30.3.2008 | 14:33
Vinir Hannesar Hólmsteins leggja honum lið

Það má vel vera að einhverjum hafi mislíkað ævisaga Halldórs Kiljans Laxness eftir Hannes en það er ekki glæpur að skrifa illa eða stílisera ekki fyrir alla sem hafa mært skáldið upp til skýjanna. Það geta enda flestir verið sammála um bækur Hannesar voru fróðlegar og bættu við hina þekktu ævisögu skáldsins og voru mun ítarlegri en t.d. bækur Halldórs Guðmundssonar.
Það er mikilvægt að leggja Hannesi lið í þessari baráttu og því er það gott skref hjá góðvinum hans að senda frá þessa táknrænu og traustu vinaryfirlýsingu. Og ég tek heilshugar undir skilaboð þeirra, enda met ég Hannes Hólmstein mikils.
![]() |
Söfnun fyrir Hannes Hólmstein |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
30.3.2008 | 12:28
Kjarklítill ræningi með hníf í sitt hvorri hendi

Veit varla hvað á orðið að segja um þessi rán í borginni. Þetta er að verða daglegur viðburður og því miður eru ekki lengur stórtíðindi í sjálfu sér að ógæfufólk fari inn í verslanir og ætli þar að ræna einhverjum þúsundköllum. Þetta er ólánsfólk sem svona gerir og neyðin er greinilega mikil. Ekki er mikið skipulagt því að ránin eru framin vegna þess að fólki vantar peninga til að fjármagna neyslu eða eitthvað af því tagi.
Það er eitthvað orðið stórlega að í samfélaginu þegar að staðan er orðin með þessum hætti. Fyrst og fremst er þetta sorglegt, í raun er þetta fólk að einhverju leyti að kalla á hjálp held ég með því að sjá ekkert annað í stöðunni en ræna verslanir til að fá pening. Það eru miklar ólánssögur á bakvið hverja svona ránstilraun.
![]() |
Ránstilraun í Reykjavík |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
30.3.2008 | 01:25
Samgöngusagan endalausa um Sundabrautina

Samt eru auðvitað allir hlynntir því að hún verði lögð en deilt er um hvernig og hvar. Sagan um Sundabrautina er fyrir löngu orðin samgöngusagan endalausa. Mér finnst álit Ísleifs Jónssonar mjög merkilegt, en þar er í raun gangnapælingin mikla og rándýra slegin út af borðinu og vandséð hvernig hægt sé að draga álit Ísleifs, sem er fyrrum yfirmaður hjá Jarðborunum, í efa. Eflaust er þar komin upp enn ein nýja hliðin sem deilt verður um von úr viti. Sumir vilja svo að auki meina að Vegagerðin vilji ekki göng og þar komi að auki að samgönguráðherrann vilji ekki Sundagöng og sé á móti hugmyndinni.
Þegar að ég fór í rútuferð með borgarstjórnarflokki Sjálfstæðisflokksins um borgina haustið 2003 var rætt mikið um Sundabrautina og fórum við að þeim stað þar sem brautin átti að liggja þá og kynntu Hanna Birna Kristjánsdóttir og Kjartan Magnússon okkur sem þátt tókum í ferðinni þær tillögur sem þá var rifist um. Ekkert gerðist í málinu í borgarstjóratíð Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur sem eftirminnilegt er og man ég eftir að þá töluðu Hanna Birna og Kjartan mjög mikið um hábrú eða lágbrú og innri eða ytri leið Sundabrautar. Þá talaði enginn um göng og óraði sennilega ekki fyrir að koma með þann valkost.
Fimm árum eftir þessa ferð eru mál komin fjarska skammt á veg nema þá að ræða um misjafnlega háleitar og dýrar hugmyndir af þessum samgöngukosti. Það er enn svolítið sérstakt að fylgjast með umræðunni þó að hún sé gegnumslitin og eiginlega hundleiðinleg, einkum fyrir borgarbúa sem greinilega eru að missa þolinmæðina og skal engan undra. Þrátt fyrir allrahanda meirihlutamynstur í borginni hefur þetta mál ekkert þokast fram og ekki var að sjá að Samfylkingin græddi eitt né neitt á því að hafa samgönguráðuneytið samhliða því að þeir réðu Ráðhúsinu í hundrað daga á pólitískum hitavetri í borginni.
Það er ekki laust við að reiði borgarbúa beinist að Kristjáni Möller, samgönguráðherra, rétt eins og að Sturlu Böðvarssyni áður. Báðir eru landsbyggðarmenn og Reykvíkingar tala um að landsbyggðarliðið sé að drepa málinu á dreif. Minna verður þó á að enginn landsbyggðarmaður verður ráðherra eins síns liðs, verða jú að hafa stuðning borgarbúa í þingflokkum stjórnarflokkanna. Tveir fyrrum borgarstjórar í Reykjavík eru á Alþingi og báðir úr Samfylkingunni; Ingibjörg Sólrún og Steinunn Valdís - sú síðarnefnda er reyndar formaður samgöngunefndar Alþingis og virðist súr á svipinn.
Samgöngusagan endalausa um Sundabrautina virðist fjarri því að enda á næstunni, þökk sé deilum um göng eða ekki göng, legu hennar og hvort eigi að tengja þær við eyjar eður ei og Guð má vita hvaða deilur aðrar eru í þessum viðkvæma pólitíska pakka. Á meðan að allir lofsyngja drauminn um Sundabrautina er biðin löng eftir því að efna eigi hina veglegu pólitísku drauma höfuðborgarstjórnmálamanna fyrr og nú.
![]() |
Varar við Sundagöngum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 01:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)