29.11.2006 | 22:02
Nicolas Sarkozy í forsetaframboð

Lengi vel var talið útilokað að Chirac færi fram aftur, en það vakti undrun margra er Bernadette, eiginkona hans, lýsti því yfir í mánuðinum að hann hefði ekki enn útilokað þann valkost. Þessi staða mála bendir til þess að ekki verði samstaða um kandidat hægrimanna. Það að frambjóðendur séu farnir að lýsa yfir áhuga á forsetastólnum á hægrivængnum með forsetann enn í hugleiðingum um pólitíska stöðu sína vekur altént verulega athygli og hugleiðinga stjórnmálaáhugamanna. En nú líður væntanlega að því að línur skýrist á hægrivængnum og forsetinn þarf mjög bráðlega að taka ákvörðun um pólitíska framtíð sína og fyrirætlanir.
Flestir ganga þó að því sem gefnu að Chirac hætti. Hann er orðinn veiklulegur og sést hefur á síðustu mánuðum að heilsa hans er tekin að dala. Hann hefur væntanlega hvorki úthald né áhuga á að halda í annað fimm ára kjörtímabil. Ef marka má kannanir hafa Frakkar ennfremur takmarkaðan áhuga á honum nú. Chirac hefur mistekist að skipta um áherslur og stefnu í kjölfar taps í þjóðaratkvæðagreiðslu sumarið 2005 um stjórnarskrá ESB. Jacques Chirac hefur aldrei fyrirgefið Sarkozy að hafa ekki stutt sig í forsetakosningunum 1995 og það verið dökkur blettur í hans huga. Það var til marks um það pólitíska minni Chiracs að hann skyldi ekki velja Sarkozy sem forsætisráðherra í fyrra.
Í staðinn var hann gerður að innanríkisráðherra. Töldu bæði Chirac og Dominique de Villepin, forsætisráðherra, að Sarkozy myndi ekki geta staðið undir því. Það minnkaði ekki vinsældir hans að vera þar og hann virðist langvinsælasti stjórnmálamaður Frakka á hægrivængnum nú í upphafi þessa mikilvæga kosningavetrar í frönskum stjórnmálum. Chirac hafði væntingar um að de Villepin gæti notað forsætið í stjórninni sem stökkpall í forsetaframboð en svo fór ekki - hann skaddaðist verulega á því, enda þótt klaufalegur. Sarkozy virðist geta leikandi létt tryggt sér útnefningu og það jafnvel án atbeina forsetans og stuðningsmanna hans.
Sarko, eins og hann er almennt kallaður, telst óskabarn hægrimanna fyrir kosningarnar og mælist langvinsælastur þeirra nú og mun væntanlega takast að verða kandidat hægriblokkarinnar, hvað sem Chirac tautar eða raular. Forkosningar hægrimanna um opinberan kandidat þeirra fer fram í janúar. Þar sem Sarkozy er umdeildur gæti hægriblokkin klofnað upp. Það myndi aðeins styrkja Segolene Royal, frambjóðanda sósíalista, sem tryggði sér útnefningu flokks síns með yfirburðum fyrr í þessum mánuði. Flest bendir til kapphlaups milli Sego og Sarko - gæti það farið á hvorn veginn sem er.
En beðið er nú ákvörðunar Jacques Chirac, forseta Frakklands, sem væntanlega mun taka af skarið með pólitíska framtíð sína fyrir jólin. Það er mikið hugsað í Elysée-höll þessar vikurnar, er líður að úrslitastund í frönskum stjórnmálum og væntanlega pólitískum leiðarlokum hins umdeilda 74 ára forseta, sem er að upplifa sína endamánuði í embætti með sama beiska hættinum og forveri hans, Francois Mitterrand, gerði er líða tók á árið 1994 og fram undir síðustu mánuðina á árinu 1995.
![]() |
Nicolas Sarkozy býður sig fram til forseta Frakklands |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.11.2006 | 17:15
Þreyta í stjórnarsamstarfinu
Mér finnst greinileg þreyta að verða komin í ríkisstjórnarsamstarf Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks. Mér finnst þetta orðið meira áberandi nú eftir að Davíð Oddsson og Halldór Ásgrímsson, burðarásar samstarfsins í áratug, hættu í stjórnmálum. Yfirlýsingar forystumanna Framsóknarflokksins hvað varðar málefni Ríkisútvarpsins og svo varðandi Íraksmálið vekur þær spurningar hvort vandræðagangurinn vegna stöðu flokksins, sé að leiða til þess að þeir skipti örar um skoðanir en áður.
Mér finnst áberandi taktar framsóknarmanna við að vega að ráðherrum og forystumönnum Sjálfstæðisflokksins orðið nokkuð áberandi. RÚV-málið er ekki það eina sem vakið hefur athygli. Mér finnst það ekki leyna sér að margir sjálfstæðismenn séu að verða ansi leiðir á Framsóknarflokknum og óstaðfestunni sem einkennt hefur stöðu mála þar mjög lengi, ekki bara nú eftir formannsskiptin heldur og líka ekki síður undir lokin á formannsferli Halldórs Ásgrímssonar, er flokkurinn nötraði margoft og það veikti stjórnina, sérstaklega eftir að Halldór varð forsætisráðherra.
Ég sé að Egill Helgason er að spekúlera um þessi mál á vef sínum. Ég er ansi sammála orðinn Agli í þessari greiningu. Mér finnst Framsóknarflokkurinn orðinn ansi veikburða og staða mála hefur veikst yfir, það fer ekki á milli mála. Það munaði reyndar mjög litlu að Sjálfstæðisflokkurinn skildi Framsóknarflokkinn eftir í sumar þegar að Halldór Ásgrímsson rann út úr íslenskri pólitík með litlum glæsibrag. Þá logaði Framsókn stafnanna á milli. Ég tel að mjög naumt hafi staðið í þeim hjaðningavígum að hann yrði skilinn eftir og ekki metinn starfhæfur lengur. Ég skrifaði vel um það á þeim tíma.
Staða mála ræðst mjög vel á næstu vikum. Það styttist í kosningar og eftir því sem hver dagurinn líður eykst taugaveiklun Framsóknarflokksins með fjölda mála. Það er greinilegt að örvænting er innan flokksins. Það er varla furða, með flokkinn að festast um eða rétt yfir 10% fylgi, nýjan formann sem hefur ekki markað sér neinn alvörugrunn í raun og innri væringar undir niðri. Enn veit enginn hvert sleggjan snýst til höggs og óvissan vofir víða yfir. Þeir eru t.d. ekki margir sem leggja peningana sína undir það að formaður flokksins nái inn í Reykjavík. Mikill lífróður framundan þar.
En staða þessarar ríkisstjórnar verður í brennidepli næstu vikur og mánuði. Grunnur þessa samstarfs breyttist með leiðtogaskiptum og þar eru breyttir tímar og líka meiri losung á stöðunni að mínu mati. Þetta verða spennandi tímar eftir jólin og áhugavert fyrir það fyrsta hvort stjórnin heldur velli eður ei. Þar veltur væntanlega mest hvort Framsóknarflokknum tekst að snúa vörn í sókn. Ekki blæs allavega byrlega fyrir í þeim efnum nú. Fróðlegt að sjá Gallup-könnun á föstudag allavega.
![]() |
Ungir framsóknarmenn leggjast gegn RÚV ohf. |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
29.11.2006 | 15:43
Tímamót í bæjarmálunum á Akureyri

Við sem höfum unnið með Sigrúnu Björk hér í flokksstarfinu þekkjum hana vel. Hún hefur verið áberandi í stjórnmálunum og þð eru engin stórtíðindi fyrir okkur að hún verði bæjarstjóri. Við sjálfstæðismenn á Akureyri erum stoltir að fyrsta konan sem verður bæjarstjóri sé úr Sjálfstæðisflokknum. Í þessu felast tímamót í bæjarmálunum og jafnframt merkilegt að Kristján Þór verði fyrsti bæjarstjórinn sem taki við embætti forseta bæjarstjórnar. Það er skýr yfirlýsing af hans hálfu um að efna loforð við bæjarbúa um að vinna á þessu kjörtímabili.
Þessi miklu tíðindi voru kynnt á blaðamannafundi Kristjáns Þórs, Sigrúnar Bjarkar og Hermanns Jóns Tómassonar, formanns bæjarráðs og leiðtoga Samfylkingarinnar, laust fyrir hádegið. Það er gleðiefni að full samstaða er um breytingarnar og ánægjulegt að samstarf okkar við Samfylkinguna breytist ekkert þó að þessi uppstokkun verði innan okkar raða. Kristján Þór hefur verið bæjarstjóri í tæpan áratug, svo að þetta eru miklar breytingar fyrir okkur sjálfstæðismenn og boða aðra tíma innan okkar raða. Athygli vakti að Sigrún Björk var í bleiku á þessum blaðamannafundi og í hádegisviðtalinu hjá Birni Þorlákssyni. Varla tilviljun það.
Ýmsar breytingar fylgja því að Sigrún Björk og Kristján Þór hafi stólaskipti. Uppstokkun verður skiljanlega á nefndum og ráðum. Hjalti Jón Sveinsson, bæjarfulltrúi, tekur sæti Sigrúnar Bjarkar í bæjarráði og Elín Margrét Hallgrímsdóttir, bæjarfulltrúi, tekur sæti í framkvæmdaráði, stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar og verður formaður stjórnar Akureyrarstofu, auk þess að gegna formennsku í skólanefnd, hún hefur setið í bæjarráði frá kosningunum í vor. Sigrún Björk verður setufulltrúi í bæjarráði sem bæjarstjóri, eins og Kristján Þór áður. Kristján Þór mun ekki taka sæti í nefndum er hann verður forseti bæjarstjórnar.
En já, þetta er stór dagur í bæjarmálunum. Sigrún Björk Jakobsdóttir verður tíundi bæjarstjórinn í sögu Akureyrarkaupstaðar, frá árinu 1919, og fyrsta konan. Því fylgja mikil tímamót. Ég vil óska Sigrúnu Björk Jakobsdóttur innilega til hamingju með embættið. Við höfum átt langt samstarf í flokksstarfinu hér og unnið saman í mörgum verkefnum. Ég þekki hana því vel og veit því vel að hún á eftir að verða mjög áberandi og öflug í þessu krefjandi verkefni.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.11.2006 | 11:36
Sigrún Björk bæjarstjóri - Kristján Þór forseti

Mikla athygli stjórnmálaáhugamanna hér á Akureyri og almennra flokksmanna vekur að Kristján Þór muni taka við embætti forseta bæjarstjórnar af Sigrúnu Björk og verður því fyrsti bæjarstjórinn í sögu Akureyrarkaupstaðar sem ennfremur er forseti bæjarstjórnar. Útilokar hann ekki að gegna embættinu með þingmennsku. Hann mun því áfram verða veigamikill hluti bæjarstjórnarfunda og halda áfram sínum verkum fyrir Akureyringa í bæjarmálum út kjörtímabil sitt.
Mikill orðrómur hafði verið um það að Kristján Þór myndi yfirgefa bæjarmálin og halda alfarið til verka í landsmálum. Skv. þessu er ljóst að svo verður ekki og hann mun sinna bæjarmálum með landsmálunum með eftir því sem þurfa þykir. Það eru mikil tíðindi að fráfarandi bæjarstjóri verði forseti bæjarstjórnar og er flétta sem fáir sáu fyrir.
Þetta þýðir að Kristjáni Þór er full alvara með að efna loforð sín við bæjarbúa fyrir síðustu sveitarstjórnarkosningar um að sinna bæjarmálunum af krafti, en með öðrum hætti.
![]() |
Sigrún Björk verður bæjarstjóri á Akureyri í byrjun næsta árs |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)