Spánverjar valta yfir Rússana

Silva og Fabregas fagna sigrinum Ekki var mikið um spennu í undanúrslitaleik Spánverja og Rússa á EM í kvöld. Spánverjar tóku Rússa í kennslustund um grunnatriði knattspyrnu, mörgum að óvörum, völtuðu algjörlega yfir þá og niðurlægðu þá. Ekki var vottur af baráttukrafti í Rússum og þeir fengu laglegan skell, sem flestir knattspyrnuáhugamenn áttu ekki von á eftir frábært gengi þeirra á mótinu.

Varla var að sjá að Rússar væru hungraðir í sigur, voru skugginn af liðinu sem valtaði yfir Hollendinga um síðustu helgi og virtust líklegir til að fara jafnvel alla leið. Í kvöld voru þeir lélegir og báru meiri virðingu fyrir Spánverjum en flestir áttu von á að þeir myndu sýna í svo mikilvægum leik. Niðurstaðan því háðugleg útreið fyrir Rússa og eflaust er bömmer í Rússlandi í kvöld.

Maðurinn sem stýrði yfirtökunni á Hollandi á laugardaginn, Arshavin, var tekinn úr umferð og var ekki mjög áberandi. Auk þess var greinilegt að Rússar voru ekki í stuði og því fengu þeir svo vondan skell.

Líst vel á úrslitaleikinn á sunnudag. Verður fínn lokapunktur á mótinu. Spánverjar hafa beðið lengi eftir sínu tækifæri og Þjóðverjar eiga harma að hefna eftir HM 2006. Bæði lið ættu því að mæta hungruð til leiks.

Fátt annað hægt að segja í lokin en Deutschland über alles! Grin

mbl.is Spánn mætir Þýskalandi í úrslitum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stelpurnar að brillera - farseðill á EM í sjónmáli

Úr leik Íslands og Grikklands Alveg var það yndislegt að sjá leikgleðina og kraftinn í íslenska kvennalandsliðinu þegar að þær tóku þær grísku í kennslustund í boltanum og sigruðu þær 7-0 í landsleiknum áðan. Liðið er í fyrsta klassa og er vonandi á leiðinni á EM í Finnlandi 2009. Þeim dugar nú bara jafntefli til að fá farseðilinn.

Ef þær halda áfram að spila eins og þær gerðu í kvöld er næsta víst að það mun takast. Fókusinn er nú á kvennalandsliðið mun frekar en karlaliðið, sem er heillum horfið og í tómum vandræðum. Nú flykkist fólk á völlinn til að sjá stelpurnar okkar, sem eru að uppskera flott. Loksins er kvennaboltinn að fá verðskuldaðan sess. Nú er hann í ljóma sigursældar og góðs árangurs.

Þeir dagar eru liðnir að litið sé á kvennaboltann sem minna spennandi en karlaboltann. Þetta er hið besta mál. Þetta er lið sem getur farið mjög langt - liðsheildin er öflug og landsmenn styðja stelpurnar 110%. Allt skiptir þetta máli - úr verður sigursæl blanda, sem varla getur klikkað. Það sjáum við vel á þessum fagra júnídegi.

mbl.is Yfirburðasigur á Grikkjum, 7:0
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nektarmynd af Dorrit - ný hlið á forsetafrúnni

Nektarmynd af Dorrit MoussaieffÍ gær sá þjóðin nýja hlið á forsetafrúnni Dorrit Moussaieff er nektarmynd af henni var opinberuð. Eftir allar formlegu myndirnar af forsetafrúnni er þetta skemmtileg viðbót, listræn og vel gerð mynd. Efast þó um að Dorrit hafi viljað opinbera myndina fyrir landsmönnum áður en íslenskum fornleifafræðingi tókst að grafa hana upp í gær.

Dorrit hefur greinilega farið úr hverri spjör til að vera nektarfyrirsæta fyrir vinkonu sína, listamanninn, einhvern tíma löngu áður en hana óraði fyrir að hún ætti eftir að enda sem forsetafrú á Íslandi, við hlið Ólafs Ragnars Grímssonar. Ekki verður allavega sagt hið sama um Kristin Styrkársson Proppé og Dorrit að þau geri allt fyrir frægðina nema að koma nakin fram. Enda sjá allir sem horfa á myndina að þarna hefur Dorrit setið nakin fyrir.

Þrátt fyrir að Dorrit Moussaieff hafi verið við hlið Ólafs Ragnars Grímssonar í tæpan áratug, fyrst sem framandi kona í matarboði á Bessastöðum sem enginn kannaðist við, síðar sem unnusta hans í þrjú ár og loks eiginkona og forsetafrú í fimm ár vita fáir hver Dorrit er á bakvið myndavélablossann og brosin á myndunum. Hún er enn framandi, viss leyndardómur fyrir þjóðina

Nakta konan á þessari mynd er allavega forsetafrúin okkar. Finnst stórmerkilegt að forsetaskrifstofan hafi ekki staðfest að þetta er Dorrit sem er nakin á þessari mynd. Eru þeir að reyna að afneita fréttinni eða hún gleymist. Væri gaman að vita hvaða vandræðalegheit felast í því hiki sem er á bakvið þá bið eftir staðfestingu um að nakta konan á myndinni sé konan í lífi forseta Íslands.

Eða er nektin kannski vandamál fyrir forsetaskrifstofuna og konuna á forsetavakt? Má vera, varla getum við þá átt von á að forsetinn sitji fyrir hjá listakonunni.

Þjóðverjar í úrslit - Tyrkir fara heim með sæmd

Philipp Lahm Mikið var það nú sætt að sjá Þjóðverja komast í úrslitin á EM í kvöld. Eftir tapið á heimavelli á HM 2006 vilja Þjóðverjar fara alla leið og vonandi munu þeir vinna mótið á sunnudaginn. Tyrkir fara þó heim með sæmd, þeir stóðu sig mjög vel á mótinu, hiklaust einn af senuþjófum mótsins - komust lengra en flestum óraði fyrir. Áttu góðan leik í kvöld og litlu munaði að þeim tækist að tryggja sér framlengingu.

Þvílíkur megapirringur að leikurinn datt út æ ofan í æ og aðeins hægt að sjá á svipbrigðum stuðningsmanna í Tyrklandi og Þýskalandi hvernig staða leiksins var - hvað væri eiginlega að gerast. Sérstaklega var biðin eftir sambandi við leikinn erfið á meðan tvö mörk komu undir lokin og menn voru að reyna að spá í svipbrigði fólksins hvað væri að gerast í leiknum. Svolítið sérstakt að horfa á leik þannig og eiginlega ekki beint áhugavert.

En þetta var fínn leikur og flott að sjá Þjóðverja í úrslitum. Þjóðhetjan Lahm tók þetta með trompi undir lokin og sendi Tyrkina heim með stæl. Hef haldið með þýska landsliðinu á knattspyrnustórmótum síðan ég man eftir og þetta mót engin undantekning þar á. Vonandi ná þeir að vinna Spánverja eða Rússa á sunnudag.

Rússar hafa verið að standa sig mjög vel og eru með sannkallað spútnikk-lið með Arshavin fremstan í flokki. Finnst líklegra að þeir komist í úrslitin. Verður spennandi fótboltakvöld á morgun.

mbl.is Þjóðverjar unnu Tyrki 3:2 og leika til úrslita
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 26. júní 2008

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband