Jæja, þvílíkur dagur. Ekki á hverjum degi sem táragas er notað á mannfjölda hérlendis. Í dagslok voru mótmælin orðin algjör vitleysa og skrípaleikur. Bílstjórarnir misstu þau fáu tromp sem þeir höfðu enn á hendi eftir mörg mistök sín síðustu vikurnar. Held þó að þeir hafi tapað slagnum þegar að þeir vissu ekki sjálfir grunnatriði um bensínverðið og um hvað leikurinn snerist.
Í dag varð þetta hreinræktað rugl. Fannst stórmerkilegt að sjá Sturlu Jónsson þenja sig í Kastljósi kvöldsins. Þar vildi hann kenna ríkisstjórninni um hvernig allt fór við Rauðavatn og að allt varð vitlaust. Ekki var hann til í að líta neitt í eigin barm og sagan hans um að þeir hafi nú verið að fara þegar að allt fór í vitleysu hljómar frekar fölsk og ósannfærandi. Allt benti til að bílstjórarnir ætluðu að hjóla í sérsveitina.
Í upphafi skildi ég eins og svo margir fleiri gremju bílstjóra og þörf þeirra fyrir að koma með statement af einhverju tagi. Þeir gerðu það og náðu athygli fljótt. En leikurinn byrjaði fljótt að þynnast út með lélegu skipulagi og framsetningu mótmælanna. Þeir áttuðu sig ekki á grunnatriðum mála, neituðu að hlusta á staðreyndir og lokuðu sig af með rörlaga sjónarhorn á lífið og tilveruna. Þeir misstu yfirsjón á mótmælunum og misstu sig í hreint rugl.
Síðan hafa þeir verið að tapa dampi og missa sig hreint út. Ekki hefur talsmaðurinn hjálpað til, með mjög afleit rök og lélega rökfimi í tali sínu. Held þó að hann hafi endanlega spilað sig yfir og út með tali sínu í kvöld. Þar stóð varla steinn yfir steini og vandræðagangurinn algjör. Myndirnar af dramatíkinni við Rauðavatn sýna vel að bílstjórar lögðu til gegn lögreglunni og hún svaraði fyrir sig. Eðlilega. Annað hefði verið óeðlilegt og ég tel að lögreglan hafi gert það eina sem í stöðunni var. Það sauð endanlega upp úr. Hafði svosem blasað við lengi.
Bílstjórunum tókst á mjög skömmum tíma að gera það sem ég varaði við á fyrsta mótmæladegi - að missa mótmælin úr höndum sér og ná ekki að tækla þau vel. Það sem átti að vera mikið statement um lykilmál þeirra varð að algjöru rugli á skömmum tíma. Stóru mistökin voru að beina mótmælunum að almenningi, ergja hann og missa yfirsjón á grunnatriðum mála, t.d. að hafa ekki á hreinu staðreyndir um bensínverð og reyna að afneita þeim.
Eftir standa bílstjórar með flippuð mótmæli sem hafa runnið út í sandinn. Eftir allt varð það veganestið sem þeir náðu sér í með þessu öllu saman.
Undarlegast finnst mér þó að sjá suma líkja þessu rugli við Rauðavatn við Gúttóslaginn. Afsakið, meðan að ég hlæ.
24.4.2008 | 16:25
Hver barði lögregluþjóninn á Kirkjusandi?

Þessi mótmæli bílstjóranna eru runnin út í sandinn og orðið eitthvað flipp og rugl, því miður þeirra vegna. Þeir hafa misst öll sín tromp og ættu að hætta þessu rugli meðan að þeir geta. Nóg hafa þeir skemmt fyrir sér. Ekki er gott ef einhver er að skemma enn frekar fyrir þeim með því að berja löggu að tilefnislausu og eðlilegt að fá því svarað hver gerði það og af hverju.
Annars er mál að linni í þessu rugli og vonandi að takist að lægja öldur, allra aðila vegna. Hvað bílstjóra varðar er ljóst að þeir hafa fokkað þessum mótmælum fyrir sér og þurfa því ekki á skemmdarverki á borð við þetta að halda í viðbót, þ.e.a.s. ef þeir standa ekki að þessu, sem hefur reyndar ekki enn verið svarað almennilega.
![]() |
Ráðist á lögregluþjón |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
24.4.2008 | 14:08
Alvarleg mistök - verður Lára rekin af Stöð 2?
Eitt er að taka myndir af vettvangi og lýsa aðstæðum, annað að missa sig í vitleysunni á staðnum og missa dómgreindina. Lára missti dómgreindina með framgöngu sinni í gær og hefur slúffað sínum trúverðuleika algjörlega.
Ætlar fréttastofa Stöðvar 2 að láta trúverðugleika sinn sökkva með Láru?
![]() |
Gáfu ekki lagalegar skýringar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (18)
24.4.2008 | 10:54
Ógeðslegar árásir að Birni Bjarnasyni

Held að það væri gott fyrir suma að fara að róa sig aðeins niður úr vitleysunni sem hefur heltekið þá í þessum glötuðu mótmælum. Svona orðaval og framkoma styrkir engan málstað og sýnir aðeins þroskaleysi þeirra sem þannig skrifa.
Tel að Björn hafi gert rétt í því að birta brot af þessu ógeði sem til hans hefur verið beint. Ekki hefðu allir birt svona skrif á vef sínum en í þessu tilfelli tel ég að nauðsynlegt sé að birta brot af þessu. Þó ógeðslegt sé það.
Fyrst að þessi tvö tölvubréf til Björns voru svona ógeðsleg er nema von að spurt sé hvernig öll hin hafi verið?
![]() |
Gerðu þjóðini greiða og skjótu þig" |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
24.4.2008 | 00:14
Þvílíkur dagur - mótmæli verða að skrípaleik
![]() |
21 handtekinn í dag |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |