19.5.2007 | 18:22
Geir Haarde og Ingibjörg Sólrún funda á Þingvöllum
Fátt bendir til annars en að vel gangi og að stjórn flokkanna taki við völdum á næstu dögum. Það hefur þó verið mikil umræða uppi um það að Ágúst Ólafur Ágústsson, varaformaður Samfylkingarinnar, hafi ekki setið fyrsta stjórnarmyndunarfund flokkanna og margir spurt sig hreinlega að því hvort hann verði ráðherraefni hjá flokknum, sem vekur mikla athygli. Það hefur verið slegið á þær vangaveltur í dag enda situr Ágúst Ólafur fund formanna flokkanna á Þingvöllum ásamt Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, Össuri Skarphéðinssyni og Árna M. Mathiesen.
Miklar vangaveltur eru uppi um það hverjir verði ráðherrar í ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar. Það er ekki undrunarefni að farið sé að velta því fyrir sér, enda blasir við að flokkarnir muni að öllum líkindum ganga frá öllum helstu lausu endunum í stöðunni á næstu dögum. Megináhersla nú hlýtur að vera lögð á að flokkarnir nái málefnagrunni áður en farið verður að skipta ráðuneytum og embættum í stjórnarsamstarfinu. Það hefur farið vel á með flokkunum og fátt sem bendir til annars en að vel gangi saman með flokkunum. Eflaust eru þó alltaf einhver viðkvæm mál til staðar og fróðlegt að sjá lausnir í þeim málaflokkum.
Athyglisvert er að fundað sé á Þingvöllum, þó varla séu það stórtíðindi. Það er mikilvægt að formenn flokkanna og helstu samherjar þeirra geti fundað fjarri miklu sviðsljósi fjölmiðlanna og hafi kyrrð og ró yfir fundinum, sem er auðvitað vel til staðar í þeirri yndislegu stemmningu sem alla tíð hefur einkennt Þingvelli. Fyrir tólf árum mynduðu Davíð Oddsson og Halldór Ásgrímsson grunn að ríkisstjórnarsamstarfi Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks á Þingvöllum yfir páskahátíðina 1995. Nú yfir þessa helgina er grunnur nýs samstarfs á öðrum grunni lagður á sama stað.
Það verður fróðlegt að heyra meira um gang viðræðnanna og eflaust mun verða reynt að ná tali af formönnum væntanlegra stjórnarflokka í kvöldfréttatímum innan stundar og athyglisvert að heyra skoðanir þeirra á stöðu mála. Ef ég þekki íslenska fjölmiðlamenn rétt hafa þeir umkringt forsætisráðherrabústaðinn og bíða þess að fá viðbrögð eða meiri fréttir af stöðu stjórnarmyndunarviðræðnanna.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 20.5.2007 kl. 01:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
19.5.2007 | 16:55
Hverjir verða ráðherrar Sjálfstæðisflokksins?
Nú þegar að ljóst er orðið að Sjálfstæðisflokkurinn er með umboð til stjórnarmyndunar og flest stefnir í að hann myndi stjórn með Samfylkingunni á næstu dögum er spurt hverjir verði ráðherrar Sjálfstæðisflokksins. Það er eðlilegt í stöðunni að uppi séu vangaveltur í þeim efnum. Það hefur verið ljóst alla vikuna að Sjálfstæðisflokkurinn myndi halda áfram í ríkisstjórn, enda voru það skýr skilaboð frá kjósendum.
Að mínu mati þarf að líta til úrslita í alþingiskosningunum þegar kemur að því að velja ráðherra í ríkisstjórninni. Það er reyndar ljóst að Sjálfstæðisflokkurinn vann sögulegan sigur í kosningunum að því marki að hann hlaut sigur í öllum kjördæmum og á fyrsta þingmann allra kjördæma landsins. Það er merkilegur sigur og ber vitni góðu starfi í þessum kosningunum og athyglisverðum árangri eftir sextán ára samfelldri stjórnarsetu Sjálfstæðisflokksins, lengst af í forsæti ríkisstjórnar. Það ber líka vitni þess að flokkurinn hefur endurnýjað sig, bæði forystu og almennan mannskap, mjög vel.
Þegar að litið er á úrslit kosninganna blasir við að Sjálfstæðisflokkurinn bætti við sig fylgi sérstaklega í þrem kjördæmum; hér í Norðausturkjördæmi, Suðurkjördæmi og Suðvesturkjördæmi. Mestu fylgi bætti Sjálfstæðisflokkurinn við sig í Suðurkjördæmi, 6,8%, í Norðausturkjördæmi var fylgisaukningin 4,5% og í Kraganum bætti flokkurinn við sig 4,2%. Þetta á að mínu mati að vera ávísun á það að horft verði til þessara kjördæma og forystumönnum þessara kjördæma verði sýnt með áberandi hætti að þeirra verk sé metið. Að sama skapi bætti Sjálfstæðisflokkurinn við sig óverulega í Reykjavík. Í norðurhluta borgarinnar bætti flokkurinn aðeins við sig 0,9% og í suðurhlutanum bætti hann við sig 1,2%. Í Norðvesturkjördæmi missti flokkurinn 0,5% fylgi.
Það blasir við að Geir H. Haarde og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir séu öruggir ráðherrar í væntanlegu stjórnarsamstarfi. Miðað við góðan árangur í Suðurkjördæmi er staða Árna M. Mathiesen nokkuð trygg ennfremur, enda á hann langa þingreynslu að baki og hefur verið kjördæmaleiðtogi allt frá árinu 1999, í Reykjanes- og Suðvesturkjördæmum áður en hann færði sig nú yfir í Suðurkjördæmi. Það gengur engan veginn upp að Norðvesturkjördæmi hafi áfram tvo ráðherra í þessari stöðu og þar verður að koma til uppstokkun á stöðu mála. Eðlilegt er að Reykjavík hafi allavega einn ráðherra til viðbótar.
Það er mjög mikilvægt að mínu mati að Norðausturkjördæmi fái ráðherrasæti í sinn hlut. Í síðustu kosningum missti kjördæmið ráðherrastól og forsetaembætti Alþingis; Tómas Ingi Olrich var sleginn af í maí 2003 sem menntamálaráðherra í desemberlok 2003 og tilkynnt þá líka að Halldór missti forsetastól þingsins í október 2005. Þetta var mjög eftirminnileg pólitísk aftaka á báðum okkar forystumönnum, sem eftir var tekið. Það var ljóst að árangurinn vorið 2003 hér var afleitur og við gátum sjálfum okkur um kennt. Hinsvegar kemur ekkert annað til greina nú en okkur verði umbunað fyrir að bæta vel við okkur fylgi og leiðtogi okkar verði ráðherra.
Sá átta manna hópur sem við á eftir þessa fyrrnefnda upptalningu er að mínu mati eftirtaldir:
Geir H. Haarde
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
Árni M. Mathiesen
Björn Bjarnason
Kristján Þór Júlíusson
Guðlaugur Þór Þórðarson
Sturla Böðvarsson
Einar K. Guðfinnsson
Mér finnst aðrir varla koma til greina eftir það sem á undan er vikið. Nafn Bjarna Benediktssonar gæti hæglega blandast í þessa runu líka, en það gengur varla upp þó að hann verði tekinn fram fyrir kjördæmaleiðtoga og sitjandi ráðherra í taflið. Það verður þó að ráðast að mínu mati. Svo má vera að horft verði til annars en röðun á lista. Hinsvegar finnst mér einboðið að fyrstu þingmenn kjördæmanna sem hafa leitt flokkinn til glæsilegs sigurs í kringum landið gangi fyrir ráðherraembættum og eða embættum sem deilt verður út. Ekki gengur lengur að Norðvestrið fái tvo ráðherrastóla og það verður að breyta því. Mjög einfalt mál í sjálfu sér.
Það spyrja eflaust einhverjir sig um stöðu kvenna. Að mínu mati er aðeins ein kona afgerandi ráðherraefni, og það er varaformaður Sjálfstæðisflokksins. Verði horft annað er verið að ganga framhjá kjördæmaleiðtogum og mönnum með langa pólitíska reynslu á ýmsum sviðum. Það gengur ekki upp að mínu mati. Staða mála er því einföld. Ég legg þennan kapal fram og ég mun væntanlega á morgun greina stöðu hvers og eins og hverja af þessum átta til níu ég telji að verði á ráðherralista formanns Sjálfstæðisflokksins í næstu viku.
19.5.2007 | 14:55
Styttist í að ný ríkisstjórn taki við völdum

Það hefur farnast best á undanförnum árum að hafa málefnasáttmála ríkisstjórnar stutta og með lykilpunktum frekar en langa upptalningu, sem hefur ekkert gefið sig sérstaklega vel. Blað var brotið í þessum efnum þegar að ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Alþýðuflokks tók við völdum árið 1991. Þá kynntu Davíð Oddsson og Jón Baldvin Hannibalsson stuttan en hnitmiðaðan stjórnarsáttmála með nokkrum lykilpunktum. Slík vinna var líka ofan á við myndun ríkisstjórna Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks frá vorinu 1995.
Það verður fróðlegt að sjá hversu langan tíma mun taka að ná grunnsamkomulagi um málin. Ég tel að það muni ekki taka langan tíma og býst frekar við nýrri ríkisstjórn fljótlega. Eftir því sem mínar heimildir segja mun vinnan ekki taka langan tíma og búist við valdaskiptum fyrir miðja næstu viku. Það er mikilvægt að mínu mati að stjórnarskipti fari fram fljótlega og að ný ríkisstjórn geti hafist handa við þau verk sem hún nær saman um. Svo er auðvitað mikilvægt að Alþingi verði kallað saman fljótlega til að taka til starfa um mikilvæg mál og að stefnuræða ríkisstjórnarinnar verði kynnt.
Heilt yfir sýnist mér mikilvægt að þessir flokkar nái samstarfi um landsstjórnina. Ég hef styrkst sífellt meir í þeirri skoðun minni að þessar viðræður eru hið eina rétta síðustu dagana. Það var auðvitað mikið skref að segja skilið við samstarf Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks. En grunnur þess var ekki lengur til staðar og mikilvægt að horfa fram á veginn en ekki aftur. Ég tel að góð og öflug ríkisstjórn með sterkt umboð verði afrakstur þessara viðræðna sem nú standa.
![]() |
Stjórnarmyndunarviðræður halda áfram um helgina |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
19.5.2007 | 13:51
Sorgleg staða á Vestfjörðum

Ég skil vel ótta fólks fyrir vestan með stöðu mála, en þetta er langt í frá fyrsta áfallið sem gerist í atvinnumálum vestra. Svona uppstokkun í einu fyrirtæki verður um leið að uppstokkun heillar byggðar. Byggð sem stendur og fellur með fiskverkun og rekstri fyrirtækis við sjóinn má ekki við áfalli á borð við þetta. Þegar að 120 manns missa atvinnu í burðarfyrirtæki í lítilli byggð er það harmleikur einnar byggðar.
Það virðist vera spilað um kvótann í þessu samhengi. Það er grundvöllur stöðunnar þar. Það er alveg ljóst að vestfirskar byggðir hafi farið illa á síðustu árum. Það leikur enginn vafi að þar skekjast undirstöður þess sem skipta máli. Það er dapurlegt á að horfa. Vonandi finnst skynsamleg lausn í málefnum Vestfjarða. Það er þó ljóst að staðan þar er brothætt. Miklu máli skiptir að halda kvótanum í byggðarlaginu. Gangi það ekki eftir verður skelfing mála þar enn meiri en ella.
Það er auðvitað dapurt að ekki gangi að reka útgerð áfram á Flateyri og það hlýtur að vera grunnmál í stöðunni að finna leiðir til að hjól fyrirtækisins stöðvist ekki. Ég skil vel að Hinrik Kristjánsson vilji horfa í aðrar áttir en það er auðvitað mjög dapurt ef ekki finnast leiðir til að fyrirtækið haldi áfram við eigendaskipti, en það er greinilega við ramman reip að draga. Ég vona að málinu ljúki vel fyrir Vestfirðinga, enda er það mjög mikilvægt að svo fari.
![]() |
„Minn tími í sjávarútvegi er liðinn" |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)