Alan Johnston laus úr varðhaldi

Alan Johnston Breska fréttamanninum Alan Johnston var sleppt í nótt úr varðhaldi hópsins Hers Íslams, vígamannaliðs á Gaza-svæðinu, eftir 114 daga vist. Það er mikið gleðiefni að tekist hafi að heimta Johnston úr helju eftir allan þennan tíma. Þegar að þriðja og síðasta myndbandið með honum var birt fyrir tæpum mánuði töldu flestir að tíminn væri að renna út og allar líkur á því að honum yrði sleppt væru að renna út í sandinn. Það fór sem betur fór ekki svo.

Það er greinilegt að Hamas-samtökin léku lykilhlutverk í þessari niðurstöðu og tryggðu öðrum fremur að honum væri sleppt. Mahmoud Abbas, forseti Palestínu, og Fatah-hreyfingin, sem hann leiðir, og hefur verið í harðvítugu valdatafli við Hamas mánuðum saman saka Hamas um að hafa notað Johnston sem leiksopp sinn til að reyna að bæta orðspor sitt á alþjóðavettvangi. Það er erfitt að segja til um það, en millileikur Hamas var allavega þeim mjög til hags, en þeim veitir varla af að bæta stöðu sína utan Palestínu, enda eru þeir litnir hornauga víðsvegar um heim.

Mikilvægast af öllu er þó að Johnston er laus úr varðhaldinu. Hann segist hafa getað hlustað á fréttir að heiman nær alla vistina, þar sem hann hafi getað hlustað á útvarpsfréttir BBC. Hann er reyndar ótrúlega vel á sig kominn, en ég horfði áðan á drjúgan hluta af fréttamannafundi hans í dag. Það verður fróðlegt að sjá hvort að Hamas skorar einhver stig á alþjóðavettvangi með lausn Johnstons.

mbl.is Alan Johnston laus
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kristín stýrir framboði Íslands í öryggisráðið

Kristín A. Árnadóttir Það kemur svo sannarlega ekki að óvörum að Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, utanríkisráðherra, hafi ákveðið að ráða Kristínu A. Árnadóttur, frænku mína, til að stýra framboði Íslands til öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna. Mikilvægasti hjalli framboðsins er framundan og greinilega er lögð mikil áhersla á að ná sætinu en við tökumst á um sæti í baráttu við Tyrkland og Austurríki.

Ingibjörg Sólrún hefur auðvitað valið Kristínu margoft til starfa á sínum pólitíska vettvangi, en þær hafa verið pólitískir samherjar og miklar vinkonur árum saman. Hún varð fyrsti aðstoðarmaður hennar í Ráðhúsinu er R-listinn tók við völdum fyrir þrettán árum og varð síðar skrifstofustjóri Reykjavíkurborgar í borgarstjóratíð Ingibjargar Sólrúnar.

Eins og flestum er kunnugt eiga fimmtán ríki sæti í Öryggisráðinu, þar af eru fimm með fast sæti. Þetta mál hefur alla tíð verið umdeilt og hef ég verið frekar andvígur því alla tíð. Sama má segja um Samband ungra sjálfstæðismanna, en við höfum verið ófeimin við að tjá okkur gegn málinu.

Ingibjörg Sólrún er nýkomin frá Afríku, fór þar víða á skömmum tíma. Í og með var það auðvitað fyrst og fremst ferð í formi kosningabaráttu fyrir framboðinu. Stofnað hefur verið til stjórnmálasambands við fjölda þjóða þar og nú er Ingibjörg Sólrún greinilega að fara víða um til að presentera framboðið.

Það verður fróðlegt að sjá hvernig Ingibjörgu Sólrúnu gangi að halda á þessum málum sem utanríkisráðherra. Hún hefur allavega öfluga og góða konu sér við hlið, enda er valið á Kristínu að mínu mati mjög gott.

mbl.is Kristín stýrir framboði Íslands til öryggisráðs SÞ
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eigum við von á rigningu um helgina?

Singin' in the Rain Það stefnir í rigningu um helgina hérna fyrir norðan. Sú rigning ætti að verða einhverjum kærkomin, sennilega helst bændunum og þeim sem þurfa að rækta túnin sín. Ekki er nein sérstök tilhlökkun í mér eftir rigningu, enda flýtir það sennilega enn frekar fyrir því að ég þarf að fara út í garð og slá. Kannski maður noti helgina í það blessaða verk.

Ég man varla eftir þurrari sumri, það sem af er, en því sem nú stendur yfir hérna fyrir norðan. Júní var þurrastur allra í áratug hérna hjá okkur og það er staðreynd sem fékk alla bændurna á svæðinu til að raða sér upp í viðtöl við N4 og tengda miðla. Enda skiljanlegt að þeir vilji að rigni, þeirra afkoma og heill er í húfi þess að góð uppskera verði á túnunum.

Þetta verður kannski svo mikil rigningarhelgi að maður dembi sér bara í að horfa á Singin' in the Rain, hinn mikla og skemmtilega gleðigjafa frá árinu 1952. Það er mynd sem er sú pottþéttasta ef vantar gleði. Sannkölluð trygging fyrir skemmtilegheitum. Þessi mynd klikkar aldrei og ég hef dýrkað hana allt frá því að ég sá hana fyrst. Einstök að öllu leyti. Hún ætti að kæta mann jafnvel á mestu rigningardögum.

Rigningarlagið skemmtilega með meistara Gene Kelly er í spilaranum hér á síðunni. Einstaklega gott lag, sígildur brilljans.

mbl.is Þurrum góðviðriskafla að ljúka - skin og skúrir um helgina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eftirmálar þess að Mogginn lokaði bloggsíðu

Það er rúm vika síðan að yfirmenn Moggabloggsins lokuðu bloggsíðu Emils Ólafssonar hér í kerfinu. Það var endir á talsverðu leiðindamáli, sem við öll sem hér skrifum fylgdumst ágætlega með. Ég tjáði mig örlítið um þá lokun. Í kjölfarið fékk ég talsvert af kommentum hér inn vegna og eiginlega enn meiri viðbrögð í tölvupósti. Voru skiptar skoðanir um það sem ég skrifaði. Flestir voru þó sama sinnis. Hinir voru helst að finna að þeirri skoðun minni að yfirmenn hér gætu stjórnað því hverjir skrifi hér eða fengju pláss til að skrifa það sem þeir vildu.

Ég stend við nákvæmlega það sem ég sagði. Þetta bloggsvæði er í einkaeigu. Þar gilda reglur og þar er standard yfir. Rjúfi menn grunnskilmálana hér geta þeir átt von á að lenda í því að lokað sé á þá. Þetta er ekki bloggkerfi án reglna og skilmála. Eins og í flestum samfélögum eru þar viss grunnur og það er skýrt hvernig það allt er hér. Ég treysti þeim hér á Moggablogginu til að stjórna þessum vettvangi með heiðarlegum hætti og standa vörð um að hér sé viss standard á umgjörðinni.

Það er auðvitað svo með opin bloggkerfi að þar safnast saman ólíkt fólk, með ólíkar aðferðir til að tjá sig. Flestir hér eru mjög málefnalegir og hafa góðar bloggsíður. Skilaboðin sem send voru héðan um daginn voru þau að þetta samfélag er ekki stjórnlaust og þar er tekið á vandamálum. Ég gat ekki betur séð en að flestir voru ánægðir með niðurstöðuna, sérstaklega þeir sem hér skrifa.

Þegar á hólminn kemur skiptir það mestu máli; að þetta bloggsamfélag haldist öflugt. Hér eiga allir sín tækifæri til að skrifa. Það má vel vera að flestir bloggarar hér hafi ólíkar skoðanir og aðferðir við að tjá sig. Mestu skiptir að haldast málefnalegur og geta rætt hlutina með heiðarlegum hætti. Án þess er ekkert vit í hlutunum. 

Þannig að ég er enn sömu skoðunar eftir þetta fræga leiðindamál. Því er sem betur fer lokið og ég tel að allir viti mun betur nú en áður hver mörkin eru hér og hvernig tekið er á leiðindamálum sem skekja innviði þessa bloggkerfis. Og það deilir enginn lengur um að hér er öflug yfirstjórn sem passar vel upp á allar hliðar.

Stórmerkilegur brúðkaupsdagur framundan

Brúðhjón 7. júlí verður ógleymanlegur dagur í lífi fjölda fólks. Það er ekki óeðlilegt að margir vilji gifta sig á þeim degi og minnast þess að 07-07-07 sé þeirra dagur. Það er reyndar ekki amalegt að eiga barn á þessum degi, sem eignast með því fallega og eftirminnilega kennitölu allavega.

Hér í Akureyrarkirkju stefnir sennilega í stóran brúðkaupsdag, með þeim stærri. Sex giftingar verða þann dag og sú síðasta kl. 19:00, sem er mjög skemmtileg tímasetning á þessum sjöunda degi. Þau verða allavega ekki verkefnalaus í kirkjunni.

Sá í fréttunum um daginn að það var sagt að löng biðröð hafi verið fyrir utan Háteigskirkju þegar að farið var að bóka giftingar þennan dag. Komust svo sannarlega færri að en vildu þá. Það sýndi mjög vel hversu margir vildu giftast á þessum degi.

Það er reyndar stór spurning auðvitað hvort að svo stór dagur sé hinn heppilegasti brúðkaupsdagur. Sumir vilja þannig dag, hinir vilja kyrrð og ró, eiga sinn sérstaka dag. Dag sem er ekkert meira í sviðsljósinu en aðrir helgardagar.

mbl.is Hætt við hjónavígslur 07.07.07
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er Bill Gates búinn að missa dýra titilinn sinn?

Bill GatesBill Gates hefur drottnað yfir viðskiptaheiminum sem ríkasti maður heims í áraraðir. Enginn hefur komist nærri honum. Nú bendir flest til þess að hinn mexíkóski Carlos Slim sé orðinn ríkari. Það eru auðvitað stórfréttir. Síðan að stóra tölvubylgjan varð að veruleika, með nýjum tímum tölvuheimsins, með tæknivæðingu Microsoft undir leiðsögn hans fyrir rúmum áratug hefur hann verið sem Guð í bransanum. Hann hefur drottnað. Áhrif hans eru óumdeild, hann hefur markað mikil spor á sínum vettvangi.

Bill Gates hefur átt meiri peninga en okkur hér dreymir um að eignast að ég tel til samans. Ríkidæmi hans hefur verið í fréttum öll þessi ár. Held að það séu litlar líkur á að einhver sem les þennan vef eða alla bloggvefi landsins geti komist yfir helming þess sem hann á. Slíkt er veldið. En ég held að okkur öllum dreymi nú innst inni um að eignast slíka fúlgu. En það er stundum ágætt bara að láta sig dreyma.

Það er annars löngu sannað að lífsins hamingja felst ekki í peningum. Ríkasti maður heims getur átt slatta af peningum en samt sem áður ekki átt neina lífshamingju. Fátækustu hjón heimsins gætu verið rík, án peninga, með sanna lífshamingju. Peningar eru ekki samasem-merki fyrir lífshamingjuna og gleði. Sú fylling lífsins kemur með hugarfarinu okkar.

Ég held að slík fúlga ræni fólk slatta af lífshamingju um leið og hún breytir hugarfarinu. Það er mitt mat. Ríki maðurinn verður ekkert sælli við að telja peninga alla sína ævi. Það er að ég tel lífsins speki.


mbl.is Bill Gates er ekki lengur ríkasti maður heims
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

FH á sigurbraut eftir áfall - Fram pressar KR-inga

FH FH komst aftur á sigurbraut í kvöld er þeir unnu Víkinga. Í síðustu viku urðu þeir fyrir miklu áfalli er þeir töpuðu stórt fyrir Vali, sem var stærsta tap þeirra í yfir fjögur ár. Það verður spennandi að sjá á næstunni hvernig FH muni ganga. Þeir byrjuðu mótið vel og voru um tíma komnir með óvinnandi forskot. Það tal breyttist með tapinu fyrir Val.

Fram vann Breiðablik í kvöld og komst úr fallhættu með sigrinum. KR vann síðasta leik sinn og bjargaði sér úr mestri hættunni þá. Með sigri Fram eykst pressan á þá aftur og þeir verða að berjast eins og ljón fyrir stöðu sinni áfram. Það verður spennandi að sjá hvort að KR nær að halda sigurgöngunni áfram eftir síðasta leik eða hvort að þeir færast enn fjær næstu liðum.

Boltinn hér heima er ekki spennandi. KA og Þór eiga í greinilegum erfiðleikum. Það er afleitt mál. Vonandi ná liðin að snúa vörn í sókn. Sérstaklega er staða KA orðin slæm og er með ólíkindum að fylgjast með lánleysi liðsins. Það er fátt gott af málum að frétta því héðan.

mbl.is Fram og FH unnu góða sigra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 4. júlí 2007

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband