Vörður sakar bæjarfulltrúa flokksins um heigulshátt

Sjálfstæðisflokkurinn Á aðalfundi Varðar, félags ungra sjálfstæðismanna hér á Akureyri, síðdegis, var samþykkt harðorð ályktun gegn bæjarfulltrúum flokksins í bænum vegna ákvarðana við skipan í nefndir Akureyrarbæjar, sérstaklega í nýlegu tilfelli þar sem ákveðið var að Þóra Ákadóttir, fyrrum forseti bæjarstjórnar, skyldi skipuð í félagsmálaráð í stað Maríu Egilsdóttur, sem hefur látið af trúnaðarstörfum fyrir flokkinn vegna trúnaðarbrests við forystuna.

Ályktunin er orðrétt svohljóðandi.

"Vörður, félag ungra sjálfstæðismanna á Akureyri, lýsir yfir vonbrigðum sínum með starfshætti  flokksins við skipun í ráð og nefndir  á vegum Akureyrarbæjar. Sífellt er litið framhjá ungliðahreyfingunni við skipun nefndarmanna og með því er innra flokksstarf Varðar vanvirt. Það er með ólíkindum að flokkur sem býr við svo stórt og öflugt ungliðafélag skuli ekki treysta unga fólkinu eins og raun ber vitni.

Nýtt hlutverk Þóru Ákadóttur í félagsmálaráði sýnir heigulshátt núverandi bæjarfulltrúa. Með skipun hennar er litið framhjá varamönnum og ungliðahreyfingunni enn og aftur. Það hlýtur að teljast heigulsháttur þegar nýjar og kraftmiklar hugmyndir sem fylgir ungu og óreyndu fólki eru hundsaðar. Eins og staðan er í bæjarmálum á Akureyri nú ætti Sjálfstæðisflokkurinn að kappkosta við að fá nýtt fólk með nýjar hugmyndir á viðkvæmum málum."

Þessi ályktun er harðorð, en hún kemur mér, sem fyrrum formanni Varðar, sannarlega ekki að óvörum. Úrslit prófkjörs flokksins í febrúar 2006 voru skelfileg fyrir ungliðana, þeim var ekki treyst til verka af hálfu forystu flokksins og því er ég ekki undrandi á þeim tón sem þarna kemur fram í ljósi þess sem hefur tekið við síðan.

Róbert Árni hafði 335 stelpur á skrá

Reynt að tala við Róbert Árna Það er ekki undrunarefni að fólki sé brugðið yfir þeirri staðreynd að Róbert Árni Hreiðarsson, lögmaður, sem hefur verið dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir kynferðisbrot, hafði í fórum sínum minnisbók með nöfnum, netföngum og símanúmerum 335 stúlkna. Það fannst í húsleit á heimili hans fyrir ári og er eflaust eitt af mikilvægustu sönnunargögnunum gegn honum í þessu máli.

Ég skrifaði um þetta mál, fannst það rétt þá, enda dómur fallinn í málinu og staða Róberts Árna breyst samhliða því. Þetta mál er sérstaklega alvarlegt í ljósi þess að Róbert Árni var lögmaður og hafði allt annan sess í samfélaginu en margir þeirra sem hafa fengið dóm á sig af þessu tagi. Mörgum hefur þótt dómurinn þungur, en það er varla hægt að taka undir það með tilliti til stöðu mannsins. Þegar allt er tekið saman er þetta eðlileg niðurstaða málsins og greinilegt að fólki er víða brugðið, sérstaklega öðrum lögmönnum.

MSN virðist hafa leikið lykilhlutverk í þessu máli, en í gegnum það komst viðkomandi maður í tengsl við stelpurnar og þóttist vera, eins og ég sagði í gær, 17 ára vöðvastæltur gaur með aflitað hár. MSN er að mörgu leyti töfratæki á netinu, þægilegt til samskipta og gagnlegt að mörgu leyti til að ræða við fólk. En það er hægt að misnota mjög illa. Þess hafa sést merki í málum erlendis og hérna heima líka. Kompás lagði gildru fyrir menn sem lokkuðu til sín unglinga eða jafnvel hreinlega börn og niðurstaðan út úr þeirri rannsókn þeirra var sláandi og flestir muna þá þætti.

Þetta er auðvitað sorglegt mál en það er sláandi líka. Í gegnum allt sést vel útsjónarsemi viðkomandi manns og það hversu hörð þessi mál eru jafnan. Það er auðvitað sjúkt að lögmenn standi í svona iðju og þetta opnar óhugnanlega sýn vissulega, en það þarf að tala hreint út um svona mál. Þetta er gríðarleg ógn og hætturnar leynast víða.


Bloggfærslur 28. september 2007

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband