Mistök hjá Þorgerði og Guðlaugi að sitja áfram

Æ betur sést hversu mikil mistök það voru hjá Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur og Guðlaug Þór Þórðarson að segja ekki af sér þegar kjörið tækifæri var til að efla stöðu Sjálfstæðisflokksins og stokka upp. Þau njóta ekki trúnaðar og verður sérstaklega erfitt fyrir Þorgerði Katrínu að snúa aftur á þing við þessar aðstæður og með þessa mælingu í farteskinu.

Guðlaugur og Þorgerður völdu frekar að láta eigin hagsmuni ráða för og hugsuðu ekki um heill og hag flokksins og umbjóðenda sinna. Þorgerður Katrín gerði rétt með að segja af sér varaformennsku en hefði átt að ganga alla leið. Hefði frekar átt að sækja sér nýtt umboð síðar, slíkt hefði litið betur út fyrir hana. Hún hefði getað komið aftur með hreint borð.

Sama gildir um Guðlaug Þór. Vilji landsfundar til hans var skýr og hann hefði átt að hlusta á hann - meðtaka skilaboðin. Þeir sem hunsa vilja landsfundar og kjósenda með þessum hætti eiga enn eftir að átta sig á stöðunni og eru ekki vel áttaðir. Því miður gildir það um þau bæði.

mbl.is Sáttir við Steinunni Valdísi en ósáttir með Þorgerði Katrínu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kristján fær ekki að opna Héðinsfjarðargöngin

Ansi er það nú kaldhæðnislegt að Kristján Möller skuli missa ráðherrastólinn korteri áður en Héðinsfjargöngin, í heimabyggð hans, verða tekin formlega í notkun. Þar ætlaði Kristján að vera hrókur alls fagnaðar og njóta mikillar sælustundar.

Enda segja kjaftasögurnar að hann sæki það mjög stíft að fá að halda stólnum til áramóta svo hann fái þann draum uppfylltan að vera samgönguráðherrann sem vígir Héðinsfjarðargöngin.

Sagan segir líka að Jóhanna Sigurðardóttir sé lítill aðdáandi Kristjáns og gráti lítt þá staðreynd að hann sé settur af rétt áður en hann hefði náð að vígja göngin á heimavelli.

Hvað ætli verði annars um Kristján, verður hann óbreyttur þingmaður eða er fléttan að hann taki við sem þingforseti? Varla verður hann hafður sem óbreyttur, eða hvað?


mbl.is Óvissa meðal ráðherra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 1. september 2010

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband