Mona Sahlin nýr krataleiðtogi í Svíþjóð

Mona Sahlin Það er nú ljóst að Mona Sahlin verður næsti leiðtogi sænska Jafnaðarmannaflokksins. Hún tekur við leiðtogahlutverkinu á flokksþingi í mars af Göran Persson sem var forsætisráðherra í áratug, 1996-2006, og flokksleiðtogi allan þann tíma. Sænskir kratar misstu völdin í október í fyrsta skipti í tólf ár, og eru nú að upplifa heim stjórnarandstöðunnar og eru greinilega að ganga í gegnum allsherjar uppstokkun. Það er nú ljóst að það verður verkefni Sahlin að endurreisa flokkinn til vegs og virðingar.

Mikil andstaða var lengi vel við að Sahlin yrði flokksleiðtogi og öflugur armur innan flokksins mátti ekki til þess hugsa að hún leiddi flokkinn eftir allt sem á undan var gengið. Hún var þó tilnefnd af valnefnd, sem vann að undirbúningi kjörsins, og enginn annar hefur lýst yfir áhuga sínum og nú ljóst að hún hreppir hnossið. Hennar bíður athyglisvert hlutskipti í forystunni. Mona var lengi vel talin líklegasti eftirmaður Ingvars Carlssons, en hann var eftirmaður Olof Palme sem leiðtogi kratanna, 1986-1996, og forsætisráðherra, 1986-1991 og 1994-1996.

Svo fór að vegna kreditkortahneykslis sem jafnan hefur verið kennt við Toblerone (er varð er Sahlin keypti m.a. Toblerone súkkulaði út á ráðherrakort sitt) varð Sahlin að segja af sér árið 1995 og hnossið féll fjármálaráðherranum Persson í skaut. Sahlin hefur lengi verið umdeild innan flokks og utan og skandalarnir hafa elt hana uppi lengi. Það verður nú hlutskipti hennar að reyna að endurreisa ímynd sína sem stjórnmálamanns og vinna flokki sínum fylgi og sigurmöguleika í kosningum eftir rúm þrjú ár. Það er mikið verkefni sem við henni blasir, enda ljóst að hneykslismál hennar eru ekki gleymd.

Dauði Önnu Lindh fyrir tæpum fjórum árum er enn stingandi fyrir Jafnaðamannaflokkinn. Eftir að hún var myrt með sorglegum hætti í september 2003 hefur enginn afgerandi eftirmaður Perssons blasað við. Anna Lindh var krónprinsessa flokksins og augljós eftirmaður eftir valdadaga Perssons er hún dó. Skarð hennar er enn til staðar innan flokksins. Sænsku spekingarnir töldu lengi vel Margot Wallström, kommissar hjá ESB og fyrrum ráðherra, vænlegasta en hún lýsti því nær um leið og Persson dró sig til baka eftir tap í þingkosningum að hún hefði engan áhuga á að leiða kratana í stjórnarandstöðu næstu þrjú árin.

Það mun mikið reyna á Sahlin nú sem leiðtoga sænsku stjórnarandstöðunnar. Maður hefði haldið að hún væri orðin frekar slitin sem stjórnmálamaður eftir sína skandala. En hún fær greinilega annan séns og krýningu innan flokksins til verka, þrátt fyrir margar afsagnir og vandræðaleg pólitísk mistök. Reyndar má segja að það að Sahlin verði flokksleiðtogi sé til marks um hversu mjög yfirgangur Perssons í flokknum hefur leitt til þess að leiðtogafátækt einkennir hann nú þegar að hann hrökklast sjálfur frá völdum.

mbl.is Mona Sahlin væntanlegur leiðtogi sænskra jafnaðarmanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Gott yfirlit.

Heimir Lárusson Fjeldsted, 18.1.2007 kl. 16:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband