6.3.2008 | 22:42
Fjöldamorð í Jerúsalem - Hamas fagnar drápum

Þessi árás er greinilega pólitísk skilaboð frá Hamas. Mér finnst vissulega staðan í Mið-Austurlöndum fjarri því góð en mér finnst þau samtök sem drepa ungt fólk með svo kaldrifjuðum hætti og fagna þeim vígum opinberlega ekki vinna málstað sínum mikils fylgis eða samúðar.
Það er dapurlegt þegar að pólitískar væringar eru orðnar svo kuldalegar og tilfinningalausar að drepa þurfi ungt fólk svo ógeðslega til að koma skilaboðum á framfæri.
![]() |
Átta létust á árás á skóla í Jerúsalem |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
6.3.2008 | 21:45
Glæsilegt hjá MA!

Þetta er í þriðja skiptið á síðustu fjórum árum sem Menntaskólinn á Akureyri er í úrslitakeppninni í Gettu betur. Skólinn vann keppnina árið 2006 og sigraði þá Verzló en tapaði fyrir Borgarholtsskóla árið 2005. Það ræðst svo á morgun hvort skólinn mætir MR, meisturum síðasta árs, eða Borgarholtsskóla.
Keppnin átti sínar hápunkta. Verð að viðurkenna að mér leist ekkert á blikuna þegar að MA flaskaði á spurningunni um Ronald Reagan og skaut á Bill Clinton, vitandi að viðkomandi fæddist í febrúar árið 1911. En þetta hafðist þrátt fyrir þá vandræðalegu villu.
En já; flott hjá MA! Þetta verður fjör í næstu viku.
![]() |
Menntaskólinn á Akureyri kominn í úrslit |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
6.3.2008 | 19:51
Mikil mildi að vel fór - myndir af bílflökum
En mér finnst spes þessar myndbirtingar NetMoggans af bílflökum, eftir hin ýmsu slys. Finnst þessar myndir af bílflökum ekki hafa neitt fréttagildi í sjálfu sér.
Finnst þetta einna mest áberandi hjá Mogganum og eðlilegt að velta því enn einu sinni fyrir sér. Eru hálf undarlegar myndbirtingar af þessu tagi.
![]() |
Bíll í Reykjavíkurtjörn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
6.3.2008 | 19:18
Vísindalegar kynlífsmælingar á bandarískum staðal?
Það sem mér fannst reyndar fyndnast hvað varðar þessa "hávísindalegu" könnun er að hún er byggð á upplýsingum kynlífsfræðinga og sérfræðinga en ekki fjölda fólks, þetta er semsagt ekki könnun byggð á fjölda fólks, eða það er freistandi að telja það. Ekki er gott svosem að giska á hversu margir stúdera þessi fræði einvörðungu. Það er reyndar ekki svo gott að fullyrða að þetta sé fámennur hópur, en hvað með það.
Þessir sérfræðingar virðast vera nokkuð sérstakir í sínu mati og áhugavert að vita ef gerð yrði könnun meðal evrópskra eða norrænna sérfræðinga í sömu fræðum hver niðurstaðan væri. Ætli að það myndi ekki bætast eitthvað í mínútufjöldann?
![]() |
Kynmök taki sjö til þrettán mínútur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
6.3.2008 | 13:48
Patrick Swayze með briskrabbamein
Það eru dapurleg tíðindi að leikarinn Patrick Swayze hafi fengið krabbamein í bris og berjist fyrir lífi sínu. Það er reyndar mjög deilt um það nú í fjölmiðlum hversu erfið barátta hans muni verða og sumir fjölmiðlar hafa gengið mjög langt í að nefna tímamörk þess sem hann eigi eftir ólifað en talsmenn leikarans dregið það til baka. Engu að síður blasir við öllum að briskrabbamein eru lífshættuleg veikindi og batavonir því miður mjög litlar.
Patrick Swayze er vissulega einn þessara leikara sem átti sitt gullaldarskeið og hefur lifað í skugga þess um nokkuð skeið. Hann var gríðarlega vinsæll á níunda áratugnum og í byrjun þess tíunda og lék í stórum og flottum kvikmyndum með rómantísku ívafi. Það verður varla um það deilt að Dirty Dancing er stærsta myndin hans; hún kom af stað miklu æði og sennilega var hún stærsta kvikmynd ársins 1987. Swayze og Jennifer Grey voru flott í myndinni, sem varð ein eftirminnilegasta dans- og söngvamyndin á níunda áratugnum.
Swayze átti glæsilegan hápunkt á ferlinum ennfremur með vasaklútamyndinni Ghost, þar sem hann lék látinn mann, Sam, sem vildi koma skilaboðum til kærustunnar sinnar, Molly Jensen, og vildi vara hana við hættunni frá þeim sem myrtu hann. Allir muna eftir ástarsenunni frægu (sjá efri klippuna) í keramikgerðinni þar sem Swayze og Demi Moore létu allt flakka með gamla slagarann Unchained Melody (sem varð vinsælt aftur svo um munaði) ómandi undir. Myndin sló í gegn og Whoopi Goldberg fékk óskarinn fyrir að túlka svikamiðilinn Odu Mae Brown með glæsibrag.
Þegar að farið er í nostalgíuna og rifjað upp gömul augnablik er sannarlega við hæfi að rifja upp dansatriðið margfræga úr Dirty Dancing. Undir hljómar hið sívinsæla lag I´ve Had The Time Of My Life, sem hlaut óskarinn sem besta kvikmyndalagið árið 1988. Það er svo bara að vona að Patrick Swayze nái að sigrast á þessum veikindum.
![]() |
Patrick Swayze með krabbamein |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 22:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
6.3.2008 | 11:37
Gates fellur af stalli - ríkidæmi Björgólfsfeðga
Það eru mikil tíðindi að auðjöfurinn Bill Gates sé fallinn af stallinum sem ríkasti maður heims, en ég held að það sé rétt munað hjá mér að Gates hafi drottnað efstur á honum síðan 1993 allavega, eða eitthvað þar um bil hið minnsta, 13-14 ár. Warren Buffet er nú orðinn voldugri en tölvurisinn mikli sem hefur verið umtalaður sem sá ríkasti.
Ríkidæmi Björgólfs Thors Björgólfssonar er það mikið að hann kemst ofarlega á listann. Eru þeir feðgarnir báðir á listanum en þó neðar en í fyrra; Björgólfur Thor er í 307. sæti en var í því 249. síðast og faðirinn í því 1014. en var í 799. sæti síðast. Eignir Björgólfs Thors eru metnar á 3,5 milljarða dollara, rétt eins og í fyrra, en Björgólfs eldri á 1,1 milljarða dollara, en það var 1,2 milljarðar fyrir ári.
Þó þeir hafi lækkað á listanum er það mikið ríkidæmi og Thorsættin er enn mjög áberandi heldur betur. Björgólfur Thor varð fyrsti Íslendingurinn sem komst á lista Forbes yfir ríkustu einstaklinga heimsins. Veldi Björgólfsfeðga er eins og flestir vita upprunnið úr gosdrykkja- og bjórverksmiðjum í Rússlandi. Það var mjög merkilegur þáttur af Sjálfstæðu fólki þegar að Jón Ársæll fylgdi Ólafi Ragnari í heimsókn til Rússlands þar sem hann var að mæra bransa Björgólfsfeðga.
Hefði fáum órað fyrir slíkum hóli við upphaf Hafskipsmálsins að Ólafur Ragnar myndi mæra þá feðga. En svona er nú heimurinn oft kaldhæðinn. En já, það er semsagt lexían að ríkidæmi Björgólfsfeðga og Gates minnkar frá síðasta ári samkvæmt Forbes-listanum - þó heldur mikill munur sé á þeim breytingum.
![]() |
Warren Buffet ríkastur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
6.3.2008 | 00:36
Ánægjuleg tíðindi
Skrifaði aðeins um þetta í dag. Fékk tölvupóst frá manni sem var tengdur einstaklingi sem hvarf sporlaust fyrir rúmum áratug en aldrei hefur verið upplýst hvað varð um. Heyrði smá af þeirri sögu. Það var áhugavert og ég vil þakka þennan póst. Það er aldrei hægt að setja sig í spor þeirra sem upplifa slíkan missi og þurfa að lifa með mörgum erfiðum spurningum alla tíð, sem aldrei fást sennilega traust svör við. Það eru erfið örlög að lifa með þegar að um er að ræða ættingja eða ástvin.
Lexían af þessu er að mikilvægt er að leitin hefjist fljótlega og tekið sem fyrst á málum þeirra sem skila sér ekki heim. Sem betur var mál þessa manns ekki eitt af þeim og ánægjulegt að hann hafi fundist svo fljótt sem raun ber vitni.
![]() |
Sigurbjörn kominn fram |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
6.3.2008 | 00:09
Sáttatónn í fornum keppinautum í Hvíta húsinu

Fyrir átta árum börðust McCain og Bush forseti hatrammlega um útnefningu repúblikana. Bush var lengst af fyrir forkosningaslaginn með pálmann í höndunum en hann varð fyrir miklu pólitísku áfalli er hann tapaði fyrir McCain í New Hampshire, stokkaði þá upp kosningabaráttu sína og réðist harkalega að McCain og einkum herferli hans í Víetnam. Var um að ræða eina harkalegustu persónulegu árás í bandarískum forkosningaslag. Með þeim tónum náði Bush að snúa stöðunni við með sigri í Suður-Karólínu og náði hnossinu mikla eftir blóðugan slag um smátíma sem náði hámarki með skítkastinu í suðurríkjunum.
Átta árum síðar er Bush að hætta í stjórnmálum, getur ekki gefið kost á sér til endurkjörs og er á heimleið til Texas eftir tíu mánuði. Nú er hinn forni keppinautur um Hvíta húsið orðinn forsetaframbjóðandi Repúblikanaflokksins og berst fyrir því að flokkurinn haldi valdamesta embætti heims, verði áfram miðpunktur valdatafls heimsins. McCain og Bush eru mjög ólíkir stjórnmálamenn og hafa ólíkan bakgrunn og reynslu fram að færa. Það er svolítið merkilegt að sjá nú Bush verja hinn forna keppinaut, heita honum stuðningi og tryggð og virka nokkurn veginn sannfærandi í því.
Andar liðinna tíma hljóma í bakgrunninum engu að síður. Forkosningaslagur þeirra fyrir átta árum var harður og spennandi um smátíma og er eftirminnilegur í sögulegu ljósi. Nú þegar að völdin í flokknum eru smátt og smátt að færast yfir til McCain er stuðningur forsetans honum mikilvægur, einkum í suðurríkjunum. Þrátt fyrir að McCain verði elsti forseti Bandaríkjanna nái hann kjöri markar valið á honum sem forsetaefni viss þáttaskil í Repúblikanaflokknum.
John McCain var reyndar hinn stóri sigurvegari forkosninga míní-útgáfu ofur-þriðjudags. Ekki aðeins hefur hann hlotið útnefninguna og getur farið að skipuleggja framboð sitt og velja varaforsetaefni heldur getur hann slappað af og horft úr fjarlægð á harðvítuga baráttu Obama og Hillary um útnefningu demókrata næstu sjö vikurnar hið minnsta. Það er sannarlega mikill munaður.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 00:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)