19.2.2007 | 21:11
Vindar breytinga blása um bresk stjórnmál

Þetta er mjög merkileg niðurstaða og sýnir vel þann vanda sem nú blasir við Verkamannaflokknum eftir áratug við völd undir forystu Tony Blair, forsætisráðherra, sem þegar hefur tilkynnt að hann láti af embætti fyrir sumarlok. Í maí hefur Verkamannaflokkurinn leitt ríkisstjórn samfellt í nákvæmlega tíu ár og má búast við þáttaskilum fyrir flokkinn að því loknu þegar að formleg leiðtogaskipti verða. Hinir gullnu sæludagar valdatíðar Tony Blair og Verkamannaflokksins eru löngu liðnir - það hefur syrt allverulega í álinn. Staða mála er mjög augljós þessa dagana. Það stefnir í þáttaskil í breskum stjórnmálum.
Þessi könnun er enn meira afdráttarlaus en margar aðrar því sérstaklega var spurt um flokkana í næstu kosningum og gefið sér við þær aðstæður að Gordon Brown væri í þeim kosningum orðinn forsætisráðherra Bretlands og leiðtogi Verkamannaflokksins. Þessi könnun hlýtur að vera mikið áfall fyrir kratana og ráðandi stjórnvöld. Kannski eru óvinsældir Blairs nú, sem hann mun skilja við er valdaferlinum lýkur, nú að færast í arf til Brown. Það hlýtur að vera umhugsunarefni fyrir flokksmenn Verkamannaflokksins að sjá þessa mælingu þegar að spurt er greinilega um stöðuna sem verður við þær aðstæður að Tony Blair hefur yfirgefið Downingstræti 10 og Brown yrði tekinn við.
Kjósendur vilja augljóslega uppstokkun - nýja sýn og breytta tíma við stjórn landsins. Það sér fulltrúa þessara nýju tíma í David Cameron, leiðtoga Íhaldsflokksins. Cameron hefur eflt flokkinn gríðarlega á því rúma ári sem hann hefur leitt íhaldsmenn. Meginstefnubreytingar hafa orðið, skipt var um merki flokksins og ásýnd. Nýir tímar eru komnir þar. Horft er fram á veginn. Cameron hefur sterka stöðu í sínum flokki er afgerandi forystuefni til framtíðar. Margir í Blair-arminum hafa ekki haft trú á að Brown geti unnið þingkosningar. Svo virðist vera að landsmenn telji það líka. Cameron er enda vinsælli nú en bæði Blair og Brown.
Það hefðu eitt sinn þótt tíðindi að leiðtogi Íhaldsflokksins toppaði Blair og Brown, en ekki lengur að mörgu leyti. Brown er í huga margra maður sömu tíma og kynslóðar og Tony Blair. Það verður því fróðlegt að sjá hvað framtíð næstu mánaða ber í skauti sér, þegar að formlega líður að lokum langs valdaferils Tony Blair. Þá fyrst verður vissara hvernig vindar blása í þingkosningunum árið 2009. Nú þegar má altént finna vinda breytinga blása um bresk stjórnmál.
Þessi könnun og margar hinar fyrri staðfesta það mjög vel að vindar breytinga blása um bresk stjórnmál - það er sannarlega gleðiefni!
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
19.2.2007 | 16:35
Mun Jón Sigurðsson ná árangri með Framsókn?
Hálft ár er í dag liðið frá því að Jón Sigurðsson var kjörinn eftirmaður Halldórs Ásgrímssonar á formannsstóli Framsóknarflokksins. Þá var staða flokksins vond og hún er litlu skárri nú. Þegar að 80 dagar eru til alþingiskosninga velta margir fyrir sér stöðu Framsóknarflokksins. Þessi forni flokkur valda og áhrifa er í dimmum dal þessar vikurnar og stefnir í sögulegt afhroð. Það virðist að duga eða drepast fyrir Jón Sigurðsson í þeirri stöðu sem uppi er. Hann er ósýnilegur í mælingum á stjórnmálamönnum og mælist ekki inni í Reykjavík norður.
Mörgum fannst valið á Jóni sem formanni mjög djarft. Hann hafði við formannskjör sitt aðeins verið virkur þátttakandi í stjórnmálum í tvo mánuði og var utanþingsráðherra, einn fárra í íslenskri stjórnmálasögu. Það var vitað strax í fyrrasumar að erfitt verkefni væri framundan fyrir Jón. Hálfu ári síðar virkar það enn stærra en áður. Flokkurinn mælist í skelfilegri stöðu, hefur misst þingmenn skv. mælingum i flestum kjördæmum og mikið fylgistap blasir við. Framsóknarflokkurinn hefur í 90 ára sögu sinni aldrei staðið verr að vígi og fyrri krísur flokksins blikna í samanburði við það sem nú blasir við.
Það mætti kalla baráttu næstu vikna sannkallaðan lífróður. Það mun allt standa og falla fyrir Framsókn á því hvernig Jóni gengur. Hann sem leiðtogi í kosningabaráttu verður andlit flokksins. Það boðar vond tíðindi fyrir Framsóknarflokkinn að hvorki sé Jón vinsæll í hugum landsmanna né óvinsæll. Með öðrum orðum; hann mælist ekki og er ekki eftirminnilegur í hugum kjósenda. Af mörgum alvarlegum tíðindum fyrir Framsóknarflokkinn eru þetta þau alvarlegustu. Flokkar verða aldrei stórir eða valdamiklir njóti leiðtogi þeirra ekki stuðnings landsmanna eða trausts. Í þessum efnum virðist Jón eiga enn verulega langt í land.
Það er ljóst að Jón Sigurðsson hefur mjög takmarkaðan tíma úr þessu til að snúa vörn í sókn; fyrir bæði sig og Framsóknarflokkinn. Næstu 80 dagar munu ráða úrslitum fyrir flokk eða formann. Allar kannanir núna sýna eyðimerkurgöngu fyrir flokkinn. Hann fer ekki í ríkisstjórn með 10% fylgi eða þaðan af minna. Í raun er þetta mikil barátta sem blasir við og ljóst að Jón leikur lykilhlutverk í því hver mæling flokksins verður. Hann var álitinn bjargvættur Framsóknarflokksins til að taka við er Halldór hætti. Hann hlaut mikinn stuðning til verka er Halldór hætti og nýtur hans því miður ekki neitt út fyrir flokkinn.Það má spyrja sig að því hvort það hafi verið röng ákvörðun fyrir Framsóknarflokkinn að kjósa ekki Siv Friðleifsdóttur til formennsku fyrir hálfu ári. Ímynd flokksins hefði verið allt önnur með konu á fimmtugsaldri á formannsstóli og í ofanálag konu með langan pólitískan feril að baki. Hún hafði verið þingmaður í rúman áratug og ráðherra í fjölda ára. Hún hafði bakgrunn stjórnmálamannsins.
Jón fékk tækifærið. Nú ræðst fljótt hvernig fer fyrir honum og flokknum - hvort hann verði sá sterki leiðtogi sem honum var ætlað að vera. Landsmenn fella þann dóm yfir honum og flokknum þann 12. maí. Nú er komið að örlagastundu fyrir Jón - baráttan framundan verður örlagarík fyrir þennan elsta starfandi stjórnmálaflokk landsins og ekki síður Jón sjálfan.
Það er enda vandséð að hann verði áfram formaður flokksins fái flokkurinn skell af þeim skala sem hann mælist með. Það er enda ólíklegt að hann treysti sér til að halda í eyðimerkurgönguna sem leiðtogi flokks í algjörri uppstokkun. Enda mun algjör innri uppstokkun blasa við flokknum fari kosningarnar illa.
Þetta verður lífróður fyrir gamalgróinn flokk og flokksformann með blæ nýliða í stjórnmálum - með þessum lífróðri fylgjast allir stjórnmálaáhugamenn.
Hver er Jón Sigurðsson?
pistill SFS - 20. ágúst 2006
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
19.2.2007 | 14:57
Eiríkur áfram með í Eurovision-spjallþættinum

Margir óttuðust að sigur Eiríks Haukssonar í keppninni myndi þýða að hann yrði ekki með í þættinum þetta árið. Það þarf semsagt ekki að hafa áhyggjur af því. Það er nú bara undir Eiríki sjálfum komið hvort hann vilji taka þátt. Það er mikið gleðiefni og gott að þurfa ekki að ræða það frekar og velta fyrir sér öðrum nöfnum í þáttinn, enda er Eiríkur þar á heimavelli og okkar besti kandidat í þáttinn.
![]() |
Svíar vilja fá Eirík áfram í vinsæla sjónvarpsþætti |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Tónlist | Breytt s.d. kl. 15:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
19.2.2007 | 13:39
Tónlistarspilari
Tónlist | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.2.2007 | 00:34
Sköllótt og tattúveruð Britney slær í gegn

Það er svona frekar ólíklegt að stílistinn hennar hafi ráðlagt henni þessa villtu karakterbreytingu. Í kvöld sá ég kostulegt myndskeið af Britney á Sky þar sem hún kemur til tattústofunnar í San Fernando-dalnum og sýnir beran skallann. Kostulegar myndir sem dókúmentar hratt fall stjörnu. Hún er orðin jafnberskjölduð á hausnum og Egill Ólafsson, Steingrímur J. Sigfússon og Ómar Ragnarsson. Hún gekk þó ekki alla leið til heljar og lét tattúvera skipperamerki á upphandlegginn eða djöflatákn á bakið heldur lét sér nægja að fá lítið brostákn á upphandlegg.
Ég man þegar að Britney var að byrja að ótrúleg ímynd saklausrar stelpu, allt að því hreinnar meyjar með tæra englaásýnd, var búin til fyrir hana. Sú ímynd var kostulega hjúpuð. Hún var undir þeim merkjum mjög lengi. Á tveim til þrem árum er ferill hennar fokinn út í veður og vind og hún er orðin eins og útlifuð tuskudúkka sem heldur aðeins áfram að steypast í glötun. Hún virðist vera að taka sess Önnu Nicole Smith sem gleðidívu sem fer sínar leiðir og hikar ekki við að hneyksla. Ekki langt síðan að hún var mynduð nærbuxnalaus og nú lítur hún út eins og Ripley í Alien 3. Hrá týpa.
Britney virðist ekki lifa neinu skemmtilífi. Hún er greinilega orðin eitthvað gúgu og gaga, sem varla kemur á óvart. Það er ekki fjarstæðukennt að telja að henni vanti stórlega hjálp frá glötun. Hún er nefnilega á hraðri niðurleið og aðeins spurning hvenær að hún steypist endanlega í duftið. Vona að henni verði allavega forðað frá sömu örlögum og stjörnunnar Önnu Nicole sem nú liggur smurð í kæliklefa í líkhúsi í Flórída - bíður nú þess að dómari ákveði hvort hún verði grafin í Texas eða á Bahama-eyjum.
Skelfileg örlög það - og nöpur.... fyrir hvaða konu sem er; fræga eða óþekkta. Í rauninni er þetta kennslubókardæmi um hvernig frægðin getur leikið fólk. Hún getur verið dauðadómur í sjálfu sér sé hún ekki höndluð.
![]() |
Britney snoðklippt á húðflúrsstofu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 00:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)