13.1.2008 | 20:06
Mikilvægur sigur fyrir strákana okkar
Það er mikilvægt að styðja vel við bakið á okkar liði á EM. Í fyrra sameinaðist þjóðin við imbakassann eða fór út til Þýskalands til að styðja liðið. Þá náðum við mjög góðri útkomu, þó vissulega hefðum við gjarnan vilja ná aðeins hærra. En í heildina var það frábært mót og við svona byggðum aftur upp væntingar okkar og vonir til landsliðsins, sem hafði átt giska erfitt undir forystu Viggós og undir lokin á þjálfaraferli Guðmundar Guðmundssonar.
Alli Gísla hefur staðið sig vel sem þjálfari og gert góða hluti. Það var gott að hann skyldi halda áfram. Þar réði miklu þrýstingur landsmanna og augljós vilji um að hann héldi um stjórnartaumana. Það er vonandi að við getum verið jafnstolt af strákunum okkar á EM í Noregi. Það verði ekki síðri bylgja stuðningsins sem þeir fái frá okkur og áhuginn á mótinu verði ekki minni.
Annars er handboltinn sannkölluð þjóðaríþrótt og fátt sameinar þjóðina betur á köldum vetrardögum en að standa saman um það að styðja landsliðið. Vonandi getum við verið stolt af okkar framgöngu þar.
![]() |
Íslenskur sigur í Höllinni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
13.1.2008 | 18:39
Er meirihlutinn í bæjarstjórn Dalvíkur að springa?

Hef heyrt ýmsar sögusagnir um þessi mál síðustu dagana, eftir að ég skrifaði pistil um málið hér á vefinn. J-listinn vann stóran sigur í kosningunum 2006 og var nærri hreinum meirihluta. Velti ég því fyrir mér eftir kosningarnar, þá þegar, í pistli af hverju J-listinn samþykkti að skipta tímabilinu og ljá máls á þessu fyrir það fyrsta. Það mátti reyndar sjá það strax að skiptin yrðu umdeild, þ.e.a.s. ef Svanfríður stæði sig vel sem bæjarstjóri, sem hefur orðið reyndin.
Það verður áhugavert að sjá hvað gerist, en reyndar má velta því fyrir sér hvort samstaða hafi virkilega verið í meirihlutanum um forystu Svanfríðar fyrst að samið var svona í upphafi og framsóknarmenn treystu henni ekki til að taka allt tímabilið.
13.1.2008 | 01:00
Glæsilegt hjá Eiði Smára

Eiður Smári samdi við Barcelona til þriggja ára og yfirgaf Chelsea, eftir sigursæla tíð þar, 14. júní 2006. Hlutirnir eru jafnan ekki mikið að breytast í þessum bransa og fátt heilagt þar, menn ganga kaupum og sölum svo til á hverjum degi. Það verður fróðlegt að sjá hvert að Eiður Smári muni fara gangi salan eftir. Löngum hefur verið orðrómur um að hann færi jafnvel til Bretlands aftur og orðrómur verið um Manchester United, Tottenham og jafnvel West Ham þar sem Björgólfur Guðmundsson drottnar nú.
Eiður Smári er einn besti íþróttamaður þjóðarinnar, við getum sannarlega öll verið stolt af honum. Hann hefur átt sínar hæðir og lægðir að undanförnu, en samt sem áður virðist hann vera að ná sér strik, ekki er langt síðan að hann skoraði t.d. í leik gegn Valencia rétt fyrir jólin. Þó að ekki hafi ég alltaf verið sáttur svosem við stjörnutakta Eiðs Smára hefur hann vissulega gert margt gott í boltanum.
Hefur fundist margir vera mjög ósanngjarnir við Eið Smára síðustu misserin og gera lítið úr hans framlagi til knattspyrnunnar. Eiður Smári hefur staðið sig vel í sínum verkefnum og átt góða leiki með landsliðinu, hefur meðal annars slegið gömul marka- og leikjamet Ríkharðs Jónssonar, svo að það er fjarstæða að tala um að hann hafi ekki unnið vel með verkum sínum.
Það er vonandi að honum gangi vel hjá Barcelona og því gaman að sjá hann skora með liðinu.
![]() |
Eiður skoraði fyrsta markið í öruggum sigri Barcelona |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)