Hversu gott útsendingarkerfi er Digital Ísland?

Það er athyglisvert að heyra fréttir af bilun á höfuðborgarsvæðinu á Digital Ísland. Sitt sýnist hverjum um það hversu gott kerfi þetta hefur verið. Vissulega eru betri myndgæði á þessu útsendingarkerfi en því gamla en því fylgja líka agnúar. Ég hef tekið eftir því hér fyrir norðan allavega að myndin frýs með reglulegu millibili og er stopp í svona þrjár til fimm sekúndur. Einnig að það getur gerst reglulega að kerfið stoppi.

Það er ekki langt síðan að stór bilun varð hér fyrir norðan í kerfinu. Þá datt allt dæmið út í dágóða stund. Það var verulega hvimleið bilun. Nú dettur kerfið út fyrir sunnan á þeirri stund sem Simpson-fjölskyldan er sýnd á íslensku. Sé að einhverjir voru ekki sáttir og það skiljanlega. Það er gerð góð krafa um að þetta kerfi haldist vel inni og það verður fróðlegt að sjá hver orsök þessarar bilunar hafi eiginlega verið. Virðist mjög dularfullt.

mbl.is Óleyfilegar útsendingar trufla tíðnisvið Digital Ísland
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rowling heldur áfram að skrifa þrátt fyrir ríkidæmið

J.K. Rowling Það kemur mér svolítið að óvörum að J.K. Rowling hafi ákveðið að hefja bókarskrif svo skömmu eftir að ævintýrið um Harry Potter leið undir lok. Átti reyndar alltaf von á að hún settist við skriftir síðar meir og skapaði ný ævintýri. Sögurnar um galdrastrákinn Harry eru auðvitað líflegustu ævintýri seinni tíma, svona eins og Hringadróttinssaga seinni tíma - álíka ævintýraljómi, og það tók mikinn tíma og kraft fyrir Rowling að vinna það verk til enda.

J.K. Rowling varð ein auðugasta kona heims á ævintýrinu um Harry. Er í flokki með Elísabetu II Englandsdrottningu sjálfri. Hún var bláfátæk einstæð móðir þegar að sest var við skriftirnar, rétt skrimti í gegnum hversdaginn. Hafði varla peninga fyrir salti í grautinn og gat ekki borgað helstu reikninga heimilisins. Það má reyndar hugleiða hvernig í ósköpunum hún hefur fengið hugmyndina að ævintýrinu og gat skapað allar þessar hundruðir blaðsíðna af ævintýrinu sem hefur heillað ævintýrasinnaða einstaklinga á öllum aldri.

Það verður fróðlegt að sjá hverskonar skrif koma frá J.K. Rowling við leiðarlok Harry Potter. Ég þekki einn mikinn Harry Potter-aðdáanda og spurði hann hvað tæki við nú þegar að síðasta bókin væri komin og búið að lesa hana meira að segja. Svarið var að nú tæki við að lesa aftur fyrstu bókina. Ævintýrið endar varla í huga þeirra sem hafa lifað sig í gegnum það árum saman. Rowling hefur nú tækifærið til að fara í aðrar áttir og eða gæti auðvitað skapað nýjan ævintýraljóma sem gæti komið í stað þess æðis sem varð í kringum Harry Potter.

Enn er svo auðvitað spurningin um það hvort að Rowling hafi virkilega sett punktinn aftan við söguna um Harry Potter. Fróðlegt verður allavega að sjá hvers eðlis skrif hennar í kjölfar sjöundu bókarinnar um Harry verða.

mbl.is J.K. Rowling aftur sest við skriftir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 28. júlí 2007

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband