algjört sjálfskaparvíti að stunda hraðakstur inni í miðri borg og getur farið verulega illa. Það gerðist í þessu tilfelli og það hefur gerst áður. Það voru tilfelli t.d. á síðasta ári sem voru svipuð þessu. Banaslys fylgdu í sumum tilfellum. Þetta er dapurleg þróun, enda virðist vera sama þó að klifað sé á því að hraðakstur eða hreinn kappakstur geti orðið fólki að bana að staðan virðist lítið sem ekkert breytast til hins betra.
Það þarf að stokka málin upp enn frekar. Guðbrandur Bogason, formaður Ökukennarafélags Íslands, kom reyndar með góðan punkt í kvöldfréttum þar sem hann kom með sitt mat að breyta þurfi ökunámi á Íslandi og eyða meira púðri í djúpa innrætingu. Það er margt til í því. Eitthvað þarf allavega að gera. Það blasir við. Þetta er þróun sem á ekki að sætta sig við. Til þess er hún enda í senn bæði of drungaleg og sorgleg.
![]() |
Þungt haldin eftir umferðarslys |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
22.6.2007 | 17:06
Nýtt bloggsamfélag - Egill bloggar á Eyjunni
Egill hefur reyndar ekki bloggað hér í nokkra daga, en dvelst í blíðunni á eyjunni Folegandros. Lista yfir bloggnöfnin sem þá voru komin á Eyjuna var skúbbað fyrir nokkrum dögum án þess að nokkur sýnileg mótmæli kæmu við því og því greinilegt að það fólk ætlar að skrifa þar eftir boð þar um, enda verður ekki um að ræða opið bloggsamfélag eftir mínum heimildum, heldur fyrirfram ákveðinn pennavettvang sem mynda samfélagið sem um ræðir.
Þau nöfn eru:
Björn Ingi Hrafnsson, borgarfulltrúi
Helga Vala Helgadóttir, varaþingmaður
Habba Kriss, sálfræðingur og systir Sigga Kára
Grímur Atlason, bæjarstjóri í Bolungarvík
Freedomfries, ameríska bloggið skemmtilega
Hux (Pétur Gunnarsson) stjóri
Andrés (Jónsson) stjóri
Andrés M. blaðamaður
Pétur Tyrfingsson, sálfræðingur
Obba (eiginkona Ágústs Ólafs Ágústssonar)
Arna Schram, formaður Blaðamannafélagsins
Össur Skarphéðinsson, iðnaðarráðherra.
Merkilegur listi þetta. Ekki vekur mikla undrun að sjá nafn Össurar Skarphéðinssonar, iðnaðarráðherra og fyrrum formanns Samfylkingarinnar, en hann og Andrés eru vel tengdir. En enn er smellt er á eyjuna.is kemur melding um innskráningu og ekkert enn verið opnað. Það verður fróðlegt að sjá það sem blasir við þegar að hurðin opnast. Reyndar gat maður litið á grunninn að nýrri síðu Björns Inga um daginn og hún gaf fyrirheit um hvað er framundan.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
22.6.2007 | 13:58
50 dagar liðnir - er Madeleine stödd á Möltu?

Madeleine var numin á brott af hótelherbergi en foreldrar hennar höfðu skilið hana þar eftir á meðan þau fóru og fengu sér kvöldverð. Málið allt er hið undarlegasta og hefur það verið miðpunktur fjölmiðlaathygli af skiljanlegum ástæðum allt frá fyrsta degi. Ljóst er að portúgalska lögreglan vann málið allt of hægt í upphafi og klúðraði augljóslega rannsókninni strax á upphafsstigi.
Nú beinast sjónir að vísbendingum um að hjón hafi séð stelpu sem líkist Madeleine McCann á Möltu. Þær vísbendingar þykja vera sterkar og er nú verið að kanna þær. Það er þó ljóst að eftir fimmtíu daga leit minnka sífellt vonir um árangur í leitinni. Það hefur þó gerst að börn hafi verið týnd árum saman en jafnvel fundist. Þetta tilfelli þykir þó sérstaklega dularfullt og fjölmiðlaathyglin er gríðarleg.
Það er ljóst að McCann-hjónin eru í sjokki. Þau litu af dóttur sinni og kenna sér eflaust um hvernig fór. Það verður þeim þung byrði ef Madeleine finnst látin eða jafnvel finnst aldrei, þess eru auðvitað dæmi að krakkar hafi horfið við svipaðar aðstæður, en aldrei fundist. Það eru dapurleg örlög.
![]() |
Blöðrur til marks um samkennd með fjölskyldu Madeleine |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.6.2007 | 17:22
Er aftur komið í tísku að sauma?

Fannst þessi frétt mjög athyglisverð, enda taldi ég enga sérstaka bylgju vera í þá átt að konur saumuðu. Ég man að ömmur mínar báðar voru miklar saumakonur, áttu saumavélar og sinntu þeim verkum með miklum dugnaðarhætti. Móðir mín verður seint þekkt fyrir saumaskap eða að eyða tíma sínum í saumavélabras. Veit svosem ekki hvernig nútímakonur í dag gera hlutina, en mér finnst margar þeirra ekki líklegar til að standa í biðröð eftir slíkum vélum.
Það er svosem ánægjulegt ef einhver saumamennskubylgja kemur aftur. Það segir þessi eftirspurn eftir saumavélum okkur klárlega.
![]() |
Saumavélar streyma út í Kringlunni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)