Þórhallur reynir að halda í Jóhönnu Vilhjálms

Þórhallur og JóhannaÞórhallur Gunnarsson, dagskrárstjóri Sjónvarps og ritstjóri Kastljóss, reynir nú allt sem getur til að halda Jóhönnu Vilhjálmsdóttur í Kastljósi. Tilkynningin í gær um að hún væri hætt í þættinum vakti mikla athygli og flestir töldu að ástæða brotthvarfs hennar væri umfjöllun um föður hennar Vilhjálm Þ. Vilhjálmsson, fyrrverandi borgarstjóra, og var mikið skrafað um það.

Annarskonar fjölskylduaðstæður munu ráða för hjá Jóhönnu, en hún vill vera meira með syni sínum, sem fæddist á síðasta ári. Þórhallur mun ætla að reyna að halda í Jóhönnu með öllum tiltækum ráðum. Það er skiljanlegt að hann vilji halda henni hjá Sjónvarpinu. Eins og ég sagði hefur Jóhanna sýnt og sannað með verkum sínum að hún er ein besta sjónvarpskona landsins og hefur staðið sig vel í verkum sínum; verið beitt sem spyrill og heiðarleg í umfjöllun.

Þórhallur og Jóhanna hafa starfað saman í mörg ár; byrjuðu saman með því að taka við stjórn morgunþáttarins sáluga Íslands í bítið árið 2001 og sáu um dægurmálaþáttinn Ísland í dag á árunum 2003-2005. Þegar að Þórhallur var settur yfir hið nýja Kastljós Sjónvarpsins árið 2005 fór Jóhanna með honum af Stöð 2. Þau þekkjast því vel og eðlilega er það mikilvægt fyrir Þórhall að halda þessari öflugu sjónvarpskonu í Efstaleiti. Vonandi tekst honum það.

Gott framtak hjá Bubba og Geir

Bubbi Mér finnst það gott framtak hjá Bubba Morthens að boða til tónleika gegn fordómum gegn útlendingum, sem hafa grasserað að undanförnu og sést t.d. á vefsíðum. Það styrkir baráttuna að Geir H. Haarde, forsætisráðherra, skuli veita stuðning sinn með því að taka lagið á tónleikunum.

Það er full þörf á að ræða málefni innflytjenda, en það verður þó að gerast án fordóma og kuldalegra orða í garð eins tiltekins hóps, eins og sést hefur í garð Pólverja að undanförnu. Það er ekki þörf á fordómafullri umræðu og eðlilegt að tala gegn henni. Forsætisráðherrann á hrós skilið fyrir framlag sitt.

mbl.is Forsætisráðherra ætlar að taka lagið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Dagur verður ekki landsliðsþjálfari

Dagur Það eru vonbrigði að Dagur Sigurðsson verði ekki eftirmaður Alfreðs Gíslasonar sem landsliðsþjálfari í handbolta. Hann var besti kosturinn í stöðunni fyrir HSÍ og hefði verið traust og gott val til að byggja landsliðið upp til næstu verkefna. Ákvörðun hans er samt skiljanleg, miðað við aðstæður, en það er greinilegt að hann vildi að þjálfarastaðan yrði veigameiri og sett langtímamarkmið.

Ég ætla að vona að næsti landsliðsþjálfari verði Íslendingur. Það er traustast í stöðunni. Það er þá spurning hvað taki við nú þegar að afsvar liggur fyrir frá Degi. Verður talað við Geir Sveinsson, Aron Kristjánsson eða Júlíus Jónasson? Allir eru þeir vel að starfinu komnir og ég held að þeir hafi allir lýst yfir áhuga í umræðunni eftir að ljóst varð endanlega að Alli ætlaði að hætta með liðið.

Myndi lítast vel á það ef einn þeirra fengi stöðuna. Einhvernveginn finnst mér það hljóma best að velja Geir. Hann á sér góða sögu í íslenska landsliðinu og var lykilmaður þar árum saman og fyrirliði í mörg ár. Litist best á hann í verkefnið.

mbl.is Dagur tekur ekki við íslenska landsliðinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Markús Örn settur yfir Þjóðmenningarhúsið

Markús Örn Antonsson Það eru merkileg tíðindi að Markús Örn Antonsson, sendiherra og fyrrum borgarstjóri og útvarpsstjóri, sé á heimleið frá Kanada og hafi verið settur yfir Þjóðmenningarhúsið. Þar kemur til samkomulag tveggja ráðuneyta, þar sem Markús Örn er sem sendiherra starfsmaður utanríkisráðuneytisins en fer nú í verkefni af hálfu forsætisráðuneytisins.

Það kemur varla í sjálfu sér að óvörum að Markús Örn sé á heimleið frá störfum sínum í Kanada síðustu þrjú árin, en ég hélt að hann myndi þó verða sendiherra fram að eftirlaunum. Það líður að því hjá Markúsi Erni, en hann verður 65 ára í vor. Það verður áhugavert að sjá hvaða sendiherrakapall fer af stað fljótlega, en búast má við miklum breytingum. Það verður í fyrsta skipti sem Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, utanríkisráðherra, mun hafa áhrif á skipan sendiherra.

Markús Örn hefur lítið sem ekkert verið í fréttum hér heima síðustu þrjú árin. Hann fór þó úr sviðsljósinu eftir mikinn hvell, en segja má að hann hafi yfirgefið útvarpshúsið í Efstaleiti stórlega skaddaður eftir umdeilda skipan hans á Auðuni Georg Ólafssyni sem fréttastjóra útvarpsins í mars 2005. Hún leiddi meðal annars til þess að nær allir starfsmenn Ríkisútvarpsins lýstu yfir vantrausti á Markúsi Erni. Þó að fréttastjórinn hafi aðeins starfað í einn dag að þá var andrúmsloftið breytt og innan við tveim mánuðum síðar hafði hann verið skipaður sendiherra í Kanada.

Annars hefur Markús Örn alltaf verið áberandi og í sviðsljósi umfjöllunar. Hann varð borgarfulltrúi í Reykjavík ungur að aldri árið 1970, eftir stuttan feril sem fréttamaður Sjónvarps, og gegndi þeim störfum í fimmtán ár og var þar af forseti borgarstjórnar síðustu tvö árin, áður en hann var skipaður útvarpsstjóri í stað Andrésar Björnssonar. Það kom mörgum að óvörum þegar að hann var valinn sem málamiðlun eftirmaður Davíðs Oddssonar á borgarstjórastóli eftir átök innan borgarstjórnarflokks Sjálfstæðisflokksins.

Þrátt fyrir að Markús Örn hafi verið vel kunnugur borgarmálunum eftir fimmtán ára störf áður sem borgarfulltrúi í Reykjavík var staða hans sem borgarstjóra undarleg. Það hafði aldrei gerst áður að Sjálfstæðisflokkurinn veldi borgarstjóra utan borgarstjórnarflokksins og sagan sýndi vel að það reyndist ekki vel. Markús Örn sagði af sér embætti borgarstjóra í mars 1994, 80 dögum fyrir kosningar, skv. könnunum þá stefndi í afhroð fyrir Sjálfstæðisflokkinn gegn nýstofnuðum R-lista. Þrátt fyrir breytingar var tap ekki umflúið.

Þjóðmenningarhúsið er vönduð stofnun, merkileg starfsemi þar sem ég hef haft gaman af að kynna mér. Markús Örn hefur víðtæka reynslu eftir langan útvarpsstjóraferil og sem stjórnmálamaður. Það verður áhugavert að sjá hvernig honum gangi þar. Friður hefur ríkt yfir Þjóðmenningarhúsinu eftir frægt hneykslismál þegar að Guðmundur Magnússon, blaðamaður, hrökklaðist frá störfum þar sem forstöðumaður árið 2002. Vonandi verður svo áfram.

Það kemur mér samt að óvörum að Markús Örn sé sóttur heim fyrir starfslok til þessa verkefnis, en það er varla hægt að segja annað en að hann hafi víðtæka reynslu til þess.

mbl.is Markús Örn skipaður forstöðumaður Þjóðmenningarhúss
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Deiglan afskrifar Vilhjálm Þ. Vilhjálmsson

Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson Það eru mikil tíðindi að Deiglan hafi snúið baki við Vilhjálmi Þ. Vilhjálmssyni sem leiðtoga Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Það segir meira en mörg orð um hina veiku stöðu Vilhjálms. Sífellt fleiri taka afstöðu gegn því að hann leiði flokkinn áfram og verði að nýju borgarstjóri. Þeir sem skrifa á Deigluna hafa verið í þeim hópi sem dyggast hafa staðið við bakið á Vilhjálmi og forystu Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík.

Kannski þurfa þetta ekki að vera tíðindi. Það er öllum ljóst að Vilhjálmur Þ. fer ekki aftur fram í kosningum, hann hefur misst allan styrk og trúverðugleika sem leiðtogi þó hann hafi enn þann titil að nafninu til. Það vill enginn lýsa yfir stuðningi við Vilhjálm Þ. Vilhjálmsson sem borgarstjóra á næsta ári með sannfærandi hætti, ekki einu sinni formaður Sjálfstæðisflokksins, nema ef við undanskiljum comeback gæjann Árna Johnsen frá Vestmannaeyjum, en það getur varla verið sterkur liðsauki eins síns liðs fyrir leiðtoga Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn. Í raun má segja að örlögin séu ráðin, en spurt sé um dagsetningu endaloka stjórnmálaferils Vilhjálms.

Fyrrum samstarfsmenn mínir í ungliðahreyfingunni, Borgar Þór Einarsson og Þórlindur Kjartansson, sem eru stofnendur Deiglunnar, voru greinilega vel meðvitaðir um veika stöðu Vilhjálms og voru greinilega að fara yfir valkosti þess hvernig Vilhjálmur skilji við borgarmálin svo sómi sé fyrir hann. Það má ekki gleyma því að Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson á að baki mjög langan feril í borgarmálunum, hann hefur unnið þar í hálfan þriðja áratug, var formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga í hálfan annan áratug og auk þess leiðtogi borgarstjórnarflokksins í fimm ár. Það er eðlilegt að mörgum svíði hversu illa er komið fyrir þessum reynda leiðtoga.

Þeir sem næst hafa staðið Vilhjálmi, t.d. Deiglan, er greinilega farið að senda út skilaboð til Vilhjálms Þ. um að draga sig í hlé meðan að hann geti farið standandi frá velli. Það væri afskaplega sorglegt ef maður með reynslu og pólitíska farsæld Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar innan Sjálfstæðisflokksins gæti ekki einu sinni yfirgefið völlinn með því að sómi sé að. Ég trúi því að enn sé það hægt, þó hann hafi eyðilagt verulega fyrir sér með skelfilegum blaðamannafundi á mánudag, sem var honum og Sjálfstæðisflokknum til algjörrar skammar.

Það er eðlilegt að þeir sem næst standa Vilhjálmi Þ. Vilhjálmssyni ráði honum heilt og að fara meðan að það getur orðið með sómasamlegum hætti en ekki þeim sorglega brag sem því miður stefnir í meðan að beðið er dag frá degi eftir því að þessi endalok sem blasa við öllum eru endanlega staðfest. Þau á Deiglunni eiga heiður skilið fyrir að ráðleggja Vilhjálmi heilt á þessum leiðarlokum hans í stjórnmálum.

Bloggfærslur 13. febrúar 2008

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband