Kuldatíð fyrir sunnan - ekki farið eftir tilmælum

Kuldatíð fyrir sunnan Það er nú alveg með ólíkindum að fólk skuli virða að vettugi tilmæli lögreglunnar um að fara ekki Suðurlandsveg í því aftakaveðri sem er nú og fara algjörlega án þess að hika beint út í ófærðina. Mér finnst því fólki varla vera sjálfrátt sem tekur slíkar ákvarðanir vitandi að veðrið er bandvitlaust og algjör ófærð, erfitt að fara um.

Það hlýtur að vera mikið hugsunarleysi í slíkum ákvörðunum og ekki gott að skilja hvers vegna fólk tekur slíkar áhættur. Það má vera að sumir telji að þetta hljóti að reddast og það sé alveg öruggt að það takist að komast heill á áfangastað. Í veðri af þessu tagi og ófærð sem því fylgir er þó teflt á tæpustu vöð algjörlega að óþörfu og óskiljanlegt að nokkur einstaklingur vilji virða tilmæli lögreglunnar að vettugi og halda sína leið vitandi um áhætturnar með því í snjóbyl og ófærð.

Annars er þetta einn kuldalegasti vetur fyrir sunnan í mörg herrans ár. Hef heyrt á þeim sem ég þekki fyrir sunnan að þeir séu orðnir langþreyttir á kuldatíðinni og bíði vorsins með óþreyju. Enda ekki furða að sólarlandaferðirnar um páskana séu uppseldar og vel það. Fólkið er farið að þrá sólina. Hér fyrir norðan þekkjum við snjóinn og þau vandamál sem fylgja honum mjög vel og efast um að hér myndi fólk fara út í óvissuna eins og fjallað er um í þessari frétt.

Við verðum að vita að það er ekki hægt að fara um í kuldatíð eins og gert er í góðu veðri. Það er því furðulegt að sjá fólk taka slíkar áhættur að óþörfu, fullorðið fólk sem ætti að vera vel meðvitað um hvernig aðstæður eru.

mbl.is Suðurlandsvegur ófær
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rússnesk kosning Medvedevs - Pútín ríkir áfram

Pútín og Medvedev Það kemur engum að óvörum að Dmitri Medvedev, handvalinn eftirmaður Vladimírs Pútíns, hafi verið kjörinn forseti Rússlands. Það sýnir bara traust tök Pútíns á rússneskum stjórnmálum, enda er vel ljóst að hann ætlar sér að vera þar áfram við völd og verða forsætisráðherra að nýju, en hann gegndi því embætti í nokkra mánuði árið 1999, áður en Borís Jeltsín sagði af sér og Pútín varð starfandi forseti í nokkra mánuði áður en hann var kjörinn formlega í mars 2000.

Þeir eru fáir sem hafa unnið betur við að efla vald sitt, rækta liðshjörð sína betur og stýrt heilu ríki eins og taflborðinu heima hjá sér; allt undir yfirskini þess að það sé lýðræðislegt, en Vladimir Pútín. Að mínu mati hefur Rússland Pútíns verið að þróast út í hreint einræðisríki; Pútín líkist Bréznev gamla æ meir með degi hverjum. Hann er dómínerandi leiðtogi og tök hans á fjölmiðlum og pólitískum ákvörðunum jaðra við ríki eins manns. Það er því eftir öðru að hann handvelji eftirmanninn og haldi því opnu að snúa aftur í forsetakosningunum 2012.

Með því að velja eftirmann sinn prívat og persónulega og útnefnt sjálfan sig í leiðinni, með góðvild handvalda forsetaefnisins að sjálfsögðu, sem forsætisráðherra frá og með vorinu hefur Pútín sýnt vel vald sitt og yfirburði. Það var áhugavert að kynnast sögunni á bakvið veldið enn betur í tveim sjónvarpsþáttum fyrir nokkrum vikum og sjá í hvaða átt stefnir. Þessi kapall nú sýnir umfram allt pólitísk klókindi bragðarefsins Pútíns og hversu öflugur risi hann er.

Það verður ekki sagt annað en að Medvedev verði eins og strengjabrúða undir stjórn Pútíns og viðhaldi veldi hans, enda er Pútín ekki á förum. Í sögulegu ljósi er sérstaða Medvedevs einkum tvíþætt. Hann verður yngsti þjóðhöfðingi Rússlands frá því að síðasti keisari Rússlands, Nikulás 2., tók við völdum 26 ára gamall árið 1894 og Medvedev verður fyrsti leiðtogi Rússlands með bakgrunn í einkageiranum, enda er hann stjórnarformaður í hinum ríkisrekna orkurisa Gazprom og hefur víðtækar tengingar víða ennfremur.

Medvedev háði ekki mjög litríka kosningabaráttu. Hann var alla tíð talinn öruggur um kjör í forsetaembættið. Hann tók ekki þátt í kappræðum við aðra forsetaframbjóðendur, háði litla sem enga virka kosningabaráttu en fór með Pútín um Rússland til að heimsækja fyrirtæki og stofnanir og sýndi með því nærveru sína í daufustu kosningabaráttu um eitt valdamesta embætti heims, á sama tíma og forsetaframbjóðendur í Bandaríkjunum eru að eyða fúlgu fjár, tíma og fyrirhöfn í baráttu um Hvíta húsið.

Pútín hefur á átta árum markað sig sem hinn afgerandi drottnara veldis síns. Staðan í Rússlandi er mikið áhyggjuefni. Mér finnst þar horfa ansi margt til fortíðar og vert að hugsa um framtíðina sem blasir við. Pútín ætlar sér ekki að hverfa út í sólarlagið eins og George W. Bush, sem brátt lætur ennfremur af embætti, eftir jafnlangan tíma á valdastóli.

Pútín ætlar sér að stjórna atburðarásinni eins og kvikmyndaleikstjóri úr fjarska, halda um alla spotta og ráða örlögum landsins, jafnt sem stuðningsmannahjörðar sinnar. Hann ætlar sér að vera meginspilari áfram á sviðinu. Það verður áhugavert að sjá hversu mikil strengjabrúða í höndum skapara síns nýr forseti muni vera.

mbl.is Medvedev kjörinn forseti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Venlige hilsen í Crawford - blaðamanni hótað

Bush- og Rasmussen hjóninÞað er ekki hægt að segja annað en Anders Fogh Rasmussen, forsætisráðherra Danmerkur, og eiginkona hans fái vinalegar móttökur hjá Bush-hjónunum í Crawford í Texas. Þetta hljóta að teljast höfðinglegustu móttökur sem norrænn þjóðarleiðtogi hefur fengið í Bandaríkjunum svo lengi sem elstu menn muna. Með þessu er greinilega Bush forseti að launa danska forsætisráðherranum stuðninginn í Íraksstríðinu og eftirmála þess.

Á sömu stund er dönskum blaðamanni hótað af konu á svæðinu, horfir í byssuhlaupið hjá henni. Það vantar ekki andstæðurnar. Eflaust verður rætt í kjölfarið um byssueign Bandaríkjamanna en það verður ekki annað sagt en að suddalegur fjöldi skotvopna sé þar og hefur mikið verið fjallað um það. En það er ábyggilega frekar nöturlegt að vera blaðamaður af rólegu svæði og lenda í svona menningu sem blómstrar í suðurríkjum Bandaríkjanna.

En það er merkilegt að sjá notalegar móttökur. Það er greinilegt að sá danski er mikils metinn hjá bandaríska forsetanum.


mbl.is Dönskum blaðamanni ógnað í Texas
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vetrarríkið í Eyjum

Vetrarveður í Eyjum Þær eru hálfkuldalegar fréttirnar frá Vestmannaeyjum í dag og greinilega best fyrir fólk þar að hafa það rólegt heima og gera eitthvað annað en líta út um gluggana. Það má allavega vera mikið veður þegar að meira að segja björgunarsveitirnar geta ekki ferjað starfsfólk sjúkrahússins úr og í vinnu.

Mér finnst Vestmannaeyjar einn fallegasti staður landsins og þangað er alltaf gaman að koma. Finnst fáir staðir fallegri á notalegu sumarkvöldi en Vestmannaeyjar og stemmningin á þjóðhátíð er engu lík. Hef aldrei komið þangað í vetrarveðri og óska mér svo sannarlega ekki að vera staddur þar í þessu aftakaveðri, þó það sé önnur upplifun en notalegt sumarkvöld.

En vonandi fer að birta yfir í Eyjum og veðrið að batna, allavega hið minnsta að hægt sé að koma á annarri vakt á sjúkrahúsinu.

mbl.is Innisnjóaðir Vestmannaeyingar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þreytt Spaugstofa - erlent efni í metpláss RÚV

SpaugstofanHeldur fannst mér eitthvað dapurt yfir Spaugstofunni í kvöld. Það verður að segjast alveg eins og er að þetta prógramm er orðið ansi þreytt og eitthvað slitið. Það er ekki nema von að spurt sé hvort að þetta sé síðasti vetur þeirra félaga saman. Sá á áhorfsmælingum að áhorfið á þá hefur eitthvað dregist saman og það kemur mér ekki að óvörum. Þetta er orðið frekar slitinn húmor.

Vakti athygli mína í kvöld að Sjónvarpið ætlar ekki að fylla metplássið sitt, þar sem Laugardagslögin voru í um tuttugu vikur, með íslensku efni. Ekki sakna ég svosem Eurovision-glamursins, sem lauk um síðustu helgi með glæsilegum sigri Eurobandsins, enda fannst mér það vera einum of langdregið og teygt prógramm, sem hefði hæglega mátt ljúka tveim mánuðum, hið minnsta, fyrr að ósekju. Það voru margir orðnir þreyttir á þessum margteygða lopa og fögnuðu þegar að það komst loksins í mark með sigurlagi eftir lengstu undankeppni Eurovision fyrr og síðar.

Það horfðu 60-80% landsmanna á lokasprett Laugardagslaganna og greinilegt að þetta er sjónvarpspláss sem hægt er að gera góða hluti með. Það er því stórundarlegt að Sjónvarpið fylli ekki upp í það með nýjum sjónvarpsþætti eða íslensku efni af einhverju tagi en setji þess í stað einhverja tískutónleika og svo erlenda kvikmynd að því loknu. Það væri vonandi að Þórhallur myndi finna eitthvað gott prógramm í staðinn. Ekki sýnist mér á frammistöðu kvöldsins að Spaugstofan muni fylla vel í skarðið.


Bloggfærslur 2. mars 2008

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband