15.12.2007 | 23:20
Spennandi keppni um gullhnöttinn framundan

Það eru alls sjö kvikmyndir tilnefndar í dramaflokknum, sem er hið mesta í tvo áratugi, en jafnan eru fimm myndir tilnefndar. Fimm myndir eru sem fyrr tilnefndar sem besta gaman- og söngvamyndin. Það eru því alls tólf myndir sem berjast um hnossin tvö og það er því erfitt að segja nokkuð um hvernig landið liggur hvað varðar Óskarinn. Golden Globe hefur um árabil verið fyrirboði þess hvernig Óskarinn verði, en í ljósi mikils fjölda tilnefndra mynda er óhætt að segja að nokkur óvissa sé yfir hvaða myndir fái óskarstilnefningu í janúar, þó nokkrar myndir teljist vænlegri en aðrar.
Í fyrra vann Babel gullhnöttinn sem dramatíska mynd ársins en hlaut svo aðeins einn óskar og tapaði kapphlaupinu um bestu mynd fyrir The Departed. En það hafði vissulega verið lengi í kortunum að komið væri að sigurstund Martin Scorsese og hann átti það skilið, eftir að hafa verið sniðgenginn af akademíunni í Hollywood áratugum saman. Helen Mirren og Forest Whitaker drottnuðu yfir gullhnettinum í fyrra, og hlutu svo óskarinn, en Mirren hlaut reyndar tvo gullhnetti fyrir tæpu ári; fyrir að leika drottningarnar Elísabetu I og Elísabetu II. Nú er hinsvegar enginn með svo voldugt forskot. Leikaraflokkarnir sýnist mér vera nokkuð opnir.
Fljótt á litið myndi ég telja að allar dramatísku myndirnar ættu séns, þó er ólíklegast að Eastern Promises og The Great Debaters (í leikstjórn Denzel Washington) vinni. Þetta er galopin barátta. Hvað varðar gaman- og söngvamyndirnar eru Charlie Wilson´s War og Sweeney Todd ansi vænlegar báðar og Hairspray var virkilega góð. Myndi telja þær tvær fyrrnefndu sigurstranglegastar í þessum flokki. Fyrir leikstjórn eru reynsluboltar tilnefndir. Ridley Scott hefur aldrei unnið óskar eða gullhnött og verður áhugavert að sjá hvort að hann fær loksins verðlaun af þessu tagi, sem hann er greinilega að fiska eftir með American Gangster.
Í leikaraflokkunum er jöfn barátta svo sannarlega. Í dramahlutanum eru miklir risar; Daniel-Day Lewis, George Clooney, Viggo Mortensen og Denzel Washington tilnefndir með efnilegum nýliða James McAvoy sem ku víst eiga stórleik í Atonement. Varð reyndar nokkuð hissa á að McAvoy hlyti ekki meira lof fyrir leik sinn í The Last King of Scotland í fyrra, en hann féll algjörlega í skuggann á Forest Whitaker. Í gamanhlutanum hlýtur Johnny Depp að teljast ansi vænlegur kostur, þó sjaldan sé hægt að vanmeta sjálfan Tom Hanks.
Það eru miklar kjarnakonur tilnefndar fyrir leik. Í dramahlutanum hlýtur Julie Christie að teljast mjög vænleg til árangurs fyrir eftirminnilega túlkun sína á Fionu, alzheimer-sjúklingnum sem smám saman fjarlægist í annan heim, í Away From Her. Þessi mynd er auðvitað tær snilld, keypti mér hana um helgina og horfði á aftur. Christie á þarna bestu túlkun sína frá því í Darling og Dr. Zhivago fyrir rúmum fjórum áratugum, en hún vann óskarinn fyrir Darling sællar minningar. En þarna eru vissulega líka Jodie Foster, Angelina Jolie, Keira Knightley og Cate Blanchett. Held samt að Christie sé nokkuð örugg um verðlaunin.
Í gaman- og söngvamyndaflokknum er Marion Cotillard nokkuð örugg um sigur tel ég, þó ekki sé rétt að útiloka þær Amy Adams og Helenu Bonham Carter sem hafa fengið góða dóma fyrir túlkun sína. Cotillard varð hinsvegar Edith Piaf, ein besta söngkona 20. aldarinnar, með slíkum glans að ekki verður leikið eftir. Með sannkölluðum töfrum færir hún Piaf okkur ljóslifandi á hvíta tjaldið; bæði sigra hennar og sorgir. Piaf söng eins og engill í gegnum litríkt líf. Yrði mjög hissa ef Cotillard fengi ekki þessi verðlaun og ég tel er á hólminn kemur að þetta verði barátta hennar og Christie um leikkonuóskarinn.
Hvað varðar tilnefningar fyrir aukahlutverk er allt algjörlega opið. Sé engan afgerandi í forystu svosem; ólíkt aðalleikkonuflokkunum. Casey Affleck hefur verið að fá góða dóma fyrir túlkun sína á Robert Ford, morðingja útlagans Jesse James, Tom Wilkinson er auðvitað rock solid, sem jafnan fyrr í hlutverki Edens í Michael Clayton, Philip Seymour Hoffman er auðvitað í frábæru leikaraliði í Charlie Wilson´s War og myndin virðist pottþétt - hann veldur sjaldan vonbrigðum, John Travolta er skemmtilega ofvirkur í hlutverki mömmunnar í Hairspray og Javier Bardem er víst leiftrandi í No Country for Old Men.
Sama gildir svosem um aukaleikkonuflokkinn, þó ég telji að þar verði baráttan fyrst og fremst á milli Cate Blanchett og Juliu Roberts. Cate fór í gervi rokkgoðsins ódauðlega Bob Dylan í I´m Not There með slíkum tilþrifum að margir telja hana nær örugga um verðlaunin. Yrði ekki hissa þó að hún fengi gullhnött miðað við þær klippur sem ég hef séð. Julia á víst bestu túlkun sína frá því í Erin Brockovich í Charlie Wilson´s War. Tilda Swinton var pottþétt í Michael Clayton og hin þrettán ára Saoirse Ronan (sem ég hef aldrei séð áður) fer víst á kostum í Atonement. Amy Ryan man ég eftir úr Capote en hef ekki séð þessa túlkun hennar.
Fjalla ekkert um sjónvarpshlutann, en það er erfitt að spá um það svosem, oft hefur gæfan ein ráðið því hverjir vinna þar, en ekki bara besta efnið. Heilt yfir er þetta æsispennandi barátta sem er framundan um gullhnöttinn og fróðlegt að sjá hvernig fer. Bendi annars á tilnefningarnar (í heild sinni) til Golden-Globe verðlaunanna, en verðlaunin verða afhent í Los Angeles í 65. skiptið þann 13. janúar 2008.
15.12.2007 | 20:41
Flippaðasta Eurovisionlag fyrr og síðar
Held að Barði hafi annars verið að skemmta sér í öllum lögum sínum í keppninni. Fyrsta lagið var nett grín á hinni skagfirsku Geirmundarsveiflu og hitt lagið var augljóslega nett grín að keppninni frá a-ö, vissulega vel heppnað. Held annars að Ho Ho Ho, We Say Hey Hey Hey muni verða framlag okkar í Serbíu næsta vor. Finnst svona stemmningin vera þannig. Annars eru lögin í þessari keppni mjög misjöfn. Sum virkilega góð, önnur skelfileg ömurð og hin svona mitt þar á milli.
Það verður áhugavert að sjá hvort að friðaróðurinn léttflippaði hjá Barða komist áfram í kvöld. Það mun allavega ekkert toppa þetta lag í gríninu allavega.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.12.2007 | 14:40
Sterk viðbrögð - bloggið í lykilhlutverki

Bloggið lék lykilþátt í þessu máli. Erla Ósk kom með sögu sína fyrst hér á moggablogginu og áhugi fjölmiðla kviknaði eftir það. Enn og aftur sést vel kraftur bloggsins. Þetta er orðinn öflugasti fjölmiðillinn í nútímanum. Aðrir miðlar, þeir hinir hefðbundnu, fylgja á eftir æ ofan í æ og leita upplýsinga á blogginu og fjalla svo um mál. Þetta er fjölmiðlun 21. aldarinnar. Enn og aftur sjáum við hversu bloggið stýrir umræðunni og er þungamiðja þess sem gerist.
Finnst þó kjaftasögurnar sem sumir hafa dælt út um Erlu Ósk á blogginu fyrir neðan allt. Ein sú frægasta var sú að hún hefði verið drukkin á Kennedy-flugvelli. Fannst sumir álykta frekar fljótt um þessa hlið mála. Sá reyndar fleiri kjaftasögur sem voru undarlegur punktur í umræðuna. Mér finnst þetta mál blasa allt mjög vel og sé enga ástæðu til annars en að trúa Erlu Ósk. Meðferðin á henni er þess eðlis að við getum ekki sætt okkur við hana og eðlilegt að við mótmælum.
Á það hefur vissulega verið bent að hún hafi dvalið of lengi í Bandaríkjunum eitt sinn fyrir langa löngu. Finnst það ekki vera mál sem eigi að leiða til þess sem hún varð fyrir. Þeir hefðu vissulega getað vísað henni úr landi, en þessi meðferð; að leiða hana hlekkjaða á höndum og fótum í gegnum flugstöðina, gefa henni ekki að borða og ýmislegt annað sem flokkast undir meðferð á stórglæpamanni var fyrir neðan allt. Það réttlætir ekkert þau vinnubrögð.
Erla Ósk kom mjög vel fyrir í Kastljósviðtali á fimmtudagskvöldið, svaraði spurningum vel og lýsingin á vistinni á Kennedy-flugvelli varð eiginlega enn myndrænni. Í heildina finnst mér hún hafa staðið sig vel. Viðbrögð landsmanna sýna og sanna að við sættum okkur ekki við svona meðferð á íslenskum ríkisborgara - það getur varla annað verið en að fáum bandaríska afsökunarbeiðni fyrr en síðar. Þessu máli getur ekki lokið án þess.
![]() |
Mál Erlu Óskar vekur athygli |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
15.12.2007 | 12:29
Ölvaður ökumaður stöðvaður
Það er búið að tala vel og lengi um að úrbóta sé þörf - taka verði á þessum augljósa vanda. Það þarf að fara að gera eitthvað meira en bara tala. Ætla að vona að við séum ekki komin í biðferli eftir banaslysi, þar sem ökumaður í dópvímu drepur jafnvel fjölda fólks með hugsunarleysi sínu og gerræðislegum ákvörðunum sem við blasa einkum í þessum tilfellum. Akstur í vímu, annaðhvort að völdum áfengis eða eiturlyfja, er vaxandi vandamál sem kristallast æ meir með atvikum, einkum í nótt greinilega.
Í sjálfu sér tel ég þetta orðið eitt mesta vandamálið í umferðinni í dag. Það er engin trygging fyrir því þegar fólk sest undir stýri og heldur út í umferðina að það mæti ekki fólki undir áhrifum vímugjafa - út úr heiminum í sínu annarlega ástandi. Þetta er mikið áhyggjuefni sem full þörf er að tala um með mjög áberandi hætti.
![]() |
Reyndi að stöðva blindfullan kærasta |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 12:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
15.12.2007 | 11:58
Uppboð Einars Arnar

Í upphafi benti Einar Örn á ástæður þess að hann ákvað að halda uppboðið. Mér hefur fundist þetta vel gert hjá honum. Hann hefur bæði minnt á gott málefni og leitt sjálfur mikið starf við að tala fyrir góðgerðarmálum. Það er alltaf virðingarvert að aðrir gefi sína hluti til að geta hlúð að öðrum.
Bendi því lesendum á að skoða uppboðið hans Einars Arnar. Þeir sem vilja ekkert kaupa en vilja gefa beint til Oxfam, þá er hægt að leggja pening inná reikning; 0323-13-701310 og kennitalan er170877-3659.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.12.2007 | 01:01
Baggalútur toppar sig enn eina ferðina

Baggalútsmenn hafa tekið mörg heimsþekkt lög á síðustu árum og heillað landsmenn með, hengt á þau jólakúlur og englahár, svo að allir syngja með; allir sem eru yfir höfuð í einhverju jólastuði. Hver heldur annars orðið jól án þess að söngla Kósíheit par exelans? Það er eitt þessara laga, er eins og flestir vita gamla góða Islands in the Stream sem Bee Gees-félagar sömdu fyrir Dolly Parton og Kenny Rogers á níunda áratugnum.
Sá um daginn að Egill Helgason var mjög hneykslaður yfir því á vef sínum að Baggalútur væri að taka þessi gömlu góðu lög og hengja á þau jólakúlur, nefndi þar sérstaklega nýjasta lagið. Fannst þetta hallærislegt. Við Egill erum sannarlega ósammála í þessum efnum. Finnst þetta flott hjá Baggalút og ég held að það sé þorri fólks sem hefur haft gaman af þessari hefð þeirra með jólalögin.
Jól á Kanarí (áður Kokomo með Beach Boys úr kvikmyndinni Cocktail með Tom Cruise) er að sjálfsögðu í spilaranum. Hvað annað?
![]() |
Baggalútur heldur jól á Kanarí |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
15.12.2007 | 00:14
Stormasamur dagur fyrir sunnan

Þeir hafa greinilega staðið sig mjög vel í Skógarhlíð. Þar eru fagmenn í öllum verkum og þeir eiga hrós skilið fyrir gott verk. Það er eðlilegt að hræðsla grípi um sig í svona veðri og gott að fólk leiti til fagmanna hjá Almannavörnum þegar að svona alvarlegt veður gengur yfir. Reyndar sést ekki betur í kortunum en að annað óveður sé á leiðinni, væntanlega þó ekki eins öflugt og það sem gekk yfir í dag.
Þetta er svolítið sérstakt veður í desember. Við eigum mun frekar að venjast því að vera að moka snjó á þessum árstíma og ylja okkur við heitt kakó í desemberfrostinu. Það er allt annað nú. Hér er að verða snjólaust og ekki hægt annað en að fara að efast um að jólin verði hvít í ár.
Hvítu jólin eru ómissandi þáttur jólanna að mínu mati en sennilega eru þau fokin út í veður og vind þetta árið. En hvað með það, jólin koma engu að síður. Allavega ætti enginn að þurfa að vera fúll hér með öll jólalögin í spilaranum í botni.
![]() |
Aðgerðum lokið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 00:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)