83% landsmanna styðja ríkisstjórnina

Ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar Skv. nýjustu könnun Gallups styðja 83% landsmanna ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar. Þetta er mesti stuðningur við ríkisstjórn hérlendis í skoðanakönnunum til þessa og greinilegt að hún hefur afgerandi umboð til verka og stuðningur landsmanna við hana er afdráttarlaus. Vald hennar er mikið og t.d. er hún svo sterk á Alþingi að hún getur veitt afbrigði við þingmál án liðsinnis frá stjórnarandstöðunni.

Ríkisstjórn dr. Gunnars Thoroddsens mældist með um 80% stuðning í upphafi er hún var mynduð fyrir tæpum þrem áratugum, í febrúar 1980, en síðar seig mjög á ógæfuhliðina. Telst sá stuðningur sá mesti við ríkisstjórn í sögu landsins fram að þessu, en taka skal þó fram að sú mæling var í könnunum Dagblaðsins á þeim tíma og áður en Gallup-kannanir voru komnar til sögunnar í þeirri mynd sem nú þekkist hérlendis. Sú stjórn var mynduð við mjög umdeildar aðstæður og eftir langvinna stjórnarkreppu . Vinsælustu stjórnir til þessa í mælingum Gallups eru ríkisstjórnir Davíðs Oddssonar á tíunda áratugnum.

Staða ríkisstjórnarinnar er eins og fyrr segir mjög afgerandi og þessi mæling segir allt sem segja þarf um hversu góðan byr hún hefur frá landsmönnum. Það er ekki öfundsvert að vera í stjórnarandstöðu við þessar aðstæður og óhætt að segja að reyna muni á stjórnarandstöðuflokkanna í þeirri erfiðu stöðu sem uppi er fyrir þá og sést afgerandi með þessari Gallup-könnun. Stjórnin er svo voldug að hún hefur þingið algjörlega í hendi sér. Best sást það skömmu fyrir þinglok með kosningum í landskjörstjórn og kjörstjórnir í kjördæmum, en af fimm sætum hefur stjórnarmeirihlutinn fjögur til ráðstöfunar.

Stjórnarandstaðan er því vissulega að vakna upp við hlutskipti sitt. Samt sem áður mun hún eflaust bíta vel frá sér á næsta þingvetri þó staða flokkanna sem hana mynda sé veik. Við öll sem fylgjumst með stjórnmálum vonumst auðvitað eftir því, enda er ekkert gaman af stjórnmálum ef stjórnarandstaðan er veik og máttlaus og hún verður því að stíga vel í lappirnar og sanna sig. Þar tekur við erfið vinna við að yfirstíga gremju milli aðila og fróðlegt að sjá hvernig það gengur.

Reyndar fylgir könnun frá Gallup með þessari mælingu á stjórnina. Þar kemur fátt að óvörum. Stjórnarflokkarnir halda sínu og eru að mælast með 70% fylgi, ótrúlega sterk staða sem kemur ekki að óvörum sé litið á sterka stöðu ríkisstjórnarinnar. Stóru tíðindin eru þau að Framsóknarflokkurinn dalar milli mánaða, þrátt fyrir formannsskipti og kjör nýs varaformanns. Þar eru framundan erfiðir tímar við uppbyggingu, svo mikið er ljóst.

mbl.is Mikill meirihluti styður ríkisstjórnina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Örn Jónsson

Það er spurning hvernig fylgið sveiflast þegar á að fara að efna öll loforðin sem gefin voru í kosningabaráttunni.  Mér dettur strax í hug yfirlýsingagleði Kristjáns L. Möller í kosningabaráttunni um Vaðlaheiðargöng, Grímseyjarferju.  Og síðan yfirlýsingagleði flokkanna í garð Eyjamanna varðandi nýjan Herjólf, fjölgun ferða og rannsóknir á gangnagerð.  Það er mjög fróðlegt að kíkja inná bloggsíðu Kristjáns L. Möller. Þar vantar ekki stóryrðin fyrir kosningarnar.

Guðmundur Örn Jónsson, 1.7.2007 kl. 12:24

2 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Ég er vongóð um að þetta verði gott samstarf. Eins og þú segir hafa þau gott umboð þjóðarinnar og þau þurfa smá svigrúm, ekki verður allt bætt á einum degi.

Ásdís Sigurðardóttir, 1.7.2007 kl. 12:55

3 Smámynd: Óðinn Þórisson

Ég er sammála Ásdísi að vonandi verður þetta gott samstarf - það kemur í ljós.
Stjórnarandstaðan er mjög sundurleytur hópur sem á vafalaust ekki eftir að koma sér saman um eitt eða neitt.
Spennan verður eftir svona 18 - 20.mán - Ingibjörg gengur með forsætisráðherrann í maganum - mun hún kljúfa ríkisstjórnina ?

Óðinn Þórisson, 1.7.2007 kl. 14:18

4 Smámynd: Stefán Friðrik Stefánsson

Takk fyrir kommentin.

Hanna Birna: Já, vissulega eiga allir sína 100 daga, en þetta er söguleg mæling og þetta er auðvitað rosalega öflugur stuðningur. Eiginlega með ólíkindum. Það mun líða á löngu þar til að þetta met verður slegið spái ég.

Guðmundur Örn: Það verður að ráðast hvernig gengur. Staðan er allavega sterk í upphafi og þjóðin fellir sinn dóm með afgerandi hætti á sjálfa stjórnarmyndunina með þessari traustsyfirlýsingu. En já, veturinn verður pólitískt spennandi, enginn vafi á því, þó að hlutföllin séu með þessum hætti í þinginu.

Ásdís: Já, við vonum það allra besta.

Óðinn: Þetta verður spennandi vetur. Staðan lofar góðu í upphafi, en það er enn langt eftir af tímabilinu og fróðlegt hvernig muni ganga að stilla fyllilega saman strengi.

mbk.

Stefán Friðrik Stefánsson, 1.7.2007 kl. 15:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband