16.10.2007 | 22:27
Gremja sjálfstæðismanna - styrkur Hönnu Birnu

Að mínu mati er sá trúnaðarbrestur og einfarahlutverk Vilhjálms í lykilmálum stærsta ástæða þess hvernig fór í þessu máli fyrir Sjálfstæðisflokknum. Allt annað kom einfaldlega í kjölfarið. Vilhjálmi varð mjög á í leiðtogahlutverkinu sem slíku og staða hans hefur veikst gríðarlega á skömmum tíma - verður aldrei söm og jöfn og eftir prófkjörssigurinn í nóvember 2005. Þar fékk hann traust flokksmanna sem hann hefur ekki staðið undir. Lýsingar Hönnu Birnu á verklaginu í REI-málinu segja meira en mörg orð um hvernig borgarstjórinn stóð einn og vann einn að mörgum málum sem skiptu máli.
Fannst mér Hanna Birna það hvöss að hún gerir ekki greinarmun á verklagi leiðtoganna tveggja. Niðurstaða mála er að mínu mati mesta áfall Sjálfstæðisflokksins frá því að ríkisstjórn Þorsteins Pálssonar sprakk fyrir tveim áratugum og honum var sparkað af samstarfsmönnum sínum út úr forsætisráðuneytinu. Mér finnst þessi staða enn verri en blasti við þegar að Sjálfstæðisflokkurinn tapaði borginni fyrir þrettán árum til R-listans. Þá var tapið viðbúið eftir erfiða kosningabaráttu, sem þó var glettilega nærri því að vinnast undir lokin. Nú tapar flokkurinn völdum án kosninga og vegna atburðarásar sem spilaði sig sjálf áfram án stjórnar.
Ég fer ekki leynt með þá skoðun mína að Hanna Birna er öflugasti borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins um þessar mundir. Hún talar af krafti og sannfæringu - er sannur leiðtogi og kjarnakona í forystu. Það verður athyglisvert að sjá hvað gerist næst í borgarstjórnarflokki Sjálfstæðisflokksins. Hinsvegar tel ég einsýnt að Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson er í raun búinn að vera sem sterkur leiðtogi flokksins í borginni.
Það er eðlilegast að horft verði til Hönnu Birnu sem eftirmanns hans, hversu fljótt sem leiðtogaskipti verða. Tel þó ekki langt í þau, í sannleika sagt. Get ekki séð að "gamla góða Villa" sé sætt miklu lengur eftir atburðarás síðustu daga, sérstaklega síðustu 48 klukkustunda.
![]() |
Hanna Birna upplýsti um hvers vegna borgarstjórnarsamstarfið brast |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
16.10.2007 | 17:37
Svandís þögul - sjálfstæðismenn styðja málssókn

Það er auðvitað mikilvægt að máli hennar verði haldið áfram og úrskurðað um vægi fundarins. Annað er ekki eðlilegt. Þetta hef ég sagt frá því að málið hófst og hef ekki skipt um skoðun. Nú á fundi borgarstjórnar hefur bókun borgarstjórnarflokks Sjálfstæðisflokksins um að borgarstjórnin styddi við málssókn Svandísar Svavarsdóttur vegna eigendafundar Orkuveitu Reykjavíkur verið felld en þess í stað vísað til borgarráðs. Svandís tók ekki til máls um stöðu málssóknarinnar en lagði fram bókun orðrétt um margfræga nefnd sína en sagði ekkert annað.
Mér finnst þetta mjög athyglisvert að öllu leyti. Af hverju er Svandís Svavarsdóttir allt í einu orðin þögul sem gröfin? Af hverju tekur hún ekki undir þessa fyrrnefndu bókun? Hefur afstaða hennar breyst á eigin máli? Ég taldi Svandísi eflast mjög af framgöngu sinni af málinu í upphafi og hef talað máli þess að hún fari fyrir dóm með sitt mál og undrast þögn hennar á þeirri örlagastundu sem nú er orðin með því að hún er komin í meirihluta borgarstjórnar.
![]() |
Vilhjálmur: Borgarstjórn styðji málssókn Svandísar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
16.10.2007 | 15:32
Pólitískt sjónarspil í Orkuveitu Reykjavíkur

Samkvæmt þessu verður Bryndís Hlöðversdóttir, fyrrum þingflokksformaður Samfylkingarinnar, stjórnarformaður Orkuveitunnar í stað Hauks Leóssonar, og Jón Sigurðsson, fyrrum viðskiptaráðherra og formaður Framsóknarflokksins, varaformaður í stað Björns Inga Hrafnssonar. En þetta er auðvitað bara tímabundin ráðstöfun og er varla hægt að lesa þetta út nema sem sjónarspil - tilraun til að kasta vænum skammt af glimmer í augu kjósenda. Eðlilegra hefði verið að skipa þessa fulltrúa án þess að nefna annað í þeirri stöðu. Er þetta ekki bara leiktjaldapólitík? Það er freistandi að líta svo á.
Það verður reyndar fróðlegt að sjá hvað kemur út úr þessari nefnd undir forystu Svandísar Svavarsdóttur. Þykir mér benda til þess að meirihlutinn hafi fyrirfram ákveðnar niðurstöður tilbúnar til taks, það sést af því að þegar er tilkynnt að stjórnarmenn meirihlutans sem sátu í stjórn Orkuveitunnar er umdeildur samruni var staðfestur með enn umdeildari kaupréttarsamningum og greiddu atkvæði með þeim sitja áfram á þeim stólum. Í sama ljósi og krafið er útskýringa á ummælum Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar, fyrrum borgarstjóra, á einkaréttarsamningum er rétt að leita viðbragða um hvenær það hafi vitað af þeim siðlausa gjörningi til 20 ára.
Það er fá teikn um það að umdeildum málum í Orkuveitunni sé lokið. Í því ljósi vekur athygli að svona sjónarspil sé lagt fram, þar sem trúnaðarmönnum meirihlutaaflanna er stillt sem dúkkum fyrir borgarfulltrúa meirihlutans meðan að rykið í REI-málinu á að setjast.
![]() |
Bryndís Hlöðversdóttir nýr stjórnarformaður Orkuveitu Reykjavíkur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
16.10.2007 | 13:32
Frjálslyndar konur lýsa yfir vantrausti á Margréti

Ég hef vikið nokkrum sinnum hér að stöðu Margrétar Sverrisdóttur. Í gær vék Ómar Ragnarsson sérstaklega að stöðu Margrétar innan nýs meirihluta í fjölmiðlum og fannst mér þar allt tal um að hún yrði óháður borgarfulltrúi fljúga út um gluggann. Það er varla óvarlegt að telja að hún vinni í nafni Íslandshreyfingarinnar í borgarstjórn, verandi varaformaður þess flokks. Kjör Margrétar á forsetastól borgarstjórnar verður sögulegt, ekki aðeins er hún varafulltrúi heldur hefur yfirgefið flokkinn sem hún var fulltrúi fyrir á F-listanum í kosningunum 2006.
Í þessum efnum hefur verið talað mjög um bréf Margrétar Sverrisdóttur til umboðsmanns Alþingis fyrir tveim árum vegna brotthvarfs Gunnars Örlygssonar, þáverandi alþingismanns, úr Frjálslynda flokknum. Það er vert að birta það bréf hér í heild sinni og svo verður hver og einn að meta þann boðskap miðað við stöðu Margrétar sjálfrar í dag.
Bréf Margrétar Sverrisdóttur
"Umboðsmaður Alþingis,
Hr. Tryggvi Gunnarsson,
Álftamýri 7
108 Reykjavík
Alþingi, 29. sept. 2005
Spurning um fulltrúalýðræðið á Íslandi
Á þingfundi á síðasta starfsdegi Alþingis sl. vor, tilkynnti Gunnar Örn Örlygsson alþingismaður að hann hefði sagt sig úr þingflokki Frjálslynda flokksins og gengið til liðs við Sjálfstæðisflokk.
Með vistaskiptum þingmannsins jókst meirihluti ríkisstjórnarflokkanna. Stjórnarliðar urðu 35 en stjórnarandstæðingar 28. Þetta þýðir að fjóra stjórnarþingmenn þarf til að fella þingmál ríkisstjórnarinnar, en áður þurfti þrjá.
Þess má þó geta að varamaður þingmannsins, Sigurlín Margrét Sigurðardóttir, er í Frjálslynda flokknum og engar breytingar verða á stöðu hennar. Þurfi hann fjarvistarleyfi á þingi, kemur hún inn í hans stað og þar með eykst hlutur stjórnarandstöðunnar að nýju.
Þingmaðurinn var efsti maður á lista Frjálslynda flokksins í Suðvesturkjördæmi. Fyrst hann vildi yfirgefa það sæti hefði undirrituð álitið að næsta manni á þeim lista bæri að taka við og ef sá vildi ekki taka við sætinu bæri að leita til næsta manns á sama lista o.s.frv.
Þingmaðurinn tilkynnti formanni flokksins, Guðjóni A. Kristjánssyni, að hann hygðist ekki styðja flokk Frjálslyndra og sagði sig þar með úr flokknum.
Það er mat undirritaðrar að það væri þá í hendi formannsins að ráðstafa sæti þingmannsins til þess manns sem næstur er á listanum. Annað væri svik við kjósendur listans. Þingmaðurinn ákvað að segja af sér þingmennsku á vegum Frjálslynda flokksins en sætið er áfram sæti Frjálslyndra.
Ég undirrituð, framkvæmdastjóri Frjálslynda flokksins, vil hér með óska eftir rökstuddu áliti Umboðsmanns Alþingis á því hvort Gunnari Örlygssyni hafi verið heimilt að fara eins og hann gerði með það umboð sem kjósendur Frjálslynda flokksins veittu honum í síðustu alþingiskosningum. Gæti kjörinn þingmaður t.d. skipt um flokk um leið og hann hefur móttekið kjörbréf sitt? Sé það heimilt, er þá opin leið fyrir tækifærissinna að fara í framboð fyrir einn flokk, ákveðnir í að skipta um flokk strax að loknum kosningum? Er sú leið opin og lögmæt að mati háttvirts umboðsmanns?
Virðingarfyllst,
Margrét Sverrisdóttir
framkvæmdastjóri þingflokks Frjálslynda flokksins
(sign.)"
![]() |
Vantrausti lýst á Margréti Sverrisdóttur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
16.10.2007 | 00:16
Orð gegn orði - pólitísk staða Vilhjálms veikist

Stærstu tíðindin eru augljós ágreiningur Vilhjálms og Hauks Leóssonar, fráfarandi stjórnarformanns OR, í málinu. Haukur hefur tekið að öllu leyti undir frásögn Bjarna á málinu. Eins og flestir vita er Haukur enginn venjulegur maður úti í bæ heldur lykilpersóna á borgarstjóraferli Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar. Hann spilaði stórt hlutverk í innsta hring hans í aðdraganda prófkjörsins í nóvember 2005 þar sem VÞV sigraði GMB og hlaut að launum sæti sem fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í stjórn OR eftir kosningarnar 2006 og varð stjórnarformaður eftir að Guðlaugur Þór Þórðarson varð heilbrigðisráðherra. Það er alveg ljóst að það að Haukur staðfesti ummæli Bjarna breytir miklu.
Það er ekki hægt að sjá annað en að algjör vinslit hafi orðið með Vilhjálmi og Hauki vegna REI-málsins. Varla staðfesti Haukur frásögn Bjarna ef væri fullur vinskapur á milli þeirra fornu félaga. Staða Vilhjálms Þ. hefur klárlega veikst mjög. Það held ég að sé óhætt að segja. Hann lítur mjög undarlega út í þessu máli eftir atburði dagsins. Annaðhvort er hann að segja satt eða ljúga. Í öllu falli má fullyrða að hann hafi ekki staðið sig í stykkinu, í fyrra lagi ekki kynnt sér gögn í málinu sem voru til staðar eða ella að reyna að firra sig ábyrgð. Hvort tveggja lítur mjög illa út að mínu mati og veikir stöðu hans.
Það er vandséð að Vilhjálmur Þ. verði sterkur leiðtogi Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn Reykjavíkur úr þessu. Það hefur of margt gerst og gengið á milli aðila til að bætt verði úr. Það má vissulega hugleiða það hvort að allir mennirnir hafi saman fallist á sögu til að ráðast að borgarstjóranum og ganga frá honum í staðinn fyrir að taka sökina á sig. Það má vera, en samt sem áður verður ekki sagt annað en að hafi borgarstjórinn ekki getað fylgst með málinu úr starfi sínu, sitjandi á öllum upplýsingum, hafi hann einfaldlega ekki verið að vinna vinnuna sína. Það verður erfitt fyrir hann að ná styrk eftir þetta.
Mér fannst Vilhjálmur koma mjög illa út úr Kastljósinu í kvöld - hann hafði aldrei yfirhöndina í samtalinu. Það er vissulega ömurlegt að sjá Vilhjálm Þ. í þessari stöðu. En hinsvegar finnst mér hann hafa veikst það mjög að vandséð verði að úr verði bætt. Ég tel að atburðarás dagsins verði örlagarík. Það er í sjálfu sér einfalt mál. Mér finnst persónulega erfitt að trúa því að borgarstjórinn hafi verið eyland í málinu með fornvin sinn og lykilfélaga sem stjórnarformann Orkuveitunnar og alla þræði borgarmálanna í hendi sér.
Það er ekki hægt að segja annað en að Vilhjálmur hafi ekki vitað hvað hann var að gera ef hann var ekki með á atburðarásina. Og í sjálfu sér eru það nógu vond tíðindi fyrir hvaða stjórnmálaflokk að vinna úr með leiðtoga sinn. Ég get ekki séð að Vilhjálmi Þ. sé sætt lengur í sinni stöðu. Því miður, en það er bara þannig.
![]() |
Minnist þess ekki að hafa séð minnisblaðið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 00:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)