17.8.2007 | 22:16
Fólksfjöldamet slegið á Laugardalsvelli

Nú er Garðar Thor Cortes á sviðinu. Hann söng t.d. Nessun Dorma og það var algjörlega frábær flutningur. Lagið er með þeim bestu í tónlistarsögunni og það naut sín vel í kvöldrökkrinu á þjóðarleikvangnum. Nú eru Björgvin Halldórsson og Bubbi Morthens að fara að syngja og það verður ábyggilega algjört dúndur.
Af hverju eru svona frábærir tónleikar ekki haldnir oftar á þjóðarleikvangnum? Ekki hægt að spyrja öðruvísi. Þetta er of flott dæmi til að það verði einstakt, svona stóra tónleika á halda oftar í Laugardalnum.
![]() |
Aldrei fleiri á Laugardalsvelli |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.8.2007 | 21:23
Glæsilegir afmælistónleikar á Laugardalsvelli

Það var mikið talað um það fyrir tónleikana hvort að það væri rétt af Kaupþingi að halda upp á afmælið með tónleikum. Mér finnst þetta mjög vel til fundið hjá Kaupþingi. Landsmenn allir njóta þessara tónleika. Þeir sem ekki komast á Laugardalsvöll geta kveikt á Sjónvarpinu og notið. Þetta ætti að verða frábært kvöld fyrir alla sem meta tónlist mikils.
Skilst reyndar að fólksfjöldamet á Laugardalsvelli sé fallið og þar séu rúmlega 30.000 manns staddir. Glæsilegt það svo sannarlega!
![]() |
Undirbúningur Kaupþingstónleika í fullum gangi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 21:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
17.8.2007 | 18:34
Nýr þingmaður - styttist í pólitískan átakavetur

Herdís er eini kvenþingmaðurinn í Norðvesturkjördæmi eins og frægt er orðið. Það var mjög um það rætt eftir kosningarnar í maímánuði að engin kona náði kjöri í kjördæminu. Af níu varaþingmönnum voru átta þeirra þó konur. Á kvenréttindadaginn afhentu kvenréttindasinnar því fulltrúum stjórnmálaflokkanna í Norðvesturkjördæmi bleika steina til marks um að hlutur kvenna þyrfti að vera meiri. Á Ísafirði tók Einar Oddur Kristjánsson við steininum í kastljósi fjölmiðla, glaður og hress. Innan við mánuði síðar var þessi einn litríkasti þingmaður landsmanna allur, hafði orðið bráðkvaddur á hæsta tindi Vestfjarða um hásumar.
Eins og ég hef svo margoft bent á er mikið skarð fyrir skildi innan Sjálfstæðisflokksins við sviplegt andlát Einars Odds. Hann var Sjálfstæðisflokknum mikilvægur, talaði máli sem allir skildu svo vel, óháð því hvaða stétt þeir tilheyrðu, og var ófeiminn við að fara eigin leiðir í tali og verkum. Hans er sárt saknað og það er svo margt breytt við hans ótímabæra fráfall. Herdís tekur við þingmennsku við erfiðar aðstæður, það er erfitt að taka við þingsæti Einars Odds en hún fær sína eldskírn í verkum og mun vonandi vinna vel fyrir sitt fólk. Herdís er að ég tel kjarnakona og mun vonandi ná að fóta sig vel í störfum á þessum fyrsta þingvetri sínum. Skarð Einars Odds sem lykilmanns í fjölda málaflokkum og hispurslauss viðmælenda á víðum vettvangi mun þó enginn fylla.
Það er að mörgu leyti áhugaverður þingvetur framundan. Þar reynir enn betur á það hvernig að stjórnarandstaðan muni standa sig. Hún er ekki öfundsverð af hlutverki sínu. Hún mælist ekkert svo vel í skoðanakönnunum, VG og Framsókn hafa tapað fylgi skv. þeim frá kosningum og núverandi ríkisstjórn mælist sú vinsælasta til þessa í íslenskri stjórnmálasögu. Styrkur stjórnarflokkanna er svo mikill að þeir þurfa ekki atbeina andstöðunnar til að fá afbrigði við þingmál, semsagt flýta þeim á dagskrá. Þingið er því algjörlega á valdi stjórnarflokkanna. Sem dæmi um styrkinn er að Sjálfstæðisflokkurinn hefur fimm þingsæti umfram alla stjórnarandstöðuna.
En það má búast við að þeir Guðni Ágústsson og Steingrímur J. Sigfússon, leiðtogar stærstu stjórnarandstöðuflokkanna, reyni að verða beittir í vetur í þingsölum. Báðir eru þeir í þeirri stöðu að þurfa að sýna kraft á þessum vetri í veikri stjórnarandstöðu. Ella verður mjög fljótlega efast um mátt þeirra til að leiða flokka sína í þingkosningunum 2011. Flokkar þeirra hafa deilt mjög í gegnum pólitísk verkefni undanfarinna ára og VG vildi alls ekki styðja eða sitja í ríkisstjórn með Framsóknarflokki innanborðs. Nú er það verkefni þeirra að slíðra sverðin og berjast saman í erfiðri stöðu. Það verður fylgst með stöðu þessara leiðtoga sérstaklega í vetur.
Eins og fyrr segir verða 25 nýir þingmenn á Alþingi næsta vetur og flestir þeirra aldrei verið á þingi og hafa því enga þingreynslu nema mögulega sumarþingið stutta í maí og júní. Það verður líka fylgst með því hvernig þau plumma sig í störfum sínum. Þó að línur stjórnmálanna hafi breyst mikið, fornir andstæðingar farnir að vinna saman í stjórn og stjórnarandstöðu og línur fylkinganna hafi breyst gríðarlega eftir þingkosningarnar má búast við spennandi þingvetri, þar sem átök verða mikil milli fylkinga.
Verst er bara hvað þingið hefur seint störf. Þetta er afleitt fyrirkomulag og er löngu kominn tími til að breyta vinnureglum þingsins. Auðvitað á það að koma saman í upphafi septembermánaðar og vinna fram í júní. Ætla að vona að ríkisstjórnin breyti þessu á kjörtímabilinu, helst í vetur eða allavega hefji áberandi vinnu við breytingar, enda úrelt fyrir löngu að þingið byrji verk í október.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 23.9.2007 kl. 13:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
17.8.2007 | 10:55
Borgar Þór hættir sem formaður SUS

Ég tel mál vera komið að linni núna. Ég hef unnið í ungliðamálunum í Sjálfstæðisflokknum í yfir áratug með einum eða öðrum hætti og lagt mikinn tíma af mörkum til ýmissa verkefna. Þessum tíma í lífi mínu er nú lokið. Það hafa verið mörg spennandi verkefni á þessum fjórum árum sem ég hef verið í stjórn SUS og á þeim árum sem ég leiddi starf Varðar, f.u.s. hér á Akureyri. Það hefur verið ánægjulegt að hafa traust fjöldamargra til þessara verkefna.
Sérstaklega mat ég mikils traust á síðasta SUS-þingi en þá fékk ég flest atkvæði í stjórnarkjöri fyrir þetta kjördæmi. Það hefur áhugavert að vinna með fráfarandi stjórn og þeirri sem ég sat í fyrst, árin 2003-2005. Mikil átök voru í aðdraganda síðasta SUS-þings. Þá íhugaði ég að draga mig í hlé. Svo fór þó ekki. Ég sem formaður Varðar stóð í miðri eldlínu þess sem gerðist í Reykjavík og það var átakanlega erfitt að mjög mörgu leyti. Valkostir voru annaðhvort að hætta eða taka afstöðu. Það fór allt eins og það fór. Hef þó ekki séð eftir neinu í því öllu en þetta voru lærdómsríkir tímar.
Ég kynntist Borgari Þór fyrst í alþingiskosningunum 2003 er við vorum í kosningabaráttuverkefnum. Það voru áhugaverðir tímar líka og segja má að þessi fjögur ár hafi verið áhugaverð. Ég vil þakka Borgari Þór samstarf síðustu ára. Þetta er tími sem hefur verið áhugaverður og skemmtilegur í senn. Það hefur verið ánægjulegt að starfa í ungliðamálunum en nú er annarra að taka við þeim verkefnum sem þar eru.
![]() |
Gefur ekki kost á sér til endurkjörs sem formaður SUS |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
17.8.2007 | 00:09
Mun KR bjarga sér frá falli?

KR hefur alla tíð verið stórveldi í knattspyrnusögu Íslendinga og það er ekki mikil hefð hjá þeim fyrir harðri baráttu um deildarsæti og árangur sumarsins er auðvitað þeim gríðarleg vonbrigði. Þegar að litið er reyndar á þjálfarasöguna undanfarin ár kemur vel í ljós hversu brokkgengt hefur verið yfir liðinu og áföll loðað við þó að þetta sumar sé að verða hið versta í áratugi fyrir KR-inga þar sem hrein barátta um úrvalsdeildarsætið er í spilunum. Þó að KR hafi mistekist að ná Íslandsmeistaratitli í yfir þrjá áratugi er svona botnbarátta þeim mikil vonbrigði.
Það er stutt síðan að Teiti Þórðarsyni var sagt upp störfum. Þá hafði KR verið komið í botnlaus vandræði og tap í Kópavogi fyrir nýliðum HK var í senn sögulegt, skaðlegt og auðvitað vandræðalegt fyrir gamalt stórveldi í boltanum. Það hafði enda ekki gerst frá árinu 1975 að KR-ingar töpuðu fyrir nýliðum í deildinni, en það sumar tapaði KR fyrir FH 0-1. Þá var mörgum KR-ingum nóg boðið. Teitur átti langan samning við félagið og væntanlega fengið vænan starfslokasamning í staðinn. Logi á erfitt verkefni fyrir höndum. Þó að sigur kvöldsins sé mikilvægur áfangi fyrir KR er öllum ljóst að björninn er ekki unninn á þessu sumri. Liðið er enn í hættu, þó að menn andi væntanlega aðeins léttar í Vesturbænum.
Af Akureyrarliðunum er það helst að frétta að þau eru ekki beint á grænni grein. KA og Þór eru í níunda og tíunda sæti í deildinni, KA er með 15 en Þór 13. Þetta er því ekki beint gullaldarsumar í boltanum hér. Þetta er auðvitað skelfilega slæm staða og algjörlega óviðunandi. Það er vonandi að vel muni ganga að ári, en það blasir við öllum að það er engan veginn ásættanlegt að Akureyringar eigi ekki úrvalsdeildarlið og hafi ekki átt um þetta langt skeið sem raun ber vitni.
![]() |
KR landaði sigri - toppliðin náðu aðeins stigi á heimavelli |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)