29.4.2008 | 22:30
Obama afneitar öfgaklerkinum - skaðinn er skeður

Stóri vandi Obama nú er einmitt sá að klerkurinn er stjórnlaus og lætur sömu öfgarnar, trúar- og kynþáttaöfgar, flakka í viðtölum og predikunum æ ofan í æ. Í hvert skipti sem klerkurinn talar úr þessu vita allir að Obama sneri ekki baki við honum í upphafi - hann virti klerkinn og dáði, mætti auk þess með konu og börn í messur til hans.
Erfitt er að aftengja þennan skaða með sóma nú, enda virkar eins og Obama vilji fara auðveldu leiðina út í megaklúðri, og klippa á þessa tengingu, eftir að hafa náð góðu tækifæri til að gera það áður. Lykiltækifærið til þess gafst þegar að predikanir hans láku á netið og vitnað var í boðskapinn. Í staðinn hélt Obama ræðu og reyndi að afsaka klerkinn.
Yfirlýsingar klerksins eru skaðlegar og tengingin við hann er mjög eldfim. Enn hefur Obama ekki náð útnefningunni og honum hefur mistekist að heilla alþýðufylkingarnar í flokknum, sem hefur hallað sér að Hillary. Þetta er pólitískt stórslys fyrir Obama á viðkvæmum tímapunkti og spurt hversu mikill skaðinn muni verða er á hólminn kemur.
Kannanir sýna nú að Obama er að missa flugið. Hillary hefur styrkt stöðu sína síðustu þrjár vikurnar og aukið fylgi sitt í lykilfylkjum og á landsvísu. Þau eru nú jöfn í landskönnunum. Alvarlegustu tíðindin fyrir Obama er að Hillary hefur nú meiri möguleika á að sigra McCain samkvæmt nýjustu könnunum.
Fjölmargir ofurfulltrúar hafa ekki enn tekið afstöðu til forsetaefnanna í þessu langvinna einvígi. Þeir munu ráða úrslitum í útnefningaslagnum, enda ljóst fyrir nokkru að enginn sigurvegari verður í forkosningaferlinu. Þar verður horft til þess hverjir geti sigrað lykilfylkin og náð til alþýðufólksins.
Obama hefur gert mikil mistök síðustu vikurnar. Hefði allt verið með felldu hefði hann náð útnefningunni áður en hefur sjálfur skemmt fyrir sér. Með fulla vasa fjár hefur honum mistekist að tryggja sér útnefninguna traust og afgerandi. Ástæður þess verða sífellt augljósari.
![]() |
Obama snýr baki við prestinum sínum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
29.4.2008 | 21:21
Þrumufleygur hjá Scholes - tjallaslagur í Moskvu
Nú er ljóst að í fyrsta skiptið í sögu Evrópukeppninnar munu tvö bresk knattspyrnulið berjast um bikarinn. Á morgun ræðst hvort Liverpool eða Chelsea mæta Man Utd. Megi betra liðið sigra. Vona auðvitað að Liverpool nái að sigra, enda gaman að fá slag þessara tveggja stórvelda, sem hafa eldað grátt silfur í gegnum tíðina, um Evrópubikarinn.
Held að fáir hefðu veðjað á í upphafi keppninnar í vetur að það yrði tjallaslagur í Moskvu í maímánuði. Allavega sögulegur og vonandi fínn leikur framundan, hvernig sem fer á morgun. Allt topplið. Ef Chelsea vinnur á morgun er auðvitað framundan skemmtileg rimma milli liðanna um bæði titilinn heima og í Evrópu.
![]() |
Scholes skaut Man Utd til Moskvu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.4.2008 | 16:36
Sveðju-Plank framseldur til Póllands
Fulltrúi saksóknara í Póllandi segist hafa óyggjandi sannanir um sekt Planks í sveðjumorðinu margumtalaða. Þar er því haldið fram að Plank sé vægðarlaus sérfræðingur hjá glæpaklíku ytra og hafi verið leigumorðingi þeirra, alveg vægðarlaus hrotti. Það er greinilegt að þeir virðast hafa nokkuð traust mál á hendur honum.
Þetta mál með Plank minnir einna helst á atburðarás í svæsinni bandarískri glæpamynd. Þetta er ekki veruleiki sem ég tel að við viljum hér og það er afleitt ef Ísland er að breytast í einhvern griðastað fyrir erlent glæpafólk.
![]() |
Framseldur til Póllands |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
29.4.2008 | 13:00
Sofandagangur yfirvalda - einangruð vítishola
Eftir því sem meira er fjallað um hryllingshúsið og austurrísku blóðskömmina verður sífellt undarlegra að engar viðvörunarbjöllur skyldu klingja hjá yfirvöldum. Nú er ljóst að Fritzl er dæmdur kynferðisafbrotamaður og þekktur ofstopamaður. Þrátt fyrir það var ekki kannað betur aðstæður á sjálfu heimilinu þegar að dóttirin hvarf, ekki heldur þegar að börnum fjölgaði á heimilinu.
Finnst þetta mál, eftir því sem meira kemur í ljós, vera áfellisdómur yfir þeim sem rannsökuðu málið og áttu að kveikja á perunni vegna veigamikilla staðreynda um Fritzl og heimilisaðstæður hans, auk þess karaktereinkenni hans og fyrri afbrot. Fritzl faldi svo vel slóð sína að enginn gat komist í kjallarann nema hann, enda með rammgerðan lás með sérvöldu leyniorði til að komast niður hina litlu holu.
Mun kjallarinn vera svo rammgerður að ekki heyrðust grátur eða öskur þaðan upp á efri hæðir hússins og því var dóttirin algjörlega á valdi hans. Barátta við hann var því allt að því tilgangslaus. Hún varð því að hafa hann góðan. Þvílíkt ógeð. Þessi kona var lifandi dauð í 24 ár, enda hvers virði er lífið án dagsljóss og lífsneista. Allur lífsvilji hlýtur að deyja í svona vítisholu.
![]() |
Hótaði börnum sínum dauða í kjallaranum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
29.4.2008 | 12:05
Halldórsarmurinn berst fyrir ESB-aðild í Framsókn
Grein Jóns Sigurðssonar, fyrrum viðskiptaráðherra og formanns Framsóknarflokksins, þar sem hann hvetur til þess að Ísland sæki um aðild að Evrópusambandinu sýnir vel að Halldórsarmurinn í flokknum, undir forystu Valgerðar Sverrisdóttur, ætlar að setja málið á dagskrá og berjast fyrir því af alvöru á næstunni. Ekki hefur farið á milli mála að Guðni Ágústsson, formaður Framsóknarflokksins, hefur leitt harða andstöðu við ESB nú, og áður í formannstíð Jóns og Halldórs Ásgrímssonar.
Vakið hefur mikla athygli hvað Valgerður hefur talað afgerandi fyrir ESB-aðild, þvert á allt sem formaðurinn segir. Þetta sýnir andstæðurnar í forystusveitinni og hreina andstöðupóla sem hljóta um leið að flokkast sem átakapólar um valdasess í flokknum. Ef Evrópumálin verða sett á dagskrá innan Framsóknarflokksins má enda búast við miklum átökum. Á flokksþingi Framsóknarflokksins árið 2005 var hart tekist á um afstöðuna til Evrópusambandsins - Guðni og Halldór börðust hatrammlega fyrir opnum tjöldum um hversu langt ætti að ganga. Niðurstaðan varð málamiðlun.
Ekki ber að vanmeta afstöðu Jóns. Greinaskrif hans í dag eru mjög sterk skilaboð um að reyna mun á málið innan skamms. Innan við ár er síðan að Jón lét af formennsku í flokknum. Hann sat ekki það lengi sem formaður að reyndi virkilega á Evrópumálin undir forystu hans. Er á hólminn kom varð Jón mun hógværari í afstöðu sinni en Halldór, sem í forsætisráðherratíð sinni spáði að Ísland yrði komið í ESB eftir sjö ár, árið 2015. Valgerður hefur með afgerandi Evrópuforystu sinni innan Framsóknarflokksins tryggt að málið verður rætt fyrr en síðar. Hún talar ekki svona nema vegna þess að hún er viss um að reyna mun á málið fljótlega, sem og blasir við.
Staða Framsóknarflokksins er veik um þessar mundir. Hann hefur ekki náð sér á strik í stjórnarandstöðu undir forystu Guðna Ágústssonar síðasta árið og eðlilega er spurt um hversu sterk pólitísk staða hans er. Það ræðst á flokksþingi að ári. Fylkingamyndanir um Evrópusambandið gætu leitt til átaka um formennsku í flokknum. Halldór Ásgrímsson sætti sig ekki við Guðna sem eftirmann sinn fyrir tæpum tveim árum og lagði lykkju á leið sína til að sækja Jón í Seðlabankann, því hann taldi hann eina manninn sem gæti sigrað Guðna. Fullyrða má að traustið á Guðna hefur ekki aukist í þeim herbúðum eftir að hann tók við af Jóni, sem mistókst að ná kjöri á þing.
Stóra spurningin er hvort að Valgerður Sverrisdóttir fylgi eftir tæpitungulausum ummælum sínum um Evrópusambandið með formannsframboði að ári. Öllum er ljóst að Guðni Ágústsson mun sem formaður Framsóknarflokksins ekki leiða flokkinn í Evrópuátt, þó að nýleg könnun hafi sýnt að meirihluti kjósendanna styðji aðildarviðræður. Nýji Evróputónninn hennar Valgerðar er boðberi um að hún ætli að taka frumkvæðið innan flokksins, sýna forystu og myndugleika á meðan að formaðurinn bíður.
Átökin um Evrópusambandið verða án vafa stærstu átökin innan Framsóknarflokksins áratugum saman og bliknar átökin um formennsku Halldórs Ásgrímssonar væntanlega í samanburði. Afstaða formannsins mun ráða hvernig sá slagur verði á næstunni. Greinaskrif og tæpitungulaus ummæli þeirra sem standa næst Halldóri Ásgrímssyni, sem spáði ESB-aðild innan nokkurra ára, boða þau tíðindi að reyna muni á málið fyrr en síðar.
Væntanlega glottir sá vel við tönn sem situr nú á friðarstóli í Kaupmannahöfn. Enda munu þau átök verða um forystusess í Framsóknarflokknum ef formaðurinn tekur ekki skrefið með þeim sem pressa á málið nú.
![]() |
Tímabært að sækja um ESB-aðild |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
29.4.2008 | 01:29
Austurrískur óhugnaður

Allt viti borið fólk sér að hann drottnaði yfir henni og neyddi hana til vistar í kjallara þar sem hún sá ekki dagsljós í hálfan þriðja áratug. Eitt og sér er slík frelsissvipting svo alvarlegt mál að engar málsbætur geta nokkru sinni varið það. Kynferðislega misnotkunin er skelfileg og getur enginn ímyndað sér, varla brotabrot af því hvernig það hefur farið með þessa konu. Þetta er sorinn í sinni verstu mynd.
Sá áðan brot af viðtali við lögregluforingjann sem stýrir rannsókninni. Hann segir þetta versta mál sitt á þriggja áratuga starfsferli, sé mun verra en morð og svæsnustu líkamsárásir. Enda er þessi meðferð á konunni ígildi morðs, þar sem tekið er í raun lífið frá henni. Svona mál hafa verið dekkuð í mörgum kvikmyndum og bókum, en þetta toppar allt. Slík blóðskömm er sorglegur harmleikur á okkar dögum.
Var áhugavert að sjá viðtalið við Gunnar Hrafn Birgisson, sálfræðing, í Kastljósi í kvöld þar sem hann fór heilsteypt og ítarlega yfir þetta sorglega mál. Mæli eindregið með að allir líti á það.
![]() |
Segist ekki hafa beitt valdi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)