17.10.2007 | 22:00
Ófyrirgefanleg niðurlæging - endastöð Eyjólfs
Það er kominn tími til að Eyjólfur Sverrisson, landsliðsþjálfari, taki pokann sinn. Leiðsögn hans með liðið er engan veginn að ganga upp þegar að staðan er orðin með þessum hætti. Eftir ágætisleiki síðsumars voru vonir um að Eyjólfur væri að hressast í orðsins fyllstu merkingu en nú erum við komin á þau kaflaskil að þetta er óviðunandi. Þetta hlýtur að teljast endastöð Eyjólfs.
Ef honum ber ekki gæfa til að segja upp sjálfur á að segja honum upp. Þetta er komið gott eftir tveggja ára erfiðleikatímabil og tímabært að horfa í aðrar áttir með leiðsögn fyrir þetta lið. Einfalt mál í sjálfu sér!
![]() |
Ljótur skellur Íslands í Liechtenstein |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 22:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
17.10.2007 | 20:16
Kristján stendur vörð um flugvöll í Vatnsmýrinni

Það er reyndar augljóst að ágreiningur er innan vinstrimeirihlutans í Reykjavík um flugvöllinn í Vatnsmýrinni, eins og birtist í svörum við spurningum DV um málið í dag. Þar eru tvær til þrjár skoðanir hið minnsta. Oddaatkvæðið Margrét Sverrisdóttir, forseti borgarstjórnar, talar mest afgerandi í þessum efnum en hún vill ekki færa völlinn og stendur þar með vörð um stefnu F-listans úr kosningunum 2002 og 2006. Framsókn talar enn um flugvöll á Lönguskerjum og aðrir eru óvissari, þó hinir tali um tilfærslu eitthvað innan borgarmarkanna.
Það er öllum ljóst að landsbyggðarmaðurinn Kristján L. Möller talar afgerandi á vakt sinni í samgönguráðuneytinu rétt eins og forverar hans, Halldór Blöndal og Sturla Böðvarsson. Það gerir hann þó að skoðunin sé mjög áberandi andstæð því sem frá höfuðborgarfulltrúum Samfylkingarinnar kemur, t.d. borgarstjórans og Steinunnar Valdísar Óskarsdóttur, alþingismanns og fyrrum borgarstjóra, svo aðeins nokkur séu nefnd. Það vakti athygli að ekki fékkst afgerandi flokksstefna í flugvallarmálum á síðasta landsfundi Samfylkingarinnar og væntanlega er málið ekki þagnað þar.
![]() |
Samgönguráðherra vill ekki færa Reykjavíkurflugvöll |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
17.10.2007 | 16:59
Sjálfstæðismenn í Reykjavík fara yfir sín mál

Um er að ræða í senn vonda og erfiða stöðu sem blasir við og sjálfstæðismenn í Reykjavík verða að vinna sig út úr henni. Það er ekki óeðlilegt að við landsbyggðarmenn í flokknum hugleiðum það hvað hafi gerst þar innanborðs síðustu mánuði og eðlilegt fyrir þau að fara yfir það lið fyrir lið. Þetta er of alvarlegt mál fyrir flokkinn á landsvísu til að framhjá því verði litið. Eins og þetta horfir við mér missti leiðtogi hópsins stjórn á honum með vinnubrögðum sínum og í kjölfarið veiktist hópurinn til muna. Þetta er staða sem fá dæmi eru um innan Sjálfstæðisflokksins og því eðlilegt að hún sé bollalögð í grunninn.
Að mínu mati er eðlilegt að gefa flokksmönnum sinn tíma til að fara yfir hvað rétt sé að gera. Það er þó öllum ljóst að leiðtogi borgarstjórnarflokksins hefur tapað stuðningi og tiltrú meðal almennra flokksmanna um allt land, staða hans hefur veikst. Nú verða sjálfstæðismenn í Reykjavík að vega og meta hver styrkur hans sé. Flestir sem ég hef heyrt í telja vonlaust að hann leiði flokkinn í gegnum aðrar kosningar. Er ég sammála því mati. Get ég ekki ímyndað mér annað en að spurt sé um hvenær en ekki hvort hann hætti.
Að mínu mati hafa borgarfulltrúar í öllum flokkum misst tiltrú almennings. Það er gremja í fólki um allt land vegna þess hvernig unnið hefur verið í borgarmálunum. Eftir 16 mánaða forystu í borgarmálunum er það hlutskipti Sjálfstæðisflokksins að fara aftur í minnihluta. Eftir þau endalok sem við blasa er það umfram allt hlutverk hans nú að endurvinna sér traust og tiltrú almennings.
Sérstaklega hlýtur það að eiga við um leiðtoga hópsins, sem hefur veikst umtalsvert með forystu sinni undanfarnar vikur. Í þeim efnum skiptir engu hvort hann hafi logið að borgarbúum eða hafi ekki unnið vinnuna sína.
![]() |
Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins funda með stjórnum Sjálfstæðisfélaganna á morgun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)