15.10.2007 | 19:22
Ótrúverðugar afsakanir Vilhjálms

Mér finnst þetta vægast sagt afleitt mál fyrir Vilhjálm Þ. Vilhjálmsson. Gildir þá satt best að segja einu hvort sem hann er að segja ósatt um að hafa ekki vitað af grunni einkaréttarsamningsins eða hafi ekki lesið gögnin sem eru á borðinu og með því lagt saman tvo og tvo, eins og allir gera sem lesa gögnin. Veit ekki hvort er verra í sannleika sagt. Í báðum tilfellum er ljóst að viðkomandi er varla starfi sínu vaxinn. Þetta mál blasir allavega þannig við mér eins og gögnin segja til um.
Mér finnst þetta mál allt verulega slæmt fyrir Vilhjálm Þ. Mér finnst það með ólíkindum að maður í hans stöðu og með þær upplýsingar á borðinu er blasa við hafi ekki vitneskju um lykilmál sem það er um ræðir. Það er afskaplega einfalt mál. Ég fæ ekki betur séð en að spurt verði um hvort hann sé nógu trúverðugur til að halda áfram í hlutverki sínu sem leiðtogi flokks síns eftir þessa atburðarás.
![]() |
Vilhjálmur Þ: Nei, 20 ára ákvæðið var ekki kynnt fyrir mér " |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
15.10.2007 | 17:53
Vissi Vilhjálmur Þ. um einkaréttarsamninginn?

Það er ljóst að það er ekki rétt ef yfirlýsing þremenninganna og birting minnisblaða færir fram sannleikinn í málinu. Ég verð fúslega að viðurkenna að mér finnst þetta mál hafa farið í marga og óskiljanlega hringi. En eftir stendur að spurt er um trúverðugleika. Hafi borgarstjórinn í Reykjavík verið upplýstur um alla þætti einkaréttarsamnings margumtalaða hefur hann fulla vitneskju málsins. Það er öllum ljóst.
Það má vel vera að eitthvað hafi vantað í heildarmyndina fyrir kjörnum fulltrúum en þessi minnisblöð sýna svo vel stöðu málsins og lykilpunkta þess að það er fjarstæða að halda því fram eftir að hafa vitneskju um þau að ekki sé fyrir hendi þekking eða kunnátta á málinu. Það er mjög einfalt mál.
![]() |
Borgarstjóri upplýstur um samning til 20 ára þann 23. september |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
15.10.2007 | 15:36
Fjármálaeftirlitið stendur sig vel í REI-málinu

Mér finnst þetta mál verða sífellt skítugra og virðist vera pottur brotinn víða. Fór ég yfir það sem mér fannst helst blasa við í gær. Það verður áhugavert að sjá hvað nýji meirihlutinn, Rei-listinn, muni gera í málefnum REI og Orkuveitunnar. Það vakti t.d. mikla athygli í gær orð Svandísar og Björns Inga um REI en þau töluðu í tvær áttir um hluthafafundinn og hvort skera ætti úr um lögmæti hans með dómsmálinu sem dómtekið var í dag.
Það er ljóst að vandséð verður hvernig sjónarmið allra framboðanna fjögurra í nýjum meirihluta verði sætt í þessu máli og eiginlega leikur forvitni á að vita hversu vel muni ganga að ná þeim saman í eina heildstæða skoðun. Það blasir við öllum að það sem skiptir mestu máli er að ógilda hluthafafundinn fyrir um hálfum mánuði og finna nýtt upphaf í þessu máli sem er fjarri því lokið.
![]() |
Fjármálaeftirlitið gerir athugasemdir við stofnun eignarhaldsfélags |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
15.10.2007 | 14:42
Er Íslandshreyfingin í oddastöðu í borgarstjórn?

Á fimmtudag, er nýji Rei-listinn var myndaður, gat Margrét ekki sagt hverjum hún tilheyrði. Hún sagðist þó vera sem óháð, þrátt fyrir að vera varaformaður í stjórnmálaflokki, og tók sérstaklega fram að Frjálslynda flokknum hefði verið rænt í ársbyrjun. Margrét verður fyrsti forseti borgarstjórnar sem hefur umboð sem enginn skilur. Hún er borgarfulltrúi í nafni flokks, sem hún klauf til að ganga í annan. Það er varla von á að meðaljónar skilji svona pólitík. En Íslandshreyfingin eignar sér Margréti með húð og hár.
Hvaða umboð hefur Íslandshreyfingin annars? Það er ekki nema von að spurt sé. Þeim flokk mistókst að ná þingmanni í Reykjavík (Ómar og Margrét voru allnokkuð frá því að eygja möguleika á þingsæti) en sjá nú fram á oddastöðu í borgarstjórn Reykjavíkur hvorki meira né minna þrátt fyrir að hafa aldrei orðið að nokkru nema fallegu nafni á kosningaskiltum sem höfðu engin áhrif.
Það er ekki nema von að fólk sé gáttað á þessari stórundarlegu stöðu - jú nema kannski Ómar sem glottir vegna áhrifa sinna, án umboðs í kosningum, og Margrét sem að telur eflaust klukkustundirnar í að launaumslagið fitni svo um munar er hún verður einn valdamesti forystumaður Reykjavíkurborgar.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
15.10.2007 | 10:48
Brúðkaupshugleiðingar settar í biðferli

En það má kannski segja líka hvort að þetta fólk lifi bókstaflega í öðrum heimi. Það mætti halda það af öllum glamúrnum og glæsileikanum sem blasir við dagsdaglega. Ljósmyndarar fylgja jafnan eftir daglega og friðurinn fyrir fjölmiðlum er takmarkaður. Flestir njóta athyglinnar sem fylgir fjölmiðlum en ég held að endalaus þunginn verði ekki ákjósanlegur fyrir neinn er yfir lýkur. Það hlýtur að þurfa sterk bein til að þola þennan þunga. Margir hafa sligast af honum dæmi eru um að konungleg hjónabönd hafi runnið út í sandinn vegna slíks þunga.
Fannst svolítið fyndið að lesa þessa umfjöllun um væntanlegt brúðkaup Viktoríu, Svíaprinsessu, og einkaþjálfarans Daniel Westling. Þar sem að Jóakim, Danaprins, er að fara að gifta sig þarf hún að fara í biðröð með sitt hjúskaparferli. Kannski er þetta einna helst til marks um það að þarna snýst allt um hefðir og venjur umfram allt - ástin fylgir með sem aukahlutur. Þar sem að Viktoría hefur verið í tilhugalífinu með Daníel árum saman er svolítið kaldhæðnislegt að þau þurfi að bíða eftir að hjónabandsferli Jóakims ljúki.
En ástin er ekki sett í fyrsta sætið í þessum bransa heldur hefðirnar. Þetta er nokkuð fyndið séð frá sjónarhóli okkar hinna venjulegu óneitanlega.
![]() |
Jóakim spillir brúðkaupsáætlunum Viktoríu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)