27.1.2008 | 11:19
Spaugstofan fer algjörlega yfir strikið
Ég verð að segja það hreint út að mér fannst Spaugstofan missa marks í "gamansemi" sinni í gærkvöldi. Mér fannst það lélegt hjá þeim að hafa engan efnivið til að halda þættinum uppi nema veikindi Ólafs F. Magnússonar, borgarstjóra. Látum vera að minnst hafi verið jafnvel á þau einu sinni, en það er ekki hægt að segja annað en að þetta hafi verið rauði þráðurinn í gegnum þáttinn - Spaugstofan dró upp þá mynd af honum að þar færi maður án vitglóru og úti á þekju.
Hnífabrandari Framsóknar og Björns Inga var kannski fyndinn í fyrsta eða annað skiptið en hann var orðinn ansi þreyttur þegar að líða tók á prógrammið. Einum of misnotaður brandari. Það er ekkert óeðlilegt að Spaugstofan geri grín að borgarstjóranum en mér fannst formið á gamanseminni verða að frekar gráu gamni eftir því sem á leið. Erum við virkilega ekki komin lengra í skynseminni hvað varðar umfjöllun um geðsjúkdóma en að gera endalaust grín að þeim og nudda fólki upp úr því, eins og mér fannst því miður gert í þessum þætti? Ekki óeðlilegt að velta því fyrir sér.
Það er ekkert óeðlilegt að gert sé grín að nýjum meirihluta í borgarstjórn Reykjavíkur og hinu ítalska ástandi í borgarstjórn Reykjavíkur þar sem allir stjórnmálamenn hafa brugðist með einum eða öðrum hætti. Eiginlega er það skylda þeirra sem framleiða gamanefni að dikta upp einhvern húmor um það. En að taka fyrir borgarstjórann með þessum hætti og draga upp þessi veikindi hans og ganga þetta langt fannst mér einum of.
Það hefur verið sagt nokkuð oft í vetur að Spaugstofan sé búin á því; orðin bæði þreytt og léleg. Það er kannski kominn sá tímapunktur að maður segi það hreint út að þeir félagar ættu að fara að horfa í aðrar áttir. Þetta er orðið ágætt alveg.
27.1.2008 | 09:55
Suharto deyr

Og hann, rétt eins og Augusto Pinochet, komst hjá því á gamals aldri að svara til saka fyrir grimmdarverk sín og einræðistilburði. Allt vegna þess að þeir væru jú orðnir of gamlir og myndu ekki þola réttarhöld og að fara fyrir dómara. Það er lítil eftirsjá af svoleiðis mönnum, þó vissulega svíði að þeir hafi ekki verið dregnir til ábyrgðar fyrir langa sögu grimmdarlegrar beitingar valdsins.
Las fyrir nokkrum árum bókina um Suharto eftir Elsen, sem er vel skrifuð og segir sögu valda og grimmdar með listilega góðum hætti, - mæli hiklaust með henni fyrir þá sem vilja kynna sér eitthvað feril þessa umdeilda einræðisherra.
![]() |
Suharto látinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
27.1.2008 | 03:50
Stórsigur Obama - Edwards búinn að vera

John Edwards vann forkosningarnar í Suður-Karólínu fyrir fjórum árum, en hann er fæddur í fylkinu og var öldungadeildarþingmaður á sínum tíma fyrir Norður-Karólínu. Þetta er því heimahérað hans. Þarna varð hann að vinna til að geta átt möguleika áfram. Nú fékk hann aðeins 17% atkvæða. Það er auðvitað fyrir nokkru síðan ljóst að Edwards á ekki lengur hinn minnsta möguleika á því að verða forsetaefni demókrata og þessi niðurstaða er með þeim hætti að hann er einfaldlega búinn að vera. Aðeins spurt að því hvort hann verði í slagnum fram að ofur-þriðjudegi eftir níu daga.
Hillary Rodham Clinton gaf fylkið upp á bátinn fyrir nokkrum dögum og tók að einbeita sér að þeim fylkjum sem kosið verður í á ofur-þriðjudegi. Ávarpaði hún stuðningsmenn frá Nashville í kvöld. Stólar hún á að taka stóru fylkin og samkvæmt könnunum mun hún verða sigursæl þar. Ofur-þriðjudagur verður stór dagur í forkosningaslag demókrata. Það mun þó varla fara svo að frambjóðandinn verði ljós þá, baráttan mun standa lengur og ráðast á þeim fylkjum sem kosið verður í um miðjan febrúar eða jafnvel í mars, ef þetta fer í þann farveg að talið verði upp á hvern þingfulltrúa.
Forkosningaslagurinn hefur verið frá kosningunum í Iowa einvígi tveggja sögulegra frambjóðenda; fyrstu konunnar og fyrsta blökkumannsins með möguleika á Hvíta húsinu. John Edwards hefur lent á milli þeirra allan þennan mánuð, aldrei náð að yfirvinna tapið í Iowa, þar sem hann stóð sig vel árið 2004, og eftir skaðlegan ósigur í Nevada, þar sem hann fékk aðeins fjögur prósent, þurft að minna á nærveru sína í baráttunni - væntanlega hefur Suður-Karólína nú veitt honum náðarhöggið.
Enda er það svo að sértu fyrrum öldungadeildarþingmaður úr suðrinu og fæddur og uppalinn í suðrinu og tekur ekki suðrænt fylki á þessum tímapunkti ertu búinn að vera. Það er ekki flóknara en það. Á þessu féll Fred Thompson í sama fylki um síðustu helgi. Þetta veit auðvitað John Edwards manna best. Margir tala um að stutt sé í að hann fari úr slagnum. Fundur hans með Hillary um daginn vakti t.d. athygli og spurningar margra með stöðuna.
En staðan er galopin. Sigurinn í Suður-Karólínu er mikilvægur fyrir Obama og tryggir að slagurinn verður spennandi nokkrar vikur enn, þó ég telji að Hillary muni verða sigursæl á ofur-þriðjudegi. Spurning hversu sterkur byrinn frá Suður-Karólínu verði fyrir Obama. Þá er kosið í 25 fylkjum - spennandi kosningadagur sem mun skýra línur nokkuð.
------
Hvað varðar repúblikana er baráttan nú um Flórída, það er kosið þar á þriðjudag. John McCain fékk í gær stuðning öldungadeildarþingmanns fylkisins, Mel Martinez, og fyrir nokkrum klukkustundum lýsti Charlie Crist, ríkisstjóri Flórída, yfir stuðningi við hann, eftir langa umhugsun, en allir helstu frambjóðendur höfðu leitað eftir stuðningi ríkisstjórans.
Þessi stuðningur er mjög mikilvægur fyrir John McCain. Ég tel að hann muni taka Flórída og verða sigursæll á ofur-þriðjudegi. Spái honum útnefningu repúblikana. Finnst línur þar hafa skýrst mikið síðustu dagana. Þetta er barátta hans og Romney núna.
![]() |
Obama sigraði í Suður-Karólínu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 04:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)