26.10.2007 | 21:59
Er Inga Jóna valdamesta kona landsins?
Það vekur athygli að Inga Jóna Þórðardóttir, eiginkona Geirs H. Haarde, forsætisráðherra, hefur verið skipaður formaður bygginganefndar hátæknisjúkrahúss - sem tekur við verksviði nefndar sem Alfreð Þorsteinsson, guðfaðir vinstrimeirihlutans í Reykjavík, stýrði áður með fyrrnefnda Ingu Jónu sem varaformann. Það mun því vera hlutverk Ingu Jónu að leiða verkefnið, sem heldur áfram að því er virðist óbreytt og af sama krafti og áður var en undir verkstjórn sem nýr heilbrigðisráðherra treystir á.
Það hefur verið rætt um það um nokkuð skeið hvort að Inga Jóna Þórðardóttir sé orðin valdamesta kona landsins. Varla er það óvarlegt mat að mínu mati. Það er öllum ljóst að Inga Jóna er ekki settleg eiginkona forsætisráðherra eins og þær hinar fyrri sem hafa staðið við hlið maka síns í blíðu og stríðu í verkunum sem fylgja hinu annasama og krefjandi húsbóndahlutverki í Stjórnarráðinu. Inga Jóna hefur verið formaður útvarpsráðs, framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins og leitt borgarstjórnarflokk Sjálfstæðisflokksins auk þess sem hún var varaþingmaður fyrir flokkinn um skeið fyrir Vesturlandskjördæmi hið forna.
Inga Jóna er því í senn litrík baráttukona sem hefur sjaldan hikað og verið áberandi í þjóðlífinu sem stjórnmálamaður. Hún gaf leiðtogasætið í borgarstjórn eftir til Björns Bjarnasonar með eftirminnilegum hætti fyrir fimm árum og eftir því sem kjaftasögurnar segja var mikið valdatafl þar bakvið tjöldin. Eftir að Inga Jóna náði ekki kjöri í borgarstjórn úr áttunda sæti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík í borgarstjórnarkosningunum hefur hún ekki verið áberandi leikkona á stjórnmálasviðinu. Hún tók ekki sæti í borgarstjórn sem varamaður á síðasta kjörtímabili og fór ekki í nefndir. Hún gaf pólitíkina upp á bátinn.
Eftir að Geir H. Haarde varð eftirmaður Davíðs Oddssonar hefur hún verið við hlið hans sem hin trausta eiginkona. En hlutverk hennar verður seint í huga flestra metið sem þöguls þátttakanda í verkefnum forsætisráðherrans. Hún er hans traustasti ráðgjafi og stendur honum eflaust allra næst. Með því hlutverki er hægt að fullyrða að hún sé valdamesta kona landsins í vissum skilningi þess orðs. Inga Jóna þekkir alla innviði Sjálfstæðisflokksins, hefur jú leitt allt innra starf hans á vissum tíma og verið kjörinn forystumaður innan hans. Það býst enginn við að hún sé ekki lykilpersóna á valdaferli Geirs.
Skipan Ingu Jónu sem yfirmanns byggingar nýja hátæknisjúkrahússins sýnir vel sterka stöðu hennar og gefur frægum orðrómi um að hún sé valdamesta kona landsins byr undir báða vængi. Það var svosem erfitt að afneita honum áður.
![]() |
Nýjar nefndir fjalla um málefni heilbrigðisstofnana |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
26.10.2007 | 21:24
Glæsileg viðbygging við Grand Hótel

Þá var viss hluti herbergja var til og ég var svo heppinn að gista á fimmtu hæðinni. Aðbúnaður allur er þarna eins og best verður á kosið og sannarlega er Grand Hótel orðið enn glæsilegra hótel en áður. Þegar að ég var þarna í apríl var vinna í fullum gangi við lobbýið og sást þá þegar hversu glæsilegt þetta yrði. Glerlistaverkin setja sterkan svip á viðbygginguna og þar nýtur glæsilegt handbragð Leifs Breiðfjörð sín mjög vel.
Sannarlega glæsileg viðbygging og með þessu er Grand Hótel orðið stærsta hótel landsins og ber þann titil sannarlega með sóma.
![]() |
Stærsta hótel landsins formlega opnað |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
26.10.2007 | 12:49
Vilhjálmur Þ. mætir ekki á afmælisfund borgarráðs

Í hófið var öllum borgarstjórum Reykjavíkur boðið og þótti áberandi að Davíð Oddsson, seðlabankastjóri, Birgir Ísleifur Gunnarsson, fyrrum seðlabankastjóri, Markús Örn Antonsson, sendiherra, og Árni Sigfússon, bæjarstjóri í Reykjanesbæ, mættu ekki og fjarvera Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar, sem situr í ráðinu eins og fyrr segir, var hróplega áberandi. Hinsvegar mættu allir borgarstjórar vinstritímans í Reykjavík nema Þórólfur Árnason. Birst hafa myndir af Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur, utanríkisráðherra, Agli Skúla Ingibergssyni, fyrsta vinstrisinnaða borgarstjóranum í Reykjavík, og Steinunni Valdísi Óskarsdóttur, alþingismanni, að ræða á léttu nótunum við Dag B. Eggertsson, borgarstjóra.
Þarna var líka Alfreð Þorsteinsson, guðfaðir nýja vinstrimeirihlutans í Reykjavík og fyrrum stjórnarformaður Orkuveitu Reykjavíkur. Þetta virðist af myndum að dæma fyrst og fremst hafa verið hóf nýju valdhafanna. Þar voru sjálfstæðismenn lítið sýnilegir og virðast hafa sniðgengið afmælisstund borgarráðsins í Höfða.
![]() |
Óvæntar tengingar komu í ljós á hátíðarfundi borgarráðs |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
26.10.2007 | 10:12
Fangaflug - íkveikja í Vestmannaeyjum
Annars er þetta mál allt mjög dapurlegt. Það er greinilega heljarmikil saga á bakvið þetta dapurlega mál sem er á yfirborðinu og felast í að viðkomandi kona kveikti í íbúð sinni. Það að hún fái þessa meðferð sýnir bara alvarlega stöðu málsins og hlýtur að vera margflókin saga. Vonandi mun rannsókn á málinu ganga vel.
![]() |
Flutt til Selfoss og leidd fyrir dómara |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 10:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)