22.6.2008 | 16:23
Þrumandi veðurstuð
Fæ alltaf nettan hroll þegar talað er um þrumur og eldingar. Kannski er þetta bara kvikmyndaupplifun, en oftast nær er þetta veður notað til að undirstrika ógn eða kuldalegan kafla í kvikmyndum, kalla fram viðbrögð og netta hræðslu.
Eflaust eru þeir ekkert ógurlega hræddir við þetta veður fyrir sunnan en hristast yfir því í takt við skjálftakippina. Vonandi gengur þetta fljótt yfir.
Veðrið hér hefur verið lala í sumar. Ekkert spes svosem, aðallega gluggaveður að undanförnu. Vonandi mun Eyjólfur hressast í júlí.
![]() |
Þrumuveður gengur yfir landið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
22.6.2008 | 15:01
Fylgislækkun er áhyggjuefni fyrir Geir og Þorgerði

Sögusagnir eru um að samstarf stjórnarflokkanna sé erfitt og losaralegt. Á hverjum degi sjáum við merki þess að þar er mikill losarabragur - einkum af verklaginu, þar sem hver og einn þingmaður leikur lausum hala og erfitt að henda reiður á því hver segir og gerir það sem sett er á oddinn pólitískt. Hver þingmaður getur, vegna öflugs þingmeirihluta, tekið sólóspil á sínum taktfasta hraða og verið eigin herra í skoðunum og tali. Svipan er ekki á lofti og greinilegt að viss ólga kraumar undir pottinum og stundum hefur soðið allhressilega upp úr.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur verið lengi við völd, í rúm sautján ár, sem er sögulegur tími í forystu ríkisstjórnar. Varla er undrunarefni að fylgið rokki eitthvað til eftir svo langan tíma við völd. Í þeirri stöðu sem við blasir núna er spurt um trausta forystu, hver geti stýrt málum með ábyrgum hætti. Einn mesti styrkleiki Geirs H. Haarde sem stjórnmálamanns felst í því að hann hefur haft áru leiðtogans sem virkar traustur og öflugur. Æ fleiri spurningar hafa þó vaknað í þeim efnum eftir farsann í borgarmálunum og vandann í efnahagsmálunum.
Svarið við þeim vanda er að taka á málum og sýna þá traustu forystu sem þjóðin þarf á að halda við erfiðar aðstæður. Við erum komin í óvissuástand þar sem mikilvægt er að traust fólk sé við stýrið. Verkefni forystu Sjálfstæðisflokksins er að standa undir nafni sem traustur flokkur í forystu, svipað og var á þeim tíma er Davíð Oddsson leiddi Sjálfstæðisflokkinn til sögulegra kosningasigra og traustrar forystu sem markaði hann sem sigursælasta stjórnmálamann Íslandssögunnar.
Nú eru greinilega aðrir tímar - spurt er hvort Sjálfstæðisflokkurinn og forystumenn taki á málum af ábyrgð og festu. Fyrir forystu Sjálfstæðisflokksins er mikilvægt að klára þetta kjörtímabil, leysa þau vandamál sem til staðar eru og sýna að hægt sé að vinna með Samfylkingunni. Óvissa er yfir hversu farsælt þetta stjórnarsamstarf verði og því verður óvissan meiri en ella og kjósendur sýna óánægju sína án hiks.
Kannski er til of mikils mælst að Sjálfstæðisflokkurinn sigli lygnan sjó ár eftir ár og finni ekki fyrir því - allir flokkar taka sínar dýfur, hæðir og lægðir. Ekki er þó til of mikils mælst að forysta Sjálfstæðisflokksins sé öflug og stýri traustu stjórnarsamstarfi og sýni okkur að hann leiði ríkisstjórn sem er samhent og öflug á örlagatímum.
![]() |
Fylgi Sjálfstæðisflokksins minnkar í könnun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
22.6.2008 | 03:19
Nærbuxnavandamál í heimspressunni
Aumingja konan. En kannski er betra að komast í fréttirnar fyrir þetta frekar en ekki neitt. Vonandi verður augað í lagi og auðvitað vona flestir að henni gangi betur að fara í nærbuxurnar framvegis.
![]() |
Nærbuxnaslys kært |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)