22.1.2008 | 22:35
Heath Ledger látinn

Ledger verður sennilega fyrst og fremst minnst sem leikarans sem túlkaði samkynhneigða kúrekann í sálarkreppunni í Brokeback Mountain árið 2005, en rullan tryggði honum næstum því óskarsverðlaunin fyrir tveim árum, hann var grátlega nærri því að fá verðlaunin. Það var eftirminnilegur stjörnuleikur, eitthvað svo allt öðruvísi en hann hafði gert fram að því. Hann reis líka á hærra plan sem leikari með þeirri stjörnutúlkun og komst í hóp þeirra bestu. Var sennilega endanlega tekinn í hóp helstu leikaranna í Hollywood með því.
Akademían fór ekki alla leið í að viðurkenna myndina, treysti sér ekki til að staðfesta styrkleika myndarinnar þegar á hólminn kom, var íhaldssöm þá eins og venjulega reyndar. Brokeback Mountain sat því eftir án aðalverðlaunanna, sem margir spáðu henni, og leiktúlkanir Ledger, og Jake Gyllenhaal voru ekki verðlaunaðar. Gyllenhaal var ekki síðri, var alveg ótrúlega sannur og traustur í sinni túlkun. Hinsvegar fékk Ang Lee verðlaunin fyrir leikstjórn, sem hann átti skilið, enda hafði akademían sniðgengið hann fyrir Crouching Tiger, Hidden Dragon - hið eftirminnilega myndræna sjónarspil.
Ledger varð þó fyrst þekktur fyrir leik sinn í ástralska þættinum Roar, og það var eflaust það fyrsta með honum sem ég sá, en þeir þættir voru sýndir hér upp á klakanum á miðjum tíunda áratugnum, og voru mjög góðir. Ætla að pára smágrein um Ledger þegar að frá líður og fara aðeins yfir feril hans.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 22:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
22.1.2008 | 21:57
Vandræðalegt klúður við greftrun skákmeistara

Það er ekki hægt að segja annað en að þetta endatafl skákmeistarans hafi komið flestum á óvart. Varð mjög hissa að heyra af þessu, enda var það síðasta sem ég hafði heyrt um málið viðtal við Guðfríði Lilju Grétarsdóttur, forseta Skáksambandsins og varaþingmann, sem sagði í hádegisfréttum Bylgjunnar að það þyrfti að róa umræðuna og bíða eftir því hvað myndi gerast, í kjölfar umræðunnar um að Fischer ætti að hvíla á Þingvöllum. Þegar að orðin féllu hafði Fischer verið jarðsettur fyrir austan fjall og allt showið búið. Merkileg atburðarás.
Fischer tókst meira að segja að koma öllum á óvart úr gröf sinni. Þetta var stórmerkileg flétta. Taldi að þegar að lát skákmeistarans væri tilkynnt að þar með hefði hann leikið sitt endatafl og ekkert meira eftir sem gæti orðið umdeilt mál í kringum hann. Það reyndist rangt. Þeir hljóta þó að hafa orðið svekktir þeir sem voru í kringum skákmeistarann og kynntu sig sérstaklega í nafni hans og fóru í fjölmiðla með þeim formerkjum að skipuleggja útför hans en fá svo ekki að leika neitt hlutverk í lokadramanu, endatafli skákmeistarans og kveðjuathöfn hans. Merkileg flétta sem þeir höfðu ekkert með að segja eftir allt saman.
Reyndar er það merkilegast af öllu að þeir sem skipuðu sjálfa sig sem skipuleggjendur jarðarfarar Bobby Fischer vissi ekkert um það hvar hann vildi hvíla en fóru þess í stað að diskútera með þá ídiótísku hugmynd að jarða hann á Þingvöllum. Ekki það að það hefði verið skemmilega óraunverulegt að jarða Fischer á sama stað og Einar Ben og Jónas - enda allt menn sem fóru eigin leiðir í einu og öllu og voru eldhugar - jarða þá saman á einum stað og allt undir merki ríkisins.
En þetta var stórmerkilegur fjölmiðlaviðburður eftir allt saman, þó vegna þess að það var ekki boðaður einn einasti fjölmiðill og það varð ekkert vandræðalegt show í kringum það, eins og þegar að Fischer kom til landsins fyrir þrem árum í boði stórfyrirtækis og var allt að því notaður sem eign þeirra. Guði sé lof fyrir að við sluppum við fjölmiðlafíaskó af því tagi með því að kallgreyið fékk útför í kyrrþey.
![]() |
Engir eftirmálar af útför Fischers |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 22:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
22.1.2008 | 17:38
F-listinn án formannssæta í nefndum borgarinnar

Það verður að ráðast hvernig nýjum meirihluta muni ganga að stjórna borginni. Hann heldur til verka með skýrt umboð í borgarstjórn. Ólafur F. þarf ekki á varamönnum að halda í sjálfu sér ef hann situr alla fundi borgarstjórnar. Ákvörðun Margrétar og Guðrúnar hefur því aðeins áhrif sitji Ólafur F. Magnússon ekki borgarstjórnarfundi en ekki í nefndakerfinu enda mun þar verða kosið í allar nefndir og samherjar Ólafs F. munu þar eiga sæti fyrir listann, en fjórir af sex efstu frambjóðendum, allir nema Margrét og Guðrún, styðja við bakið á honum. En þetta verður áskorun fyrir nýjan meirihluta og verður að reyna á þetta í því ítalska ástandi sem er í borgarmálunum. Það verður að mynda nýjan meirihluta í upplausninni.
Auðvitað er þetta ekki ákjósanleg staða, fyrir einn né neinn. Afleit staða í sjálfu sér. En svona hefur þetta farið eftir svik Björns Inga Hrafnssonar við sjálfstæðismenn í haust. Sjálfstæðisflokkurinn fékk ekki hreinan meirihluta í kosningunum 2006 og er í þeirri stöðu að þurfa að semja við aðra til að fá einhverju ráðið. Það er ekkert nýtt við þá stöðu. En kannski má segja að það hafi verið ljóst að með því að flokkurinn fékk ekki hreinan meirihluta að þá væri opið á ítalskt pólitískt neyðarástand.
En vonandi helst þetta til kosninga, enda á flestum að vera orðið ljóst að það er aðeins kosið á fjögurra ára fresti - þó komi upp pólitískt neyðarástand ber kjörnum fulltrúa skylda að mynda nýjan meirihluta. En eðlilega svíður F-listakjósendum, sem studdu framboðið til valda og áhrifa, að þegar að hann loksins fær sín mál í gegn og valdastöðu til að skipta máli að þá flýi næstu menn á eftir leiðtoganum af hólmi og geri honum erfiðara en ella að efna málefni sín.
![]() |
Mikil vonbrigði |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (30)
22.1.2008 | 15:44
Margrét og Guðrún segja skilið við F-listann
Eftir vendingar síðustu klukkutíma þarf það ekki að koma að óvörum að Margrét Sverrisdóttir og Guðrún Ásmundsdóttir hafi ákveðið að segja skilið við F-listann og taka ekki þátt í meirihlutasamstarfi Sjálfstæðisflokks og F-lista sem tekur við völdum á fimmtudag og afþakki nefndastörf í nafni hans. En það er þeirra ákvörðun.
Það er öll teikn á lofti um það að valdabrölt vaki fyrir Margréti Sverrisdóttur, sem hefur horft til Samfylkingarinnar með augljóslega áberandi hætti eftir að hún varð forseti borgarstjórnar í nokkrar vikur eftir myndun hins fallna vinstrimeirihluta. Sögusagnir hafa líka verið um sífellt versnandi samstarf hennar og Ólafs F, sem ég rakti í færslu hér fyrr í dag, eftir því sem heyrst hefur úr ólíkum áttum. Sú saga er stórmerkileg og eðlileg að skrifuð sé niður til að munað sé eftir henni. Hún passar vel við á þessum degi, eftir allt sem gerst hefur.
Miðað við það að F-listinn fær nú borgarstjórastól og lykilmál sín niðurnegld í málefnasamningi í samstarfi við stærsta flokk borgarstjórnar Reykjavíkur vekur athygli að Margrét og Guðrún yfirgefi F-listann. Það verður áhugavert að sjá hverjar málefnaáherslur þær eru og verða, en það segir mér svo hugur að fyrst og fremst hafi Margrét verið til í að svíkja eitt helsta kosningamál F-listans, sem er eins og allir vita flugvöllurinn í Vatnsmýrinni. Það er það mál sem tryggði þeim borgarfulltrúa 2002 og 2006, eins og allir vita.
Staða Margrétar Sverrisdóttur hefur rokkað frá því að vera stjörnuvæn, í að vera vonlaus og björt með því að ná valdasess nokkrar vikur á stormasömum vetri í borgarmálunum. Ár er síðan að hún tapaði fyrir Magnúsi Þór Hafsteinssyni í frjálslyndu varaformannskjöri - síðan hefur henni mistekist að komast á þing en reis úr því mikla pólitíska áfalli með því að verða fyrsti varaborgarfulltrúinn í sögu Reykjavíkurborgar sem kjörin var forseti borgarstjórnar og fékk einkabílstjóra og embættisbifreið.
Nú afþakkar hún að vinna með leiðtoga sínum sem borgarstjóra í Reykjavík og vinna að málefnaáherslum hans. Það er von að spurt sé hvað taki við hjá henni. Er ekki Samfylkingin næsta stoppistöð hennar?
![]() |
Margrét og Guðrún með gamla meirihlutanum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
22.1.2008 | 15:16
Nýr meirihluti hefur engin áhrif á ríkisstjórnina
Það er mjög ólíklegt að nýr meirihluti Sjálfstæðisflokks og F-lista í borgarstjórn Reykjavíkur muni hafa áhrif á ríkisstjórnarsamstarf Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar. Meirihlutar koma og fara á sveitarstjórnarstiginu og það er óvarlegt að ætla að blanda því saman við samstarf á öðrum vettvangi. Það hefur allavega verið afstaða mála hingað til þar sem samstörf á þeim vettvangi hafa farið þvert á ríkisstjórnarmynstur.
Það eru aðeins hundrað dagar liðnir frá því að Samfylkingin myndaði meirihluta í Reykjavík framhjá Sjálfstæðisflokki. Það hafði auðvitað engin áhrif á samstarfið í ríkisstjórn. Það er eðlilegt að slit meirihlutans sárni jafnmikið nú og var í október þegar að myndaður var meirihluti þar sem Sjálfstæðisflokkurinn, sem stærsta afl borgarstjórnar Reykjavíkur, var ekki aðili að. Þá missti hann borgarstjórastólinn. Hið sama er Samfylkingin að upplifa núna. Þetta er í sjálfu sér ekkert öðruvísi. Þá sagði Samfylkingin að samstarf kæmu og færu en samstarf í ríkisstjórn væri annar þáttur. Enda er það þannig og breytir engu hvaða framboð eiga við sem mynda með sér samstarf. Svona er pólitíkin.
Vissulega sárnaði mörgum sjálfstæðismönnum í október, en samstarf okkar í ríkisstjórn stóð á öðrum grunni en væringarnar í borgarmálunum. Hið ítalska ástand í borgarmálunum hófst með svikum Björns Inga Hrafnssonar. Þau svik hafa verið örlagarík og hann hefur nú sjálfur fengið sama hnífinn í bakið og hann stakk í Vilhjálm Þ. Vilhjálmsson í októbermánuði. Stjórnmálin geta verið kuldalegur bissness og ekkert heilagt í því. Við sjáum það allra best nú á þessu sögulega kjörtímabili í Reykjavíkurborg. Í óstöðugleikanum þarf þó að koma á nýjum meirihluta, fyrst að sá fyrri hafði ekki burði til neins, ekki einu sinni ná fram málefnasamningi.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir var borgarstjóri í Reykjavík í tæp níu ár og hefur taugar til borgarmálanna. Það gildir ekkert síður við valdamissi en valdaupphefð. Hið sama gildir um Guðlaug Þór Þórðarson, sem var borgarfulltrúi árum saman og sveið eðlilega að sjá nýjan meirihluta í borgarstjórn í haust og tjáði þá skoðun í fjölmiðlum. Eðlilegt er að Ingibjörg Sólrún hafi á því sömu skoðanir í sömu upplifun.
Þá sagði hún að valdatafl við myndun nýs meirihluta þá hefði engin áhrif á ríkisstjórnarsamstarfið. Það er eflaust sárt fyrir Samfylkinguna að upplifa sama sársauka og sjálfstæðismenn fundu fyrir, fyrir aðeins nokkrum vikum. En svona er þessi bissness, hann er hvorki betri né verri eftir þessar örlagaríku vendingar.
![]() |
Ingibjörg Sólrún: telur nýjan meirihluta óstarfhæfan |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
22.1.2008 | 13:30
Styrkur Ólafs F. - vildi Margrét bola Ólafi burt?
Staða mála nú hlýtur þó að leiða til umræðu um samskipti Ólafs F. Magnússonar og Margrétar Sverrisdóttur. Þegar að nýr meirihluti var myndaður í október 2007, þegar að vinstriöflin tóku saman, var það án málefna og án Ólafs F. Magnússonar sem sýnilegs leiðtoga. Þegar að hann sneri aftur var það með læknisvottorð upp á vasann að kröfu meirihlutafulltrúa. Það var mjög í umræðunni og virðist vera að það hafi verið ólga yfir endurkomu hans í borgarmálin og þá hafi byrjað að síga undan meirihlutanum, þar sem Ólafur F. vildi starfa eftir málefnum sínum og beitti hiklaust oddastöðu sinni í þeim efnum, mun öflugar en Margrét Sverrisdóttir gerði sem forseti borgarstjórnar í nokkrar vikur.
Kjaftasagan er með þeim hætti að Margrét hafi óskað eftir læknisvottorðinu frá Ólafi á sínum tíma. Hver lak því svo út í fjölmiðla með vottorðið er líka óvíst, en margir segja að sá leki hafi verið úr meirihlutanum. Altént er ljóst að endurkoma Ólafs F. Magnússonar var örlagamóment fyrir meirihlutann. Sögurnar sem ég hef heyrt úr innsta hring stuðningsmannakjarna Ólafs F. er með þeim hætti að samstarf hans og Margrétar hafi aldrei verið samt eftir þessa daga er hann sneri aftur og varð forseti borgarstjórnar og mikill trúnaðarbrestur verið millum þeirra. Það er því ekki óeðlilegt að velta því fyrir sér hvort að Margrét hafi viljað bola Ólafi F. frá í orðsins fyllstu merkingu eins og hún talar um nú.
Það gerir hún þó að F-listinn hafi fengið borgarstjórastólinn og formennsku borgarráðs það sem eftir lifir kjörtímabils og málefnaáherslur sínar í gegn. Það er ekki óvarlegt að ætla að stutt sé í að Margrét gangi í Samfylkinguna, eins og kjaftasögur hafa verið um. Vík hefur allavega orðið milli vina í F-listanum og sex ára samstarfi Ólafs og Margrétar Sverrisdóttur virðist lokið. Þar hefur verið innri ágreiningur sem fjölmiðlar eiga eftir að fjalla um og virðist hafa verið áberandi, sérstaklega undir lokin þar sem Margrét vildi hvorki fylgja Ólafi og málefnum hans né heldur þeim lista sem hún var kjörin til trúnaðarstarfa fyrir.
Ólafur F. Magnússon er að því ég best veit fyrsti borgarstjórinn í Reykjavík sem fæddur er á Akureyri. Hann hefur verið hugsjónamaður í pólitík; gekk úr Sjálfstæðisflokknum vegna málefna Kárahnjúkavirkjunar og lét steyta á málefnum í þeim efnum svo eftir var tekið. Hann myndar nú meirihluta á þeim málefnum sem F-listinn hefur staðið vörð um og eftir hefur verið tekið sem lykilmálum hans. Hann fær nú tækifæri til að sýna kraft sinn í alvöru meirihluta, þar sem málefni skipta máli, en í fyrri meirihluta var aldrei klárað að semja um málefni á hundrað dögum, sem verður sögulegt klúður metið.
Nýr meirihluti tekur við völdum á fimmtudag. Alls óvíst er hvort að Margrét verði hluti hans eða fái nefndastörf í nafni hans. Á þessari stundu er það ólíklegt. Eflaust bíðum við öll eftir því að hún gangi í Samfylkinguna, eins og kjaftasagan hefur verið svo hávær um.
![]() |
Lýsa stuðningi við Ólaf |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
22.1.2008 | 13:06
Jafnréttindafélag Íslands stofnað
Áhugafólk um jafnréttindamál hefur nú ákveðið að stofna Jafnréttindafélag Íslands, félag sem byggir á öfga- og fordómalausri umræðu um jafnréttindamál. Undirbúningsfundur félagsins mun verða haldinn í Háskólanum í Reykjavík kl. 20:00 á morgun, miðvikudag. Á fundinn munu mæta alþingismenn stjórnmálaflokkanna og ræða um stöðu jafnréttismála í dag.
Þessi fundur er gott tækifæri fyrir folk að kíkja og heyra um áherslur félagsins og það starf sem þar verður. Hvet alla til að mæta og taka þátt.
22.1.2008 | 00:06
Endatafl Bobby Fischer í sunnlenskri sveitagröf
Endatafl hans með því að velja legstað sinn við Laugardælukirkjugarði tókst allavega að koma flestum að óvörum, meira að segja mörgum velvildarmönnum hans í skákgeiranum sem voru ekki einu sinni viðstaddir í fámennri athöfn. Fannst það líklegra að skákmeistarinn vildi útför í kyrrþey, og sennilega varla hvíla á höfuðborgarsvæðinu, heldur á afviknum stað úti í sveit. Og það fór þannig, en það hafði enginn getað séð þetta fyrir þrátt fyrir allt í opinberri umræðu, þegar að allir aðrir kostir voru í fjölmiðlaumræðunni, þó vissulega hafi verið talað um Þingvelli, sem voru þó aldrei raunhæfur kostur, enda blasti við öllum að hann myndi ekki hvíla í þjóðargrafreitnum.
Þetta hefur verið stór fréttadagur. Vissi varla hvort ég ætti að skrifa um fyrst; meirihlutann eða greftrun Fischers í sveitakirkjugarði á Suðurlandi. Þar sem að ég hafði skrifað í gegnum daginn um fall vinstrimeirihlutans vildi ég frekar geyma Fischer til kvöldsins, enda kom það mér satt best að segja meira að óvörum að þetta endatafl skákmeistarans yrði með þessum hætti. Stórmerkileg endalok á litríkri ævi - meira að segja í dauðanum tókst honum að koma okkur að óvörum og komast í fréttirnar fyrir það.
Endalok af merkilegum skala. En það er merkileg ævi að baki, maður sem gat stuðað og fangað athygli allt að því í sömu andránni. Fannst absúrd að hann myndi hvíla á Þingvöllum, enda taldi ég hann sjálfan ekki vilja þann sess. Enda fór það svo að hann valdi að vera fjarri allri upphefð og valdi kyrrlátan og fagran stað á Suðurlandi sem hinstu hvílu sína. Þessi umdeildi skákmeistari kveður allavega með stæl, ekki hægt að segja annað.
![]() |
Fischer jarðsettur í kyrrþey |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 01:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)