Beðið eftir tvíburum þokkaparsins í Hollywood

Brad Pitt og Angelina Jolie Sennilega segir það sitt um fréttadaginn þegar að stærsta fréttin af erlendum vettvangi er hvort að óskarsverðlaunaleikkonan Angelinu Jolie sé búin að eiga tvíburana sína eður ei, en um það er deilt núna, þar sem bæði er fullyrt af krafti. Angelina Jolie hefur verið umdeild eins lengi og hún hefur verið fræg, ekki aðeins talin ein mesta þokkadís síðustu ára, heldur auk þess mjög góð leikkona sem hefur túlkað dramatík og húmor í hæfilegri blöndu og skapmikil að auki.

Jolie er eins og flestir vita ekki ættarnafn. Franska er það heillin, enda þýðir nafnið hin fagra - réttnefni er það á Angelinu sem þykir með fögrustu konum kvikmyndaheimsins. Hún hefur enda verið kyntákn alla tíð. Ættarnafn hennar er auðvitað Voight, enda er faðir Angelinu óskarsverðlaunaleikarinn Jon Voight sem var einn af þekktustu leikurum sinnar kynslóðar, og hlaut óskarinn fyrir eftirminnilega túlkun á lamaða hermanninum í Coming Home, manninum sem kemur heim lamaður frá Víetnam á sínum tíma. Ekki er langt síðan þau sömdu frið eftir að hafa ekki talað saman í fimm ár. Bæði eru þekkt fyrir svæsin skapgerðarköst.

Ástarsamband Brad Pitt og Angelinu Jolie hefur verið eitt af þeim mest áberandi á síðustu árum og telst eitt það heitasta í kvikmyndabransanum til fjölda ára. Umtalið við upphaf sambands þeirra við gerð kvikmyndarinnar Mr. and Mrs. Smith árið 2005 var enda engu minna en þegar að Elizabeth Taylor og Richard Burton voru að byrja að draga sig saman við gerð kvikmyndarinnar Kleópötru í upphafi sjöunda áratugarins. Og myndirnar af upphafi sambands þeirra minntu marga á hinar heitu myndir sem staðfestu að Burton og Taylor voru að draga sig saman fyrir fjórum áratugum.

Um fá sambönd hefur meira verið skrifað og pælingarnar um eðli sambandsins var deilt nær allt árið 2005 uns að því kom að það var að fullu opinberað. Ástríðuhitinn milli þeirra leynir sér enda ekki þegar að kvikmyndin, sem reyndar er ekkert meistaraverk en hörku hasarbomba, er skoðuð. Lengi vel var reyndar spáð í hvort að þau ættu nokkru sinni skap saman. Þau eru báðir vel þekktir skaphundar og er Angelina Jolie með skapmeiri konum sem þekkjast í kvikmyndabransa nútímans og hefur ekki langt að sækja það þar sem er faðir hennar, óskarsverðlaunaleikarinn Jon Voight.

Enn hafa þau þó ekki gift sig og um tíma virtist sambandinu ætla að ljúka á deilum um það. Jolie vildi ekki festa sig og hinn 45 ára ráðsetti fjölskyldufaðir sem var farinn að róa sig eftir litríkan feril vildi skuldbindingu. Jolie er reyndar illa brennd af hjónaböndunum, hún hefur tvisvar gengið í það heilaga, fullyrða má að ekki hafi það verið farsæl hjónabönd; hún giftist breska leikaranum Jonny Lee Miller (syni leikarans Bernard Lee sem lék M í Bondmyndunum 1962-1979) 1996 og skildi við hann 1999 og giftist ári síðar leikaranum Billy Bob Thornton og var gift honum í þrjú ár.

Samband Jolie og Thornton var gríðarlega umdeilt og kom mjög óvænt aðeins örfáum mánuðum eftir að Jolie hlaut óskarsverðlaunin fyrir Girl, Interrupted í mars 2000. Thornton, sem er tveim áratugum eldri en Jolie, þótti vera fjarri því hennar týpa en hann er mjög skapmikill og kostulegur karakter. Enda var sambúðin hæðótt, upp og niður eins og rússíbani. Að því kom að sambúðin gekk ekki og varð ekki mörgum undrunarefni. Pitt á að baki eitt hjónaband, mjög þekkt auðvitað, en hann var giftur "Vininum" Jennifer Aniston í fimm ár.

Því hefur oftar en einu sinni verið spáð frá frægu skoti þeirra skötuhjúa við gerð Mr. and Mrs. Smith að þau ættu hvorki skap saman né gætu verið saman. Börnin hafa sameinað þau - þau eiga saman dótturina Shiloh (sem er lifandi eftirmynd föður síns) og auk þess hafa þau ættleitt heilan helling af börnum, minnir að þau séu þrjú eða fjögur sem Jolie hefur ættleitt og Pitt hefur gengið í föðurstað.

Fróðlegt verður að sjá hvort að tvíburarnir sameini stjörnurnar endanlega og þau gifti sig eftir áralangar vangaveltur um tímasetningu þess.

mbl.is Tvennum sögum fer af fæðingu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þingmaður tekur flugið með flugdólgi

Undir niðri er ekki hægt annað en hlæja að þessum flugdólgi sem tók flugið með Karli V. Matthíassyni, alþingismanni. Er samt frekar ömurlegt að lenda í svona fólki sem kann fótum sínum ekki forráð með drykkju og áreitir farþega í flugvélum. Þetta er sem betur fer ekki daglegt brauð, en eflaust gerist það æði oft að fólk fær sér einum of mikið neðan í því í fluginu og sumir fá sér ágætis skammt fyrir flugið. Fólk er mjög misjafnt fullt og það er fátt ömurlegra en lenda í að sitja með fólki sem hefur fengið sér of mikið og veit ekki alveg hvað þá á að gera nema að eyðileggja flugferðina fyrir öðrum.

Var reyndar einu sinni í flugstöð á Bretlandi fyrir nokkrum árum og þar tók ég einmitt eftir einum manni sem lá greinilega mjög vel áfengismareneraður á bekkjarunu í bið eftir flugvél. Hann var þó ekki dauður eins og við segjum en það varð að benda honum nokkuð vel á að vélin væri að fara, þegar að kallið kom. Og hann staulaðist um borð, náði að redda því og fékk sér meira og svaf hinu værasta á leið til Íslands. Hann missti sig reyndar aðeins í vélinni og tók væn köst en bar sig að öðru leyti sig vel. En hann náði athygli allra um borð. Stjarna flugsins.

Varð loks rólegur og settlegur er Keflavík var í sjónmáli. Hef heyrt í mörgum sem hafa upplifað vissa dramatík í fluginu yfir Atlantshafi með þeim sem hafa gengið lengra. Frægust er sennilega sagan sem ég heyrði af einum í fluginu með tannlækninum sem tók vænt kast og allt varð vitlaust út af. Man mjög vel eftir viðtalinu við hann eftir á þar sem hann vildi skaðabætur frá flugfélaginu og alles. Reyndar ekki heyrt af málinu síðan, nema þá í fyndinni ferðasögu, sem viðstöddum fannst reyndar ekki fyndið meðan á henni stóð.

Held af lýsingum að dæma að þessi maður hafi ekki beint fengið blessunarorð frá þingmanninum og klerkinum Karli, en vonandi hefur Guðs blessun samt tekið við eftir að maðurinn var yfirbugaður og fékk loks að sofa úr sér gleðivímuna og lætin.

mbl.is Flugdólgur í vél með íslenskum þingmanni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Dagar Guðmundar hjá OR og REI taldir

Guðmundur Þóroddsson Ekki kemur það að óvörum að dagar Guðmundar Þóroddssonar í forystusveit hjá Orkuveitu Reykjavíkur og REI séu taldir eftir það sem gengið hefur á síðustu mánuði í borgarmálunum, einkum eftir augljós átök á milli hans og þáverandi borgarstjóra í Reykjavík í fjölmiðlum er REI-málið stóð sem hæst í vetur. Deilt var þá um trúverðugleika þeirra beggja og augljós trúnaðarbrestur milli aðila.

Þá þegar var varla pláss fyrir báða þessa menn eftir það sem gekk á og átök um atburðarás og stefnuna sem taka ætti í REI og orkuútrásinni. Þá var greinilega kallað eftir því meðal sjálfstæðismanna að Guðmundur ætti að víkja. Hik á að hann kæmi aftur til starfa hjá OR staðfesti það og þessar fregnir um að hann hætti störfum alfarið hjá fyrirtækjunum rökrétt framhald þeirra sögusagna sem geisað hafa síðustu mánuði og deilur um hvert ætti að stefna og persónuleg átök milli aðila í meirihluta og í forystu OR.

Allar lykilpersónur REI-málsins voru stórlega skaddaðar eftir það og gilti þar einu um þá sem leiddu málið innan Orkuveitunnar og innan borgarkerfisins, hinna kjörnu pólitísku fulltrúa. Enda eiga þeir allir að víkja úr lykilstöðum, slík voru mistökin sem gerð voru og mikilvægt að tekið væri á því. Er enginn munur í sjálfu sér hvort að það væru embættismenn eða kjörnir fulltrúar. Niðurstaða REI-málsins er giska einföld og afgerandi hvað það varðar.

Í REI-málinu var sérstaklega alvarlegt að borgarfulltrúar voru ekki upplýstir um hvað var að gerast í Orkuveitunni, í fyrirtæki sem er rekið af borginni sjálfri. Enda varð ljóst að þarna væri uppi sama verklag og var í valdatíð Alfreðs Þorsteinssonar, nú haldið áfram undir stjórn Sjálfstæðisflokksins, hlutirnir voru illa kynntir meira að segja fyrir borgarfulltrúum meirihlutans og minnihlutinn var í kuldanum. Þetta var afleitt verklag.

Brotthvarf Guðmundar leiðir til þess að spurningin um pólitísk örlög Vilhjálms verði æ háværari. Hann er auðvitað stórlega skaddaður. Staða hans sem leiðtoga hefur gufað að verulega miklu leyti upp. Eftir tólf ára minnihlutasetu Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn var með ólíkindum hversu illa hann stóð sig einkum í REI-málinu. Enda tel ég að enginn geri ráð fyrir því að hann verði borgarstjóri aftur, hafi ekki stöðu í það.

Vilhjálmur hefur misst stuðning og traust samherja sinna, þó einhver sátt að nafninu til hafi náðst. Eftir eru brestir sem erfitt er að sparsla í, nema þá bara fyrsta kastið á eftir. Nú þegar að Guðmundur yfirgefur skipið er spurt um stöðu Vilhjálms Þ, þess hins eina sem enn situr með umtalsverð völd af þeim sem mótuðu málið sem fór svo arfavitlausa leið.

mbl.is Guðmundur hættir hjá OR og REY
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skjálftadagurinn mikli á Suðurlandi

Skemmdir í skjálftanum Þetta var dagur hinna stóru tíðinda á Suðurlandi í gær. Eðlilega er fólk í losti á þessu svæði eftir hinn mikla Suðurlandsskjálfta. Innbú fólks á svæðinu, sérstaklega á Selfossi og í Hveragerði, er illa farið og tekur sinn tíma að ná áttum eftir svo mikið áfall, sem hefur svo mikil áhrif. Var alveg sláandi að sjá skemmdirnar í húsunum í fréttatímum kvöldsins.

Ólafur Ragnar og Dorrit voru til fyrirmyndar í að fara á svæðið og tala við fólkið. Eitt veigamesta hlutverk þjóðhöfðingja er að hugsa um fólkið og tala til þess, láta sér annt um það og sýna því hlýhug. Það gerðu forsetahjónin í gærkvöld og mér fannst þau standa sig vel í því að fara strax á svæðið og sýna nærveru sína svo skömmu eftir jarðskjálftana. Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra, og Geir Haarde, forsætisráðherra, stóðu sig líka vel í viðbrögðum sínum við náttúruhamförunum.

Sá viðtalið þegar að Sigmar Guðmundsson labbaði með Kjartani Ólafssyni, alþingismanni, um heimili hans á Selfossi. Þar var fátt ef nokkuð heillegt og allt á rúi og stúi og gott dæmi um það hversu mikið skemmdist af innanstokksmunum og persónulegum hlutum fólks. Erfitt að ímynda sér hversu mikið áfall það sé í raun og veru að koma að heimili sínu svona og er áfall út af fyrir sig, burtséð frá því sjokki að upplifa náttúruhamfarir. Getur enginn sett sig í þau spor nema þeir sem upplifa það.

Mér fannst Ríkissjónvarpið standa sig frábærlega í útsendingu sinni á áttunda tímanum í gærkvöld og færa okkur atburðarásina og stöðuna á svæðinu vandað og yfirvegað mitt í öllum þeim hamagangi og geðshræringu sem óhjákvæmilega fylgir þessu. Stórt hrós til þeirra á Sjónvarpinu. Vona svo að fólkið á Suðurlandi nái að byggja sitt upp aftur fljótt og vel og jafna sig á þessu áfalli.

mbl.is Ingólfsskáli eyðilagðist
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 30. maí 2008

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband