Tjaldsvæðabaráttan heldur áfram - flott hjá SUS!

Tjaldsvæði Ég er mjög ánægður með að Samband ungra sjálfstæðismanna ætlar að fylgjast vel með þeim sveitarfélögum sem ætla að banna sjálfráða fólki að tjalda. Mér finnst það afleitt þegar að yfirvöld vilja meina sjálfráða fólki að tjalda á stórhátíðum á þeirri forsendu einni að kannski minnki fylleríið og ástandið verði betra með því. Eitt er að banna ólögráða ungmennum að gista á tjaldsvæðunum en þetta er mun verra.

Fyrir ári gagnrýndi ég mjög sambærilega ákvörðun bæjaryfirvalda hér á Akureyri, en hún varð mjög umdeild og ég er enn sannfærður um að þar hafi feilspor verið stigið sem ekki var þeim til frægðarauka og var illa að því staðið að öllu leyti. Ég hef hvergi á nokkrum vettvangi sem ég hef fylgst með og heyrt rökstuðninga með og á móti þessum fáránlegu aldurstakmörkum heyrt þeirri spurningu svarað af hverju mörkin voru sett við 23 ára aldur. Af hverju ekki 22 ára, nú eða 24 ára, eða kannski 25 ára? Talan er beinlínis fáránleg.

SUS hefur allt frá sambandsþinginu á Seyðisfirði síðasta haust minnt á afstöðu sína með áberandi hætti. Þá var harðorð ályktun gegn ákvörðun Sigrúnar Bjarkar Jakobsdóttur, bæjarstjóra hér á Akureyri, samþykkt, skömmu eftir hátíðina um verslunarmannahelgina. Mikilvægt er að hún og bæjaryfirvöld séu minnt á afstöðu SUS til málsins aftur nú. Enda mikilvægt að gera það, þar sem styttist í verslunarmannahelgina að þessu sinni og enn ekki verið ákveðið hvernig staðið verður að málum að þessu sinni.

Mikla athygli vekur að öll sveitarfélögin; Akureyri, Akranes og Eyjafjarðarsveit, eru undir forystu Sjálfstæðisflokksins og bæjar- og sveitarstjórar þar allir flokksbundnir í Sjálfstæðisflokknum. Þess þá meiri ástæða er til þess að SUS sendi þeim harðort bréf og minni þá á stefnu þess flokks sem þau eru sjálf öll í.

mbl.is SUS mótmælir aldurstakmarki á útihátíðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Geir sakar fréttamann um að sýna dónaskap

Sindri og Geir Geir H. Haarde, forsætisráðherra, sakaði Sindra Sindrason, fréttamann Markaðarins á Stöð 2, um dónaskap þegar hann var inntur eftir aðgerðum stjórnvalda í efnahagsmálum. Reyndi Sindri að fá viðbrögð og elti Geir inn í Stjórnarráðshúsið en fékk þessa orðaleppa frá forsætisráðherranum í staðinn þegar spurt var eðlilegra spurninga.

Mér finnst eðlilegt að spyrja sig að því hvers vegna forsætisráðherrann geti ekki svarað eðlilegum spurningum um efnahagsmál þegar eftir því er leitað og auk þess sýnt almennilega kurteisi. Mér fannst svör forsætisráðherrans ekki viðeigandi og spyr mig að því hvers vegna spurningum er ekki bara svarað. Þessi mál eru þess eðlis að allir spyrja sig að því hvað gera eigi og hvað stjórnvöld ætli sér að gera í stöðunni.

Að saka fréttamann sem vill aðeins heiðarleg svör frá þeim sem stjórna landinu um dónaskap er ekki til sóma.

Hér á eftir fara samskipti þeirra:

Sindri: „Jæja, hvar eru peningarnir sem eiga að komast inn í landið?"
Geir: „Á þetta að vera viðtal?
Sindri: „Já, ég myndi vilja heyra aðeins um þetta..."
Geir: „Þú verður að hafa samband fyrir fram."
Sindri: Geir, þjóðin náttúrlega bíður eftir einhverjum aðgerðum frá ríkisstjórninni. Geturðu ekki gefið okkur smá komment?"
Geir: „Ég vildi gjarnan gera það, Sindri, ef þú hagaðir þér ekki svona dónalega."


Nígeríusvindlið blómstrar - óþolandi sendingar

Ég hef heyrt nokkrar sögur af þessu Nígeríusvindli á gmail, þar sem fólk fékk þessa tegund af svikamyllunni senda til sín en slapp við að fá þetta sent til mín sem betur fer. Alltaf er leiðinlegt að heyra um þessa vírusa og þessi Nígeríuskilaboð. Er fátt ömurlegra en þessi bréf þar sem einhverjir skrifa fyrir hönd fallinna afrískra þjóðarleiðtoga og biðja um aðstoð í peningaformi og redda eigi hinum og þessum.

Merkilegast í þessu er að enn falla sumir flatir fyrir þessu rugli. Ekki er langt síðan að það þurfti að vara sérstaklega við Nígeríusvindlinu hér á Netmogganum, var þá varað við vefsíðum sem eru ekkert nema svikamylla í gegn, þar sem reynt er að ná peningum af fólki. Svo mikið hefur heyrst af svona svindli síðustu árin að stórundarlegt er að enn falli fólk fyrir þessu. Lottóskilaboðin að utan eru svo annar kapítuli.

Varla líður sá mánuður, stundum enn skemmra jafnvel, að maður fái ekki einhvers konar svona skilaboð um peningasvindl í tölvupósti. Ekki er hægt að taka mark á svo augljóslegri svikamyllu en vonandi eru allir meðvitaðir um að það er bara verið að hafa það að fífli með þessum póstsendingum.

Skilaboðin eru giska einföld; föllum ekki flöt fyrir peningasvindlinu. Vonandi nær Einar veðurfræðingur aftur yfirráðum yfir netfanginu sínu. Óskemmtileg lífsreynsla þetta.

mbl.is Ný tegund Nígeríusvindls herjar á netföng Gmail
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 13. júní 2008

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband