Umdeild pólitísk ráðning Jakobs Frímanns

Jakob Frímann MagnússonMér finnst það á gráu svæði að Jakob Frímann Magnússon, sem formaður í nefnd á vegum Reykjavíkurborgar, sé á sama tíma verkefnaráðinn til sama stjórnvalds án auglýsingar. Launakjörin, sem eru mjög rífleg, ofan á nefndakjörin, vekja að sjálfsögðu fleiri spurningar. Finnst þetta í sjálfu sér ekki hótinu betra en þegar umdeilt varð að Óskar Bergsson væri verkefnaráðinn til Faxaflóahafna á sama tíma og hann var formaður framkvæmdaráðs.

Finnst eðlilegt að spurt sé hvoru megin við borðið Jakob Frímann sitji. Þó að hann hafi ekki setið á framboðslista í síðustu borgarstjórnarkosningum og hafi örlítið aðra stöðu en Óskar Bergsson hvað það varðar er ekki deilt um að hann gegnir nefndastörfum fyrir borgina og er pólitískur fulltrúi í nefndakerfinu, maður sem situr í skjóli borgarstjórans í Reykjavík. Í ljósi þess verður ráðning hans mjög sérstök og eðlilegt að hún sé umdeild.

Samkvæmt fréttum síðdegis hefur Jakob Frímann hærri laun sem verkefnaráðinn yfirmaður miðborgarmála og formaður í borgarnefnd en kjörnir pólitískir fulltrúar, óbreyttir borgarfulltrúar. Á það kannski að vera þannig að Jakob Frímann eigi sem formaður hverfisráðsins að hafa eftirlit með verkum sem hann gerir sjálfur sem verkefnatengdur starfsmaður. Held að það sé mjög á gráu svæði.

Í ljósi stöðu Jakobs Frímanns verður ekki betur séð en að hann sé pólitískt valinn fulltrúi til starfa og það ráði úrslitum um valið á honum í stöðuna. Eðlilegast væri í stöðunni að Jakob Frímann gegndi öðru starfinu en segði sig frá hinu. Nema þá að telja eigi fólki trú um að hann eigi að hafa eftirlit með sjálfum sér.


mbl.is Gengið frá ráðningu Jakobs Frímanns
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bankaræninginn er íshokkíáhugamaður

BankaræninginnEnn er ekki búið að finna bankaræningjann, en margar vísbendingar borist um hann skv. fréttum. Eitt er þó vitað um hann með vissu. Þar fer þó greinilega íshokkíáhugamaður, ef marka má klæðaburðinn. Enda var hann klæddur í hettupeysu merktri bandaríska íshokkíliðinu Pittsburgh Penguins.

Eitthvað vita þeir þó allavega og vonandi færast þeir nærri lausn. Hvað ætli það séu margir sérstakir áhugamenn um Pittsburgh Penguins á höfuðborgarsvæðinu? Ekki nema von að spurt sé. Nema þá að þetta hafi bara verið gervi?


mbl.is Ræninginn ófundinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Myndir af bankaræningjanum í Hafnarfirði

Bankaræninginn í Hafnarfirði

Þá er lögreglan búin að birta myndir af bankaræningjanum í Hafnarfirði í morgun. Vonandi mun verða hægt að rekja slóð hans með því, enda sést nokkuð vel framan í ræningjann, þó neðri hluti andlitsins sé hulinn með klúti. Þó ræninginn hafi ekki hafi náð að komast undan með háar peningaupphæðir er mikilvægt að birta þessar myndir og upplýsa málið.

Þeir sem kannast við manninn ættu að hringja í Lögguna í númerið 444-1111.

mbl.is Myndir birtar af bankaræningja
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bankarán í Hafnarfirði

Bankaútibúið í Bæjarhrauni Jæja, þá er búið að ræna enn eitt bankaútibúið og leitað að ræningjanum, sem komst undan með einhverja peninga. Aðeins eru liðnir rúmlega þrír mánuðir síðan að Glitnisútibúið í Lækjargötu var rænt á álíka rólegum morgni á virkum degi. Eflaust verður þess minnst fyrir lélega skipulagningu ræningjanna, en þeir voru handteknir eftir brúnkumeðferð í Garðabænum, eins og frægt er orðið.

Þetta minnir mun frekar á erlendan veruleika í kvikmyndunum en það sem gerist í okkar litla og rólega samfélagi. En samhliða öllum verslunarránunum í skjóli nætur má eiga von á því að skipulögð séu stærri rán þar sem reynt er að ná slatta af peningum. Vonandi mun ganga vel að finna þennan ræningja.

mbl.is Leitað að bankaræningja
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Veik staða Hillary - Obama að ná útnefningunni

Hillary Rodham Clinton Hillary Rodham Clinton náði ekki eins öruggum sigri í Indiana og fyrst benti til um miðnætti að íslenskum tíma í gærkvöldi - sigraði aðeins með um 17.000 atkvæða mun, sem er of naumt fyrir hana í ljósi afgerandi sigurs Barack Obama í Norður-Karólínu. Munurinn á milli þeirra í þingfulltrúafjölda jókst því og orðið æ augljósara að Obama verði forsetaframbjóðandi demókrata í nóvember.

Stór þáttaskil, Hillary í vil, verða því æ ólíklegri í þessari stöðu og eiginlega erfitt að finna rök fyrir því að ofurfulltrúar styðji Hillary. Eins og staðan er nú virðist taflið það erfitt fyrir Hillary að vonlítið er að halda áfram til að stefna allavega að sigri. Til þess að hafa alvöru rök í áframhaldandi kostnaðarsama baráttu hefði Hillary þurft að sigra í Indiana með þeim mun sem var í upphafi talningar og ná að koma í veg fyrir að Obama næði meira en tíu prósenta sigri yfir henni í Norður-Karólínu.

Kalt mat er því augljóslega þannig að Hillary hafi ekki lengur neitt til að berjast fyrir, þó vissulega vanti Obama enn um 200 þingfulltrúa til að geta náð útnefningunni. Fáir þingfulltrúar eru eftir í forkosningabaráttunni og erfitt að sannfæra ofurfulltrúana um að Obama verði stöðvaður úr þessu; hann hefur allt í senn sigrað í mun fleiri fylkjum, fleiri atkvæði á bakvið sig og fleiri þingfulltrúa.

Fannst merkilegt að sjá stemmninguna þegar að Hillary ávarpaði stuðningsmenn í Indianapolis í nótt. Það var áður en lokatölur í Indiana lágu fyrir og á þeirri stundu minnkaði munurinn á milli þeirra sífellt. Hillary hélt þrumandi ræðu, en þó mun lágstemmdari en hún hefur oft verið. Að baki henni voru feðginin Bill og Chelsea augljóslega nokkuð niðurdregin og reyndu að brosa í gegnum þau svipbrigði að þau væru að fagna einhverju sem væri utan seilingar. Þannig er stemmningin hjá Hillary.

Hún getur haldið áfram en tilganginn til þess vantar augljóslega. Hillary virðist hafa aflýst viðtölum morgunsins og er að fara yfir stöðuna. Kalt mat á stöðunni er sú að Obama er kominn með aðra hendina á hnossið mikla, sem barist hefur verið um síðustu 15 mánuði. Hillary mistókst að höggva skarð í forskot Obama í nótt, þrátt fyrir að ná vissulega merkilegum sigri í Indiana. Hann var þó of tæpur og frekari barátta verður flokknum erfið.

Hillary og Bill hafa kunnað jafnan á tímasetningar. Tap hefur þó ekki þekkst í þeirra orðabók og þau hafa ekki verið þekkt fyrir að leggja árar í bát. Staðan nú er þó orðin það erfið að væntanlega verður það valkosturinn fyrr en síðar, einkum til að Hillary geti átt líf í pólitík handan þessa harðvítuga og kostnaðarsama forkosningaslags.

mbl.is Obama hefur yfirhöndina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hillary sigrar í Indiana og Obama í N-Karólínu

Hillary Rodham Clinton og Barack Obama Við blasir nú að Hillary Rodham Clinton og Barack Obama náðu bæði að sigra sannfærandi í forkosningunum í dag, hún í Indiana en hann í Norður-Karólínu, í takt við nýjustu kannanir í þessum síðustu stóru hnossum í forkosningaslagnum. Engin endanleg niðurstaða fæst því í dag og baráttan mun standa allt til loka þann 3. júní nk. 

Norður-Karólína er of mikið blökkumannaríki til að það geti orðið lokapunktur baráttunnar úr þessu. Hefði Obama sigrað í Indiana hefði hann getað náð þar hinum afgerandi lokapunkti í baráttunni við Hillary og sagt með sannfærandi hætti við ofurfulltrúa að hann hefði yfirhöndina í slagnum, sem sumir eru eðlilega farnir að kalla söguna endalausu. Þau hafa bæði sterka stöðu til að taka slaginn alla leið.

Hillary þurfti að sigra í Indiana til að halda lífi í baráttu sinni og henni tókst það með sínu trausta alþýðufylgi og með traustum stuðningi Evan Bayh, öldungadeildarþingmanns þar. Enn hefur henni tekist að bjarga framboði sínu frá endalokunum margumtöluðu og enn tekst Obama ekki að ljúka forkosningaslagnum. Ekki mun það takast úr þessu. Nú fer fókusinn úr þeim hluta baráttunnar til ofurfulltrúanna. Ljóst hefur verið um nokkuð skeið að þeir ráði úrslitum, fyrst að Michigan og Flórída gildi ekki í lokaútkomunni. Enn er óvissan yfir í baráttunni

Þetta hefur verið mjög langur kosningaslagur og sem dæmi má nefna að Indiana skiptir nú í fyrsta skipti einhverju máli í heildarmyndinni frá því að Robert F. Kennedy sigraði þar í forkosningum í maí 1968, mörgum að óvörum, eftir að hafa verið undir og náð að lokum að sannfæra kjósendur í ríkinu. Sá sigur hafði mikil áhrif. Kennedy var myrtur mánuði síðar, að kvöldi dagsins sem hann sigraði í Kaliforníu, sem var einn glæsilegasti pólitíski sigur hans, og var kominn langleiðina að útnefningu flokksins.

Þó að forkosningaslagurinn haldi áfram er ekki mikið þar eftir í pottinum til að berjast um og því munu þau bæði reyna allt sem þau geta til að ná hylli ofurfulltrúanna sem ekki hafa tekið afstöðu. Er allt kemur til alls að loknum löngum slag ráða þeir hver verði forsetaframbjóðandi en ekki þeir sem hafa kosið í öllum þessum forkosningum, eins kómískt og það kann að hljóma.

mbl.is Obama sigraði í N-Karólínu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 7. maí 2008

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband