5.1.2008 | 22:03
Var áramótaskaupið skemmtilegra í annað skiptið?
Áramótaskaupið hefur líka verið mjög misjafnt. Það er oft svolítið kúltúrsjokk að upplifa gömul skaup. Það sem manni fannst kannski rosalega fyndið hér áður verður allt í einu algjörlega ófyndið á meðan að sum skaupin eru gullslegin klassík sem sannkölluð synd er að ekki séu til á DVD. Annars eru sum skaup kannski best geymd í minningunni. Eru bara minning um árið og það móment sem það var gert. Horfði í einum rykk á nokkur gömul áramótaskaup milli jóla og nýárs. Sum fannst mér óþægilega flöt á meðan að önnur eru yndisleg. Gott dæmi um frábært skaup er það sem gert var árið 1991, þar sem Davíð Oddsson var stjarnan. Klassískur húmor.
Sagan segir jafnan að það sé betra að skilja skaupið í annað skiptið og brandararnir verði betri. Má vera. Viðurkenni alveg að ég hafði eiginlega meira gaman af því í kvöld en þegar að ég sá það fyrst á gamlárskvöldi. Enn fannst mér þó beinagrindin í því, Lost-þemað, frekar dautt, og ég hafði ekki gaman af því. Molarnir inn á milli voru þó margir gulls ígildi og virkilega skemmtilegir. Fannst eitt besta atriðið sem ég upplifði aftur í kvöld ansi gott, en það var Árni Tryggvason í hlutverki sjúklings sem kallar eftir að starfsstúlka færi honum vatnsglas. Þar er þó ekkert nema bergmálið og neyðaróp karlgreysins óma um tóma ganga sjúkrahússins.
Annars áttaði ég mig á einu atriði betur núna en á gamlársdag. Á þetta ekki að vera Ólafur Ragnar Grímsson sem er að koma í glæsibifreið á stofnfund félags íslenskra auðmanna? Verð að viðurkenna að ég tók bakföll af hlátri þegar að ég sá þetta atriði áðan og áttaði mig á því. Þarf kannski ekki að koma á óvart þetta atriði. Svo náði Bergur Þór mjög vel söngvaranum Geir Ólafs og tók hann alveg með brilljans. Umræðan um réttindabaráttu vændiskvenna í Silfri Egils var líka ansi smellið atriði. Svo var líka ansi nett að sjá Kristján Möller hlaupa á dyr í samgönguráðuneytinu þegar að talað var um Grímseyjarferjuna og ellefu ára "barna"afmæli Fáfnis.
Allavega, þetta var alveg ágætis móment, fínt að upplifa skaupið aftur, svona einu sinni í viðbót allavega. En hvað finnst ykkur. Hvernig var að sjá skaupið í annað skiptið? Hvað með gömlu skaupin, viljið þið eiga minningarnar um gömlu skaupin eða mynduð þið kaupa þau á DVD eða vilja eignast þau aftur?
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 22:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
5.1.2008 | 19:16
Göng um Vaðlaheiði sett framar Sundabraut

Það hljóta að teljast mikil vonbrigði fyrir Reykvíkinga að Sundabraut sé sett aftar Vaðlaheiðargöngum á dagskrá samgönguframkvæmda. Eftir allt talið um mikilvægi Sundabrautar og stór orð borgarfulltrúa Samfylkingarinnar um framkvæmdina vekur það athygli að samgönguráðherra í nafni Samfylkingarinnar taki þá ákvörðun. Væri reyndar áhugavert að heyra viðbrögð Dags B. Eggertssonar, borgarstjóra í Reykjavík, og ennfremur Steinunnar Valdísar Óskarsdóttur, fyrrum borgarstjóra, sem nú er einn nánasti samstarfsmaður ráðherrans, sem formaður samgöngunefndar Alþingis. Ætla fjölmiðlar ekki að tala við Steinunni?
Annars koma þessar áherslur ekki að óvörum. Kristján Möller talaði mjög ákveðið til kjósenda fyrir alþingiskosningar um mikilvægi Vaðlaheiðarganga og lofaði að koma þeim í framkvæmd fljótlega á kjörtímabilinu hefði hann eitthvað um málið að segja. Hann er í óskastöðu sinni fyrir kosningar, situr nú á stóli samgönguráðherra og verður að standa við stóru orðin enda færi hann illa hér í næstu alþingiskosningum ella. Þetta blasir við öllum sem fylgjast með stjórnmálum hér, sennilega helst þeim samfylkingarmönnum sem hafa sig í frammi hér á Eyjafjarðarsvæðinu, en kallað hefur verið eftir því af fólki hér að ráðherrann myndi taka af skarið.
Það er vissulega vont ef Sundabraut tefst mikið meira en orðið er. Sennilega þurfa samfylkingarmenn í Reykjavík eitthvað að gera sig gildandi í augum samgönguráðherrans þeirra.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
5.1.2008 | 17:49
Auðmjúk afsökunarbeiðni til eigendanna

Flestir spurðu sig að því eftir hina auðmjúku afsökunarbeiðni hvað hefði eiginlega verið rétt og rangt í upphaflegum skrifum vísis um eiganda sinn. Það var spurningin sem flestir vildu fá svarað. Nú hefur vísir.is brugðist vel við þeirri spurningu og svarað henni í ítarlegri umfjöllun sem er ekki síður áhugaverð en hin auðmjúka afsökunarbeiðni. Það verður ekki minna talað um snekkjuna og þotuna og allt sem því fylgir eftir þessar útskýringar, enda við því að búast að fleiri spurningar vaki í kjölfarið.
Spurningar vakna eðlilega í kjölfar þessara samskipta eigendanna og starfsmanna hans, hin opinberu skoðanaskipti um hvað megi segja um eigandann. Flestir eru eðlilega hugsi eftir þessa auðmjúku afsökunarbeiðni.
5.1.2008 | 02:29
Nóg um hasar á Bubbatónleikum

Það virðist vera hasar í kringum Bubba Morthens. Maðurinn sem lögreglan handtók í kvöld, með aðstoð sérsveitar, eftir eltingarleik í Holtahverfið, brjálaðist á tónleikum Bubba og stórsveitarinnar í Höllinni og otaði hníf að dyravörðum og sparkaði niður rúðu. Eins og flestum er kunnugt að þá urðu slagsmál á Þorláksmessutónleikum Bubba á Nasa og þar gekk sannarlega á ýmsu.
Eftir því sem ég heyrði frá manni sem var á tónleikunum með Bubba var nóg um að vera þar, rúða í anddyri var spörkuð niður og maðurinn sem var handtekinn skarst á fæti og stakk af frá vettvangi með konu en lögreglan náði honum síðar með aðstoð sérsveitarinnar. Þetta hefur því verið mikið drama og gott að sérsveitin getur aðstoðað í málum þar sem virkilega þörf á fagmennsku að halda og þarf að eiga við fólk sem er vopnað.
Mér skilst reyndar að þessu drama hafi lokið með því að drepist hafi á bíl mannsins og þannig hafi hann náðst, ætli hann hafi svo ekki bara endað á slysadeildinni. Væntanlega verið blóðugur eftir að sparka í rúðuna í Laugardalshöll. Þetta hlýtur að kallast íslenskt drama í nærmynd.
Annars virðist kóngurinn vera í miklum hasar þessa dagana og ekki nema von að spurt sé hvað gerist á næstu tónleikum hans. Allt er þegar þrennt er - segir jú máltækið.
![]() |
Sérsveitin kölluð út |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)