Algjört ógeð

Það er mikill óhugnaður sem fylgir því að heyra fréttir um hversu það hversu mjög barnaklám, kynferðislegt ofbeldi í garð barna, grasserar nú. Nú hafa tveir íslenskir karlmenn verið handteknir í alþjóðlegum handtökum Europol í kjölfar viðskipta 92 manna í átta löndum á barnaklámsvefsíðu. Það eru fá takmörk fyrir því hvað þetta ógeð leynist víða. Kynferðislegt ofbeldi á börnum og efni með því er til of víða og er sama hversu mikið er barist gegn því að þá finnast alltof nýjar hliðar þess.

Ekki er langt síðan að það kom fram að um 50 ábendingar um ólöglegt efni á netinu berist að jafnaði til Barnaheilla á mánuði - í 30-40% tilvika má telja að um barnaklám sé að ræða, þ.e. efni sem sýnir kynferðislegt ofbeldi í garð barna. Sérstaklega sláandi var þá að mig minnir að margar þessara tilkynninga var vegna klámauglýsinga á tölvuleikjasíðum, sem tengdar voru íslenskum leikjasíðum.

Þetta er óhugnaður sem berjast verður gegn með öllum tiltækum ráðum að mínu mati. Það er gott að svo vel sé tekið á málum á alþjóðavísu sem þetta mál er, en það samt sláandi hversu víðtækt þetta ógeð er heilt yfir.


mbl.is Níutíu og tveir handteknir í aðgerðum gegn barnaklámi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sorglegt dauðsfall vegna trúarbragða

Mikið innilega er það sorglegt að lesa um bresku konuna sem valdi frekar að deyja af barnsförum en fara gegn þeirri trú sem henni er æðst í huga og þiggja blóðgjöf. Þetta er eitt sorglegasta dæmið sem hægt er eflaust að finna um það þegar að trúin verður yfirsterkari mannlegum hugsunum, skynseminni sjálfri. En mikið hlýtur þetta að hafa verið gríðarleg fórn, og allt vegna þess að trúin sé æðri því sem þurfi að gera. Lífið á að vera mikilvægara en trúin, það held ég að við sem hugsum rökrétt getum metið eðlilega. Í því felast engir fordómar.

Í grunninn finnst mér trú vissulega mjög mikilvæg, en ég myndi aldrei velja að fórna frekar lífinu en einhverju sem trúin talar gegn; því sem gæti haldið í mér lífinu á raunastundu. Mannleg skynsemi á að vera öllu ofar. Þetta er því verulega sorglegt mál og stingur inn í hjartarót vægast sagt.

mbl.is Þáði ekki blóð og lést af barnsförum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kárahnjúkavirkjun gangsett - tímamót fyrir austan

Ólafur Ragnar leggur hornstein að Kárahnjúkavirkjun Það eru svo sannarlega tímamót fyrir austan, við Kárahnjúka, nú á þessum degi. Fyrsta vél Kárahnjúkavirkjunar hefur nú verið gangsett og virkjunin því endanlega orðin að veruleika. Miklar deilur voru um framkvæmdina allt frá fyrstu stigum og enn er deilt víða vegna hennar. Tekist var á innan þings og í samfélaginu en Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, staðfesti framkvæmdina þótt heitið væri á hann um annað.

Það var því táknrænt að Ólafur Ragnar skyldi sjálfur leggja hornstein að stöðvarhúsi Kárahnjúkavirkjunar, Fljótsdalsstöð, fyrir einu og hálfu ári. Það var gott að hann sem forseti Íslands skyldi staðfesta framkvæmdina og mæta sjálfur þangað, með stjórnmálamönnum, sem tóku virkan þátt í málinu á öllum stigum þess. Framkvæmdin skiptir Austfirðinga miklu máli og finna má hversu mjög framkvæmdir á öllum stigum hafa styrkt Austurland allt, ekki síður Egilsstaði og nágrenni en Fjarðabyggð.

Vil óska Austfirðingum til hamingju á þessum degi. Það þurfti mikla baráttu til að tryggja framkvæmdirnar fyrir austan, baráttu sem var sannarlega vel þess virði.

mbl.is Kárahnjúkavirkjun byrjar að framleiða rafmagn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 5. nóvember 2007

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband