George Clooney vill ekki hafa brjóstin of stór

George Clooney Leikarinn George Clooney hefur aldrei verið feiminn við að stuða allhressilega. Nú segist hann hafa hætt með kærustunni vegna þess að hún talaði of mikið fyrir hans smekk og lét stækka á sér brjóstin. Flestum er í fersku minni þegar Clooney gerði femínista á alþjóðavísu snarkillar með ummælum sínum um að hann vildi ættleiða unga og forríka stelpu (bætti við að hún þyrfti þó að vera falleg) sem myndi sjá fyrir sér þegar að líða tæki á ferilinn. Femínistar blótuðu honum í sand og ösku.

George Clooney hefur verið hjartaknúsari kvikmyndaheimsins í áraraðir og heillaði fyrst konur heimsins með leik sínum í Bráðavaktinni, ER. Sannkallaður kvennaljómi alla tíð, en hann hefur svarið sig í Clooney-ættina með að láta allt flakka og hika ekki við að stuða, minnir að mörgu leyti á föður sinn Nick og föðursystur, Rosemary Clooney, sem var fræg leik- og söngkona á gullaldarárum Hollywood. Bæði voru ekki beint þekkt fyrir að mjúkmál og fannst fátt skemmtilegra en láta á sér bera og tala án hiks.

Clooney hefur verið farsæll leikari og síðustu árin ennfremur sýnt snilldartakta sem leikstjóri. Hann hlaut óskarinn fyrir rúmum tveim árum fyrir túlkun sína á CIA-leyniþjónustumanninum Bob Barnes í pólitísku fléttumyndinni Syriana. Þar fór hann algjörlega á kostum. Við sömu athöfn var hann tilnefndur fyrir leikstjórn í Good Night, and Good Luck, en tapaði fyrir Ang Lee sem hlaut verðlaunin fyrir Brokeback Mountain. Hefði þó frekar viljað að hann fengi óskarinn fyrir túlkun sína á Michael Clayton í samnefndri stórmynd.

En já, Clooney verður varla eftirlæti femínistanna eftir þetta.... eða hvað. Eða hvað finnst konum annars um þetta mat Clooney á kærustunni?


mbl.is Hætti með Söru vegna brjóstastækkunar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Enn eitt stóra fíkniefnamálið fyrir austan

Fíkniefni Þegar upp komst um fíkniefnamálið á Fáskrúðsfirði í september á síðasta ári var talað um metmál, hið stærsta til þessa. Nú er það toppað með hinu stóra fíkniefnamáli í Norrænu þar sem 150-200 kíló fundust í húsbíl hollensks ferðamanns, sem greinilega var ekki bara á ferðalagi. Götuvirðið mun vera á bilinu 315 til 420 milljónir króna.

Eflaust einhver merkileg saga þarna á bakvið. Þeir fyrir austan eru orðnir vanir svona stórum málum, Fáskrúðsfjarðarmálið fyrir ári og líkfundarmálið fyrir fjórum árum voru mikið í fréttum. Þetta sýnir okkur mjög vel hversu dópvandinn er mikill, sem við er að eiga. Mikilvægast er að góð gæsla sé og fylgst vel með og tekið á málum af þessu tagi.

Stóra spurningin sem yfirvöld fyrir austan verða að svara er hver sé saga þessa hollenska ferðamanns með þennan farangur - nú þegar er ljóst að þetta er frægur smyglari og fróðlegt að vita hverjir séu vitorðsmenn hans. Hrósa þeim fyrir austan hversu vel þeir stóðu sig í þessu máli, að koma upp um dópsmyglið.

mbl.is Ekki tilviljun að hass fannst
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mun þjóðkirkjan færa sig nær samkynhneigðum?

Herra Karl Sigurbjörnsson Ekki leikur vafi á því að deilurnar um staðfesta samvist samkynhneigðra hefur verið helsta deilumálið innan þjóðkirkjunnar á síðustu árum. Nú hefur Alþingi sett afgerandi lög í þeim efnum og þar með markað þjóðkirkjunni nýjar reglur á komandi árum. Við það verður að una og greinilegt er að Karl Sigurbjörnsson, biskup Íslands, talar með þeim hætti að reyna að horfa fram á veginn en ekki aftur. Er hann greinilega að reyna að róa þá sem mest hafa verið á móti málinu.

Eðlilega hafa deilur verið um málið, enda heitar skoðanir með og á móti. Flestir muna jú eftir átökum um málið á fundi presta á Húsavík á sínum tíma, þar sem séra Óskar Hafsteinn Óskarsson, prestur hér í Akureyrarkirkju, og fleiri prestar lögðu fram umdeilda tillögu. Auk þess deildu prestar harkalega á prestaþingum þá og síðar. Nú hefur löggjafarþingið tekið af skarið, stjórnmálamenn hafa talað, og mikilvægt er að deilum um málið linni og ekki horft til fortíðarinnar.

Sá reyndar athyglisverða frétt um prestastefnuna í kvöld. Þar sást að Svarthöfði úr Stjörnustríði gekk á eftir prestum og biskupi til Dómkirkjunnar við setninguna í dag. Eflaust er þar einhver táknrænn gjörningur til að minna á deilumálið um staðfesta samvist og hversu margir innan kirkjunnar hafa verið á móti þeim ákvörðunum sem teknar hafa verið.

Fréttamaðurinn sem tók saman fréttina var Guðfinnur Sigurvinsson. Hann skrifaði í mörg ár greinar á Deigluna. Ein þeirra eftirminnilegustu voru bein greinaskrif hans til biskups vegna málefna samkynhneigðra, en eins og flestir vita er Guffi samkynhneigður og augljóslega málið honum mikilvægt. Minni á þessa grein.

Stóra spurning næstu ára verður hvernig þjóðkirkjunni muni ganga að aðlaga sig breyttum tímum og ákvörðunum stjórnmálamanna um breytingar á lögum um staðfesta samvist sem opna dyrnar fyrir samkynhneigða að kirkjunni með áberandi hætti. Enn er þó spurt hvort kirkjan færi sig nær þeim breytingum með opnum huga.

mbl.is Eitt erfiðasta deilumál kirkju og samfélags til lykta leitt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 11. júní 2008

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband