1.7.2007 | 20:23
Jóhann Helgason kærir stuld á laginu Söknuði

You Raise Me Up er samið af Norðmanninum Rolf Lovland. Hann hefur dvalið langdvölum á Íslandi og telur Jóhann að hann hafi samið lagið undir áhrifum af Söknuði. Sjónvarpsþátturinn Kastljós fjallaði um málið í tilefni Íslandsfarar Josh Groban og þá kipptist söngvarinn allsnarlega við að heyra lagið Söknuð, sem skiljanlegt er miðað við hversu lík lögin eru.
Lagið Söknuður hljómaði fyrst opinberlega á plötunni Hana nú árið 1977, síðustu hljómplötu Vilhjálms Vilhjálmssonar, skömmu fyrir andlát söngvarans, sem sjálfur samdi textann við lagið. Það er öllum ljóst að líkindi laganna eru mikil og mun Jóhann ætla að láta reyna á sína stöðu.
Lögin Söknuður og You Raise Me Up eru bæði í spilaranum hér, fyrir þá sem vilja hlusta aftur á þau.
Tónlist | Breytt s.d. kl. 20:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
1.7.2007 | 18:06
Díönu minnst með tónlistarveislu á Wembley

Sir Elton John hóf tónleikana með einu af sínum þekktustu lögum, Your Song, og mun ennfremur ljúka þeim og þá með laginu Candle in the Wind, útgáfunni frá árinu 1997 sem var tileinkuð prinsessunni og helguð minningu hennar. Lagið var sungið við útför hennar í Westminster Abbey í september 1997 og er lagið á mest seldu smáskífu í tónlistarsögunni, sem gefin var út til minningar um Díönu eftir andlát hennar. Elton hafði sagst aðeins myndu syngja lagið opinberlega aftur ef synir Díönu myndu biðja hann um að gera það.
Þetta eru svo sannarlega áhugaverðir tónleikar. Ég hef fylgst með þessu með öðru auganu og það má segja með sanni að þar sé ólík en áhugaverð tónlist úr öllum mögulegum áttum, sannkölluð tónlistarveisla. Það var vel til fundið hjá sonum Díönu að minnast hennar á afmælisdegi hennar. Andlát Díönu hafði mikil áhrif í breskri sögu fyrir áratug og þeir sem upplifðu þá tíma munu ekki gleyma þeim, enda var prinsessan kvödd með virðulegum hætti, en þjóðarsorg Breta þá haustdaga var svo sannarlega sönn.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.7.2007 | 16:36
Mesta óánægjan við ráðherravalið er í Norðaustrinu

Í sjálfu sér kemur mér ekki mjög að óvörum að óánægja sé til staðar hér í Norðausturkjördæmi. Enn eigum við bara einn ráðherrastól í stjórninni; sem nú er samgönguráðherrann Kristján L. Möller. Það vakti auðvitað mjög mikla athygli að fyrsti þingmaður Norðausturkjördæmis, Kristján Þór Júlíusson, leiðtogi Sjálfstæðisflokksins í kjördæminu og fyrrum bæjarstjóri á Akureyri, hafði ekki stuðning eða stöðu til að hljóta sæti í ríkisstjórn. Það blandast engum hugur um að kurr er í sjálfstæðismönnum hér í kjördæminu með að við fengum ekki ráðherrastól, en þetta er eina kjördæmi landsins þar sem Sjálfstæðisflokkurinn á ekki ráðherrastól.
Eftir sögulegan kosningasigur hér í kjördæminu hlaut flokkurinn ekki ráðherrastól. Hinsvegar er Arnbjörg Sveinsdóttir áfram þingflokksformaður og hún hlaut formennsku í þingnefnd. Það er auðvitað mjög áberandi að Kristján Þór hlaut hvorki ráðherrastól né nefndaformennsku eftir að hafa unnið stóran sigur í prófkjöri í nóvember 2006 og hafa leitt flokkinn til góðs árangurs. Það vekur miklar vangaveltur. Staða Sjálfstæðisflokksins hér á Akureyri er reyndar líka mikið umhugsunarefni, en við munum ekki hafa embætti bæjarstjóra út kjörtímabilið og ekki verður leiðtogi listans, sem var bæjarstjóri hér í tæpan áratug, ráðherra á tímabilinu, að óbreyttu.
Í sjálfu sér má Samfylkingin hér í kjördæminu mjög vel við una. Að óbreyttu munu þeir hafa bæði embætti bæjarstjóra á Akureyri og ráðherrastól í næstu sveitarstjórnarkosningum. Þeirra staða er mjög sterk þó að nú reyni auðvitað á öll hin fögru kosningaloforð sem Kristján L. Möller færði okkur á fagurlega myndskreyttum matseðli samgönguframkvæmda með fallegu orðskrúði. Á efndir þeirra orða verður kallað. Það er mjög einfalt mál. Nú reynir á hann sem eina ráðherrann í kjördæminu, eina stjórnmálamanninn sem nýtur trausts á þessum tímapunkti til ráðherrasetu.
Svo virðist vera sem að ráðherravalið sé heilt yfir umdeildara innan Sjálfstæðisflokksins, þar segjast aðeins 41% vera heilt yfir ánægðir en nákvæmlega helmingur Samfylkingarfólks. Það má vel vera að fólk sé ósátt við að ekki séu fleiri konur ráðherrar í nafni Sjálfstæðisflokksins. Það er eflaust margt sem veldur að meiri óánægja er þar við stöðu mála að mínu mati. Þar ræður sennilega ekkert eitt í heildina.
Heilt yfir er þetta merkileg könnun og gefur góðar vísbendingar og vangaveltur um hug landsmanna til þeirra sem sitja í ríkisstjórninni.
![]() |
Innan við helmingur landsmanna sáttur við ráðherraval |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.7.2007 | 14:27
Opinberar harmsögur Steingríms J. halda áfram

Það er skiljanlegt að Steingrímur J. sé ekki sáttur við sitt hlutskipti. Hann hefur setið á þingi í 24 ár, frá árinu 1983. Hann hefur aðeins verið í stjórnarmeirihluta í þrjú ár af þessum árafjölda. Það segir allt sem segja þarf. Steingrímur J. gerði sér háleit markmið um stjórnarþátttöku að loknum kosningunum 12. maí sl. Sigur VG, sem svo lengi var í augsýn alla kosningabaráttuna, varð er á hólminn kom ekki eins glæstur og stefndi svo lengi í. Flokkurinn mældist með allt upp í 28% og 15-17 þingsæti en hlaut að lokum aðeins níu, tveim fleiri en Framsókn.
Þó að VG hafi vissulega unnið um margt stóran sigur í kosningunum frá þeim hinum fyrri, sem óumdeilt er, varð sigurinn engu að síður súrsætur og brosin voru ekki sönn á kosninganótt. Stærsta stjarna VG í kosningunum, Guðfríður Lilja skákdrottning, komst ekki inn á þing er á hólminn kom og eftir stóð þingflokkur sem minnti meira á Alþýðubandalagið eldgamla sem sofnaði svefninum langa fyrir áratug en nýjan framsækinn stjórnmálaflokk með ferskar rætur. Ásýndin var önnur en að var stefnt, það var flokknum verulegt áfall að ná ekki inn Guðfríði Lilju og Ingibjörgu Ingu, svo að ekki sé nú talað um Björn Val og Ölmu Lísu, svo fáir séu nefndir.
Gremja VG í garð Samfylkingarinnar leyndi sér ekki í eldmessu Steingríms J. í umræðu um stefnuræðu forsætisráðherra og sú sorgarsaga birtist enn í Fréttablaðinu í dag. Norðlenski bóndasonurinn frá Gunnarsstöðum minnti meira á hryggbrotinn unglingspilt í ástarsorg en hnarreistan mann valdsins á þeim tíma. Í stað þess að byggja upp sína framtíðarsýn og tala málefnalega um lykilmál kjörtímabilsins var hann eins og maður sem missir makann í fang annars manns og er að bogna af gremju og svekkelsi. Þetta var hreint út sagt dapurt móment á ferli þessa þaulreynda þingmanns.
Þrátt fyrir áratugi í pólitík klúðraði hann með mjög áberandi hætti stjórnarmyndunarmöguleikum flokks síns - hann lagði líka í rúst möguleikana á vinstristjórn, stjórn án aðkomu Sjálfstæðisflokksins, sjálfstæðismönnum til mikillar gleði. Þann kaleik ber hann einn. Honum varð svo mikið um stöðuna sem skapaðist við stjórnarmyndun Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar að hann fór í sauðburð norður á Gunnarsstaði, kúplaði sig út og hugsaði sitt ráð.
Ég hallast að því að Steingrímur sé svo fúll vegna þess að hann hafi haldið innst inni að hann myndi sitja að Sjálfstæðisflokknum einn myndi slitna upp úr samstarfi Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks. Hann actaði þannig að sú væri hans hugsun mála. Það hvernig hann sparkaði í Framsókn strax eftir kosningar með kröfu um afsökunarbeiðni á kosningaauglýsingu og að Framsókn myndi verja hreina vinstristjórn falli bar ekki vitni þess að hann vildi þá að samningaborði með þeim. Það blasir við öllum sem reikna saman tvo og tvo pólitískt.
Það er skiljanlegt að Steingrímur J. sé hundfúll. Hver væri það ekki eftir að hafa svona ævintýralega áberandi klúðrað sénsunum í stöðunni. Það er lítið um gleði hjá vinstri grænum á þessu sumri. Þar tekur nú við sambúð með fornum fjandvini, sjálfum Framsóknarflokknum. Það verður sambúð sem kengur verður í, svona kæfingarfaðmlag tveggja andstæðinga sem verða að unnast en vilja það ekki, eru hundfúl í sömu hjónasæng. Í ljósi þess er gremjan í garð Samfylkingarinnar afskaplega vel skiljanleg.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
1.7.2007 | 13:01
Skemmdir á þjóðveginum - kostulegt orðalag
Annars þekki ég nokkra sem lentu í þessu á föstudaginn. Þetta er nokkuð langur kafli, enda frá búð Húsasmiðjunnar við Lónsbakka og alveg að Þelamörk og það var því viðbúið er þetta gerðist að margir myndu því miður verða fyrir skaða. Vegurinn á þessum kafla hafði lengi verið slappur og það var því gleðilegt að hann væri tekinn í gegn. Það hefur þó eitthvað farið úrskeiðis og vonandi verður tekið á því.
![]() |
Með verstu blæðingum sem ég hef upplifað |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
1.7.2007 | 09:25
83% landsmanna styðja ríkisstjórnina

Ríkisstjórn dr. Gunnars Thoroddsens mældist með um 80% stuðning í upphafi er hún var mynduð fyrir tæpum þrem áratugum, í febrúar 1980, en síðar seig mjög á ógæfuhliðina. Telst sá stuðningur sá mesti við ríkisstjórn í sögu landsins fram að þessu, en taka skal þó fram að sú mæling var í könnunum Dagblaðsins á þeim tíma og áður en Gallup-kannanir voru komnar til sögunnar í þeirri mynd sem nú þekkist hérlendis. Sú stjórn var mynduð við mjög umdeildar aðstæður og eftir langvinna stjórnarkreppu . Vinsælustu stjórnir til þessa í mælingum Gallups eru ríkisstjórnir Davíðs Oddssonar á tíunda áratugnum.
Staða ríkisstjórnarinnar er eins og fyrr segir mjög afgerandi og þessi mæling segir allt sem segja þarf um hversu góðan byr hún hefur frá landsmönnum. Það er ekki öfundsvert að vera í stjórnarandstöðu við þessar aðstæður og óhætt að segja að reyna muni á stjórnarandstöðuflokkanna í þeirri erfiðu stöðu sem uppi er fyrir þá og sést afgerandi með þessari Gallup-könnun. Stjórnin er svo voldug að hún hefur þingið algjörlega í hendi sér. Best sást það skömmu fyrir þinglok með kosningum í landskjörstjórn og kjörstjórnir í kjördæmum, en af fimm sætum hefur stjórnarmeirihlutinn fjögur til ráðstöfunar.
Stjórnarandstaðan er því vissulega að vakna upp við hlutskipti sitt. Samt sem áður mun hún eflaust bíta vel frá sér á næsta þingvetri þó staða flokkanna sem hana mynda sé veik. Við öll sem fylgjumst með stjórnmálum vonumst auðvitað eftir því, enda er ekkert gaman af stjórnmálum ef stjórnarandstaðan er veik og máttlaus og hún verður því að stíga vel í lappirnar og sanna sig. Þar tekur við erfið vinna við að yfirstíga gremju milli aðila og fróðlegt að sjá hvernig það gengur.
Reyndar fylgir könnun frá Gallup með þessari mælingu á stjórnina. Þar kemur fátt að óvörum. Stjórnarflokkarnir halda sínu og eru að mælast með 70% fylgi, ótrúlega sterk staða sem kemur ekki að óvörum sé litið á sterka stöðu ríkisstjórnarinnar. Stóru tíðindin eru þau að Framsóknarflokkurinn dalar milli mánaða, þrátt fyrir formannsskipti og kjör nýs varaformanns. Þar eru framundan erfiðir tímar við uppbyggingu, svo mikið er ljóst.
![]() |
Mikill meirihluti styður ríkisstjórnina |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |