30.4.2008 | 20:05
Lýst eftir ungu fólki
Mér finnst það eiginlega orðið sláandi hversu algengt er orðið að auglýst sé eftir ungu fólki, flestu á aldrinum 13-17 ára. Eftir nokkra klukkutíma eða einhverra daga leit finnast krakkarnir eða koma sjálf heim oftast nær. Eflaust eru margar langar sögur á bakvið hvert tilfelli. En það er ekki hægt annað en hugsa aðeins þegar að það gerist að jafnvel fjöldi ungmenna hverfi á skömmum tíma og spyrja sig að því hvað sé eiginlega að gerast í samfélaginu, hvort að þau séu í einhverri ógæfu eða vilji hreinlega fara að heiman vissan tíma.
Svosem eru það engar nýjar fréttir að fólk hverfi. Stundum hefur eitthvað gerst, slys eða aðrar aðstæður, sem valda því að ungt fólk kemur ekki heim. Þegar að óregla eða ógæfa dynur yfir hefur það gerst að ungt fólk er komið í svo mikið öngstræti að það stingur af, lætur sig hverfa. Það er ekki nema von að spurningar um hvert tilfelli vakni. En mér finnst þetta farið að gerast svo oft, jafnvel að leitað sé dögum saman að ungu fólki.
Vonandi mun ganga vel að finna þessa stelpu. Hlýtur að vera skelfilegt að vera í þeirri stöðu að eiga ættingja sem finnst ekki og ekki er hægt að ná sambandi við. Gildir þá einu hverjar aðstæðurnar eru, enda er mjög óþægilegt og dapurlegt að eiga ástvin sem finnst ekki og það hlýtur að vera skelfilegt að horfast í augu við.
![]() |
Lýst eftir stúlku |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
30.4.2008 | 16:28
Í minningu dr. Bjarna Benediktssonar
Öld er í dag liðin frá fæðingu dr. Bjarna Benediktssonar, fyrrum forsætisráðherra og formanns Sjálfstæðisflokksins. Bjarni er sá stjórnmálamaður 20. aldarinnar sem er í mestum metum hjá mér. Hef ég aldrei farið leynt með aðdáun mína á stjórnmálamanninum Bjarna og stjórnmálastefnu hans sem varð meginstef Sjálfstæðisflokksins þann langa tíma sem hann starfaði í forystusveit hans.
Hef ég lesið margoft greinasafn hans, Land og lýðveldi, og jafnan þótt mikið til þess koma. Bjarni var arkitekt utanríkisstefnu Íslendinga og markaði söguleg áhrif í senn bæði á íslenskt samfélag og íslensk stjórnmál. Allir þeir sem kynna sér stjórnmálaferil dr. Bjarna komast fljótt að því hversu öflugur hann var.
Bjarni var sá forystumaður íslenskra stjórnmála á 20. öld sem hafði mest áhrif á að móta lýðveldinu Íslandi framtíðarstefnuna, færa Ísland fyrstu skrefin í átt að forystu í eigin málum og móta utanríkisstefnu landsins, sem hefur haldist að mestu óbreytt síðan. Sú forysta hefur skipt miklu máli og fer ekki á milli mála hversu afgerandi hún var.
Hef oft hugsað um það hver staða íslenskra stjórnmála hefði orðið á áttunda áratugnum hefði Bjarni lifað lengur. Sjálfstæðisflokkurinn gekk í gegnum erfiða tíma eftir fráfall hans og náði varla alvöru stöðugleika í sínum röðum fyrr en Davíð Oddsson var kjörinn formaður árið 1991. Átök stjórnmálanna á áttunda áratugnum, einkum innan Sjálfstæðisflokksins, hefðu tekið á sig annan blæ hefði Bjarni lifað lengur, tel ég.
Fyrir tæpum þrem árum, þegar að Samband ungra sjálfstæðismanna varð 75 ára, fórum við í þáverandi stjórn til Þingvalla og áttum góða stund í Hvannagjá, þar sem SUS var stofnað og lögðum blómsveig við minnisvarða um Bjarna, Sigríði og Benedikt litla, sem stendur á grunni forsætisráðherrabústaðarins. Heiðruðum við þar minningu eins af okkar traustustu leiðtogum fyrr og síðar.
Andlát Bjarna, Sigríðar og Benedikts var mikill harmleikur, ekki aðeins fyrir þá sem nærri þeim stóðu heldur og þjóðina alla. Þá kvaddi einn merkasti sonur þjóðarinnar á sínum hátindi. Alltaf þegar að ég fer til Þingvalla legg ég leið mína að minnisvarðanum. Er svolítið sérstök tilfinning sem fylgir því að koma þangað og hugleiða hversu sorglegir atburðir áttu sér þar stað.
Í dag afhentu afkomendur dr. Bjarna Benediktssonar Reykjavíkurborg einkaskjalasafn hans til varðveislu og borgarstjórinn í Reykjavík opnaði svo minningarvef um Bjarna, sem ég mæli með að allir líti á. Er það merkur minnisvarði um einn litríkasta stjórnmálamann landsins.
![]() |
Skjalasafn Bjarna Benediktssonar afhent Borgarskjalasafninu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
30.4.2008 | 10:47
Aðalsteinn Jónsson látinn
Ég vil eiginlega ekki hugsa um hvernig hefði farið fyrir Eskifirði án kraftsins og forystunnar sem einkenndi verk Aðalsteins í atvinnusögu Eskifjarðar. Allir sem þekkja til mála á Eskifirði vita að án hans væri staðurinn varla svipur hjá sjón. Traust forysta hans tryggði tækifæri á Eskifirði þegar að erfiðir tímar voru.
Aðalsteinn Jónsson leit alltaf á sig sem þjón fólksins. Hann fæddist fátækur, en reis upp til metorða með eigin dugnaði. Öllum ætti að vera hollt að kynna sér lífssögu hans í bókinni Lífið er lotterí eftir Ásgeir Jakobsson. Alli barðist áfram og byggði upp fyrirtæki sem hefur verið í fararbroddi á Eskifirði.
Saga fyrirtækisins var ekki alltaf dans á rósum, enda var ekki alltaf beinn og greiður vegur í stöðu mála í sjávarútveginum. Enginn einn maður hefur gert meira fyrir Eskifjörð og verk hans munu aldrei gleymast. Alli var einfaldlega traustur maður sem fólkið gat treyst, útgerðarmaður sem hugsaði fyrst um fólkið, svo sig og sinn hag.
Alli var einn af fólkinu. Hann var í góðu sambandi við verkafólkið; var sjálfur lengi sjómaður og byggði upp þetta fyrirtæki af ótrúlegri elju. Eitt af því sem skapaði fyrirtækið voru tengsl Alla við fólkið sem vann hjá honum. Þau litu á hann sem einn þeirra sem vann þar, aldrei sem auðugan mann sem var yfir aðra hafinn.
Þar liggur farsæld Aðalsteins Jónssonar sem útgerðarmanns og föður heillar byggðar. Hans verk er ómetanlegt og allir munu minnast hans með þeim hætti. Guð blessi minningu Alla.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 18:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
30.4.2008 | 00:58
Erfið sálfræðileg uppbygging á brotnum sálum

Sálfræðilega er mál Fritzl-fjölskyldunnar mjög mikilvægt. Um er að ræða stórfrétt, enda er þetta mál harmleikur í alla staði og merkilegt rannsóknarefni. Ekki eru mörg dæmi um svo skelfilega misnotkun innan fjölskyldu á síðustu áratugum og jafnvel alla tíð, einkum vegna þess hversu lengi það stóð. Allavega er þetta mál sem hefur vakið heimsathygli og spurningar um hversu lengi það taki að byggja upp svo mikinn skaða.
Pressan lýsir Fritzl sem djöfli í mannsmynd. Eðlilega. Hann hefur verið dæmdur af allri heimsbyggðinni vegna sinna viðurstyggilegu verka. Ekki munu næstu skref aðeins snúast um að koma fjölskyldu hans, dóttur og börnunum sem hún eignaðist í kynlífsdrottnun undir stjórn föður síns, út í samfélagið, heldur líka að sálgreina gerandann.
Sálfræðilega er mikilvægt að skyggnast inn í svo sýktan huga; fá svör við spurningunum áleitnu og átta sig á því afli sem knúði hann í þennan blekkingarleik og misnotkun á eigin barni. Í gær var sálfræðingur í Kastljósi sem ræddi þessi mál. Hann talaði um mörg mál sem viðmiðun en hafði samt ekkert mál sem dæmi um nákvæmlega þetta.
Sennilega verður það stóra málið þegar að róast yfir málinu að fara yfir sálfræðilegu hliðarnar. Eftir hálfan þriðja áratug án dagsljóssins hlýtur að þurfa mikið verk til að gefa fólki úr svo sorglegri vítiseinangrun annað líf. Við tekur annað líf, enda fer konan brotin út í annað samfélag en hún upplifði fyrir löngu síðan.
Og hvernig er hægt að færa afkomendur blóðskammarinnar lífið, sum eru um tvítugt fyrst að upplifa lífið. Áleitin viðfangsefni blasa við til að gefa þolendum tækifæri til að upplifa það líf sem við teljum sjálfsagðast af öllu í veröldinni.
![]() |
Endurfundir Fritzl-barnanna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 01:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)