Gleði á Hlíðarenda - sigursæll þjálfari

Valsmenn fagna Það er mikið fjör á Hlíðarenda á þessum degi, enda Valsmenn í gleðivímu með Íslandsmeistaratitilinn sem þeir hafa beðið eftir í tvo áratugi og er nú loks kominn í hús. Hlýtur að hafa verið sérstaklega sætt fyrir þá að vinna titilinn eftir öll þessi ár. Menn eins og Sigurbjörn Hreiðarsson, sem byrjaði að spila á Dalvík forðum daga, hafa beðið árum saman eftir titli á Hlíðarenda og hlýtur þetta að vera enn sætara en ella.

Örlögin réðust í Reykjavík á bæði toppi og botni. Valur tryggði sér titilinn með sigri á HK og þá skipti annað ekki máli í þeim efnum. Á hinum endanum féll Víkingur fyrir borð í deildinni á heimavelli með 3-1 tapi á fyrrum Íslandsmeisturum FH. Sannarlega spennandi. Það voru nokkrir leikir metnir sem í gjörgæslu og var hægt að fylgjast sér með þeim hérna á mbl.is. Þetta minnti mig eiginlega mest á svona casualties-vakt boltans, enda gátu minnstu sveiflur í einum leik þýtt að annað lið færi á botninn. En þetta var samt merkilega skýrt frá upphafi til enda.

Frá árinu 1991 þegar að Víkingur varð Íslandsmeistari, til dagsins í dag, hefur aðeins eitt Reykjavíkurlið sigrað úrvalsdeildina; KR, sem varð meistari fjórum sinnum; 1999 (eftir þriggja áratuga bið), 2000, 2002 og 2003. Síðustu árin hefur KR átt erfiða tíma og var í tómu ströggli alla leiktíðina, lengst af á botninum en tókst að redda sér á síðasta sprettinum.

Willum Þór Þórsson gerði KR að meisturum síðast, eins og fyrr segir, tvö ár í röð, eftir að þeir höfðu verið á hættusvæði árið 2001. Nú gerir hann Val að meisturum. Eins og flestir muna eftir var hann rekinn frá KR á sínum tíma. Sama gerðist með Guðmund Benediktsson. Í dag fagna þessir lykilmenn síðustu meistaradaga KR-inga titli á Hlíðarenda.

Óska Val enn og aftur til hamingju með titilinn, sérstaklega KA-manninum sem skoraði meistaramark Valsmanna og þeim félögum frá gamla KR-tímanum sem horfast nú aftur í augu við titil.

mbl.is Gríðarlegur fögnuður Valsmanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Valsmenn Íslandsmeistarar eftir tveggja áratuga bið

Valsmenn Íslandsmeistarar Eftir tveggja áratuga bið hafa Valsmenn nú náð Íslandsmeistaratitlinum í knattspyrnu. Er svo sannarlega rétt að óska þeim til hamingju með þennan glæsilega áfanga. Eiga þeir titilinn skilið, en bið þeirra var orðin löng eftir alvöru titli og töldu margir að sú bið yrði jafnvel álíka löng og KR-ingar upplifðu í denn, en það liðu 31 ár á milli titla hjá þeim, frá árinu 1968 til 1999.

Lengi framan af móti hélt ég að FH-ingar myndu taka þetta enn eitt árið, enda stefndi í það sannarlega. Þeir unnu titilinn þrjú ár í röð og leiddu deildina samfellt í um sextíu umferðir. Framan af virtist þeim ætla að takast að leika þetta eftir og tryggja sér titilinn fjórða árið í röð. Eftir því sem liðið hefur á mótið hafa FH-ingar sigið niður og þeir misstu sénsinn endanlega (og forystuna í deildinni) á heimavelli á Kaplakrika fyrir viku.

Valsmenn voru mjög hungraðir í titil. Það hefur ekki farið framhjá nokkrum manni og þegar að ljóst var orðið að það væri undir þeim sjálfum komið að hampa titli og geta gert það á heimavelli var öllum ljóst að þeir myndu ná því eftir þessa löngu bið. Það var enda varla við því að búast að Valsmenn klúðruðu þessu og færðu FH-ingum sénsinn á titlinum.

Það er kaleikur Víkinga að falla, eins og margir höfðu spáð. KR-ingar sleppa enn einu sinni við fall, þrátt fyrir slakt sumar og eflaust eru menn hugsi á þeim bænum yfir sumrinu, sem hefur verið kuldalegra í meira lagi og eflaust þungir þankar framundan þar í vetur. Varla telst þetta viðunandi árangur hjá einu sigursælasta liði íslenskrar knattspyrnu.

Þess má að lokum geta að KA-maðurinn Atli Sveinn Þórarinsson skoraði markið sem færði Val Íslandsmeistaratitilinn. Frábært þetta hjá Atla. :)

mbl.is Valur Íslandsmeistari í fyrsta skipti í 20 ár
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Brotthvarf Maríu

María Egilsdóttir Það er ekki undrunarefni að fjölmiðlar fjalli um ákvörðun Maríu Egilsdóttur, varabæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins hér á Akureyri, þess efnis að láta af öllum trúnaðarstörfum fyrir flokkinn, nú rúmu ári eftir sveitarstjórnarkosningar. Það hefur hinsvegar nú komið fram í svæðisfréttum Ríkisútvarpsins að María hyggst ekki segja sig úr flokknum, en þar var vitnað í samtal við hana, þó ekki væri leikið viðtal. 

Heimildir mínar í upphafi voru annars eðlis, en ég fagna því að þrátt fyrir þann greinilega trúnaðarbrest sem orðið hefur milli Maríu og forystu flokksins í bænum að hún ætli sér að vera áfram í Sjálfstæðisflokknum. Það er ánægjulegt að svo verður. Þó er ekki hægt að segja annað en að þessi úrsögn varabæjarfulltrúans frá trúnaðarstörfum séu stórfregnir einar og sér, enda man ég satt best að segja ekki eftir svona látum milli aðila í bæjarstjórnarflokknum í seinni tíð.

Það segir sig sjálft og úrsögn Maríu frá trúnaðarstörfum hlýtur að vera áfall fyrir flokkinn, enda er um að ræða annan varabæjarfulltrúa flokksins. Ég ætla ekki að tjá mig um það mál sem virðist hafa leikið lykilhlutverk í ákvörðun hennar, en við öllum blasir að eitthvað mikið hefur gengið þar á áður en þetta endaði svona.

Heilt yfir harma ég brotthvarf Maríu Egilsdóttur úr flokksstarfinu, en það kemur mér þó ekki að óvörum eftir orðróminn sem gengið hefur síðustu vikur. Það er alltaf dapurlegt þegar að öflugt fólk finnur sér ekki lengur farveg í þeim störfum sem það hefur verið kosið til.

mbl.is Varabæjarfulltrúi hættir í Sjálfstæðisflokknum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Endalausar kjaftasögur í McCann-málinu

McCann-hjónin Það er að verða erfitt að koma tölu á allar kjaftasögurnar sem hafa grasserað í máli Madeleine McCann. Áður voru foreldrarnir sakaðir um að hafa valdið dauða hennar en nú er spunnið sig áfram og komið með kjaftasögur um að lögreglan vinni með þá hugdettu að stelpan hafi verið jörðuð á Spáni vikum eftir meintan dauða sinn. Finnst þessar endalausu kjaftasögur satt best að segja þreytandi og gera málið enn ruglaðra en ella.

Þetta mál er reyndar allt í heildina að verða hálfgerð óraunveruleikasaga hin mesta. Ef ekki væri hin napra hlið þessa máls sem við höfum öll séð í fréttum og það hversu nístandi sönn sagan er í grunninn væri freistandi að halda að þetta væri allt eitt leikrit frá a-ö. Eftir því sem ég heyrði á Sky í kvöld telur lögreglan að Madeleine McCann hafi verið jörðuð á Spáni 3. ágúst sl, þrem mánuðum eftir hvarf hennar. Er þar talað um tveggja tíma mögulega fjarveru þeirra á Spánarferðalaginu.

Það getur varla verið að lögregla sem viðhefur almennileg vinnubrögð vinni með þetta sem möguleika. Þetta hljómar mjög óraunverulegt. Ofan á allt annað er frekar fjarstæðukennt að saka McCann-hjónin um þetta á þessum tímapunkti, en þau hafa verið hundelt af fjölmiðlum nær allan þann tíma sem þetta mál hefur verið í heimspressunni. En margt hefur svosem verið sagt í kjaftasögum síðustu vikna og ekki er það allt satt. Þetta er saga af þeim kalíber að ansi langt virðist gengið í skáldsögugírnum og kannski hafa þeir sem komu henni af stað horft á einum of marga spennuþætti.

Það er sorglegt að enn sé þetta mál á hálfgerðum byrjunarreit. Það vekur mikla athygli hvað portúgalska lögreglan virðist blankó í rannsókn sinni - þaðan kemur fátt nýtt. Enn hefur lögreglan ekkert í höndunum sem sannar neina atburðarás með marktækum hætti; ekkert lík hefur fundist og atburðarásin sem þeir hafa unnið með er mjög brothætt svo ekki sé fastar að orði kveðið. Þar er fátt fast í hendi en þess þá meira laust í reipunum.

mbl.is Tilgáta um að Madeleine hafi verið jörðuð á Spáni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 29. september 2007

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband