30.12.2007 | 18:16
Eldskírn Bilawal - fetað í fótspor forfeðranna

Þrem sólarhringum eftir að Benazir Bhutto féll fyrir morðingjahendi er einkasonur hennar, Bilawal, kominn í innsta hring forystusveitar pakistanskra stjórnmála og orðinn lykilþátttakandi í þeirri stjórnmálabaráttu sem einkenndi móður hans og afa áratugum saman og kostaði þau bæði lífið. Bilawal erfir sögufrægt fjölskylduveldi - þetta eru örlög sem móðir hans ætlaði honum en hann hlýtur eldskírnina við gröf hennar á viðkvæmum aldri.
Bilawal Bhutto er ekki öfundsverður af þessu hlutskipti. Hann var aðeins kornabarn er móðir hans varð forsætisráðherra árið 1988 og hefur eins og hún lifað í skugga stjórnmála alla sína ævi. Stjórnmálabaráttan í Pakistan hefur verið miðpunktur Bhutto-fjölskyldunnar áratugum saman. Sú barátta gengur í erfðir. Hann getur ekki skorast undan þeirri ábyrgð sem við honum blasir er móðir hans hefur fallið í valinn. Hún hætti lífi sínu fyrir þessa baráttu. Uppgjöf var ekki valkostur í hennar huga og hann tekur nú þessa þungu byrði á sig. Það er eflaust erfiðara en orð fá lýst að taka þá byrði á viðkvæmum aldri.
Pakistanski þjóðarflokkurinn var stofnaður af Zulfika Ali Bhutto sem vopn í stjórnmálabaráttu, vopn í erfiðri baráttu. Sú barátta varð dóttur hans er hann féll í valinn og sömu örlög erfir dóttursonur hans. Þessi flokkur er undir merkjum þeirra feðgina og nafn þeirra verður flokksins svo lengi sem stjórnmálaáhugi lifir í afkomendum þeirra. Það sést á ákvörðunum dagsins. Morðið á Benazir Bhutto verður til þess að baráttan persónugerfist enn. Þessi barátta er nú merkt afkomendum hennar. Það eru vissulega örlagatíðindi og rétt eins og hjá móðurinni er uppgjöf ekki valkostur hjá hinum unga syni sem þarf að taka á sig byrðar móðurarfsins.
Benazir Bhutto tók miklar áhættur í sínu pólitíska starfi. Hún hefði getað setið fjarri átakalínum og látið öðrum eftir forystusess á umbrotatímum eftir fall föður hennar. Það var ekki valkostur hennar. Og hún markaði söguleg skref með því að verða fyrsta konan við völd í íslömsku ríki. Förin til Pakistans eftir áratug í útlegð var áhætta sem kostaði hana lífið. Það varð ljóst er reynt var að drepa hana í október að hún ætlaði ekki að láta andstæðinga sína ráða örlögum þessarar baráttu. Enda sagði hún þá að uppgjöf væri ekki valkostur. Hún yrði að mæta því sem gerðist. Og það gerði hún.
Ég tel að hugrekki hennar verði lengi í minnum haft. Hún var hörkutól sem lifði fyrir áhætturnar og féll síðar vegna þeirra. En Benazir var engin hrein mey í stjórnmálabaráttu. Hún var ekki gallalaus en hún má eiga það að hún barðist. Hún tók áhættu sem fáir hefðu lagt í. Sem kona var hún fulltrúi baráttunnar á öðrum forsendum og hún hafði ljónskraft á við marga karlmenn. Hún var enginn heigull í karlaveldinu heldur leiðtogi í samfélagi þeirra. Það verður hennar arfleifð að vera kjarnakona baráttunnar á þessum slóðum.
En nú er þessi barátta færð á þriðju kynslóðina. Á þessum örlagatímum er baráttan í senn persónuleg og pólitísk. Það veit hinn ungi sonur kjarnakonunnar sem tekur á sig byrðar sem hann verður að axla. Í þeim efnum er varla spurt um viljann einan. Dauði Benazir Bhutto breytir miklu fyrir fólkið hennar. Þau þurfa að byggja baráttu sína á öðrum forsendum og halda áfram án neistans sem einkenndi baráttu hennar.
Nú er sonurinn kominn í sviðsljósið, áður en hann hefur getað lokið námi. En örlög hans eru ljós. Móðurarfur hans er einfaldlega sá að halda áfram baráttunni. Og það er ekki öfundsverður arfur í sjálfu sér. Þetta er barátta sem er í senn persónuleg og pólitísk. Og við gröf forfeðranna dugar varla hik.
![]() |
Sonur Bhutto einungis formaður í orði |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
30.12.2007 | 09:44
Gerður Önnudóttir er tröll
Það blasir við öllum að moggabloggarinn Gerður Önnudóttir er bara tröll hér á Moggablogginu. Það er enda engin Gerður Önnudóttir skráð í þjóðskrá og karakterinn er fyrir löngu fallinn um sjálfan sig en reynir að leika vitleysuna áfram. Þetta er auðvitað bara ódýr brandari einhvers vitleysings úti í bæ, settur hingað inn bara til að reyna að snapa athygli og er ekki ósvipaður karakterum á borð við Jón Guðmundsson og Bol Bolsson, en flestir muna eftir því er Henrý Birgir Gunnarsson lék sig sem hreinræktað fífl við að skrifa þann karakter.
Það er auðvitað frekar ömurlegt að sjá svona tröll á þessum stað. Það nýjasta er að Gerður feikbloggari vælir yfir því á vef sínum að Moggabloggið hafi klippt á möguleika hennar til að fréttablogga. Það er varla undrunarefni enda sjá allir að þetta er ekki bloggari, heldur bara einn stór brandari til að ná athygli. Svona hálfvitar gengisfella auðvitað þetta bloggsamfélag og eðlilegt að þeir sem halda kerfinu úti reyni að sporna við þessu.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 09:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
30.12.2007 | 01:02
Umdeild verðlaun fyrir íþróttamann ársins
Það er greinilegt að verðlaunagripur íþróttamanns ársins sem afhentur var í fyrsta skipti fyrir ári eru mjög umdeild. Mér finnst hann forljótur og fannst ekki annað við hæfi en að fjalla um það hér. Flestir sem kommentuðu tóku undir það og hef ég heyrt í mörgum öðrum sem eru sama sinnis. Þeir eru fáir sem skrifa beinlínis til að vekja athygli á þessum verðlaunagrip með því að reyna að benda á fegurðina í honum, enda mjög erfitt. Það er varla við því að búast að aðrir en íþróttafréttamenn eða sá sem hannaði þessi ósköp reyni að gera það.
Það er með ólíkindum að samtök íþróttafréttamanna hafi ekki staðið betur að vali á verðlaunagrip í staðinn fyrir þann gamla góða sem þjónaði sínu hlutverki í hálfa öld og var stórglæsilegur í alla staði. Hann var sómi fyrir hvern sem hann vann. Þeir voru stoltir með fagran bikar í höndunum og brostu breitt. Aðeins hafa tveir íþróttamenn hampað þessum nýja bikar; Guðjón Valur Sigurðsson og Margrét Lára Viðarsdóttir. Bæði verðskulduðu titilinn mjög og voru vel að honum komin. Hinsvegar fann ég svolítið til með þeim að þurfa eiginlega að fara heim með þetta ferlíki.
Ég veit ekki hvað sá var að hugsa sem hannaði þessi ósköp og eins þeir sem samþykktu að þetta yrði með þessum hætti. Þetta er forljótur verðlaunagripur og samtök íþróttafréttamanna á að sjá sóma sinn í að láta þennan hverfa fljótlega og finna annan sem er betur við hæfi.
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 01:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)