31.5.2008 | 21:35
Sjálfstæðisflokkurinn í Reykjavík er rúinn trausti

Fylgishrunið er auðvitað afgerandi merki þess að kjósendur flokksins sætta sig ekki við forystuleysið og vandræðaganginn sem einkennir stærsta flokk borgarmálanna á kjörtímabilinu. Núverandi meirihluti hefur þar að auki staðið sig illa og er réttilega að fá falleinkunn. Eftir REI-málið og vandræðaganginn í febrúar sem náði hámarki með klaufalegasta blaðamannafundi íslenskrar fjölmiðla- og stjórnmálasögu er borgarstjórnarflokkur Sjálfstæðisflokksins í alvarlegum vandræðum og fylgismæling Gallups eru afgerandi skilaboð til flokksmanna í borginni og um land allt að taka af skarið og krefjast þess að þar verði unnið úr málum og tekið á vandanum.
Þetta fylgishrun eru sterk skilaboð sem verður að taka mjög alvarlega, einkum meðal flokksmanna í hverfisfélögum Sjálfstæðisflokksins. Þetta er áfall sem verður að vinna sig úr, ekki aðeins í lokuðum herbergjum í Valhöll heldur með fundum í flokksfélögum í borginni. Þetta mesta fylgishrun flokksins frá því á vordögum 1994 í aðdraganda afsagnar Markúsar Arnar Antonssonar, þáverandi borgarstjóra, er tíðindi sem eru grafalvarleg fyrir flokkinn. Þetta eru mælingar sem ekki er hægtað sætta sig við og því algjörlega með ólíkindum að ekki hafi verið tekið af málum af forystu flokksins. Hún hefur sofið allt of lengi þetta mál af sér.
Ef ekki verður tekið á málum mjög fljótlega og línur skýrðar með vali nýs leiðtoga og borgarstjóra að ári er Sjálfstæðisflokkurinn dæmdur til þess að stefna í mikið og sögulegt afhroð í næstu kosningum. Ekki er viðunandi að flokkurinn mælist með svo lítið fylgi og andstæðingar hans með meirihlutafylgi, þar af Samfylkingin ein flokka með meirihluta. Þetta sýnir vel að tryggir kjósendur Sjálfstæðisflokksins eru unnvörpum að snúa baki við flokknum og horfa þeir helst til Samfylkingarinnar til að finna nýja kjölfestu í borgarmálunum. Þetta er þróun sem verður að snúa við. En fyrst verða menn að vakna.
Við öllum blasir að Sjálfstæðisflokknum í Reykjavík hefur mistekist að taka völdin af ábyrgð og krafti eftir tólf ára minnihlutasetu undir forystu Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar. Hann á að axla ábyrgð á glataðri forystu sinni og víkja sem fyrst, ella eiga menn sem hafa til þess völd að leiða hann af velli. Nú verður að fara að sýna myndugleik og snúa hinu tapaða spili og afglöpum sem orðið hafa á vakt flokksins við í tækifæri. Verði ekki snúið vörn í sókn erum við hér að stefna í mesta afhroð flokksins í höfuðvígi hans.
Kominn er tími til að forysta Sjálfstæðisflokksins í höfuðvígi hans á landsvísu verði að fara að sýna myndugleik og taka á slæmri stöðu flokksins í borgarmálunum, ella taka ábyrgð á henni. Þetta er skrípaleikur sem flokksmenn á landsvísu sitja ekki þegjandi undir.
![]() |
Fylgi D-lista aldrei minna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
31.5.2008 | 14:40
Sorglegt slys
Þó að myndbrotið segi vissulega meira en mörg orð um hversu alvarlegt slysið var og hversu aðstæður voru erfiðar er vafamál hvaða tilgangi slík myndbirting þjóni. Hef ég aldrei verið hlynntur myndbirtingum af slysavettvangi og á það jafnt við í þessu máli sem öðrum.
Alltaf er sorglegt að heyra fréttir af svona slysi og mest um vert að senda hlýjar hugsanir til aðstandenda.
![]() |
Drengurinn alvarlega slasaður |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
31.5.2008 | 00:53
Snarpir eftirskjálftar - jörð skelfur fyrir sunnan
Myndirnar úr öryggismyndavélunum sem opinberaðar voru í dag eru sérstaklega áhugaverðar, en þar sést best hversu öflugir skjálftarnir tveir um fjögurleytið í gær voru en myndirnar úr verslunum sýna vel stöðu mála. Myndirnar af ísbílnum við bensínstöðina voru líka ansi magnaðar og eiginlega merkileg heimild um hversu mikið gekk á. Enda eðlilegt að fólk sé hreinlega í losti eftir þessa lífsreynslu og hafi hikað við að sofa heima hjá sér í nótt. Þvílík læti, það tekur sinn tíma að jafna sig á því.
Við hér í Eyjafirði þekkjum sannarlega vel þá tilfinningu sem þeir á Suðurlandi finna fyrir. Búum hér á miklu jarðskjálftasvæði og gætum hvenær sem er eiginlega upplifað hið sama og gengur nú yfir fyrir sunnan. Fundið marga skjálfta í seinni tíð þó enginn jafnist á við Dalvíkur- og Kópaskersskjálftana 1934 og 1976, auk skjálftans mikla 1963. Hef mikið stúderað Dalvíkurskjálftann, enda stór partur af sögunni okkar hér og sýnir okkur vel á hverju við getum átt von hér í firðinum.
En já, vonandi fer nú að róast yfir fyrir sunnan. Þetta er komið gott af hristingi.
![]() |
Snarpir eftirskjálftar í kvöld |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
31.5.2008 | 00:10
Rótarý-félagar hittast á Akureyri
Í dag sat ég formót Rótarý-hreyfingarinnar í Brekkuskóla hér á Akureyri, þar sem ég er verðandi ritari í mínum klúbbi. Eftir hádegið hófst svo umdæmisþingið og það mun halda áfram aftur á morgun. Þingið er haldið nú hér þar sem fráfarandi umdæmisstjóri Rótarý, Pétur Bjarnason, er í Rótarýklúbbi Akureyrar.
Ekki er nema rúmt ár síðan að ég gekk í Rótarý, hefur bæði verið gagnlegt og gaman að taka þátt í verkum þar. Nú tek ég svo við trúnaðarstörfum fyrir klúbbinn. Hef verið lengi í félagsstörfum af ýmsu tagi og verður bæði áhugavert og spennandi að taka þátt í þessu. Þetta er mjög góður félagsskapur.
Á fundi fyrir okkur verðandi ritara var farið yfir mörg spennandi verkefni sem verða á næsta starfsári og ekki laust við að við sem sátum fundinn teljum hlutverk okkar veigamest í félagsstarfi klúbbanna, enda mjög mikið, einskonar tengiliður félagsmanna við umdæmið hérlendis og margt sem fylgir því.
Var gaman að hitta góða félaga, einkum verðandi ritara, en meðal þeirra er Siv Friðleifsdóttir, alþingismaður og fyrrum heilbrigðis- og umhverfisráðherra. Var gaman að ræða um blogg og pólitík við Siv yfir kaffibolla í dag. Segir hún vel frá þingstörfum í dag á vefsíðu sinni og birtir myndir.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)