Sorgleg örlög ungstjörnunnar Brad Renfro

Brad RenfroLeikarinn Brad Renfro, sem nú er látinn langt um aldur fram, aðeins 25 ára gamall, var eitt ungstirnanna í leikbransanum sem reis upp úr fjöldanum, náði athygli kvikmyndaáhorfenda með frábærri leiktúlkun í stjörnurullu og naut vinsælda en féll síðar í duftið, lenti í viðjum óreglunnar; eiturlyfja- og áfengisneyslu, og náði aldrei að byggja sig upp eftir það. Sorgarsaga hans er fjarri því einsdæmi, öðru hverju erum við minnt á hverfulleika frægðarinnar þegar að ungar stjörnur missa fótanna, sumar ná að byggja sig upp aftur en aðrar falla í valinn.

Brad var aðeins tólf ára þegar að hann náði heimsathygli með túlkun sinni á Mark Sway í lagaþrillernum The Client, kvikmynd leikstjórans Joel Schumacher, árið 1994. Sway, varð ásamt bróður sínum vitni að því er lögmaður, sem er flæktur í glæpsamlegt athæfi, svipti sig lífi og varð aðalvitni lögreglunnar í málinu. Áður en lögmaðurinn sviptir sig lífi upplýsir hann Sway um mikilvægt atriði, hvar öldungadeildarþingmaður sem mafían kom fyrir kattarnef er grafinn. Mafían veit að hinn ungi Sway hefur upplýsingarnar og reynir að þagga niður í honum áður en hann segir lögreglunni.



The Client var ein af bestu kvikmyndum ársins 1994. Susan Sarandon átti þar stjörnuleik í hlutverki lögfræðingsins Reggie Love, og hlaut tilnefningu til óskarsverðlaunanna og var nærri því að ná gullkarlinum, en fékk hann árið eftir fyrir Dead Man Walking sællar minningar, og Tommy Lee Jones var skemmtilega illkvittinn í hlutverki saksóknarans Foltrigg, sem reynir að ná upplýsingunum úr stráknum með öllum tiltækum ráðum áður en mafían nær honum. Renfro átti stjörnuleik í myndinni og varð heimsfrægur á einni nóttu. Hann var límið sem hélt myndinni saman, persónan sem skipti mestu máli og hann var alveg stórfenglegur sem Sway.

Í kjölfarið fékk hann mörg leiktækifæri og voru í sjálfu sér allir vegir færir. Árið eftir lék hann Stikilsberja-Finn í kvikmyndaútfærslu Peter Hewitt á frægri sögu Mark Twain á móti Jonathan Taylor Thomas, öðru ungstirni. Renfro lék um miðjan tíunda áratuginn Michael Sullivan (á yngri árum) í kvikmyndinni Sleepers, er fjallaði um misnotkun á drengjum á heimili fyrir afbrotaunglinga) sem skartaði sannkölluðum stjörnufans; t.d. Robert De Niro, Brad Pitt (lék Sullivan er hann var eldri), Dustin Hoffman og Kevin Bacon. Myndin fékk víða góða dóma og fjallaði um áleitið efni í sannri sögu, en deilt var þó um margar sagnfræðilegar hliðar.

Árið 1998 lék hann í myndinni Apt Pupil á móti Sir Ian McKellen, hinni fínustu mynd sem segir frá samskiptum unglings og manns í hverfinu hans, sem reynist vera nasistahöfðingi úr seinna stríðinu. Svolítið vanmetin mynd sem segir merkilega sögu sem er áhugaverð, þó það séu vissulega nokkrar gloppur inn á milli. Samt með því besta sem Renfro gerði er hann varð unglingur og áherslur hans sem leikara breyttust í kjölfar Sleepers, sem markaði unglinginn Renfro sem alvarlegri stjörnu en þann sem lék aðeins hlutverk þar sem æskuljóminn einn var í forgrunni.

Eftir því sem Brad Renfro varð eldri tók hann að sér enn harðari hlutverk, oftar en ekki lék hann unglinga í neyslu og í viðjum óreglunnar; heimi sem hann festist sjálfur í er yfir lauk og markaði síðustu ár ævi hans. Dæmi um myndir af því tagi eru Telling Lies in America, Bully, Tart (þar sem fókusinn er ansi svæsinn á kynlíf og eiturlyf), American Girl og Deuces Wild. Hann átti svo góða innkomu í költ-myndinni Ghost World, sem fékk góðar viðtökur gagnrýnenda.

Undir lokin á ferlinum lék hann í sálfræðiþrillernum The Jacket, seinþroska bróður James Marsden í 10th & Wolf og hann endaði ferilinn fyrir aðeins nokkrum mánuðum í kvikmyndinni The Informers, sem brátt er væntanleg, þar sem hann var í sannkölluðum stjörnufans, með Billy Bob Thornton, Brandon Routh, Winonu Ryder, Mickey Rourke og Kim Basinger, svo aðeins nokkrir leikarar séu nefndir. Eftir að hafa lent í fangelsi í nokkra daga á árinu 2006 virtist hann hafa náð tökum á lífi sínu.

Það hefur svosem ekki verið upplýst hvað varð Brad Renfro að bana en það virðist vera sem að hann hafi verið einn þeirra ungstjarna sem missti tökin á lífi sínu og féll í viðjar óreglunnar, sem kostaði hann að lokum lífið. Þetta er vissulega sorgarsaga, enda hafði hann hæfileika og hafði átt margar ágætar leiktúlkanir þó engin þeirra á seinni árum jafnist á við leiksigurinn í The Client, rulluna sem gerði hann heimsþekktan á einni nóttu.



mbl.is Leikarinn Brad Renfro látinn 25 ára
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Birta leiðir pabbann um frumskóg möppudýranna

Össur Skarphéðinsson Jafnaðarmaðurinn Vilmundur Gylfason sagði þegar að hann var dómsmálaráðherra, skamma stund í minnihlutastjórn Alþýðuflokksins undir lok áttunda áratugarins, að ráðuneytið væri fullt af möppudýrum og það væri sem frumskógur. Það væri gott að vita hvort að Össur Skarphéðinsson, iðnaðarráðherra, er sama sinnis, nú þegar að hann hefur fengið aftur ráðherrareynslu eftir tólf ár í stjórnarandstöðu. Greinilegt er að dóttir hans telur ekki veita af að leiða pabba sinn í gegnum ráðuneytið.

Það er kannski ekki óeðlilegt að Birta telji pabba sinn þurfa aðstoð. Það hefur mikið gengið á hjá honum og greinilega í mörg horn að líta, bæði í ráðuneytinu sem og í stjórnmálum almennt. Honum veitir varla af leiðsögn af þessu tagi. Annars má deila um hvað iðnaðarráðuneytið er stórt. Þegar að Jón Sigurðsson lét af ráðherraembætti fyrir níu mánuðum afhenti hann bæði Össuri og Björgvini G. Sigurðssyni lyklavöld að sama ráðuneyti. Enda þótti mörgum það kómískt að til að Samfylkingin fengi jafnan hlut og Sjálfstæðisflokkurinn var þessu ráðuneyti splittað upp á meðan að sjálfstæðismenn fengu heilbrigðismálin.

Enda fannst mörgum fjölmiðlamönnum það fyndið að Össur og Björgvin sátu í sama plássi og einn ráðherra áður en voru báðir ráðherrar. Þetta stendur víst til bóta en einhvern tímann á næstunni á víst að flytja Björgvin frá Össuri yfir í gamla landbúnaðarráðuneytið, sem nú hefur verið sameinað sjávarútvegsráðuneytinu, og þá mun Árnesingurinn Björgvin koma sér fyrir á ráðherraskrifstofunni sem sveitungi hans Guðni Ágústsson hafði til umráða í tæpan áratug. Þá ætti olnbogarými Össurar að aukast til muna.

Annars er þetta skondið hjá dóttur Össurar og vonandi að teikningin auðveldi honum lífið í frumskógi möppudýranna.

mbl.is Dóttir Össurar kortleggur ráðuneytið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mitt Romney sigrar - mjög jafnt hjá repúblikunum

Mitt Romney Ekki varð baráttan jöfn í Michigan eins og kannanir höfðu spáð. Mitt Romney vann nokkuð góðan sigur í forkosningunum í sínu gamla heimafylki, sem hann varð að sigra í til að halda framboði sínu á floti. Sigur hans tryggir enn jafna baráttu um það hver hlýtur útnefningu repúblikana. Þar er allt galopið. Huckabee vann Iowa, McCain vann New Hampshire og Romney vann í Michigan. Nú verður barist um sigurinn í Suður-Karólínu.


Nokkrir punktar um stöðuna:

- Mitt Romney er enn í slagnum um útnefninguna eftir sigurinn í Michigan - fer með byr í seglin til suðurríkjanna og vonast eftir að landa sigri í Suður-Karólínu. Ekki tókst McCain að vinna Michigan á sömu bylgju stuðnings í kjölfar sigurs í New Hampshire, en á móti kemur að Romney var að keppa í fylkinu sem hann fæddist í og tap hefði þýtt að allir hefðu spurt sig að því hvort hann gæti yfir höfuð sigrað. En það er alveg ljóst að þetta er mikilvægur sigur fyrir Romney - hann á enn möguleika eftir allt saman. Margir töldu hann búinn eftir tapið í NH.

- John McCain hefur forskot í landskönnunum en þarf nú nauðsynlega að vinna í Suður-Karólínu til að halda þeim byr sem hann fékk í New Hampshire. Það hlýtur að vera honum gríðarleg vonbrigði að hafa ekki náð óháðum á sitt band í Michigan. Hann fór með Lieberman um fylkið og vonaðist eftir að ná styrk þar með því og laða að sér fólk úr öðrum flokkum, þar sem ekki var alvöru kosning hjá demókrötum. Óháðir voru hans sterkasta von á sigri, það brást og nú þarf hann að verða sigursæll í suðurríkjunum til að halda haus í því sem framundan er. Hann fór illa í leðjuslag gegn Bush í Suður-Karólínu 2000 og tapaði þeim hráskinnaleik og voninni á útnefningu þar. Nú þarf hann að snúa gæfunni við á sama stað. Það gæti orðið snúið og mikið er undir, vægast sagt.

- Rudy Giuliani tók áhættu með að stóla á stóru fylkin og vonast eftir því að baráttan yrði jöfn um fyrstu fylkin og ekkert ljóst fyrir Flórída. Eins og staðan er núna hefur hann veðjað rétt og á enn möguleika. Þrátt fyrir að hann hafi fengið rosalegan skell í Iowa, New Hampshire og Michigan. Tapið í Michigan er reyndar svæsið, enda er hann aðeins með þrjú prósent, sem er suddalega lélegt fyrir mann sem ætlar sér að vera alvöru frambjóðandi og hafa sterkan stuðning um allt land. Gleymum því ekki að hann leiddi nær allar kannanir í fyrra og virkaði ósigrandi. En Suður-Karólína gæti orðið til að breyta grand master plani Giuliani fram að Flórída. Sjáum til.

- Mike Huckabee náði þriðja sætinu með sannfærandi hætti. Það blasti þó við fyrir löngu að hann næði því og enginn ógnaði honum um sætið - væri lítil áhætta í sjálfu sér. Nú þarf hann hinsvegar að fara að verða sigursæll til að haldast á floti og þarf sigur í Suður-Karólínu. Hann er illa staddur ef hann fær skell í fylkinu og treystir að suðrið færi sér byr í seglin, hafandi verið ríkisstjóri í Arkansas, rétt eins og Bill Clinton forðum daga. Ekki dugar bara Iowa þegar að suðrið er annars vegar!

- Ron Paul náði sex prósentum í Michigan, hlaut helmingi meira en Giuliani. Góður árangur og hann nuddar Giuliani upp úr saltinu með því að benda á að hann sé helmingi vinsælli en Giuliani í þessu sterka repúblikanavígi, fylkinu sem Gerald Ford, fyrrum forseti, kemur frá. Fred Thompson mældist varla í Michigan og þarf að ná sigri í Suður-Karólínu. Ella búinn að vera. Verður hann sá fyrsti sem fellur í valinn?


Spennandi slagur - ekkert öruggt. Svona á það að vera. Það stefnir í spennandi baráttu í suðrinu og á laugardag ráðast örlögin í Suður-Karólínu. Það gæti farið svo að ekkert yrði ljóst fyrr en á ofur-þriðjudegi. Þetta er að verða jafnasti og áhugaverðasti forkosningaslagur repúblikana í yfir hálfa öld. Það er spurt sannarlega að leikslokum, enda enginn með alvöru forystu.

mbl.is Romney vann í Michigan
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Spennandi einvígi McCain og Romney í Michigan

Romney, McCain og HuckabeeBeðið er nú eftir úrslitum í einvígi Mitt Romney og John McCain í forkosningum repúblikana í Michigan. Niðurstaðan verður áhugavert innlegg í hina jöfnu baráttu um útnefningu flokksins í forsetakosningunum í nóvember. McCain fékk byr í seglin með sigrinum í New Hampshire og hefur tekið forystu í baráttunni í nýjustu könnunum. Með sigri í fylkinu getur hann styrkt sig til muna. Romney verður að sigra í Michigan til að blása lífi í framboð sitt, eftir skaðleg töp í Iowa og New Hampshire.

Það má fullyrða að Romney sé í raun búinn að vera sem alvöru frambjóðandi nái hann ekki sigri í þessum forkosningum, enda fæddur og uppalinn í fylkinu. Faðir hans, George W. Romney, var ríkisstjóri í Michigan í fjölda ára og er einn þekktasti stjórnmálamaður fylkisins á síðustu öld, einn pólitísku risanna þar. Auk þess var móðir hans, Lenore Romney, stjórnmálamaður þar og ekki síður áberandi en eiginmaður hennar. Þau hvíla bæði í fylkinu og tengingar frambjóðandans við svæðið eru því mikil. Þrátt fyrir að hafa eytt miklum peningum hefur hann ekki unnið alvöru forkosningaslag til þessa og þarf á sigri að halda.

John McCain getur haldið styrk sínum í slagnum með sigri í Michigan, auk þess að slá Romney út af kortinu. Fyrir nokkrum mánuðum var framboð hans talið dauðadæmt en hann hefur átt magnaða endurkomu og berst fyrir sigri í Michigan, auk þess að reyna að taka Suður-Karólínu. Ef hann tekur bæði fylkin fer hann á bylgju mikils stuðnings í forkosningarnar í Flórída. Þar er Rudy Giuliani að vonast eftir að ná að starta af krafti framboði sínu og ætlar að reyna við stóru fylkin. Það er mikil áhætta, sem gæti reynst dauðadæmd er yfir lýkur. Ef McCain nær miklu forskoti næstu dagana gæti hann orðið óstöðvandi er kemur að stóru fylkjunum.

Síðustu vikur hefur slagur repúblikana verið jafn, jafnasti forkosningaslagur þeirra áratugum saman og er galopinn í raun enn. Enginn sterkur frambjóðandi hefur dregið sig til baka frá því að ferlið hófst í Iowa 3. janúar. Það breytist þó brátt. Flestir búast við að Fred Thompson dragi sig í hlé eftir Suður-Karólínu og alveg er ljóst að Romney stendur og fellur með því sem gerist á næstu klukkutímum. Annað hvort fær hann byr í seglin með stuðningi á heimavelli eða framboð hans fær náðarhöggið þar. Verði Huckabee þriðji í nótt, sem ég tel að blasi við, heldur hann sínum dampi, en það mun skipta hann miklu máli að taka Suður-Karólínu, ekta suðurríkjafylki.

Rudy Giuliani bíður á hliðarlínunni og vonast eftir að slagurinn haldist jafn þar til að kosið verður í Flórída eftir hálfan mánuð. Ef McCain tekur næstu fylkin verður hann helsti keppinautur Giuliani um sigur í Flórída. Sumar kannanir sýna McCain nú þegar með forskot í fylkinu. Taki hann Flórída tel ég hann nokkuð öruggan um útnefninguna. Hann fer þá allavega á mikilli bylgju í slaginn á ofur þriðjudegi viku síðar. En nú fer þetta að skýrast, valkostum fækkar og ljóst verður brátt hverjir eru alvöru keppinautar um útnefninguna.

En fylgst er með stöðunni í Michigan nú. Þar ræðst ekki hver verður frambjóðandi repúblikana, en þar geta þó örlög sumra ráðist. Eins og flestir vita er enginn slagur meðal demókrata. Flokksstofnanir hafa refsað flokksmönnum þar fyrir að flýta forkosningunum með því að taka þingfulltrúana af þeim. Hillary Rodham Clinton er þar ein, af alvöru keppinautum um útnefninguna, á kjörseðlinum. Obama og Edwards eru víðsfjarri. Þannig að það er engin barátta í fylkinu hjá þeim.

Þannig að þetta snýst að segja má bara um hvað gerist hjá repúblikunum í Michigan. Þarna gætu orðið spennandi úrslit. Þarna gæti Romney risið upp sem frambjóðandi með alvöru möguleika eða hann gæti lognast út af pólitískt. Mikil barátta. Og McCain getur haldið bylgjunni eða misst flugið. Hann tók fylkið fyrir átta árum og sigur þar kæmi sér vel fyrir hann. Ella skiptir Suður-Karólína hann miklu máli. Þarna er því margt í húfi fyrir frambjóðendur innan flokksins.

Spái því að þetta verði tæpt. Hallast að því að Romney vinni, enda hefur hann lagt mikla áherslu, skiljanlega, á fylkið - allt er í húfi. McCain hefur staðið sig vel og stólar á óháða, sem mega kjósa í forkosningunum. Enda hefur hann farið um fylkið með Joe Lieberman, varaforsetaefni Gore og óháðan þingmann í Connecticut, sér við hlið. Hann féll í ónáð innan demókrata, en er nú sér á báti og styður McCain. Svo verður Huckabee þriðji.


Bloggfærslur 16. janúar 2008

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband