Bílstjórar reknir fyrir að taka þátt í mótmælum?

Frá mótmælum Kjaftasagan er að nokkrir bílstjórar sem handteknir voru í morgun vegna mótmælanna á Suðurlandsvegi verði reknir fyrir að taka þátt í þeim. Vinnveitendur þeirra hafi bannað þeim að taka þátt og gegn þeirra ákvörðunum hafi bílar fyrirtækja þeirra verið í mótmælunum og notaðir til að blokkera umferð.

Alls voru 21 handtekinn í aðgerðum lögreglunnar í dag og hald var lagt á bílana sem notaðir voru í mótmælunum á Suðurlandsvegi og mun lögreglan væntanlega hafa þá í sinni gæslu næstu dagana. Sumir eigendur bílanna vilja frekar fá bílana en bílstjórana aftur, skilst manni.

Það hlaut að koma að því að syði upp úr milli bílstjóra og lögreglu. Fannst mótmælin renna endanlega út í sandinn í dag. Bílstjórar hafa misst sín spil, færðu ekki bílana eftir skamma stund við mótmæli og gengu alltof langt. Greinilegt er að þeir sem hafa þá í vinnu vilja ekki heldur sjá þá framar við að keyra þessum bílum sem blokkeruðu Suðurlandsveginn.

mbl.is Mótmælin fóru úr böndunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ólafur ráðinn ritstjóri Morgunblaðsins

Óli Steph Líst mjög vel á að Ólafur Þ. Stephensen hafi verið ráðinn ritstjóri Morgunblaðsins í stað Styrmis Gunnarssonar, sem lætur af störfum eftir farsælt verk áratugum saman hjá Mogganum í júníbyrjun. Ólafur hefur staðið sig mjög vel sem ritstjóri 24stunda og gert það blað að því besta í morgunlestrinum dag hvern, ferskt og vandað í senn.

Tel að það sé vel valið hjá eigendum Árvakurs að velja Ólaf til að stýra Mogganum inn í nýja tíma, sem óneitanlega fylgja ritstjóraskiptum þegar að Styrmir hættir eftir að hafa stýrt Mogganum í hartnær fjóra áratugi. Hann hefur verið aðstoðarritstjóri Moggans og unnið þar í fjöldamörg ár, þekkir allt þar og hefur þekkingu og reynslu, þrátt fyrir að vera aðeins fertugur.

Ólafur var alla tíð vænlegasta ritstjóraefni Morgunblaðsins við væntanlega uppstokkun og hefur sýnt með á 24stundum að hann kann sitt fag. Held að Mogginn muni endurnýja sig og verða ferskur og traustur fjölmiðill undir hans stjórn á komandi árum.

mbl.is Ólafur nýr ritstjóri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mótmælin komin út í algjöra vitleysu

Frá mótmælum Get ekki betur séð en að mótmæli bílstjóranna séu komin út í tóma vitleysu, stjórnlaust rugl. Hefur snúist upp í hálfgerð skrílslæti nú eftir hádegið þar sem framhaldsskólanemendur leika lykilhlutverk við að kasta eggjum í lögreglumenn, koma í búningum til að vekja á sér athygli. Svolítið sérstakt að sjá þetta í netútsendingu rúv.is.

Held að þetta styrki ekki mótmæli bílstjóranna, eða hvað sem á orðið að kalla þetta. Er eiginlega að fara út í bláinn, enda flokkast þetta varla undir mótmæli bílstjóra og er orðið eitthvað allt annað, skrílslæti kannski eftir gasið í morgun og að einhverjir vilji vekja á sér athygli við að tala málstað sem er eitthvað orðinn útþynntur á vettvangi.

Fannst þetta verða fyndnast þegar að nemendur úr Iðnskólanum í Hafnarfirði komu í búningum frá tímum þýska þriðja ríkisins, voru að dimmitera og notuðu tækifærið til að mæta. En kannski varð þetta rugl súrrealískast þá. Get ekki séð að einhver heildstæður bragur sé á þessum mótmælum og þetta sé orðið eitthvað flipp bara.

mbl.is Eggjakast og nasistabúningar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Allt á suðupunkti við Rauðavatn

Grjóti kastað í lögreglumann Þvílíkt drama er þetta við Rauðavatn. Allt á suðupunkti, bílstjórar leggja allt undir fyrir baráttuna og löggan er með allan viðbúnað og gasaði mótmælendur. Er frekar súrrealískt að sjá lögreglumenn öskra Gas! Gas! Gas! og gasa liðið beint í andlitið. Steinum er kastað, lögga fær einn í hausinn og einn mótmælandinn er eltur uppi og barinn í klessu.

Ekki skrítið að fólk líki þessu helst við bandaríska hasarmynd. Ekki nema von að því sé velt fyrir sér hvað gerist eiginlega næst. Getur þetta orðið dramatískara og hvassara en hasarinn við Rauðavatn í morgun? Sá viðtal við einn bílstjóra áðan sem var að hóta því að næst myndu bílstjórar láta hlöss vaða fyrir utan opinberar byggingar og daðraði við stóra stoppið.

Haldi mótmælin áfram má búast við að það verði stál í stál og hart mæti hörðu. Óttast það mest að þetta verði einmitt svona, grjóti verði kastað og fólk verði bara gasað. Löggan muni beita öllu sínu. Finnst það afleitt að mótmælendur láti grjót vaða í lögreglumenn sem eru að vinna sitt verk. Hafði í upphafi samúð með mótmælendunum en það hefur verið að gufa upp, eins og ég rakti hérna fyrr í morgun. Löggan nýtir sín úrræði, hversu umdeilt sem það annars má vera.

Ætli það verði ekki pottþéttur endir á þessum degi annars að setja ekta bandaríska hasarmynd í DVD-spilarann?

mbl.is Lögreglumaður á slysadeild
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þolinmæðin á þrotum - táragas við Rauðavatn

Mótmæli við Rauðavatn Held að það minni einna helst á bandaríska kvikmynd að horfa á það sem er að gerast við Rauðavatn. Óeirðirnar milli bílstjóra og lögreglu, sem lauk með því að táragasi var beitt sýnir hversu langt lögreglan er tilbúin að ganga. Kannski mátti eiga von á að lögregluyfirvöld væru búin að fá nóg og myndu beita valdi, ekki hefur vantað skilaboðin í þá átt en þetta eru mjög skýr skilaboð sem gefin eru í dag.

Man ekki eftir svo harkalegum aðgerðum gegn mótmælendum hérlendis mjög lengi. Lögreglan var framan af mótmælum bílstjóranna mjög róleg, gaf þeim meira að segja í nefið og talaði vinalega til þeirra. Eftir því sem mótmælin hafa orðið beittari hefur samskipti þeirra kólnað og nú er valdi beitt og send þau skilaboð að þolinmæðin sé á þrotum.

Lögreglan er með þessu fyrst og fremst að minna á sig, hún geti beitt valdi og muni gera það óhikað úr þessu. Eðlilega er spurt að því hvort að þetta sé það sem koma skal úr þessu. Lögreglan muni klippa á mótmælin með táragasi og valdboði en hlusti ekki meira.

Held að flestir hafi átt von á eftir ólguna síðustu daga að reynt yrði að berja mótmælin niður með valdboði, en það gerist mun hraðar og harkalegra en búast mátti við.

mbl.is Lögregla beitir táragasi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvíldartími bílstjóra á háannatíma í umferðinni

Eftir að hafa sleppt mótmælum um skeið minna atvinnubílstjórar nú enn og aftur á sig og sína baráttu þessa dagana - taka nú hvíldartímann sinn á háannatíma í umferðinni. Efast um að þeir séu að styrkja sína stöðu með þessum baráttuaðferðum og undrast enn að þeir beini mótmælunum gegn almenningi í umferðinni. Ljóst er að það er ekki til þess fallið að bæta þeirra málstað og eiginlega hafa þeir misst baráttuna algjörlega út á tún með röngum ákvörðunum að undanförnu.

Bílstjórarnir tóku sér pásu að ég tel meðvitað áður, enda sködduðust þeir frekar en styrktust á orðavali talsmannsins og aksturslagi við mótmæli, auk þess að gera ökumenn í umferðina reiða. Orðrómur hefur verið uppi um að bílstjórar stefni jafnvel að stóra stoppinu umtalaða á næstunni. Ætli sér að lama höfuðborgarsvæðið með mótmælum, leggja bílum sínum og skilja þá eftir á aðalumferðaræðum borgarinnar.

Stóra stoppið mun verða mjög umdeilt, verði af því. Það eru einfaldlega það stór mótmæli að það myndi aðeins kalla á hörð viðbrögð almennings og reiðiöldu, frekar en stuðning. Finnst staðan vera mjög afgerandi í þessa átt, að bílstjórar standi einir og almenningur hafi ekki lengur samúð með aðferðum þeirra og málstað. Þeir hafi klúðrað þessu.

Þeir höfðu mikinn stuðning almennings fyrst en hann hefur dvínað mjög að undanförnu, að mestu vegna taktískra mistaka í mótmælunum.

mbl.is Bílstjórar „taka hvíldartíma"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hillary sigrar í Pennsylvaníu - slagur fram í júní?

Hillary Rodham Clinton og Chelsea Clinton Sigur Hillary Rodham Clinton á Barack Obama í forkosningunum í Pennsylvaníu er mjög mikilvægur fyrir hana, enda er þetta eitt af lykilfylkjunum í forsetakosningunum í nóvember og fullyrða má að Hillary hafi fengið farmiða fram í maímánuð í hinni harðvítugu forkosningabaráttu og væntanlega allt til loka forkosninga demókrata 3. júní. Varla er hægt að sjá að flokkurinn sameinist um forsetaefni strax.

Hillary hefur með sigri í mikilvægustu forkosningunum síðustu vikurnar náð að halda framboði sínu á floti, þvert á spár margra sérfræðinga. Eftir að hún tapaði fjölda forkosninga eftir ágætis útkomu á ofur-þriðjudegi var lagt upp með það lykilplan að hún yrði að sigra í Texas, Ohio og Pennsylvaníu. Henni hefur tekist það og hefur stöðu til að fara með framboð sitt hið minnsta út forkosningabaráttuna. Engin skýr skilaboð eru enn komin og enginn afgerandi sigurvegari á sviðinu.

Demókratar eiga í vandræðum með stöðuna. John McCain hefur átt sviðið hjá repúblikunum allt frá ofur-þriðjudegi og hefur hlotið mikið forskot, enda að sameina flokk sinn að baki sér, velja varaforsetaefni og byggja undirstöður framboðsins allt til leiðarenda í nóvember á meðan að Demókrataflokkurinn er algjör vígvöllur án sigurvegara eftir margar lykilrimmur. Sigur Hillary í Pennsylvaníu tryggir að slagurinn heldur enn áfram.

Þrátt fyrir fúlgur fjár og mikla maskínu mistókst Obama að stöðva Hillary í Pennsylvaníu. Hann saxaði vissulega á kannanafylgi Hillary en tókst ekki að ná sigri. Hillary vinnur með 6-9% mun sennilega. Enn þarf hann að taka slaginn. Vel má vera að einhverjir þrýsti á Hillary að draga sig í hlé en kjósendur flokksins hafa sjálfir haldið slagnum áfram með atkvæðum sínum í lykilfylkjum fyrir flokkinn á þessu kosningaári. Og enn berst kjarnakonan Hillary við Obama. Þeirra barátta hefur ekki náð endapunkti enn.

Á meðan vænkast hagur repúblikana. Verður ársins 2008 minnst fyrir það í bandarískum stjórnmálum að demókrötum hafi hjálparlaust tekist að klúðra forsetakosningunum með innri hjaðningavígum og hörðum persónulegum árásum sem markast af því að þeir sem styðja þann sem að lokum tapar baráttunni fyrir útnefningunni vilji ekki leggja neitt á sig fyrir sigurvegarann?

Verður annars nokkur sigurvegari í þessari baráttu sem hefur klofið flokkinn sem átti alla sénsana? Er farinn að hallast að því að enginn sigurvegari verði eftir þegar að rykið sest loks í kjölfar þess að Obama og Hillary hafa barið hvort annað í klessu.

mbl.is Clinton spáð sigri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 23. apríl 2008

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband