15.4.2008 | 16:54
Er Sveðju-Plank pólskur leigumorðingi?
Skil ekki af hverju hinn meinti pólski sveðjumorðingi Premyslaw Plank er með hettu fyrir utan Héraðsdóm. Hann kom fram í Kastljósi í gærkvöldi og varla nein þörf á því fyrir hann að hylja andlit sitt. Í því viðtali sagðist hann reyndar aldrei hafa komist í kast við lögin hér. Það leið ekki á löngu uns það var blásið af borðinu. Í dag birti Vísir mynd af handtöku hans hérlendis í síðasta mánuði.
Reyndar hefur fulltrúi saksóknara í Póllandi sagst hafa óyggjandi sannanir um sekt Planks í sveðjumorðinu margumtalaða. Þar er því haldið fram að Plank sé vægðarlaus sérfræðingur hjá glæpaklíku ytra og hafi verið leigumorðingi þeirra, alveg vægðarlaus hrotti. Það er greinilegt að þeir virðast hafa nokkuð traust mál á hendur honum.
Eins og ég sagði hér í gær tel ég að það eigi að framselja Plank sem fyrst til síns heima. Það er algjör óþarfi á því að við séum að vista hann hér og við eigum að láta hann svara til saka á heimavelli sínum. Alveg óþarfi fyrir okkur að vera að taka hann upp á okkar arma í þeirri baráttu sem hann á fyrir höndum.
Þetta mál allt minnir frekar á atburðarás í svæsinni bandarískri glæpamynd. Þetta er ekki veruleiki sem ég tel að við viljum hér og það er afleitt ef Ísland er að breytast í einhvern griðastað fyrir erlent glæpafólk.
Er mér nokkuð sama í sjálfu sér hvort hann sé sekur eða saklaus. Það er hið eina rétta að framselja manninn úr landi.
![]() |
Úrskurðaður í gæsluvarðhald til 6. maí |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
15.4.2008 | 15:42
Álver sett á dagskrá - bæ bæ "Fagra Ísland"

Staða mála er mjög afgerandi. Samfylkingin hefur ekkert gert til að fara þá leið og hefur látið þessa kosningastefnu fyrir róða í raun. Það er bara staðreynd, sem ekkert fær breytt. Greinilegt er að niðurlæging Þórunnar Sveinbjarnardóttur, umhverfisráðherra, í málum Helguvíkurálvers er algjör. Hún var annar af tveim þingmönnum Samfylkingarinnar sem kusu gegn Kárahnjúkavirkjun en hefur nú blessað í raun álver við Helguvík með verkum sínum að undanförnu. Það gerir hún þó greinilega með óbragð í munni, leit ekkert hamingjusamlega út allavega þá.
En var ekki Fagra Ísland alltaf draumórar? Aðeins hentistefna sem sett var fram kortéri fyrir kosningar, til að reyna að koma í veg fyrir að VG yrði stærsti vinstriflokkurinn í alþingiskosningunum 2007. Hef alltaf talið svo vera. Þegar að Ingibjörg Sólrún kynnti Fagra Ísland á sínum tíma var ég viss um að þar væri um að ræða hentistefnu. Skrifaði um það ítarlega grein í september 2006. Get ekki betur séð en að þar hafi mjög margt ræst. Þá þegar voru Samfylkingarmenn á heimavelli að berjast fyrir stóriðjukostum í Helguvík og Bakka, eins og allir vita.
Þessi stefnuáhersla Samfylkingarinnar kom mörgum spánskt fyrir sjónir þegar að litið var á þá staðreynd að Samfylkingin var mjög afgerandi í stuðningi sínum við Kárahnjúkavirkjun og álver á Austurlandi fyrir nokkrum árum. Sérstaklega voru þingmenn flokksins í Norðausturkjördæmi, þeir Kristján L. Möller og Einar Már Sigurðarson, afgerandi stuðningsmenn þess og sagði Kristján í viðtali að loknum blaðamannafundi þá að hann væri enn þeirrar skoðunar að álver hafi verið réttur kostur fyrir austan. Sjálf studdi reyndar ISG virkjunina í borgarstjórn.
Veit ekki hvort að það teljast tíðindi að Fagra Ísland sé í raun gufað upp úr stefnupólisíu Samfylkingarinnar. Og þó. Mikil áhersla var lögð á þetta plagg. Þeir hljóta að bera harm sinn í hljóði sem sömdu þetta plagg fyrir Ingibjörgu Sólrúnu á sínum tíma, en hafa reyndar nú nýlega varið einkaflug formannsins opinberlega, eru allavega mun rólegri í harmi sínum en þeir sem kusu flokkinn og hafa þorað að tjá sorg sína á bloggsíðum. Enda voru þeir illa sviknir sennilega. En svona er víst pólitíkin.
![]() |
Reikna með Helguvíkurálveri |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
15.4.2008 | 12:46
Goðsögnin Marilyn

Held að allir kvikmyndaáhugamenn, þeir sem dýrka eitthvað stjörnuglysið, séu innst inni skotnir í Marilyn. Hún var ekki aðeins þokkadís sjötta áratugarins, heldur 20. aldarinnar í raun. Engin kona skein skærar með kynþokkanum einum og enn í dag eru sögur sagðar af lífi hennar, bæði sorgum og sigrum. Líf hennar var hálfgerð sorgarsaga undir öllu glysinu og glamúrnum. Glassúrhúðin yfir þessari viðkvæmu konu, sem varð stjarna sumpart fyrir tilviljun og breytti sér frá a-ö bara fyrir að meika það í Hollywood, virkaði merkilega sönn.
Fyrir ekki svo löngu horfði ég á hina ógleymanlegu stórmynd Billy Wilder, The Seven Year Itch - sennilega í vel yfir hundraðasta skiptið. Marilyn Monroe var aldrei flottari en þar - þetta var hápunktur ferils hennar. Nafnlausa ljóskan á efri hæðinni í fjölbýlishúsinu sem hún gerði algjörlega stórfenglega var hlutverkið sem hún festist reyndar einum of mikið í. Þessi mynd hefur alltaf heillað mig. Marilyn var auðvitað goðumlík leikkona, ekki endilega fyrir leiktúlkunina eina heldur fyrir karakterinn og þann sjarma sem hún hafði. Hún var sjarmatröll aldarinnar.
Marilyn fékk aldrei þann sess sem alvöruleikkona sem hún hefði átt að hljóta. Hún lék reyndar ansi oft heimsku ljóskuna en hún sýndi og sannaði t.d. í Bus Stop að hún leikið dramatík frá a-ö. Í Seven Year Itch er hún lifandi fersk og þar er kómík eins og hún gerist best. Þar er eftirminnilegasta atriðið með Marilyn á ferlinum - er kjóll hennar lyftist örlítið upp í vindinum við lestarstöðina. Á auglýsingaskiltum var það reyndar ýkt allverulega, enda er það mun hófstilltara í myndinni sjálfri. Þeir kunnu að auglýsa myndir í Hollywood þá.
Marilyn hefði víst orðið 82 ára á þessu ári, hefði hún lifað. Það sér enginn eilífðarljóskuna miklu fyrir sér sem gamla konu. Sá þó fyrir nokkrum árum tölvugerða mynd þar sem sérfræðingar ímynduðu sér hvernig Marilyn liti út sem gömul kona. Var glettilega vel gerð mynd, kannski fullýkt en allavega ein tilraunin til að ímynda sér hvernig lífið hefði farið með þessa stórstjörnu hefði hún lifað af mótlæti lífsins.
Hún dó á tindi síns ferils, var sett í dýrlingatölu meðal kvikmyndaáhugamanna og hefur goðsagnarsess. Það var napurt á tindi frægðarinnar og hún varð fórnarlamb glyssins. Sagan hennar markast af sorg og glamúr í senn. Merkileg saga, eiginlega of ótrúleg að vera sönn. En allt getur gerst í Bandaríkjunum, ekki satt?
![]() |
Kynlífsmyndband með Monroe |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 16:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.4.2008 | 12:18
Fyrirsögn dagsins
Það er mikils virði að vera með góðar fyrirsagnir í blöðum til að vekja athygli. Þeim hjá 24 stundum tekst það alveg klárlega.
![]() |
Harðir á strippinu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.4.2008 | 10:30
Af hverju kærir stúlkan ekki?
Sérkennileg skilaboð eru í þeirri staðreynd að stúlka fari til lögreglu og leiti þar réttar síns, tilkynni um nauðgun og geri eitthvað í málunum en láti svo málið niður falla. Finnst þetta aðallega dapurlegt, en það er einhver saga þarna á bakvið sem greinilegt er að veldur því að stúlkan fer ekki með málið lengra. Eftir fyrri umfjöllun vekur þessi staðreynd upp margar spurningar.
![]() |
Stúlkan ætlar ekki að kæra |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
15.4.2008 | 09:08
Hillary fær sér bjór og viskískot á bar í Indiana
Hló vænt þegar að ég sá klippu af Hillary Rodham Clinton fá sér viskískot og bjórglas á bar í Indiana um helgina. Auðvitað var þetta gert til að Hillary virkaði í tengslum við almenning eftir fræg snobbummæli Obama, sem hann var að reyna að verjast alla helgina. Þetta er djarft hjá Hillary, en varla verður hún sökuð um snobb eftir þetta. Lítið á klippuna allavega.
15.4.2008 | 00:29
Pólverjinn handtekinn - mikilvægt að breyta lögum
Fagna því að pólski maðurinn hefur verið handtekinn, í kjölfar þess að handtökuskipun barst. Finnst skipta litlu máli hvort maðurinn er saklaus eða sekur um morðið ytra. Hann þarf að svara fyrir þau mál á heimavelli og réttast er að framselja hann til pólskra yfirvalda. Sjálfsagt er að taka vel á móti útlendingum en taka verður á málum þeirra sem brjóta af sér og í þessu tilfelli er ómögulegt að gera ekki neitt.
Þetta mál er í alla staði mikil lexía fyrir okkur, en reglur um framsal sakamanna eru flóknari og strangari hér en innan Evrópusambandsins. Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra, hefur nú þegar tekið á málinu með lagafrumvarpi um einföldun á framsalsreglum. Það er afleitt að Ísland verði einhvers konar skjól þeirra sem brjóta af sér og eru sakaðir um alvarlegan glæp.
Skil reyndar ekki af hverju Pólverjar voru svo seinir að koma með alþjóðlega handtökuskipun. Við lærum þó okkar lexíu á svona málum vonandi - mikilvægt er að nýjar framsalsreglur verði staðfestar sem fyrst.
![]() |
Efirlýstur maður handtekinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 01:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)