Gerður Önnudóttir er tröll

Það blasir við öllum að moggabloggarinn Gerður Önnudóttir er bara tröll hér á Moggablogginu. Það er enda engin Gerður Önnudóttir skráð í þjóðskrá og karakterinn er fyrir löngu fallinn um sjálfan sig en reynir að leika vitleysuna áfram. Þetta er auðvitað bara ódýr brandari einhvers vitleysings úti í bæ, settur hingað inn bara til að reyna að snapa athygli og er ekki ósvipaður karakterum á borð við Jón Guðmundsson og Bol Bolsson, en flestir muna eftir því er Henrý Birgir Gunnarsson lék sig sem hreinræktað fífl við að skrifa þann karakter.

Það er auðvitað frekar ömurlegt að sjá svona tröll á þessum stað. Það nýjasta er að Gerður feikbloggari vælir yfir því á vef sínum að Moggabloggið hafi klippt á möguleika hennar til að fréttablogga. Það er varla undrunarefni enda sjá allir að þetta er ekki bloggari, heldur bara einn stór brandari til að ná athygli. Svona hálfvitar gengisfella auðvitað þetta bloggsamfélag og eðlilegt að þeir sem halda kerfinu úti reyni að sporna við þessu.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Mér finnst hún leiðinleg !

Jónína Dúadóttir, 30.12.2007 kl. 09:48

2 Smámynd: Herdís Sigurjónsdóttir

Ég vissi ekki að hún væri til... eða ekki til.

Herdís Sigurjónsdóttir, 30.12.2007 kl. 10:14

3 Smámynd: Brjánn Guðjónsson

hún var brandari.

endurtekinn brandari hættir að vera fyndinn.

Brjánn Guðjónsson, 30.12.2007 kl. 11:33

4 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Ég les aldrei blogg hjá leiðindar vitleysingum og hef aldrei lesið þessa Önnu, hef ekki gaman af fíflaskap að þessu tagi.

Ásdís Sigurðardóttir, 30.12.2007 kl. 13:11

5 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Mér fannst Hrólfur fyndinn á sínum tíma með gervibloggið sitt en þetta sem ég las hjá Gerði var það ekki. Skil samt ekki hvernig henni/honum tókst að æsa svona marga upp, þetta var svo greinilega plat!

Gleðilegt ár!

Guðríður Haraldsdóttir, 30.12.2007 kl. 17:26

6 identicon

Ef að týpur eins og frú Önnudóttir væri ekki á blogginu....væri ekkert gaman að lesa það. Það hlýtur að vera rými fyrir nokkra húmorista í bloggheimum. Mér finnst samt skrýtið hvað hún er gagnrýnd harkalega....kölluð tröll, vitleysingur og fleiri ónöfnum. Ekki vissi ég að þeir sem lesa þessar bloggsíður væru svona rosalega dómharðir. Róa sig kæru landar......nýtt ár er að renna upp.

Gleðilegt ár!

Hafnfirðingur (IP-tala skráð) 30.12.2007 kl. 22:08

7 identicon

.....Nei halló elsku Hafnfirðingur....ertu ekki konan mín????? Elska þig út af lífinu. Þú komst núna upp um þig með að segja "róa sig" Hvað hefurðu sagt þetta oft við mig og krakkahrúguna okkar?.........enn þú ert æði. Gleðilegt ár!

Gaflarinn (IP-tala skráð) 31.12.2007 kl. 01:30

8 identicon

Ég trúi því að Gerður Önnudóttir sé til. Því miður. Þeir vilja bara ekki hleypa henni inn þaðan sem hún slapp.

Gazzi (IP-tala skráð) 31.12.2007 kl. 03:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband