9.2.2008 | 19:06
Vilhjálmur Þ. verður að segja af sér
Það er mikilvægt að Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson beri hina pólitísku ábyrgð í kjölfar REI-málsins og segi af sér sem leiðtogi borgarstjórnarflokks Sjálfstæðisflokksins. Það er fjarstæðukennt að hann verði borgarstjóri að nýju og leiði flokkinn aftur eftir mistök sín á síðustu mánuðum. Þar þarf nú nýja forystu og bæði eðlilegast og réttast í stöðunni að Hanna Birna Kristjánsdóttir, forseti borgarstjórnar, taki við leiðtogahlutverki.
Það hefur verið dapurlegt að fylgjast með pólitískri framgöngu Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar á þessu kjörtímabili. Hann fékk gullið tækifæri til að leiða Sjálfstæðisflokkinn rétta leið eftir tólf ára minnihlutasetu en mistókst það með vinnubrögðum sínum, sérstaklega í haust þar sem hann hafði samstarfsfólk sitt í borgarstjórn Reykjavíkur ekki með í ráðum og vann bakvið tjöldin með afleitum hætti. Áfellisdómur hefur verið felldur yfir því verklagi í REI-skýrslunni. Það er hið eina rétta fyrir hann nú að víkja úr leiðtogastöðunni.
Það væri farsælast fyrir Sjálfstæðisflokkinn í Reykjavík að Vilhjálmur tæki af skarið með stöðu sína fljótlega. Það er greinilegt að flokksmenn í borginni og víða um land telja nóg komið. Að mínu mati er greinilegt að Vilhjálmi skorti nú stuðning og styrk til að halda áfram. Það er greinilegt að Geir H. Haarde, formaður Sjálfstæðisflokksins, þarf að höggva á þennan hnút ef ekki tekst fljótlega að leysa hann.
Það væri farsælla að Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson hugsaði um heill og hag Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík og tæki þá ákvörðun sjálfur að víkja af leiðtogastóli. Það er alveg ljóst að það verður að taka af skarið fljótlega og tryggja styrka forystu fyrir flokkinn, nú þegar að leiðtoginn er rúinn trausti og trúverðugleiki hans gufaður upp.
![]() |
REI - ætlar Sjálfstæðisflokkurinn ekki að axla ábyrgð? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (49)
9.2.2008 | 17:24
Hættir Barack Obama lífinu fyrir framboðið?

Þetta er vissulega mjög kuldalegt mat og dapurlegt að staðan sé með þeim hætti að fordómar grasseri enn gegn þeldökkum. Fjórir áratugir eru liðnir frá því að blökkumannaleiðtoginn dr. Martin Luther King var myrtur í Tennessee. Morðið á honum var áfall fyrir blökkumenn sem höfðu barist undir forystu dr. Kings fyrir mannréttindum sínum og komist nokkuð áleiðis með mannréttindalögum Johnsons forseta árið 1964, sem hann hafði tekið í arf frá John F. Kennedy, forvera sínum, sem myrtur var í Texas árinu áður og hafði talað mjög fyrir réttindum blökkumanna.
Þrátt fyrir að dr. King átti sér draum um samfélag þar sem allir væru jafnir óháð litarafti hefði hvorki honum né þeim sem gengu með honum í Washington árið 1963 órað fyrir því að nokkrum áratugum síðar ætti blökkumaður alvöru möguleika á að komast alla leið í Hvíta húsið, þó þeim hafi eflaust innst inni dreymt um þann möguleika. Aðeins fjórir þeldökkir (utan Obama) hafa gefið kost á sér til forsetaembættis. Þeirra þekktastur er Jesse Jackson, sem barðist fyrir útnefningu demókrata árin 1984 og 1988, en auk hans hafa Al Sharpton, Shirley Chisholm og Carol Elizabeth Moseley Braun gefið kost á sér.
Mikið var skorað á Colin Powell, hershöfðingja í Persaflóastríðinu, um að gefa kost á sér í forsetakosningunum 1996 sem frambjóðandi Repúblikanaflokksins. Kannanir sýndu að hann átti góða möguleika á að verða forseti Bandaríkjanna. Hann velti fyrir sér þeim möguleika að fara fram af alvöru, en ákvað þó að gefa ekki kost á sér. Eiginkona hans, Alma, var mjög andsnúin framboði hans, af ótta við að hann yrði myrtur færi hann í framboð og myndi sigra Bill Clinton. Powell hefur margoft sagt þá ákvörðun rétta. Powell varð fyrsti þeldökki utanríkisráðherrann árið 2001, í forsetatíð George W. Bush, sem valdi þeldökka konu sem eftirmann hans.
Það hefur margoft verið velt fyrir sér þeim möguleika að blökkumaður yrði forseti Bandaríkjanna og það verið stílfært í kvikmyndum og sjónvarpsþáttum. Í upphafi áratugarins var það lykilsöguþráður í fyrstu sjónvarpsseríu þáttaraðarinnar 24 að ráða ætti þeldökkan forsetaframbjóðanda, David Palmer, af dögum, en hann var þá í fararbroddi þeirra sem sóttust eftir útnefningu Demókrataflokksins. Litlu munaði að þeim tækist það, en atburðarásin tók á sig ýmsar myndir er yfir lauk. Í annarri seríu var Palmer orðinn forseti, fyrstur þeldökkra, og söguþráðurinn snerist enn að mestu um hann. Hann var að lokum myrtur í fimmtu seríunni.
Það er vissulega kuldalegt að tala enn með þeim hætti að blökkumaður verði sjálfkrafa myrtur komist hann nærri flokksútnefningu eða vinni forsetaembættið en þetta er samt veruleikinn. Það eru enn til valdamiklir hópar sem vilja ekki að blökkumaður verði valdamesti maður heims og munu berjast harkalega gegn því. Fordómarnir lifa enn, því miður.
![]() |
Obama yrði myrtur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
9.2.2008 | 11:30
Vilhjálmur leitaði til Hjörleifs - algjört klúður

Vissulega hefur Hjörleifur verið borgarlögmaður, en það eru orðin fimm ár síðan, en hann gegndi því starfi í níu ár við hlið Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur sem borgarstjóra á valdatíma R-listans. Það er einum of langt síðan til að Vilhjálmi til varnar sé talað um að það sé stutt síðan hann hætti, enda var ekki skipað í stöðu borgarlögmanns í rúm tvö ár og svo ekki ráðið í hana fyrr en á síðasta ári þegar að Kristbjörg Stephensen hlaut starfið í meirihlutatíð Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks. Þegar að haft er í huga að álit borgarlögmanns löngu liðinna tíma voru aðalrök Vilhjálms í Kastljósi á fimmtudag er um algjört klúður að ræða.
Er talað er um Hjörleif nú um stundir kemur ekki fyrst upp í hugann orðið borgarlögmaður, þó eflaust ágætis lögfræðingur sé, enda hefur hann gegnt forstjórastarfi í Orkuveitunni síðustu mánuði og var forstjóri fyrirtækisins á umdeildum hluthafafundi í október. Báðir sátu þeir því fundinn og það er ekki traustvekjandi sé Vilhjálmur að tala um hann í þessu tilfelli. Það blasir við að hann hafi veitt Vilhjálmir "lögfræðilega ráðgjöf" á hluthafafundinum sjálfum eða þá rétt fyrir hann. Það er fjarri því að vera traustverðugt fyrir hvorugan manninn og er varla haldbært lögfræðilegt álit. Í öllum þessum hraða virðist hver hafa kóað annan í vitleysunni.
Þeir félagar Vilhjálmur og Hjörleifur báðir eiga á hættu að þurfa að axla ábyrgð vegna þessa máls, bera báðir mikla ábyrgð í því auk Guðmundar Þóroddssonar. Það er kallað eftir því að þeir axli þá ábyrgð og skal engan undra miðað við allt pólitíska klúðrið. Það að Vilhjálmur leiti til forstjóra Orkuveitunnar um lögfræðilegt álit en ekki borgarlögmanns, eins og hann fullyrti æ ofan í æ í afspyrnuslöku viðtali í Kastljósinu, er ekki traustvekjandi og hlýtur að teljast pólitísk afglöp. Ofan á allt annað er fullyrt í Fréttablaðinu í dag að Vilhjálmur hafi skipað Kristbjörgu að tjá sig ekki um málið við fjölmiðla og gengið langt fram í því.
Það er alveg ljóst að Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson þarf að íhuga sína pólitísku stöðu um helgina. Það er í mínum huga orðið fráleitt að hann taki aftur við embætti borgarstjóra í Reykjavík og ég tel að það væri best fyrir Sjálfstæðisflokkinn í Reykjavík að hann myndi taka af skarið um það sem allra fyrst.
![]() |
Forstjóri OR álitsgjafinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
9.2.2008 | 00:19
Aftakaveður um allt land

Það hlýtur að hafa verið alveg skelfileg lífsreynsla að húka um borð í flugvélunum á Keflavíkurflugvelli og komast hvorki lönd né strönd. Finn til með þessu fólki hreinlega að þurfa að bíða þar klukkustundum saman eftir aðstoð til að komast í burtu. Það sannast alltaf vel á þessum stundum hvað við eigum góðar björgunarsveitir sem eru til taks. Þær sanna alltaf mátt sinn er veðrið versnar og við þurfum einhverja aðstoð í nauð.
Annars er best bara að vera heima núna og slappa af og bíða óveðrið af sér. Hér fyrir viku var sama staða uppi í kafsnjókomu. Nú er snjórinn að fara og aðstæðurnar aðrar. En samt sem áður er best að taka því bara rólega í óveðrinu.
Kannski ég horfi bara á meistaraverk John Huston Key Largo, með Bogart og Bacall, á eftir. Það er viðeigandi að horfa á myndina í því leiðindaveðri sem er hérna fyrir norðan þessa stundina - myndin gerist jú í aftakaveðri. :)
![]() |
Flutningi úr flugvélum lokið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 00:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)