10.2.2008 | 21:28
Veikburða leiðtogatafl sjálfstæðismanna í Reykjavík

Ég tel að allir sem þekki Vilhjálm Þ. Vilhjálmsson geti borið því vitni að þar fer vandaður og góður maður, sem hefur unnið lengi gott starf fyrir Sjálfstæðisflokkinn og Reykjavíkurborg. Það er eðlilegt að virða það sem hann hefur gert. Honum urðu þó á mjög mikil mistök í REI-málinu og virðist orðið útilokað annað en að hann verði að bera á því ábyrgð með einum eða öðrum hætti. Ella fylgi það flokknum eins og mara í næstu kosningar. Eins og komið er málum er hið eina heiðarlega í stöðunni að Vilhjálmur víki til hliðar og nýr leiðtogi taki við. Þetta er heiðarlegt mat mitt og mér finnst eðlilegt að tjá sig hreint út í þessum efnum. Staðan gefur fullt tilefni til þess.
Mér finnst frekar vond sú tilhugsun að sjálfstæðismenn í Reykjavík ætli að láta þetta mál dankast það mikið að ekki verði tekin heiðarleg ákvörðun um framtíð Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar á leiðtogastóli fyrr en mun síðar. Í mínum huga þarf að taka af skarið hvort hann haldi áfram og fari þá aftur í kosningar nú þegar. Þessi vafi mun aðeins veikja flokkinn í sessi. Það þarf ekki sérfræðinga í stjórnmálum til að sjá að Vilhjálmur hefur þegar veikst umtalsvert í sessi, trúverðugleiki hans er að mestu gufaður upp og það spyrja sig allir um styrk leiðtogans. Það getur aldrei talist gott og þaðan af síður fyrir stjórnmálamann sem lengst allra hefur setið í borgarstjórn Reykjavíkur.
Mér sýnist á allri umræðunni að örlög Vilhjálms séu ráðin en það sé beðið annars tímapunkts með því að staðfesta það. Heldur finnst mér það dapurlegur dómgreindarbrestur þeirra sem leiða Sjálfstæðisflokkinn í Reykjavík og halda þar um tauma. Með því mati eru þau að veikja flokkinn enn meir en orðið er og þætti mér fullt tilefni til að þetta fólk tæki frekar af skarið en ýti þessu máli á undan sér fram úr hófi. Það er í sjálfu sér eðlilegt að framtíð leiðtogans skýrist nú. Ef hann ætlar sér að sitja áfram heldur hann í næstu kosningar og er leiðtogi lengur, ella hættir hann. Valkostirnir geta ekki verið einfaldari.
En hið versta í stöðunni er að einhverjir velti því virkilega fyrir sér að sækja leiðtogaefni í borgarstjórnarflokkinn út fyrir raðir hans þegar að Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson hættir. Það virðist vera að sú dýrkeypta lexía að gera Markús Örn Antonsson, fyrrverandi útvarpsstjóra, að borgarstjóra og leiðtoga borgarstjórnarflokksins fyrir sautján árum hafi ekki verið nógu beisk og erfið til þess að það sé uppi á borðinu sem valkostur. Að flestra mati veikti sú ákvörðun flokkinn og margir rekja tapið í borgarstjórnarkosningunum 1994 til þess. Það hlýtur að hljóma eins og neyðarráðstöfun fyrir vissa aðila.
Það er illa komið fyrir flokknum í Reykjavík og stoðum hans ef að kjörnir fulltrúar geta ekki leyst mál á borð við þetta þar sem leiðtoginn riðar til falls og velja þarf nýjan leiðtoga.
![]() |
Ekki ástæða til að ræða við Vilhjálm og Björn Inga |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
10.2.2008 | 15:47
Veik staða Vilhjálms - uppgjör framundan
Ég finn það á sjálfstæðismönnum sem ég þekki að beðið er þess að tekið verði á málum innan borgarstjórnarflokks Sjálfstæðisflokksins eða ella verði Geir H. Haarde, formaður Sjálfstæðisflokksins, að sýna þann myndugleika er felst í hlutverki hans og höggva á þann hnút sem uppi er og taka á veikri stöðu Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar. Það virðist aðeins vera tímaspursmál hvenær að þau mál klárist.
Mér finnst þögn formanns Sjálfstæðisflokksins vera orðin allt að því æpandi og mér finnst það eiginlega ábyrgðarhlutur að leyfa þessu máli að dankast með þeim hætti sem við blasir. Það er mikið veikleikamerki fyrir forystu Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík að hafa ekki tekið á þessu máli og ég lít svo á staða hennar veikist með hverri stundu. Í þessum efnum þýðir ekkert annað en að horfast í augu við stöðu mála og staðreyndir. Leiðtogi hópsins er rúinn trausti, það þarf að taka á þeirri staðreynd og það fljótlega.
Það heyrast ýmsar kjaftasögur um hvað eigi að taka við þegar að leiðtoginn hefur axlað hina pólitísku ábyrgð á REI-málinu. Að mínu mati kemur ekkert annað til greina en að framboðslistinn færist upp í ábyrgðarröð hvað varðar embætti. Að því leiðir að ég tel að Hanna Birna Kristjánsdóttir eigi að taka við leiðtogahlutverki í borgarstjórnarflokki Sjálfstæðisflokksins. Það hefur enginn sterkara umboð til þess. Hanna Birna hefur umboð úr síðasta prófkjöri - þá hlaut hún flest atkvæði og vann slag um annað sætið við Júlíus Vífil Ingvarsson með afgerandi hætti.
Ég tel að sjálfstæðismenn, ekki bara í Reykjavík heldur um allt land, bíði eftir því að forysta flokksins geti leyst þetta mál fljótlega. Það þýðir ekki að bíða mikið lengur en orðið er. Það blasir við öllum sem líta heiðarlega á málið.
![]() |
Pólitísk staða Vilhjálms rædd |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
10.2.2008 | 00:55
Beðið eftir afsögn Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar

Staða Vilhjálms sem leiðtoga er í raun orðin óverjandi og sést það best af því að Geir H. Haarde, formaður Sjálfstæðisflokksins, sá sér ekki fært að tjá sig við fréttastofu Sjónvarps og svara spurningum eftir flokksfund í Kópavogi. Er mikilvægt að tekið verði af skarið í þessum efnum sem fyrst og getur varla verið langt í þá stund eins og komið er málum. Eru fáir sem leggjast í að verja stöðu leiðtogans og virðist hann rúinn trausti og stuðningsmenn flokksins kalla frekar eftir afsögn hans en verja þá vonlausu stöðu sem hann er kominn í.
Þetta er vissulega mjög erfið staða og vond fyrir Sjálfstæðisflokkinn í alla staði. En það dugar ekki úr þessu að líta framhjá því hvert stefnir. Í þessum efnum þarf að hugsa um heill og hag Sjálfstæðisflokksins, ekki um persónur.

![]() |
Yfirlýsing frá borgarlögmanni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |