20.2.2008 | 20:55
Hvað vakir fyrir Össuri með skrifunum um Gísla?
Össur vildi ekki kommenta á þessi næturskrif í kvöldfréttum Sjónvarps, en hann sást þó í sama fréttatíma borðandi góðgæti við setningu Food and fun-hátíðarinnar, þó mjög þungt hugsi. Málið var rætt á þingflokksfundi Sjálfstæðisflokksins. Árás með þessu tagi á kjörinn fulltrúa Sjálfstæðisflokksins frá ráðherra samstarfsflokks hans er eðlilega metin alvarlega og eðlilegt að ráðherrann svari fyrir sig.
Mér finnst þessi skrif ekki lyfta stjórnmálabaráttunni upp á hærra plan og vona að það sé ekki það sem koma skuli að ráðist sé svo ómálefnalega að fólki. Það er eitt að vera ósammála einhverjum um eitthvað en þessi skrif Össurar lykta af einhverju öðru. Það verður hann að skýra út ítarlega, svona ómerkileg skrif og hnífakast undir rósrauðri kratarós er Össuri og Samfylkingunni til skammar.
![]() |
Pistill Össurar ræddur á þingflokksfundi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
20.2.2008 | 18:39
Pókerfés Birkis Jóns - hlægileg sinnaskipti
Það er vandræðalegt fyrir Birki Jón Jónsson, alþingismann, að það hafi komist upp um að hann hafi spilað póker ólöglega. Enn vandræðalegra er þó að hann breytist allt í einu í opinberan talsmann lögleiðingar pókerspils þegar að hann er böstaður, tekinn all illilega eins og raun ber vitni.
Efast mjög verulega um að Birkir Jón hefði lagt í að stíga fram með þennan boðskap nema vegna þess að hann er með buxurnar á hælunum eftir að hafa verið nappaður. Er að reyna að redda sér úr klúðrinu. Það hefði verið þægilegt að heyra hann tala frelsismáli áður en hann var nappaður allavega.
Þessi sinnaskipti hljóma fjarri því trúverðug og missa marks. Þrátt fyrir að Birkir Jón setji nú upp pókerfésið til að halda andlitinu stendur eftir að hann braut lög og verður að bera byrðar þess klúðurs síns sem kjörinn fulltrúi almennings.
![]() |
Tvískinnungur að aðrar reglur gildi um póker |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
20.2.2008 | 17:09
Algjört klúður lögreglunnar í flóttamáli Annþórs

Það sem vekur mesta athygli er hvernig það gat gerst að margdæmdur ofbeldismaður, grunaður um alvarleg afbrot og átti að sæta einangrun, gat leikið lausum hala á lögreglustöðinni, komist í síma, fundið reipi og síðast en ekki síst stokkið út um glugga án þess að nokkur tæki eftir því. Það er ljóst að það liðu að minnsta kosti tveir tímar frá flóttanum þar til löggan áttaði sig loks á honum.
Mér finnst lágmark að lögreglan taki á sínum málum þegar að fangi, sem átti að vera í einangrun og mátti ekki tala við neinn nema lögmann sinn, getur hringt símtöl úr fangelsinu og undirbúið flótta sinn svo vel að ekki verður neinn við það var.
Þetta er megaklúður af verstu sort sem lögreglan þarf að þarf að fara yfir og læra af. Fara verður yfir yfir verkferla í varðhaldi svo að ekki geti annað eins gerst aftur.
![]() |
Úttekt á starfsemi fangamóttöku flýtt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
20.2.2008 | 15:54
Samið um hið fullkomna óréttlæti í Gettu betur

Vegna þess að dómarinn gerði mistök og gaf rangt fyrir rétt svar fór keppnin í bráðabana og þar hafði hitt liðið sigur. Þetta hlýtur að teljast nokkuð óréttlæti og til skammar fyrir þá sem halda utan um keppnina. Það er þó fyrir mestu að aðilar málsins hafa viðurkennt mistökin, en þau voru samt nokkuð augljós og þetta er bæði pínleg og skaðandi villa fyrir dómara í keppninni - eykur ekki orðstír hans á þeim vettvangi hið minnsta.
Það er eðlilegt að tekist sé á um stöðu þessarar keppni. Þetta á ekki að vera í lagi og eðlilegasta næsta skref væri að taka á reglum keppninnar og reyna að koma í veg fyrir að svona dómaraskandall geti gerst aftur í Gettu betur. Þau rök að vegna þess að ekkert fordæmi sé fyrir aðgerðum sé í lagi að leyfa tapliði að breytast í sigurlið eru aum og léleg. Það á ekki að vera eðlilegt að sætta sig við svona. Finnst þau í Kvennó samt sýna reisn og styrk með því að gera ekki mál úr þessu en ég skil sársauka þeirra. Það er aldrei gott að tapa vitandi að sigur náðist faktískt.
Ranglætið er aldrei gott, hvorki í þessu tilfelli né öðrum. Þetta er mál sem þarf að taka á. Staða dómarans er ekki beint beysin, hann gerði skelfilega skyssu og hefur reyndar gert þær margar á þessu misseri. Það er ekki undrunarefni að það sé ólga vegna hans, þar sem mörg mistök voru gerð í útvarpshlutanum, sem hafa því miður fylgt yfir í sjónvarpið og ráðið þar hvort lið sigrar eða tapar. Það er ekki hægt að sætta sig við þannig klúður.
![]() |
MH og Kvennaskólinn senda frá sér yfirlýsingu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 16:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.2.2008 | 13:00
Össur slær skjaldborg um stjórnendur OR

Hef enga séð nenna að leggja sömu lykkju á leið sína og verja þessa menn með sömu áfergju og Össur reynir að gera með frekar hlægilegum hætti. Það leynir sér ekki að Össur er enn mjög sorrí yfir því hvernig fór með REI og virðist frekar en gagnrýna allt klúðrið reyna að kóa það. Í þeim efnum ræðst hann persónulega að Gísla Marteini, sem mér finnst eiginlega einum of mikill barnaskapur. Hann má ekki gleyma því að almenningur hefur fengið nóg af skítabissnessnum sem einkenndi REI.
Það má vel vera að Össur og Gísli Marteinn eigi eitthvað persónulegt óuppgert. Hef ekki hugmynd um það. Þessi skrif eru þó þess eðlis að þar talar frústreraður maður vegna þess að skýjaborgir hans verða ekki að veruleika.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
20.2.2008 | 00:05
Sterk staða Hönnu Birnu - Vilhjálmur rúinn trausti

Veik staða Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík í könnun Gallups er mikið áhyggjuefni og áfall fyrir forystu Sjálfstæðisflokksins sem hefur ekki enn tekið af skarið varðandi veika stöðu leiðtogans, sem hefur misst allan þann stuðning sem hann hafði eftir prófkjör og kosningar þar sem hann var valinn til forystu af hálfu flokksins. Hann hefur misst umboð sitt og á því verður að taka. Það er kominn tími til að Vilhjálmur Þ. horfist í augu við þessa veiku stöðu og axli ábyrgð með því að segja af sér leiðtogastöðunni. Það hefur verið beðið of lengi!
Það er kominn tími til að forysta Sjálfstæðisflokksins í höfuðvígi hans horfist í augu við þá stöðu sem uppi er. Leiðtoginn er rúinn trausti og verður úr þessu aðeins þung byrði fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Það skiptir engu máli hversu traustur hann hefur verið fyrir vissa aðila í flokknum og unnið lengi á vettvangi borgarmála og flokksins. Með mistökum sínum hefur hann skaðað stöðu Sjálfstæðisflokksins svo eftir er tekið og hann verður að taka á sig þessa veiku stöðu sem blasir við.
Vilhjálmur ætti að vera búinn að sjá það fyrir löngu að hann hefur skemmt mjög fyrir Sjálfstæðisflokknum með því að taka ekki af skarið og segjast hið minnsta ekki taka að sér embætti borgarstjóra að nýju. Ég treysti því að sjálfstæðismenn í borginni fari að ná áttum í þessari stöðu og horfast í augu við það óhjákvæmilega í stöðunni.
Hvað varðar þessa könnun finnst mér hún svo afgerandi traustsyfirlýsing við Hönnu Birnu Kristjánsdóttur að það eigi ekki að leika neinn vafi á því að hún eigi að taka við forystu flokksins í borginni sem allra fyrst, og um leið við embætti borgarstjóra í Reykjavík þann 22. mars 2009.
![]() |
Flestir vilja Hönnu Birnu sem borgarstjóra |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 00:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)